Morgunblaðið - 05.09.2005, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞIGGUR HJÁLP SÞ
Ríkisstjórn Bandaríkjanna þáði í
gær boð Sameinuðu þjóðanna um
aðstoð vegna náttúruhamfaranna við
Mexíkóflóa fyrir viku. Stjórnin ósk-
aði einnig eftir hjálpargögnum frá
Evrópusambandinu og Atlantshafs-
bandalaginu (NATO). Lokið var að
mestu við að flytja nauðstadda íbúa
New Orleans frá borginni um
helgina í einum mestu loftflutn-
ingum á flóttafólki í sögu Bandaríkj-
anna. Þjóðvarðliðar skutu að
minnsta kosti fimm byssumenn til
bana í New Orleans í gær. Byssu-
mennirnir höfðu skotið á starfsmenn
verktaka hersins.
Merkel þjarmar að Schröder
Angela Merkel, kanslaraefni
stjórnarandstöðunnar í Þýskalandi,
þjarmaði að Gerhard Schröder
kanslara í einu kappræðum þeirra í
sjónvarpi fyrir þingkosningarnar
eftir hálfan mánuð. Skyndikannanir
bentu til þess að meirihluti áhorf-
enda, eða um 55% aðspurðra, teldi
að Schröder hefði staðið sig betur í
kappræðunum.
Árdegi sækir til Danmerkur
Íslenskir fjárfestar ræða nú kaup
á Merlin, sem er stór dönsk raf-
tækjaverslanakeðja. Rekur Merlin
um 50 verslanir í Danmörku og velt-
ir á annan tug milljarða íslenskra
króna á ári. Það er íslenska fjárfest-
ingafélagið Árdegi sem fer fyrir ís-
lensku fjárfestunum.
Lambakjötið eftirsótt
Mikil aukning hefur orðið í eft-
irspurn eftir lambakjöti hér á landi
og hefur Kaupfélag Skagafjarðar
gripið til þess ráðs að bæta álagn-
ingu ofan á afurðaverð næstu tvær
vikur til að hvetja bændur til að
koma með lömb til slátrunar. Að
sögn formanns Félags sláturleyf-
ishafa hefur verðþróun á öðrum
kjöttegundum og öflug vöruþróun
skilað sér í aukinni eftirspurn eftir
lambakjöti.
Engin brottflutningaáætlun
Framkvæmdastjóri Slysavarna-
félagsins Landsbjargar kveður ham-
farirnar í Bandaríkjunum og björg-
unaraðgerðir í kjölfar þeirra gefa
íslenskum yfirvöldum og viðbragðs-
aðilum tilefni til að athuga hvernig
brugðist yrði við meiriháttar ham-
förum á höfuðborgarsvæðinu. Engin
viðbragðsáætlun vegna brottflutn-
inga á fólki í tugþúsundatali frá þétt-
býlasta byggðarkjarnanum sé fyrir
hendi.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 26/28
Viðskipti 11 Dagbók 30/32
Vesturland 12 Víkverji 30
Erlent 13 Staður og stund 30
Daglegt líf 14/15 Leikhús 33
Menning 16, 32/33 Bíó 34/37
Umræðan 17/25 Ljósvakar 38
Forystugrein 20 Veður 39
Bréf 24 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
STEINÞÓR Gestsson,
fyrrverandi alþingis-
maður, er látinn, níu-
tíu og tveggja ára að
aldri. Steinþór var
mikilvirkur í stjórn-
málum, bæði á lands-
vísu og sveitarstjórn-
arstigi og starfaði
einnig ötullega að fé-
lagsmálum og ritstörf-
um. Þá stofnaði Stein-
þór MA-kvartettinn
með skólafélögum sín-
um. Varð hann vinsæl-
asti söngkvartett síns
tíma og fyrirmynd
þeirra söngkvartetta sem á eftir
komu hér á landi.
Steinþór fæddist á Hæli í Gnúp-
verjahreppi 31. maí 1913, sonur
Gests Einarssonar og Margrétar
Gísladóttur. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá MA árið 1933 og var bóndi
á Hæli árin 1937–1974. Steinþór sat
á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokk sem
þingmaður Suðurlandskjördæmis
frá 1967–1978 og frá 1979–1983. Þá
sat hann í hreppsnefnd Gnúpverja-
hrepps 1938–1974 og var oddviti
hennar í þrjátíu ár. Einnig sat hann
m.a. í sýslunefnd Árnessýslu.
Steinþór gegndi
embætti formanns
Landssambands
hestamannafélaga árin
1951–1963 og var for-
maður Vélanefndar
ríkisins 1963–1972. Þá
sat hann í Þingvalla-
nefnd 1970–1979 og
1980–1984. Einnig sat
hann í fleiri nefndum
og veitti m.a. for-
mennsku byggingar-
nefnd þjóðveldisbæjar
1974. Þá sat hann í
stjórn Stóðhestastöðv-
ar ríkisins frá 1979 til
1995. Ennfremur sat hann í stjórn
Búnaðarfélags Íslands, Fram-
kvæmdastofnunar og Áburðarverk-
smiðju ríkisins en þar gegndi hann
stjórnarformennsku frá 1983.
Steinþór var ritstjóri Suðurlands
árið 1979 og skrifaði auk þess fjölda
rita og greina um sunnlenskar
byggðir, landssamtök hestamanna
og MA-kvartettinn auk fleiri við-
fangsefna. Steinþór var kvæntur
Steinunni Matthíasdóttur sem lést
árið 1990. Áttu þau saman fimm
börn, Jóhönnu, Gest, Aðalstein,
Margréti og Sigurð.
Andlát
STEINÞÓR
GESTSSON
VALGERÐI Sverrisdóttur við-
skiptaráðherra þykir athyglisverð
bandarísk lög sem gera fruminnherj-
um skylt að eiga verðbréf í a.m.k. sex
mánuði. Hún segir að málið verði tek-
ið til skoðunar í viðskiptaráðuneyt-
inu.
Valgerður var innt eftir því hvort
henni þætti koma til greina að settar
yrðu sambærilegar reglur hér á landi
og gilda í Bandaríkjunum um við-
skipti fruminnherja með hlutabréf í
félögum sem þeir stjórna eða eiga
stóran hlut í. Þar er kveðið á um að
fruminnherjarnir verði að eiga bréfin
í sex mánuði hið minnsta. Selji þeir
bréfin fyrr getur félagið, sem í hlut á,
gert tilkall til söluhagnaðar sem
myndast á skemmri
tíma en sex mánuðum.
„Við leggjum áherslu
á það í okkar löggjöf um
fjármálamarkaðinn að
hafa hana í samræmi við
það sem tíðkast í ná-
grannalöndum og á
innri markaði Evrópu.
Það er reynt að komast
hjá því að vera með mik-
ið af sérreglum hér,“
sagði Valgerður. Hún
benti á að nýlega hefðu
verið innleiddar tilskip-
anir ESB um innherja-
viðskipti. Sagðist Val-
gerður telja að þær
væru nokkuð strangar.
„Auk þess þurfa fjármálafyrirtæk-
in sjálf að setja sér reglur varðandi
þessi atriði og Fjár-
málaeftirlitið þarf að
samþykkja þær. Fljótt
á litið finnst mér þetta í
bærilega góðu lagi
varðandi löggjöfina.“
Ekki svona lög
í Evrópu
Valgerður sagði að
sér þætti engu að síður
athyglisvert að sjá þær
reglur sem gilda í
Bandaríkjunum í þess-
um efnum. „Við mun-
um fara yfir það frekar
í ráðuneytinu, en það
ég best veit þá eru ekki
svona lög í Evrópu.“
Eins og fram hefur komið hefur
t.d. Íslandsbanki sett þá reglu að
starfsmaður sem eignast verðbréf í
samræmi við verklagsreglur bankans
skuli eiga þau að lágmarki í þrjá mán-
uði frá kaupdegi. Valgerður var
spurð hvort stjórnvöldum þætti ekki
ástæða til að hafa strangari reglur
um þetta atriði hér, eins og t.d.
Bandaríkjamenn hafa haft.
Valgerður endurtók að hér væri
reynt að hafa löggjöf í sem bestu
samræmi við evrópska löggjöf. Hún
benti á mikilvægi þess í ljósi þess að
kauphallirnar í Evrópu væru farnar
að starfa mikið saman og æ fleiri fyr-
irtæki skráð í fleiri en einu landi.
Þess vegna væri augljóst hagræði að
því að löggjöfin hér væri með svipuðu
sniði og hjá öðrum Evrópuþjóðum.
„En mér finnst þetta vera athyglis-
vert og við munum skoða þetta frek-
ar í ráðuneytinu,“ sagði Valgerður.
Ráðherra segir bandarísk lög um lágmarkstímaeign verðbréfa athyglisverð
Valgerður
Sverrisdóttir
Ráðuneytið mun skoða reglur
um eignartíma verðbréfa
Eftir Guðna Einarsson
guðni@mbl.is
ÍSLENSKA sjávarútvegssýningin
2005 verður sett næstkomandi
miðvikudag. Undirbúningur stend-
ur nú sem hæst í Fífunni og Smár-
anum í Kópavogi og þátttakendur í
sýningunni eru að setja upp sýn-
ingarbása.
Bjarni Þór Jónsson, fulltrúi sýn-
ingarhaldarans Nexus hér á landi,
sagði að margir væru komnir vel á
veg með sérbyggða bása og ljóst
að mikið væri lagt í marga bása.
Sumir eru með tveggja hæða bása
og ýmislegt gert til að vekja at-
hygli sýningargesta.
Að sögn Bjarna verður Íslenska
sjávarútvegssýningin jafnstór nú
og sýningin 2002 var, en hún var
sú stærsta fram að því.
„Við gerum ráð fyrir um 800
sýnendum frá um 40 þjóðlöndum.
Það komu rúmlega 18 þúsund
gestir síðast og fjöldi þeirra hefur
aukist á milli sýninga. Þetta er
fagsýning og á ekki erindi til allra,
en við gerum ráð fyrir að það komi
ekki færri gestir en síðast,“ sagði
Bjarni.
Næsta sjávarútvegssýning verð-
ur haldin hér á landi 1.-4. október
2008 og sagði Bjarni að margir
sýnendur hefðu þegar miðað fram-
leiðslu sína við að vera þar með
einhverjar nýjungar.
Íslenska sjávarútvegssýningin
verður opnuð með pomp og pragt
kl. 10.00 að morgni miðvikudags-
ins 7. september og henni lýkur kl.
16.00 laugardaginn 10. september.
Sýningin verður opin daglega til
kl. 18.00, nema á laugardag. Að-
gangseyrir er 2.000 kr.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Undirbúningur stendur nú sem hæst vegna Íslensku sjávarútvegssýning-
arinnar sem hefst á miðvikudag. 18 þúsund gestir komu á sýninguna 2002.
Um 800
sýnendur
frá um 40
löndum
Íslenska sjávar-
útvegssýningin
LENKA Ptacnikova,
stórmeistari kvenna
og fyrirliði íslenska
kvennalandsliðsins í
skák, varð í gær
Norðurlandameistari
kvenna þegar hún
gerði jafntefli við Túlí
Lasson frá Eistlandi.
Sigurinn vann Lenka í
síðustu umferð Norð-
urlandamótsins í skák
í Vammala í Finnlandi.
Liðin eru 24 ár frá
því Íslendingar áttu
síðast Norðurlanda-
meistara kvenna í
skák, en Sigurlaug
Friðþjófsdóttir varð Norð-
urlandameistari 1981 og Guðlaug
Þorsteinsdóttir þar á undan 1975,
1977 og 1979, samkvæmt upplýs-
ingum Skáksambands Íslands.
Með örugga forystu
nær allt skákmótið
Flestar öflugustu skákkonur
Norðurlandanna tóku þátt í
mótinu í Finnlandi nú, auk sterkra
skákkvenna frá Eystrasaltsríkj-
unum.
Lenka hafði örugga forystu nær
allt mótið og endaði
ein í efsta sæti, var
hálfum vinningi á
undan eistnesku
skákkonunni Viktoríu
Baskite og norsku
skákkonunni Ellen
Hageseter, sem urðu
í 2.-3. sæti.
Lenka Ptacnikova
er hagfræðingur að
mennt. Hún fluttist
til Íslands árið 2000
frá Tékklandi og
fékk íslenskan rík-
isborgararétt í fyrra.
Hún er fyrrverandi
Tékklandsmeistari
kvenna í skák og hefur auk þess
sigrað þrisvar á Íslandsmótum
kvenna í skák undanfarin ár.
Lenka hefur undanfarin ár leitt
kvennalandslið Íslands í skák á
Ólympíumótum og er einn öfl-
ugasti þjálfari og kennari við
Skákskóla Íslands.
Lenka er einnig varaformaður
Taflfélagsins Hellis, sem er
stærsta taflfélag landsins, og hef-
ur hjálpað mikið til við að byggja
þar upp öflugt stúlkna- og kvenna-
starf á undanförnum árum.
Lenka Ptacnikova
Norðurlandameist-
ari kvenna í skák