Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 246. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Sigur Rós fær
5 stjörnur
Skarphéðinn Guðmundsson gagnrýnir
Takk … og segir: Sömuleiðis | Menning
Fasteignir og Íþróttir í dag
Fasteignir | Hönnunarafmæli Vistvæn þorp Villigötur Keppt við Kára
Hafnirnar styrkja búsetu Íþróttir | Breiðablik bikarmeistari Chelsea og
Charlton með fullt hús KR-ingar komnir á skrið Teitur tekur við KR
ALLT stefndi í gær í mjög tvísýnar þing-
kosningar í Noregi en fylkingarnar tvær,
annars vegar ríkisstjórn borgaraflokkanna,
sem notið hefur stuðnings Framfaraflokks-
ins, og hins vegar vinstriflokkarnir, hafa að
undanförnu skipst á um nauma forystu sam-
kvæmt skoðanakönnunum.
Kannanir, sem birtar voru í gær, sýndu
ýmist sigur borgaraflokkanna eða vinstri-
flokkanna. Í Verdens Gang var borgara-
flokkunum spáð 87 þingsætum af 169 en
vinstriflokkunum 80. Aftenposten og norska
ríkisútvarpið spáðu hins vegar þeim síðar-
nefndu 85 þingsætum á móti 83. Það er því
ljóst, að óvissunni lýkur ekki fyrr en talið hef-
ur verið upp úr kjörkössunum.
Fylgissveiflurnar eru ekki síst innan fylk-
inganna sjálfra og má nefna sem dæmi, að
Venstre, einn ríkisstjórnarflokkanna, hefur
verið að bæta sig og sækir hann einkum fylg-
ið til hinna ríkisstjórnarflokkanna tveggja,
Hægriflokksins og Kristilega þjóðarflokks-
ins, flokks Kjell Magne Bondeviks forsætis-
ráðherra. Á hinn bóginn hefur Verkamanna-
flokkurinn verið að taka fylgi af Sósíalíska
vinstriflokknum en þeir og Miðflokkurinn
stefna að stjórnarmyndun fái þeir umboð til
þess. Þá yrði Jens Stoltenberg, leiðtogi
Verkamannaflokksins, forsætisráðherra.
Hagen hafnar Bondevik
Allt bendir til, að Framfaraflokkurinn
vinni góðan sigur, en hann hefur stutt rík-
isstjórn borgaraflokkanna. Carl I. Hagen,
leiðtogi hans, hefur hins vegar lýst yfir, að
hann muni ekki styðja aftur stjórn með
Bondevik við stýrið. Fari svo, að hvorug fylk-
inganna fái meirihluta, getur stjórnarmynd-
un oltið á smáflokkum, til dæmis Strand-
byggðaflokki Steinars Bastesens.
Helstu kosningamálin hafa verið einka-
væðingin, sem vinstriflokkarnir vilja hægja
á, og hvernig nota skuli olíuauðinn. Bendir
stjórnarandstaðan á, að því fólki, sem talið er
fátækt í Noregi, fjölgaði um 25% frá 2001 til
2003 og telur nú 235.000 manns.
Reuters
Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra
kaus í gær en það var heimilt þeim sem
búa í afskekktum kjördæmum.
Óvissa
um úrslit
í Noregi
Myndun næstu
stjórnar getur oltið
á smáflokkum
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
FÓRNARLAMBA hryðjuverkanna í Bandaríkj-
unum fyrir fjórum árum, 11. september 2001, var
minnst í gær vítt og breitt um landið og einnig
annars staðar um heim.
Í New York, á vettvangi mestu atburðanna,
hófst athöfnin með því, að systkini hinna látnu,
2.749 manns, lásu upp nöfn ástvina sinna en fyrir
ári voru það foreldrar og afar og ömmur þeirra,
sem létust, sem það gerðu. Að því búnu varpaði
fólk blómum út í minningartjörn en hún er þar
sem Tvíburaturnarnir stóðu áður. Áttu margir
um sárt að binda við athöfnina og grétu bæði
hátt og í hljóði. Í ræðu Michaels Bloombergs,
borgarstjóra í New York, minntist hann fórn-
arlamba hryðjuverkanna fyrir fjórum árum og
einnig þeirra, sem fallið hafa fyrir hendi ofstæk-
ismanna annars staðar, til dæmis í Madrid og
London. Þá sendi hann samúðarkveðjur til þeirra,
sem misst hafa ættingja sína og líða fyrir afleið-
ingar fellibylsins Katrínar.
Fórnarlamba hryðjuverkanna minnst
Reuters
LEIFAR af fellibylnum Maríu
munu nálgast suðurströnd lands-
ins í dag með tilheyrandi roki og
rigningu. Ekki stafar þó nein
hætta af Maríu sem kemur langt
að suðvestan úr hafi og var fellibyl-
ur á mánudag og þriðjudag í síð-
ustu viku.
„Þetta eru leifar af fellibyl þann-
ig að þetta er í raun bara venjuleg
lægð sem er að koma að landinu og
hún er ekkert óvenjulega djúp
miðað við venjulegar haustlægðir,“
segir Helga Ívarsdóttir, veð-
urfræðingur á Veðurstofu Íslands,
en spáð er stormi, eða 23 m/s, við
suðurströndina og á miðunum fyr-
ir sunnan land í dag. Að sögn
Helgu má um hádegisbilið í dag
búast við því að það verði komin
rigning sunnantil og síðan fer
lægðin með suðausturströndinni.
Á morgun má búast við hvassri
norðaustanátt og talsverðri rign-
ingu austan til á landinu. Gera má
ráð fyrir minnkandi norðaustanátt
á miðvikudag.
Leifar af
fellibyl
við landið
Veður | 35
VEL á annað hundrað manns
gengu fjörur í gær í leit að 34 ára
gömlum manni sem saknað er eft-
ir að skemmtibátur sökk á Viðeyj-
arsundi aðfaranótt laugardags.
Leit verður haldið áfram í dag, en
nær eingöngu verður leitað á sjó.
Björgunarsveitarmenn gengu
fjörur frá Gróttu upp á Kjalar-
nestá, auk eyjanna, án árangurs.
Þeir fengu hjálp frá á fjórða tug
ættingja og vina mannsins við leit-
ina. Bátar voru einnig notaðir við
leitina, sem og björgunarpramm-
inn sem náði bátnum upp af hafs-
botni á laugardag. Beittu björg-
unarmenn neðansjávarleitartæki
til þess að finna líklega staði, og
sendu svo kafara niður til að leita
af sér allan grun.
Félagar í Snarfara, félagi sport-
bátaeigenda í Reykjavík, tóku
þátt í leitinni í dag á rúmlega tutt-
ugu bátum, og leituðu þeir skipu-
lega frá Engey upp á Kjalarnes.
Rannsókn hefst í dag
Rannsókn lögreglu á tildrögum
slyssins hefst í dag, og verður flak
bátsins rannsakað af tæknideild
lögreglu og fulltrúa rannsóknar-
nefndar sjóslysa. Karlmaður og
kona um fimmtugt sem björguð-
ust af kili bátsins eru á batavegi
og hafa verið útskrifuð af gjör-
gæslu, en þau slösuðust alvarlega
þegar báturinn steytti á skeri.
Ekki er búið að taka skýrslu af
á, og ef maðurinn hafi lent í henni
geti hann hafa borist út fyrir leit-
arsvæði dagsins.
Jónas segir að leit verði fram
haldið á sjó í dag, en trúlega verði
það bara vinir og ættingjar
mannsins sem muni ganga fjörur.
Einnig sé hugsanlegt að sundin
verði slædd, en tekin verði
ákvörðun um það í dag.
Jónas segir líklegt að ef leit beri
ekki árangur næstu daga verði
farið í aðra allsherjarleit líka
þeirri sem fram fór um helgina um
næstu helgi.
fólkinu, en samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglu verður það gert í
dag.
Straumþung röst
Góð skilyrði voru til leitar í gær
og voru gengnar allar fjörur frá
Gróttu upp á Kjalarnestá, auk
eyjanna, segir Jónas Hallsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í lögregl-
unni í Reykjavík, sem hefur haft
yfirumsjón með leitinni.
Hann segir það flækja málið að
straumþung röst er skammt frá
Skarfaskeri, sem báturinn steytti
Áfram leitað á sjó
Morgunblaðið/Golli
Kafarar héldu leit áfram fram eftir kvöldi í gær og munu halda leit áfram í dag ef veður leyfir.
Fjölmenn leit að 34 ára gömlum manni bar engan árangur í gær
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is