Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DÝRLEGT GRÍN OG GAMAN OG FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA. DÝRIN TALA OG ÞAÐ MEÐ STÆL. SEBRAHESTUR ER ÁKVEÐINN AÐ GERAST VEÐHLAUPA HESTUR HVAÐ SEM TAUTAR SÝND BÆÐI MEÐ ENSKU OG ÍSLENSKU TALI NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG  Dramatísk, rómantísk og stórbrotin eðalmynd með Óskarsverðlaunahafanum, Charlize Theron og spænsku blómarósinni, Penelope Cruz. HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN! SÝND MEÐ ENSKU TALI NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG Strákarnir okkar kl. 6.15 - 8.15 og 10.20 Racing Stripes m/ensku tali kl. 5.50 - 8 og 10.10 Head in the Clouds kl. 5.30 - 8 - 10.30 b.i. 16 The Skeleton Key kl. 8 og 10.10 b.i. 16 Herbie Fully Loaded kl. 6 The Island kl. 8 og 10.30 b.i. 16 Batman Begins kl. 5.30 b.i. 12 MIKIL stemning var á Grand- Rokki á laugardagskvöldið þegar rokksveitirnar Singa- pore Sling og Kimono leiddu saman hesta sína. Þetta var í fyrsta skipti sem þessar tvær sveitir spiluðu á tónleikum saman svo tónleikagestir urðu vitni að sögulegum viðburði. Húsið var fullt og mikið stuð á mannskapnum því þetta voru síðustu tónleikar þessara sveita í bili, enda leggja þær báðar leið sína á erlenda grund á næstunni. Singapore Sling heldur síðar í mánuðinum til New York þar sem hún spilar á CMJ Festival. Eftir það er ferð- inni svo heitið til Berlínar þar sem sveitin spilar á annarri tón- listarhátíð. Kimono-menn eru að færa höfuðstöðvar sínar til Berlínar og ætla að dvelja þar vetur- langt við lagasmíðar og tón- leikahald. Aðdáendur sveit- anna verða því að sýna þolinmæði þangað til þær snúa aftur á klakann. Tónleikar | Singapore Sling og Kimono á GrandRokki Morgunblaðið/Árni Sæberg Singapore Sling-liðar halda síðar í mánuðinum til New York þar sem hljómsveitin spilar á CMJ Festival. Margir sáu sveitina um helgina á seinustu tónleikum þeirra á landinu í bili. Kvöddu fóstur- jörðina með rokk- tónleikum Morgunblaðið/Árni Sæberg Kimono-menn létu sitt ekki eftir liggja og trylltu lýðinn með lögum af nýja disknum sínum, Arctic Death Ship. Morgunblaðið/Árni Sæberg Singapore Sling og Kimono leiddu saman hesta sína á GrandRokki á laugardag- inn og var það í fyrsta skipti sem þessar tvær sveitir spiluðu á tónleikum saman. SÍÐASTLIÐINN laugardag voru opnaðar tvær sýningar í Kling & Bang galleríi, Laugavegi 23. Önnur sýningin kallast Banners Bright og er eftir Malcolm Green. Malcolm sýnir þar prentaða refla og notar hann texta og myndefni á sinn hátt, þar sem myndefnið breytir merkingu og innihaldi textans og öfugt. Hin sýningin er COSMOSIS – Tauþrykk, sem er sameiginlegt verk þeirra Godds, Bjarna H. Þór- arinssonar og Ómars Stef- ánssonar. Myndheimar þessara listamanna standa algerlega fyrir sínu sér en sameiginlega eignast þeir nýjan blóma. Sýningarnar standa til sunnu- dagsins 25. september og er Kling & Bang gallerí opið fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14:00- 18:00. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikið var um dýrðir í galleríi Kling og Bang á Laugaveginum um helgina þegar tvær sýningar voru opnaðar. Opnanir | Tvær nýjar sýningar í Kling og Bang Kling og Bang sýnir tauþrykk og refla ÞAÐ var mikill barningur í Hljóð- færahúsinu í Reykjavík á laug- ardaginn þegar þar var haldinn trommudagurinn mikli. Fjöldi fólks lagði leið sína í húsið til að heyra áslátt þekktra trommusnill- inga. Þeir sem komu fram voru Jón Björn úr Brain Police, Gunn- laugur Briem, Arnar Gísla úr Ens- ími, Halli Gísla úr Botnleðju, Bjössi úr Mínus og Eysteinn úr Pöpunum. Tónlist | Trommudagurinn mikli í Hljóðfærahúsinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Gunnlaugur Briem barði trommurnar af mikilli einbeitingu fyrir gesti á trommudeginum mikla í Hljóðfærahúsinu á laugardaginn. Trommað í tilefni dagsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.