Morgunblaðið - 05.09.2005, Side 30
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
MORGUNVERÐUR OG
HÁDEGISVERÐUR FARA
EKKI VEL SAMAN
ÞEIR ERU AÐ SLÁST
ROP! HÁDEGIS-MATURINNVANN!
ÉG VIL FÁ
ALVÖRU SVÖR
UM LÍFIÐ OG
TILVERUNA
5 FIMM?! MÉR FANNST ÞETTANOKKUÐ G0TT SVAR
ÖLL ÞESSI HEIMAVINNA.
ÉG ER BARA NÝKOMINN
ÚR SUMARFRÍI
ÉG Á AÐ SKRIFA HEILA
MÁLSGREIN UM ÞAÐ SEM ÉG
GERÐI Í SUMAR
ÉG GET EKKI SKRIFAÐ
SVONA MIKIÐ HVERNIGGENGUR?
EKKI VEL.
HVAÐ GERÐIRÐU
ANNAÐ EN AÐ
HORFA Á
SJÓNVARPIÐ
ANDSTÆÐINGAR
OKKAR EIGA EFTIR AÐ
VERA 10 SINNUM
FLEIRI EN VIÐ
ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ ÞÚ SEGIR
MÖNNUNUM ÞAÐ SVO ÞEIR FLÝI
EKKI ÞEGAR ÞEIR SJÁ ÓVININN
HÆTTU AÐ
ELTA MIG DÓRA!
ÉG
HELD AÐ
HÚN SÉ
SKOTIN Í
ÞÉR
GRÍMUR
EKKI SEGJA MÉR AÐ HÚN
HAFI ENGIN ÁHRIF Á ÞIG
JÚ, HÚN
HEFUR ÁHRIF
Á MIG. MÉR
VERÐUR
ÓGLATT
HVAÐ? HEIMSKI KÖTTUR!
PABBI ÞÚ
HRÆDDIR HANN
MJÁ!
HVER
ERT
ÞÚ?
HVÍ HELDURÐU AÐ ÞÚ
GETIR BARA TEKIÐ YFIR
GENGI HAMARHANDAR?
ÞIÐ GETIÐ KALLAÐ
MIG UGLUNA
... AÐ ÉG GET
STJÓRNAÐ ÞESSU
GENGI BETUR EN
HANN GERÐI
LÍKT OG UGLA,
ÞÁ ER ÉG NÓGU
VITUR TIL AÐ ÁTTA
MIG Á ÞVÍ...
Dagbók
Í dag er mánudagur 5. september, 248. dagur ársins 2005
Víkverji hefur reyntaf megni að temja
sér umburðarlyndi,
þolinmæði og auðmýkt
gagnvart náunganum.
Satt að segja tekst það
stundum. En um dag-
inn átti Víkverjasálin í
óskaplegum erf-
iðleikum, í samskiptum
við eitt helsta þjón-
ustufyrirtæki landsins,
Símann. Það skal strax
tekið fram að starfs-
menn Símans sem Vík-
verji ræddi við, voru
allir sem einn prúð-
mennskan uppmáluð,
þótt engan veginn væri virtist vera
hægt að liðsinna honum með þá smá-
ræðisaðstoð sem hann þurfti á að
halda. Síminn býður viðskiptavinum
sínum að hringja í þjónustunúmerið
8007000, ef upp koma vandamál með
símaþjónustuna. Það var einmitt það
sem gerðist á heimili Víkverja. Tvo
daga í röð reyndi Víkverji án afláts að
ná sambandi við netþjónustu Símans,
gegnum fyrrgreint þjónustunúmer,
en án árangurs. Vandamálið var það,
að þegar samband loks náðist, lenti
Víkverji í símabiðröð, sem var svooo
löng, að saxaðist hratt á þolinmæði-
forðann. „Þú ert númer 29 í röðinni,
símtöl verða afgreidd í þeirri röð sem
þau berast,“ sagði hlý-
leg rödd Bellu á línunni
á nokkurra mínútna
fresti, en svo gerðist
það, fáeinum eyktum
síðar, þegar Víkverji
var kominn niður í sæti
sjö, að röddin þagnaði
alveg, og skömmu
seinna kom pípið sem
gaf til kynna að sam-
bandið hefði rofnað.
Þetta var versta til-
fellið, en svona gekk
þetta þó nokkrum sinn-
um.
Þá var ekki nema
ögn eftir af þolinmæð-
inni, auðmýktin farin út í veður og
vind, og umburðarlyndið til andskot-
ans. Víkverji hringdi á skrifstofuna
og spurði hverju þessi óhemju trega
þjónusta þjónustufyrirtækisins sætti,
og fékk samband við gæðafulltrúa
nokkurn. Víkverji gat ekki orða
bundist og kvað símaþjónustu af
þessu tagi ekki beinlínis trúverðuga
fyrir fyrirtæki sem sérhæfði sig í
símaþjónustu. Gæðafulltrúinn bauðst
til að hringja í netþjónustuna og biðja
einhvern þar að hringja í Víkverja.
Það gerðist fjórum dögum síðar, en
þá var ungviðið á heimili hans löngu
búið að finna út hvernig græja mátti
málin á annan hátt.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Feneyjar | Ugluveskið a-tarna vakti hrifingu ljósmyndara á Kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum um helgina. Veskið er líka augljóslega kjörgripur, fag-
urlega saumað úr smáperlum. Þá fer veskið og vel við laxableikan kjól eig-
andans, sem er enginn annar en Björk okkar Guðmundsdóttir. Björk er
stödd á Kvikmyndahátíðinni ásamt manni sínum, Matthew Barney, en hún
lék í nýjustu mynd hans, „Drawing Restraint 9“, sem sýnd er á hátíðinni, og
gaf nýverið út plötu sína með tónlistinni úr myndinni.
Reuters
Ugluveskið góða
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Allt sé hjá yður í kærleika gjört. (I. Kor. 16, 14.)