Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • sími 581 2141 Silkipeysur - ullarpeysur Flauelsbuxurnar eru komnar Laugavegi 84 ● sími 551 0756 Einn splunkunýr Ford Mustang, Premium + aukahlutir, árgerð 2005. Verð áður 3.990 þús. Verð nú 3.500 þús. staðgreitt Upplýsingar í síma 864 1202 á kvöldin. SIGRÚN Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, seg- ir að í tillögum Samfylkingarinnar um úthlutun á byggingarétti fyrir íbúðarhúsnæði, sem lagðar voru fram í bæjarstjórn sl. þriðjudag, sé lagt til að ef tveir aðilar eða fleiri eru að loknu mati á umsóknum jafnir og uppfylla allir skilyrði fyrir úthlutun á byggingarétti, skuli skil- yrðislaust dregið um það hverjum verður gefinn kostur á lóð. Þessari tillögu hafi verið einróma vísað til umfjöllunar bæjarráðs. Fram kom í frétt Morgunblaðsins sl. föstudag um tillögur að úthlut- unarreglum sem meirihlutinn hefur lagt fram, að þar er lagt til að skil- yrðislaust skuli draga um hver fái lóð ef um tvo eða fleiri jafnhæfa að- ila sé að ræða. Tillögur meirihlut- ans voru lagðar fram í bæjarráði sl. fimmtudag en Sigrún bendir á að tillögur Samfylkingarinnar um breytingar í þessa veru hafi verið lagðar fram á þriðjudag og séu því frá þeim komnar en ekki meirihlut- anum. Bæjarfulltrúi Samfylk- ingar um úthlutunar- reglur í Kópavogi Tillaga um breytingar frá okkur komin Fréttir á SMS NÝ ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ Reykjavík- urborgar fyrir Miðborg og Hlíðar var opnuð að Skúlagötu 21, á laugardaginn. Það var Steinunn Valdís Óskarsdóttir sem opnaði miðstöðina og bauð af því tilefni íbúum Mið- borgar og Hlíða til fjölskylduhátíðar. Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er ein af sex þjónustumiðstöðvum í Reykjavík og jafnframt sú fyrsta sem opnuð er form- lega í þeirri endurskipulagningu þjónustu við borgarbúa sem nú stendur yfir. Mark- miðið með stofnun þjónustumiðstöðva er að gera þjónustu Reykjavíkurborgar aðgengi- legri fyrir íbúa, tryggja samþættingu í þjón- ustu og að efla hverfastarf og þátttöku íbúa í mótun og uppbyggingu hverfisins. Áhersla á sérþekkingu í fjölmenningu Meginverkefni þjónustumiðstöðva eru upplýsingaveita um þjónustu Reykjavík- urborgar, móttaka og afgreiðsla umsókna, félagsleg ráðgjöf, skóla- og sérfræðiþjón- usta, frístundamál, stuðningsþjónusta á heimilum og að stuðla að hverfastarfi. Allar þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar bera skilgreinda ábyrgð á sérverkefnum. Þjón- ustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er þekking- arstöð í fjölmenningu og margbreytileika og ræðst það hlutverk hennar m.a. af samsetn- ingu íbúa í hverfinu. Um 8% íbúa hverfisins eru með erlent ríkisfang. Með stofnun þekk- ingarstöðvarinnar er sérstök áhersla lögð á að viðhalda og þróa sérþekkingu í þessum málaflokki. Hlutverk þekkingarstöðva er að vera frumkvöðlar, hver á sínu sviði, bæði í þróun nýbreytni og vinnulags. Þá skulu þær gegna ráðgjafarhlutverki gagnvart öðrum þjón- ustumiðstöðvum og miðla þekkingu og upp- lýsingu til fagfólks annarra þjónustu- miðstöðva. Ennfremur er þeim ætlað að vera tengiliðir við fagstofnanir vegna stefnumót- unar og annarra verkefna af því tagi, auk þess að tengjast öðrum stofnunum og hags- munahópum vegna síns sérsviðs. „Við munum hafa að leiðarljósi fjölmenn- ingarstefnu Reykjavíkurborgar í starfi okk- ar sem felur m.a. í sér að stofnanir borg- arinnar tryggi að íbúar af erlendum uppruna geti nýtt sér þjónustu þeirra til fulls og að tekið sé sérstakt tillit til þarfa þessa íbúa. Felur það í sér að þeim sé m.a. tryggð túlka- þjónusta og upplýsingar á tungumáli sem er þeim aðgengilegt,“ segir Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar mið- borgar og Hlíða. „Sem þekkingarstöð í fjöl- menningu mun þjónustumiðstöðin verða leið- andi í útbreiðslu þekkingar á fjölmenningarsamfélaginu og veita ráðgjöf til annarra þjónustustofnanna borgarinnar.“ Móðurmálsþekking lykilatriði Í þekkingarstöðinni starfar fólk með yf- irgripsmikla þekkingu og reynslu af starfi við fjölmenningu, m.a. kennsluráðgjafar, fé- lagsráðgjafar, frístundaráðgjafar og fleiri. Þar er og verður bæði unnið að þróunarverk- efnum og veitt ráðgjöf til stofnana og skóla og starf þeirra stutt. „Mjög mikilvægt er að börn af erlendum uppruna fái móðurmáls- kennslu í sínu tungumáli og að þau nái góð- um tökum á íslensku,“ segir Hafdís. „Rann- sóknir hafa sýnt fram á að börn sem eru tvítyngd eða fjöltyngd, sama hvert móð- urmálið er, ná ekki góðum tökum á öðru tungumáli nema grunnurinn í móðurmáli þeirra sé góður. Þess vegna þarf að tryggja áframhaldandi kennslu í móðurmáli þeirra. Þetta þurfum við að vinna í samvinnu við leik- og grunnskóla og aðrar stofnanir á veg- um borgarinnar.“ Einnig er, að mati Hafdísar, mikilvægt að styrkja sjálfmynd barna og unglinga af er- lendum uppruna og stuðla að því að þau upp- lifi að þeirra menningarrætur séu mik- ilvægar og njóti virðingar í samfélaginu. „Leggja þarf áherslu á að menningin end- urspegli það fjölmenningarsamfélag sem við búum í og var lögð sérstök áhersla á að dag- skráratriði á opnunarhátíð þjónustu- miðstöðvarinnar endurspeglaði þá fjölmenn- ingu sem er í hverfinu,“ segir Hafdís. „Stemmingin var mjög fjölþjóðleg, íslenskir barnasöngvar, eldriborgarar sýndu línudans, tælenskur dans og Bollywood dans voru meðal fjölmörgu atriða á hátíðinni.“ Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar fyrir Miðborg og Hlíðar var opnuð á Skúlagötu 21 Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri spjallar við tvær konur klæddar þjóðlegum skrúða framandi menningar. Nutu gestir fjölbreyttra skemmtiatriða og veitinga. Morgunblaðið/Árni Sæberg Felix Bergsson söng fyrir börnin, sem kunnu vel að meta kátt fas hans. Boðskapur Felix um fjölbreytileika lífsins féll í frjóan svörð á opnunarhátíð þjónustumiðstöðvarinnar. Menningin endurspegli fjölmenningarsamfélagið Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.