Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 11 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF BANDARÍSKA dómsmálaráðuneytið til- kynnti fyrr í vikunni að það myndi ekki lög- sækja endurskoðunarfyrirtækið KPMG fyrir skattaráðleggingar þess til viðskiptavina. Í kjölfarið sendi KPMG frá sér fréttatilkynn- ingu, þar sem fyrirtækið viðurkenndi að hafa hjálpað auðugum skjólstæðingum sínum að komast undan tekjuskatti og fjármagnstekju- skatti. Líklegt þykir að ákæra í málinu hefði riðið KPMG að fullu. Þótt fyrirtækið sjálft hafi þannig sloppið undan lögsókn og gengist undir sátt hefur dómsmálaráðuneytið ákveðið að höfða mál gegn níu fyrrverandi meðeigendum í KPMG fyrir samsæri um að svíkja bandarísk skatta- yfirvöld með því að selja sviksamleg skatta- skjól. Með því gat fólk skotið háum fjárhæð- um undan skatti og var um leið sannfært um að þessar aðgerðir stæðust nákvæma rann- sókn skattayfirvalda. Reyndar hefur ráðuneytið einnig lagt fram álíka kæru á hendur KPMG, en hún verður dregin til baka að ári, haldi fyrirtækið skil- mála sáttarinnar. Í því felst að greiða 456 milljónir dollara, eða tæpa 29 milljarða króna, í sektir, hætta með öllu þeirri starfsemi sem leiddi til rannsóknarinnar og leyfa eftirlit með starfi fyrirtækisins. Skattaráðgjöf fyrir nýríka Hin vafasömu skattaskjól komust fyrst í há- mæli á seinni hluta 10. áratugar síðustu aldar, þegar netbólan svokallaða var sem stærst og mikill fjöldi einstaklinga augaðist óheyrilega. Þessir nýríku einstaklingar vildu vernda auð sinn fyrir yfirvöldum og þar komu endurskoð- unarfyrirtækin til skjalanna. Þau buðu fram þjónustu sína gegn ríkulegri þóknun. Öll stærstu endurskoðunarfyrirtækin buðu upp á slíka þjónustu, enda höfðu þau aldrei komið í jafn feitt. Enda malaði skattaráðgjöf fyrirtækjanna gull á þessum tíma, árið 2002 var um 1,2 millj- arður dollara af 3,2 milljarða dollara veltu KPMG í Bandaríkjunum vegna skattaráðgjaf- ar. Það var mun hærra hlutfall en hjá nokkru öðru endurskoðunarfyrirtæki. En skattayfirvöld gerðu fljótlega athuga- semdir við þessa starfsemi og mörg stóru end- urskoðunarfyrirtækjanna, á borð við Ernst & Young og Price-WaterhouseCoopers, gerðu snemma samkomulag við stjórnvöld um að hætta þessari þjónustu og greiddu tiltölulega lágar sektir. En ekki KPMG. Árið 2002 gáfu bandarísk skattayfirvöld út fjölmargar stefnur á hendur KPMG, og krafðist upplýsinga um skatta- skjólin. KPMG hinsvegar spyrnti við fótunum og þvertók fyrir að það aðhefðist nokkuð rangt, auk þess sem bandarísk skattayfirvöld hefðu ekki lögsögu yfir starfsemi fyrirtæk- isins. Hefði riðið fyrirtækinu að fullu Þessi harða afstaða er nú talin hafa komið fyrirtækinu í meiriháttar klandur. Rannsókn- arnefnd á vegum öldungadeildar þingsins gat hinsvegar, með innanhústölvupóstum og ýms- um minnisblöðum sem sótt voru með stefnum, sýnt fram á að sjaldnast var tekið tillit til laga- legra álitamála þegar KPMG veitti var ráðgjöf um skattaskjól, enda himinhá þóknun í boði. Þá fundust dæmi þess að viðskiptavinir væru lokkaðir til að þiggja þessa þjónustu. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að KPMG hafði að- stoðað fólk við að skjóta í það minnsta 1,4 milljörðum dollara, um 90 milljörðum króna, undan skatti á árunum frá 1996-2002. Á stjórnarfundi KPMG í desember árið 2003 var kúventi fyrirtækið hinsvegar afstöðu sinni og ákvað að starfa með skattayfirvöldum í rannsókninni, enda ljóst að andstaða ógnaði tilveru þess. Og í byrjun árs hófust hreinsanir inni í fyrirtækinu. Allir helstu stjórnendur og yfirmenn voru látnir taka pokann sinn eða sendir í langt frí. Með samkomulaginu við skattayfirvöld forðaði KPMG sér undan því að hljóta sömu örlög og endurskoðunarfyrirtækið Arthur Andersen sem varð gjaldþrota og hætti starf- semi eftir að ákærur voru gefnar út á hendur því í tengslum við rannsóknina á Enron. Arth- ur Andersen var þá eitt af fimm stærstu end- urskoðunarfyrirtækjum heims. KPMG sleppur við lögsókn en greiðir sekt HAGNAÐUR Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar hf. eftir skatta var 318 milljónir króna á fyrstu sex mánuð- um ársins 2005 samanborið við 176 milljónir árið á undan. Hagnaðurinn er að meginhluta tilkominn vegna aukinna tekna af verslunarrekstri dótturfélaga og vegna hagstæðs gengis. Heildartekjur félagsins fyrstu sex mánuði ársins 2005 námu um 2.729 milljónum króna og jukust um 15% milli ára. Vegur fjölgun farþega sem fara um flugstöðina þyngst í aukn- ingu tekna, en þeim hefur fjölgað um rúm 10% fyrstu sex mánuði ársins miðað við árið 2004. Einnig er rekst- ur Íslensks markaðar að öllu leyti inni í rekstrartölum þessa árs sem hann var ekki árið 2004. Rekstrargjöld eru um 18% hærri en á sama tíma árið 2004 sem kemur aðallega til vegna kostnaðarverðs seldra vara og að rekstrargjöld Ís- lensks markaðar ehf. eru inni í árs- hlutareikningi 2005 en voru það ekki fyrir árið 2004. Hlutfall hagnaðar fyrir afskriftir af rekstrartekjum er nú 31%. FLE hagn- ast um 318 milljónir ♦♦♦ STJÓRN Skandia er sögð klofin í afstöðu sinni til tilboðs suður-afr- íska tryggingafyrirtækisins Old Mutual í fyrirtækið, en sænska út- varpsstöðin Ekot greindi frá því að átta af ellefu stjórnameðlimum Skandia væru á móti tilboðinu. Þá er sagt að meirihluti stjórnarinnar sé andvígur því að banki Skandia verði seldur, en Old Mutual fyr- irhugaði að nota hann til að fjár- magna tilboðið. Í sumar lýsti Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB-banka, því yfir við blaðamann Reuters-fréttastofunnar að KB- banki hefði haft áhuga á að kaupa Skandia-banka. Búist er við að formlegt tilboð í Skandia berist í dag eða á morgun, að því er kom fram á útvarpsstöð- inni Ekot í gær, en Old Mutual hefur lýst því yfir að það hyggist bjóða 380 milljarða íslenskra króna í sænska tryggingafyrirtæk- ið. Stjórn Skandia klofin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.