Morgunblaðið - 05.09.2005, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 37
BARA HRAÐI. ENGIN TAKMÖRK.
JOHNNY KNOXVILLE / SEAN WILLIAM SCOTT / JESSICA SIMPSON
DÝRLEGT GRÍN
OG GAMAN OG
FRÁBÆR
SKEMMTUN
FYRIR ALLA.
DÝRIN TALA OG
ÞAÐ MEÐ STÆL.
SEBRAHESTUR
ER ÁKVEÐINN
AÐ GERAST
VEÐHLAUPA
HESTUR HVAÐ
SEM TAUTAR
SÝND BÆÐI
MEÐ ENSKU
OG
ÍSLENSKU
TALI
S.V. / Mbl.. . / l.
HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN! ... I !
Sýningartímar sambíóunum ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK
STRÁKARNIR OKKAR kl. 4 - 6 - 8 - 10.10
STRÁKARNIR OKKAR VIP kl. 6 - 8 - 10.10
DUKES OF HAZZARD kl. 8.15 - 10.30
RACING STRIPES m/ensku.tali kl. 3.50-6 -8.15-10.30
RACING STRIPES m/ísl.tali kl. 3.50 - 6
SKELETON KEY kl. 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára.
HERBIE FULLY LOADED kl. 3.50 - 6
THE ISLAND kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
THE ISLAND VIP kl. 3.30
MADAGASCAR m/ensku.tali kl. 6
MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 4
DUKES OF HAZZARD kl. 6.30 - 8.30 - 10.40
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 6.30
DECK DOGZ kl. 8.30 - 10.30
BATMAN BEGINS kl.10.30 B.i. 12 ára
HERBIE FULLY LOADED kl. 8.30
RACING STRIPES kl. 6
DUKES OF HAZZARD kl. 8 - 10
HERBIE FULLY LOADED kl. 6 - 8
SKELETON KEY kl.10
DUKES OF HAZZARD kl. 8 - 10
BÍTLABÆRINN KEFLAVÍK kl. 8
HOSTAGE kl. 10
SÝND MEÐ ENSKU TALI
Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík
Sími 569 7700 · www.nyherji.is
Canon W6400 plotter
A1=610 mm
Fullkominn teikningaprentari.
· Hraðvirkur - A1 ljósmynd á 1.3 mín.
· Hágæði - 2400x1200 upplausn,
UV blek.
· Full blæðandi ljósmyndaprentun.
· Lágur rekstrarkostnaður með
Single Ink hylkjum.
· Netstuðningur við Mac og PC
(aukabúnaður).
· Standur undir prentara fylgir með.
Tilboðsverð 219.900 kr.
Listaverð 279.800 kr.
Canon iR3100cn
,,Smart Colour”
Fjölnota litaprentari/ljósritunarvél fyrir
fyrirtæki og stofnanir.
· Matari, raðari og skápur.
· A4 prenthraði: 31 bls. mín í svarthvítu,
7 bls. í lit.
· A3 prenthraði: 16 bls. mín í svarthvítu,
3.5 bls. í lit.
· Upplausn:
Ljósritun/skönnun: 600x600 dpi.
Prentun: 2400x600 dpi.
· Nánari upplýsingar á:
http://canon.nyherji.is/fjolnotataeki
Tilboðsverð 699.900 kr.
Canon iR2270
Hagkvæm og sveigjanleg prentlausn fyrir
meðalstóra skrifstofuhópa.
· Matari, raðari, heftari, skápur og
prentkort í einu tæki.
· Duplex – sjálfvirk bakritun.
· Möguleikar á fullkomnum skjalafrágangi.
· Þróaðir öryggismöguleikar fyrir gögn.
· A4 prenthraði: 22 bls. á mín. í svarthvítu.
· A3 prenthraði: 14 bls. á mín. í svarthvítu.
· Sendir, geymir, sækir og deilir gögnum
yfir Netið (aukabúnaður).
Tilboðsverð 399.900 kr.
Hraði og hagkvæmni í fyrirrúmi
PRENTLAUSNIR FYRIR FYRIRTÆKI
Söluaðilar um land allt. Nánari upplýsingar um Canon eru á www.canon.nyherji.is
Aukabúnaður
Aukabúnaður
FJÓRÐI hluti myndbálksins um
uppvakninga Romeros er orðinn að
veruleika eftir 20 ára bið og aðdá-
endurnir þurfa örugglega ekki að
hafa áhyggjur af því að fá ekki fleiri
myndir eða að þurfa að bíða jafn-
lengi eftir næsta kafla. Undir lok
Land of the Dead lýsir Riley (Bak-
er), leiðtogi hinna lifandi, því yfir að
nú verði stefnan tekin norður til
Kanada þaðan sem óljósar fréttir
hafa borist um aðra nýlendu
mennskra og lífvænlegri. Skömmu
áður er myndavélinni beint að Bug
Daddy (Clark), hinum risavaxna og
heiftúðuga forsprakka náætanna.
Tónninn hefur verið gefinn.
Þegar myndin hefst eru eftirlif-
endur hamfaranna sem komu ósköp-
unum af stað (’68) búnir að koma sér
bærilega fyrir, miðað við efni og að-
stæður, í borginni Pittsburgh, þar
sem stórfljót umlykja borgarhlutann
og vernda mannfólkið á þrjá vegu
fyrir uppvakningunum sem hafa til
þessa vafrað um eins og höfuðlaus
her og staðnæmst við allar fyr-
irstöður. Fjórða hlið borgarnýlend-
unnar er síðan varin með rafmagns-
girðingu.
Yfir mönnunum drottnar einvald-
urinn Kaufman (Hopper) í Green
Meadows, glæstum skýjakljúfi þar
sem auðmennirnir búa.
Í borginni ríkir ringulreið þar sem
varðflokkar gæta laga og reglna.
Einn yfirmaður þeirra er Riley, einn
af fáum ærlegum íbúum nýlend-
unnar. Cholo (Leguizamo), einn af
mönnum hans, hefur verið hægri
hönd Kaufmans. Stökkbreytingar
verða meðal uppvakninganna, þeir
fara að geta tjáð sig og sameinast í
árás á mannabyggðina því hungrið
sverfur að þeim. Á sama tíma svíkur
Kaufman snattstrák sinn Cholo, sem
hyggur á grimmilegar hefndir, og
upphefst atburðarás sem markar
endalok nýlendunnar.
Romero fer vel af stað, fyrsti
klukkutíminn er hrikalegur á sinn
hráslagalega hátt. Almúginn, grár
og gugginn, er ófrýnileg sjón því
holdið er farið að detta af uppvakn-
ingunum, sumir líta út fyrir að hafa
verið aðalrétturinn á matseðlinum
þegar boðinu lauk í miðjum klíðum.
Maður greinir að hægfara breyt-
ingar eru að eiga sér stað; einn getur
öskrað, annar blæs í trombónu, fleiri
tilfinningar gera vart við sig, einkum
hatur sem beinist gegn mönnunum í
nýlendunni og upplýsta kastalanum
Green Meadows, paradísinni sem
gnæfir yfir í víti.
Romero er enn og aftur að gagn-
rýna heimsmyndina, borgin er ver-
öldin okkar í hnotskurn. Kaufman er
samnefnari fyrir karla eins og Pútín
(við semjum ekki við hryðjuverka-
menn…) og aðra misvitra ráðamenn
og fulltrúi auðmannastéttarinnar
sem safnar geðveikislegum auð-
æfum á meðan almenningur (upp-
vakningarnir) á rétt í sig og á.
Stórskáldið beiska frá Bólu orti
um dyggðasnauða fanta sem „safna
auð með augun rauð/þá aðra brauðið
vantar“. Ef einhver efast um að
þessi orðsnilli eigi ekki jafnmikinn
rétt á sér í dag og á hörmungarárum
19. aldar þá þarf hann að þurrka
stírurnar úr augunum. Aðeins hlut-
föllin hafa breyst. En Bólu-Hjálmar
er beðinn afsökunar á að vera dreg-
inn inn í þessa umræðu, hann var á
öðru og æðra plani en Romero, sem
reyndar er einnig álitinn snillingur
af sínum sértrúarflokki.
Romero er einstaklega umdeildur
kvikmyndagerðarmaður og kemur
ekki á óvart. Hann notar viðbjóðsleg
meðöl, í orðsins fyllstu merkingu. Í
Land of the Dead er hann farinn að
endurtaka sig og hefur litlu að bæta
við frábært upphaf uppvakn-
ingabálksins, hina frumlegu og hníf-
beittu Night of the Living Dead,
sem virtist segja allt sem karli býr í
brjósti. Fjórði hlutinn reynist marg-
tuggin saga þegar upp er staðið og
þá verður ljótleikinn þreytandi, blóði
drifið mannakjötsátið hvimleitt,
áhorfandanum bumbult. Persón-
urnar eru staðlaðar, leikurinn lit-
laus. Maður hefur á tilfinningunni að
þessi fyrrum ágæti byltingarmaður
hafi að þessu sinni peningavonina og
fleiri framhaldsmyndir að leiðarljósi.
„Franchise“ er töfraorðið í Holly-
wood samtímans.
Órói í dauðsmannslandi
„Romero er enn og aftur að gagnrýna heimsmyndina, borgin er veröldin okkar í hnotskurn,“ segir m.a. í dómnum.
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Smárabíó
Leikstjóri: George A. Romero. Aðalleik-
arar: Simon Baker, Dennis Hopper, Asia
Argento, Robert Joy, Eugene Clark, John
Leguizamo. 95 mín. Bandaríkin. 2005
Land hinna dauðu (Land of the Dead)
Sæbjörn Valdimarsson