Morgunblaðið - 05.09.2005, Side 10
10 MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GARÐABÆR ætlar að niðurgreiða
æfingagjöld barna á aldrinum 6–16
ára um 20.000 kr. á ári fyrir hvert
barn í bæjarfélaginu, og geta for-
eldrar notað vef bæjarins til þess að
ráðstafa fénu til þess íþróttafélags
eða æskulýðsstarfs sem barn þess
stundar. Þetta var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar á fimmtudag.
Kannanir sem gerðar hafa verið
fyrir bæjarfélagið sýna að íbúar eru
ánægðir með aðstöðu til íþróttaiðk-
unar, staðsetningu íþróttamann-
virkja og þjónustu íþróttafélaga, en
ekki nægilega ánægðir með kostn-
aðinn við íþróttaiðkun barnanna,
segir Gunnar Einarsson bæjarstjóri.
„Við erum að bregðast við þessu
með því að eyrnamerkja 20.000
krónur á ársgrundvelli öllum börn-
um 6 til 16 ára í Garðabæ sem nokk-
urs konar hvatafé sem þau geta nýtt
til íþróttastarfs, sem við teljum hafa
mikið forvarnargildi,“ segir Gunnar.
Bærinn hefur látið gera kannanir á
þátttöku barna í íþróttum og öðru
æskulýðsstarfi og tengslum þess við
óæskilega hegðun, og er það skýr
niðurstaða að börn sem stundi
íþróttir eða æskulýðsstarf noti síður
tóbak og áfengi.
Dugir fyrir öllum gjöldum
hjá Skátunum
„Það hefur verið okkar stefna að
styðja vel við barna- og unglinga-
starf, sem við lítum á sem forvarnar-
starf. Auk þess ætti það að tryggja
betri líkamlega, félagslega og and-
lega heilsu barnanna og þar með hag
þeirra síðar í lífinu,“ segir Gunnar.
Kostnaður heimilanna við íþrótta-
iðkun barna er mismunandi eftir því
hvaða íþróttagrein er stunduð. Hjá
Stjörnunni fengust þær upplýsingar
að æfingagjald fyrir börn sem
stunda handbolta hjá félaginu sé á
bilinu 20–30 þúsund krónur á ári,
breytilegt eftir aldri. Æfi börn fim-
leika hjá Stjörnunni má búast við því
að reikningurinn sé á bilinu 30–80
þúsund krónur á ári, breytilegt eftir
aldri og tíðni æfinga.
Einnig er niðurgreitt annað frí-
stundastarf, svo sem hjá skátafélög-
um, en hjá Skátafélaginu Vífli í
Garðabæ greiða börnin 16.000 króna
árgjald. Gunnar segir að féð sé
eyrnamerkt hverju barni, svo jafn-
vel ef það stundar íþróttir utan
Garðabæjar sé hægt að nota féð til
að niðurgreiða æfingagjöld.
Kostar allt að 32 milljónir á ári
Í dag eru um 1.600 börn á aldr-
inum 6–16 ára í Garðabæ, og er því
kostnaðurinn, miðað við að allir nýti
sér féð, 32 milljónir króna á ári, seg-
ir Gunnar. Þar sem árið 2005 er
hálfnað fær hvert barn 10.000 krón-
ur í ár, sem kostar bæjarfélagið að
hámarki 16 milljónir króna. Gunnar
segir hér um að ræða hreina viðbót
við styrki bæjarins til íþróttastarfs,
og ekki gert ráð fyrir að dregið verði
úr þeim styrkjum sem nú eru veittir
til íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Til þess að nálgast féð þurfa for-
eldrar eða forráðamenn barnsins að
skrá sig á Minn Garðabæ, vef bæjar-
ins, og liggur féð á kennitölu hvers
barns, tengt kennitölu foreldra.
Gunnar segir að langstærstur hluti
heimila hafi aðgang að Netinu, og
því sé þetta auðveld leið til að deila
út fénu, auk þess sem þetta gefi
möguleika á því að halda utan um
ýmsa tölfræði tengda íþrótta- og
æskulýðsstarfinu. Ef einhverjir hafi
ekki netaðgang séu starfsmenn bæj-
arins boðnir og búnir til að aðstoða.
Garðabær niðurgreiðir æfingagjöld allra barna á aldrinum 6 til 16 ára
Hvert barn fær 20 þúsund
krónur á ári til æfinga
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Stefna okkar að styðja vel við barna- og unglingastarf, segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar.
MIKILL kippur kom í söfnun í hjálp-
arliðasjóð Sjálfsbjargar um það leyti
sem Kjartan Hauksson ræðari lauk
hringróðri sínum í Reykjavíkurhöfn
á laugardag. Í sjóðinn hefur nú safn-
ast 5,1 milljón króna eftir að hann
hafði verið í rúmum þremur millj-
ónum lengi.
Róðurinn stóð í 109 daga
Kjartan lagði af stað á árabát sín-
um Frelsinu frá Bolungarvík 4. júní
og lauk róðrinum á 92 dögum. Ef
allt er talið tók róðurinn í kringum
landið 109 daga, þ.e. ef reiknaður er
með sá tími sem það tók Kjartan að
róa á árabátnum Rödd hjartans frá
Reykjavík til Vestfjarða árið 2003
þar sem báturinn brotnaði.
Þegar Kjartan náði landi við
Reykjavíkurhöfn á laugardag kl.
14:20 var töluverður fjöldi fólks
mættur til að taka á móti honum. Al-
freð Þorsteinsson, forseti borg-
arstjórnar, batt landfestar bátsins
og Árni Þór Sigurðsson, formaður
stjórnar Faxaflóahafna, afhenti fjár-
stuðning til verkefnisins.
Þá spilaði KK ásamt hljómsveit
sinni fyrir gesti og gangandi við
höfnina.
Fyrir utan þá þrekraun að róa
bátnum í misjöfnum sjó einn síns
liðs, sem Kjartan hefur augsýnilega
staðist, fólust erfiðleikar leiðangurs-
ins ekki síður í löngum töfum vegna
veðurs. Þannig varð Kjartan að bíða
svo dögum skipti á Stokkseyri eftir
öruggu veðri fyrir Reykjanesið.
Enn má styðja hjálparliðasjóð
Sjálfsbjargar á heimasíðunni sjalfs-
bjorg.is.
Hringróðri fyrir Sjálfsbjörg lauk í Reykjavíkurhöfn
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kjartan Hauksson kom að Ægisgarði í Reykjavíkurhöfn kl. 14:20 á laugardag og fékk góðar móttökur.
Kjartan stóðst þrekraunina
RUNÓLFUR Ágústsson, rektor
Viðskiptaháskólans á Bifröst, varaði
í ræðu við setningu skólans í gær við
of mikilli Evrópuvæðingu íslenskra
háskóla.
Hann sagði m.a. miðstýringu,
stöðlun og ríkisrekstur einkenna
evrópska háskóla þvert á það sem
þekkist í löndum eins og Kanada,
Bandaríkjunum og Ástralíu þar sem
háskólakerfið einkennist af sam-
keppni, krafti og fjölbreytni. Runólf-
ur varaði sérstaklega við lögfestingu
hins svokallaða Bologna-ferlis sem
hann sagði að myndi skerða fullveldi
þjóðarinnar yfir háskólum sínum.
„Nú er eðlilegt að spyrja hvort val
okkar standi um staðla, ríkisrekstur
og miðstýringu annars vegar og um
samkeppni, kraft og fjölbreytni hins
vegar,“ sagði hann m.a. „Við stönd-
um á hliðarlínu Evrópu og skulum,
meðan við erum þar, ekki éta upp
hráar allar þær reglur og alla þá
staðla sem þaðan koma. Slíkt er ekki
bara óþarfi, heldur stundum skað-
legt og engin aðkallandi þörf er á því
að lögleiða Bologna-ferlið hérlendis.
Við eigum að nota það sem viðmið
þar sem það á við til að tryggja gæði
og góða skóla, ekki meir. Þvert á
móti eigum við að miða okkar há-
skóla við það sem best gerist í heim-
inum. Það á að vera okkar markmið.
Allt annað er óásættanlegt til fram-
tíðar. Við skulum því ekki Evrópu-
væða háskólana okkar of mikið,“
sagði hann.
Aldrei hafa fleiri stundað nám við
skólann en í vetur, en skráðir nem-
endur þetta háskólaárið eru um 680,
bæði í stað- og fjarnámi, í grunn- og
meistaranámi. Nýnemar í staðnámi
eru 171.
Runólfur Ágústsson
rektor á Bifröst
Varar við of
mikilli Evr-
ópuvæðingu
háskóla
Daglegt
málþing
þjóðarinnar
á morgun
Umræðan