Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 11
Farþegum fjölgar enn hjá Sterling FARÞEGUM hjá Sterling-lágfar- gjaldaflugfélaginu hefur fjölgað all- ar götur frá upphafi ársins 2002 og farþegum félagsins fjölgaði um nær 13% í ágústmánuði samanborið við ágúst í fyrra. Liðlega 211 þúsund farþegar flugu með Sterling nú í ágúst og það sem af er ársins hefur Sterling flutt tæplega 1,4 milljónir farþega en það er 15,6% aukning frá sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu Sterling kemur fram að sætanýtingin í ágúst hafi verið rétt tæp 80% en það sé 10% aukning frá ágúst í fyrra. Fyrstu átta mánuði þessa árs hefur sæta- nýtingin verið 81,3%. „Þetta hefur verið gott sumar hjá Sterling og niðurstöðutölurnar eru góðar og sýna einfaldlega að Sterl- ing hefur lag á að selja ferðir á rétta áfangastaði og á hagstæðu verði, “ segir Stefan Vilner, einn fram- kvæmdastjóra Sterling. STJÓRN bresku verslunarkeðjunn- ar Somerfield er sögð ætla að setja þeim tveimur hópum, sem hafa ver- ið að undirbúa hugsanlegt yfirtöku- tilboð, tímafrest en stjórninni þykir málið hafa dregist á langinn. Snemma árs lagði Baugur Group fram óformlegt yfirtökutilboð í So- merfield, sem er fimmta stærsta matvöruverslunarkeðja Bretlands. Því tilboði hafnaði stjórn félagsins en gaf jafnframt til kynna að hún væri reiðubúin til viðræðna um nýtt tilboð. Í kjölfarið lýstu fleiri aðilar áhuga á að yfirtaka Somerfield og voru myndaðir þrír hópar fyrir- tækja sem tóku upp viðræður við fé- lagið. Verslunarfyrirtækið United Co- operatives hætti viðræðum við So- merfield í júní en síðan hafa tveir hópar haldið viðræðunum áfram. Baugur var í öðrum hópnum ásamt fjárfestingarfélaginu Apax, bankan- um Barclays Capital og félagi í eigu kaupsýslumannsins Roberts Tchenguiz. Eftir að ákæran á hend- ur forsvarsmönnum Baugs var lögð fram hér á landi í byrjun júlí dró Baugur sig út úr samstarfinu. Hinn hópurinn er á vegum bræðranna Ians og Richards Livingstones. Hóparnir hafa nú skoðað bókhald Somerfield í nokkra mánuði og talið var í sumar að von væri á tilboðum þá og þegar. Af því hefur þó ekki orðið enn og að sögn Reuters-frétta- stofunnar er stjórn Somerfield nú að missa þolinmæðina og vill knýja fram úrslit í málinu með því að setja væntanlegum tilboðsgjöfum frest. Reuters segir, að Somerfield vilji helst að breska yfirtökunefndin setji tilboðsgjöfunum frest, því þá eigi þeir engan annan kost en að virða þann frest. Fram kemur að málið hafi dregist á langinn vegna þess að langan tíma hafi tekið að yfirfara eignaskrá Somerfield, sem sé talin lykillinn að tilboði. Alls á Somerfield 1.224 fast- eignir sem settar verða að veði fyrir lánum. Somerfield þrýstir á tilboðsgjafa MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 11 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Yfirmenn útboða hvorrar herstjórnar um sig munu kynna starfsemi þeirra, gera grein fyrir útboðsferlum og eðli verkefna sem boðin eru út á þeirra vegum sem og kynna fyrir íslenskum fyrirtækjum hvernig nálgast megi þau verkefni. Dagskrá: 09.00-09.30 Paul Buades – Yfirmaður verkútboða NATO í Evrópu. 09.30-10.00 Lee H. Weber – Yfirmaður verkútboða NATO í Bandaríkjunum. 10.00-10.15 Hafmynd ehf. Fyrirtækjum býðst einnig möguleiki á að panta sérstakan fundartíma til að ræða nánar möguleika síns fyrirtækis. Fundurinn fer fram í fundarsal utanríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25. Vinsamlegast tilkynnið skráningu á fundinn sem og óskir um bókun fundartíma til Berglindar Sigmarsdóttur hjá VUR í síma 545 9932 eða með tölvupósti á netfangið berglind@mfa.is. Þriðjudaginn 13. september verður haldinn kynningarfundur fyrir íslensk fyrirtæki um möguleg viðskiptatækifæri á vettvangi Evrópu- og Atlantshafsherstjórnar NATO. hjá Viðskiptatækifæri NATO Gjaldþrotum fækkar í Svíþjóð ● GJALDÞROTUM sænskra fyr- irtækja fækkar verulega á milli ára samkvæmt nýrri tölfræði frá upplýs- ingafyrirtækinu UC. Í ágústmánuði fækkaði gjaldþrotum um 6% miðað við sama tímabil í fyrra og það sem af er ári hefur þeim fækkað um 10%. UC spáir því að gjaldþrot í ár verði um 10% færri en í fyrra og er það mat fyrirtækisins að ástæðuna sé að finna í því að sænska hagkerfið er nú í uppsveiflu. Cargolux á nýjar veiðilendur ● FRAKTFLUGFÉLAGIÐ Cargolux hef- ur opnað nýjar skrifstofur í Lissabon í Portúgal og Zurich í Sviss. Í frétta- tilkynningu frá fyrirtækinu segir að vörubifreiðar verði í reglulegum ferð- um milli borganna tveggja og höf- uðstöðva fyrirtækisins í Lúxemborg. Tilgangurinn sem að baki þessari út- víkkun á starfseminni liggur er að auka þjónustu við viðskiptavini fyr- irtækisins í Portúgal og Sviss. STAÐAN í efnahagslífinu í Dan- mörku er með besta móti um þess- ar mundir. Þetta sýna nýjar hag- tölur dönsku Hagstofunnar. Í frétt á vefmiðli danska blaðsins Berl- ingske Tidende (BT) segir að verðbólga áttunda áratugar síð- ustu aldar sé að baki, það sama eigi við um fjárlagahalla níunda áratugarins og atvinnuleysi þess tíunda. Staðan núna minni hins vegar um margt á gullaldarár síð- ustu aldar, á sjöunda áratugnum. Fram kemur í BT að hagtölur sýni að útflutningur frá Dan- mörku hafi aukist mikið að und- anförnu og að vöruskiptajöfnuður síðastliðna tólf mánuði hafi verið jákvæður um 57 milljarða danskra króna. Þá hafi einkaneysla aldrei verið meiri og jafnframt að dregið hafi verulega úr nauðungarupp- boðum á fasteignum og gjald- þrotum fyrirtækja. Hins vegar sé verðbólga lág um þessar mundir og gengi dönsku krónunnar sterkt, og þá sé fasteignaverð hátt en húsaleiga lág. BT hefur eftir Jens Asmunssen, hagfræðingi hjá Nordea bank- anum, að allt gangi vel í dönsku efnahagslífi og að erfitt sé að koma auga á einhver vandamál. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Góð staða Danskur efnahagur hefur sjaldan verið betri. Á myndinni er nýja óperuhúsið í Kaupmannahöfn. Góður gang- ur í dönsku efnahagslífi Góð afkoma dregur úr lánsþörf ● ÞAÐ ERU ekki einungis íslensk fyr- irtæki sem hafa verið að skila góðri afkomu. Þetta á líka við um fyrirtæki í Svíþjóð og hefur nú skilað sér í því að lánsþörf sænska ríkisins hefur minnk- að. Ríkið tekur sinn skerf af afkomu allra fyrirtækja og hefur hagur sænska ríkisins því batnað. Riks- gäldskontoret, sem samsvarar Lána- sýslu ríkisins hér á landi, gefur reglu- lega út áætlun yfir lánsþörf sænska ríkisins og síðustu þrjá mánuði hefur ríkið þurft að taka 16 milljörðum sænskra kr. minna að láni en reiknað hafði verið með. Sem dæmi má nefna ágústmánuð en þá þurfti sænska rík- ið að taka 8,4 milljarða sænskra króna að láni. Riksgäldskontoret hafði hins vegar reiknað með lánsþörf upp á 13,3 milljarða. Frá þessu grein- ir sænska blaðið Dagens Industri. Er Osló að fara fram úr Stokkhólmi? ALLT stefnir í að kauphöllin í Osló verði brátt sú veltumesta á Norð- urlöndunum. Þar er að finna mikið af fyrirtækjum sem starfa innan ol- íugeirans og leita fjárfestar þang- að í æ meiri mæli enda olíufélögin mjög aðlaðandi um þessar mundir. Frá þessu greinir sænska frétta- þjónustan TT og vitnar í tölur frá Norex sem er samstarfsvettvangur kauphalla á Norðurlöndunum. Jafnframt greinir TT frá því að velta í kauphöllinni í Stokkhólmi, sem jafnan hefur verið sú stærsta á Norðurlöndunum, hafi dregist saman um fjórðung á síðustu fimm árum en velta í Osló hafi tvöfald- ast. Það sem fyrst og fremst háir kauphöllinni í Stokkhólmi mun vera tæknibólan sem sprakk síðla árs 2000 en fjárfestar þar hafa ver- ið varari um sig síðan. Velta í kauphöllinni í Osló í ágúst jafngilti 17,5 milljörðum evra, en var 28,7 milljarðar evra í Stokkhólmi. Það kann að hljóma hjákátlega að halda því fram að Osló fari fram úr en staðreyndin er sú að fyrir fimm árum síðan var velta í Stokkhólmi sjöföld á við veltu í Osló. Nú er hún 1,6 sinnum meiri. Annað sem bendir til þess að fjármagnseigendur leiti frekar til Noregs er sú staðreynd að í ár hafa 27 hlutafélög verið skráð í kauphöllina þar en einungis 5 í Stokkhólmi. Kauphöllin í Osló. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.