Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NEW INSIGHTS INTO ADVERTISING ATTENTION AND EFFECTIVENESS NÁMSTEFNA SAU OG BIRTINGAHÚSSINS 8. SEPTEMBER LEAVING FOOTPRINTS IN THE MIND Hinn heimskunni hollenski fræðimaður Rik Pieters mun halda fyrirlestur á námstefnu SAU og Birtingahússins á Hótel Loftleiðum fim. 8. september. Rik Pieters er prófessor í markaðsfræðum og deildarforseti markaðsfræðideildar Tilburg háskóla í Hollandi. Meðal sérsviða hans eru mælingar á virkni auglýsinga en hann er í fremstu röð fræðimanna á sviði prentauglýsinga. Umfjöllunarefni námstefnunnar • Margt af því sem við teljum okkur vita um hvernig auglýsingar virka er rangt • Prentauglýsingar eru meðal áhrifaríkustu auglýsinga sem til eru - ef þær eru rétt gerðar! • Hver eiga stærðarhlutföll texta, mynda og vörumerkis í prentauglýsingum að vera? • Hvaða máli skipta verðtilboð í vikulegum tilboðsauglýsingum? • Hvaða máli skiptir frumleiki í auglýsingahönnun? • Hvaða máli skipta upplýsinga- og skemmtigildi í auglýsingum? • Hversu oft á að birta prentauglýsingar? • Hvernig á að forprófa og eftir á prófa prentauglýsingar? • Hvað er athugavert við íslenskar blaða- og tímaritaauglýsingar? Fyrir hverja? Námsstefnan er ætluð forstjórum/framkvæmdastjórum og æðstu yfirmönnum markaðsmála, starfsfólki auglýsingastofa, birtingahúsa, markaðsrannsóknafyrirtækja og prentmiðla. Skráning og fjöldi þátttakenda Skráning fer fram á sau@sau.is. Takmarkaður sætafjöldi. Verð kr. 19.900. Ráðstefnugögn og léttar veitingar innifalin í verði. JÓN Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Slysavarnafélagsins Lands- bjargar, segir að hamfarirnar í Bandaríkjunum og björgunarað- gerðir í kjölfar þeirra gefi íslenskum yfirvöldum og viðbragðsaðilum ærið tilefni til að gefa gaum að því hvern- ig brugðist yrði við meiriháttar hamförum á höf- uðborgarsvæð- inu. Engin við- bragðsáætlun vegna brottflutn- inga á fólki í tug- þúsundatali frá þéttbýlasta byggðarkjarnan- um er fyrir hendi. „Það er ekki til nein áætlun eða svar við því hvernig við myndum bregðast við stærstu hamförum á þéttbýlasta byggðarkjarnanum,“ segir Jón. „Það hefur kannski verið reynt að hugsa fyrir slíku að ein- hverju leyti en ekki prufuð nein áætlun í raun og veru.“ Jón segir viðbragðsaðila þó hafa stigið mjög mikilvæg skref til hins betra á undanförunum árum, t.d. með því að sameina aðila undir einu þaki samræmingarstjórnstöðvar í Skógarhlíð. Hjálparstarf hægt af stað „Það sem kemur manni á óvart varðandi fellibylinn Katrínu er hversu hægt hjálparstarf virðist hafa farið af stað. Það læðist að manni sá grunur að hlutirnir hafi þróast á þennan hátt vegna víðfeðms skrifræðis og stofnanakerfis í Bandaríkjunum. Í þessu ljósi tel ég að íslenskir viðbragðsaðilar hafi styrkt sig mjög með sameiningu allra aðila. Það eru ekki nema örfá ár síðan sex til sjö stjórnstöðvar voru starfandi hér og þar í borginni. Þegar eitthvað gerðist þurfti að samræma þessar stöðvar en það heyrir nú sögunni til, sem betur fer.“ Jón segir að nú sé verið að skipu- leggja viðbrögð við meiriháttar hamförum, t.d. Kötlugosi. „Ef gos verður í vestanverðum Mýrdalsjökli koma hlaupin niður Markarfljótið og það er verið að gera miklar rýming- aráætlanir þar að lútandi. Það er því margt sem hefur þróast til hins betra á sviði almannavarna- og björgunarmála hérlendis á allra síð- ustu árum. En á hinn bóginn leiða hamfarirnar í Bandaríkjunum hug- ann að því hvernig við erum í raun stödd gagnvart áþekkum stóráföll- um á höfuðborgarsvæðinu. Hvernig yrði staðið að málum ef þar skap- aðist veruleg hætta á skala sem við höfum aldrei séð áður? Ég held að við þurfum að taka verulega til hendinni hvað þetta varðar og í því tilliti þurfum við að fara yfir þá möguleika sem við höfum á að rýma svona fjölmennt svæði og skilgreina þær bjargir sem við höfum. Ekki síst þarf að skilgreina hlutverk hvers og eins ef mikil vá steðjar að. Að mínu mati eru þetta atriði sem þarf að hafa áhyggjur af.“ 30 þúsund manna brott- flutningur – engin svör Jón segir því að ekki séu til svör við því hvernig ætti að flytja allt að 30 þúsund manns burt úr borginni, þar með talið hvernig ætti að standa að rýmingu spítala og sjúkrastofn- ana auk brottflutnings almennings. Jón segir það hreinlega ekki vitað hvernig björgunarsveitir stæðu að vígi gagnvart slíkum risaverkefnum. „Ef við lítum til Bandaríkjanna þá er alveg ljóst að yfirvöld gerðu sér grein fyrir því að New Orleans hafði veika bletti. Þegar fellibylurinn gekk yfir varð versta martröð sem hugsast gat að veruleika. Í kjölfar þessa atburðar veltir maður því fyrir sér hvort íslensk yfirvöld hafi í fullri alvöru gert sér grein fyrir afleiðing- um þess versta sem gæti komið fyrir á höfuðborgarsvæðinu. Vissulega höfum við fengist við mjög alvarlega atburði á fámennum stöðum eins og Flateyri og Súðavík. Við getum ráð- ið við leit og björgun sem þarf að fara fram undir þeim kringumstæð- um en hvernig yrði það ef stórkost- leg ógn vofði yfir höfuðborgarsvæð- inu? Við þurfum því að skoða okkar stöðu hvað þetta snertir.“ Eru viðbragðsaðilar búnir undir miklar hamfarir á höfuðborgarsvæði? Engin sértæk viðbragðs- áætlun til um brottflutning Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Reuters Jón Gunnarsson segir það koma á óvart hversu hægt hjálparstarf virðist hafa farið af stað í Bandaríkjunum. Jón Gunnarsson FÉLAG hópferðaleyfishafa (FH) hyggst kæra, til kærunefndar út- boðsmála, útboð ríkisins á sér- leyfisleiðum næstu þrjú árin. Þá mun félagið einnig kæra útboðið til Samkeppniseftirlitsins. Segir m.a. í kæru FH að það skekki samkeppnisstöðu fyrir- tækja sem taka þátt í útboðinu að gert sé ráð fyrir því að sér- leyfishafar hafi aðstöðu við BSÍ og borgi Kynnisferðum fyrir að- stöðu og þjónustu. Í viðaukum við drög að verk- samningum er gert ráð fyrir framleigusamningi sérleyfishafa við Kynnisferðir ehf. um aðstöðu á Umferðarmiðstöð BSÍ en Kynnisferðir eru með hana á leigu. Kynnisferðir eru stór aðili á fólksflutningamarkaði og er gert ráð fyrir því í útboðslýsingu að Kynnisferðir sjái um alla far- miðasölu fyrir sérleyfishafa, símsvörun og upplýsingaveitu á afgreiðslutíma. Þóknun Kynnis- ferða fyrir þessa þjónustu er 10% af söluvirði allra farmiða sérleyfishafa. Þar að auki þarf að greiða Vegagerðinni 350.000 krónur í aðstöðugjald í hverjum mánuði. Samkeppni mjög skekkt Að mati kærenda hafa Kynn- isferðir óeðlilegt forskot taki þeir þátt í útboðinu, þar sem skilyrði fyrirtækisins kveði á um aðstöðu sérleyfisbílanna við Umferðar- miðstöðina. Kynnisferðir hafi af þeirri að- stöðu verulegar tekjur og skapi það grófan aðstöðumun milli væntanlegra bjóðenda. Benedikt Guðmundsson, formaður FH, segir það mat lögfræðinga fé- lagsins að hér sé um að ræða skýr brot á samkeppnislögum og -reglum. „Í kærunni, sem berst á morgun, er frekar tíundað hvað það er sem við teljum athuga- vert,“ segir Benedikt og bætir við að það sé skoðun fé- lagsmanna að með þessum út- boðsplöggum og drögum að verksamningum sem þar eru sé gróflega á þeim brotið. Þar sé samkeppni mjög skekkt. Kærir útboð á sérleyfisleiðum til Samkeppniseftirlits og kærunefndar Telja gróflega á sér brotið ÞRÍR guðfræðingar voru vígðir til prestsþjónustu við guðsþjónustu í Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Vígðar voru Ása Björk Ólafsdóttir til Fríkirkjunnar í Reykjavík, Guð- rún Eggertsdóttir til prestsþjón- ustu á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi og Sjöfn Þór til Reykhólaprestakalls í Vest- fjarðaprófastsdæmi. Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís- lands, framkvæmdi vígsluna, og séra Hjálmar Jónsson, dóm- kirkjuprestur, þjónaði fyrir altari. Vígsluvottar voru: Sr. Agnes Sig- urðardóttir, prófastur, dr. Arn- fríður Guðmundsdóttir, sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, fríkirkjuprest- ur, sr. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahússprestur og sr. Kristján Valur Ingólfsson, sóknarprestur. Séra Ingiberg J. Hannesson, fv. prófastur, lýsti vígslu. Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon F.v.: Ása Björk Ólafsdóttir, Guðrún Eggertsdóttir og Sjöfn Þór. Þrjár konur vígðar til prests ÍSLENSKA er ofarlega á baugi hjá fræðimanninum dr. Tom Lundskær- Nielsen, en hann gagnrýnir bresk stjórnvöld fyrir litla áherslu á erlend tungumál. Þar í landi eru nemendur ekki skyldugir til að læra önnur mál eftir 14 ára aldur. Í grein BBC segir frá því að dr. Lundskær-Nielsen telji þessa stefnu, samfara minnkandi tungu- málakunnáttu Breta, hreina hörm- ung. Í deild dr. Lundskær-Nielsen er kennd íslenska, sem styrkt er af íslensku ríkisstjórninni, en allt að 15 manns hefja íslenskunám þar á ári. Dr. Lundskær-Nielsen segir nýjar tölur um lækkandi tungumálakunn- áttu Breta þýða ört versnandi sam- keppnisstöðu þjóðarinnar. Að þekkja sína viðskiptamenn Vaxandi viðskiptahagsmunir eru einnig mikilvægur póll í umræðunni að mati dr. Lundskær-Nielsen. Segir hann hættu á að missa af grundvall- artækifærum í viðskiptum og samn- ingaviðræðum nú þegar æ fleiri ís- lensk fyrirtæki vilji fjárfesta erlendis, m.a. í Bretlandi. „Þú lærir ekki bara tungumálið, þú lærir líka um menningu þjóðar og bakgrunn,“ segir dr. Lundskær-Nielsen. „Á öll- um sviðum lífsins, hvort sem um er að ræða viðskipti eða pólítík, skiptir það máli. Menn missa af tækifærun- um ef þeir eru í viðskiptum við fólk sem þekkir þeirra eigin bakgrunn en þeir hafa sjálfir enga slíka þekk- ingu.“ Í grein BBC segir ennfremur að íslenska sé bæði flókin og erfið, með ólíkum endingum á orðum og fjöl- breyttum fallbeygingum. Annar kennari við skólann, dr. Daisy Nej- mann, bendir ennfremur á að ís- lenska sé tungumál sem margt sé hægt að græða á því að læra. „Ef þú getur lært íslensku geturðu lært hvaða tungumál sem er,“ segir dr. Nejmann og bætir við að íslenska sé skapandi tungumál sem finni upp sín eigin orð fyrir nýja hluti. Prófessorar við breskan háskóla Hvetja til íslensku- náms

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.