Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ kl. 4 og 6 Í þrívíddSýnd kl. 5.30, 8 og 10.30kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i 10 ára VINCE VAUGHN OWEN WILSON BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL. Sýnd kl. 4 ísl tal Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára kl. 4, 6, 8 og 10 Frábærtævintýri fyrir alla fjölskylduna! Sýnd kl. 6 ísl tal MEISTARI HROLLVEKJU NNAR SNÝR AFTUR TIL AÐ HRÆÐA ÚR OKKUR LÍFTÓRUNA kl. 8 og 10 (kraftsýning) b.i. 16 ára Sími 564 0000 Sýnd kl. 8 og 10.20 Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Sprenghlægileg gamanmynd! Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Sprenghlægileg gamanmynd! Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára O.H.H. / DV. . . / H.J. / Mbl.. . / l.     Frábærtævintýri fyrir alla fjölskylduna! KVIKMYNDIR.COM  RÁS 2 Ó.H.T  EFTIRVÆNTINGIN er ennþá jafnmikil. Óbærileg. Ný plata frá Sigur Rós er enda ekkert minna en stórtíðindi í íslensku tónlist- arlífi, og reyndar ekki aðeins íslensku heldur hefur plötunnar verið beðið með óþreyju um heim allan. 250 þúsund fyrirfram pantanir á hjá netsölunni Ama- zon.com tala þar sínu máli. Við erum að tala um ein stærstu tíðindi ársins í framsækinni rokktónlist, og það með réttu og án allrar þjóðernisrembu. Svo stór er sveitin orðin. Svo mikilvæg. Og eftir vandlega íhugun og ítrek- aða hlustun þá segir manni svo hugur að Takk…eigi aðeins eftir að gera Sigur Rós að ennþá stærra nafni, ennþá mikilvægari hljóm- sveit, því hún uppfyllir allar þær væntingar sem aðdáendur sveitarinnar gera til hennar og jafnvel gott betur. Um leið verður reyndar að segjast sem er að hún er ögn fyr- irsjáanlegri en maður hafði búist við af öðrum eins ólíkindartólum, af eins leitandi tónlist- armönnum og Sigur Rósar-menn eru óum- deilanlega. Platan er sú aðgengilegasta og mest grípandi af þeim fjórum sem þeir hafa sent frá sér – að undanskildum hliðarverk- efnum á borð við balletverk og kvikmynda- tónlist – og hefur hún m.a. að geyma lög – einkum „Gong“ og „Hoppípolla“ – sem kom- ast næst því, af allri tónlist sem Sigur Rós hefur samið til þessa, að geta talst hefðbundin rokklög að byggingu og áferð. Það eru líka frábær rokklög og gott ef ekki er bara hægt að flytja þau ósködduð hjá Letterman! Þessi og önnur lög á plötunni sverja sig ýmist í ætt við Ágætis byrjun – smáskífan „Glósóli“, „Hoppípolla“ og hið ægifagra „Svo hljótt“ – eða ( ) – „Sæglópur“, „Mílanó“ og „Andvari“. Það má jafnvel greina nokkra hljóma, t.d. í „Sæglópur“, sem minna á hina rafskotnari og tilraunakenndari frumraun sveitarinnar Von. Það mætti því líta á Takk … sem einhvers konar samantekt á fyrri verkum, farsælar niðurstöður 12 ára langra músíkrannsókna. Og þvílíkar nið- urstöður. Þvílík arfleifð. Án allra tvímæla áhugaverðasta og fegursta tónlist sem ís- lenskir listamenn hafa skapað á sviði fram- sækinnar rokktónlistar. En um leið og lögin ellefu bera hvert á sinn hátt í sér vísanir í fyrri verk, eru þeim ná- skyld, þá fela þau í sér greinilegar vísbend- ingar um að sveitin er í stöðugri framþróun og verður sífellt sterkari. Styrkur þessi felst ekki hvað síst í því hversu heilsteypt tónlistin er orðin, skotheld og útpæld í allri sinni „slysalist“ – eins og þeir féllust á að kalla tilviljanakenndu og til- raunaglöðu listsköpun sína í Morgunblaðs- viðtali við Árna Matthíasson á dögunum. Um leið og þeir hafa náð fullkomnum tökum á list- formi sínu er það einmitt þessi slysalist sem ríður baggamuninn, gerir annars útpælt tón- listarkonseptið spennandi og grasserandi í framandi ævintýrum. Og það er samruni þessa útpælda og „slysalega“ sem gerir líka að verkum að jafnvel þegar eitthvað á skortir, er alltaf eitthvað annað áhugavert í gerjun, eitthvað svo æsilegt að það skyggir gjör- samlega á annmarkana. Þegar andagiftina skortir t.a.m. í lagasmíðunum koma þeim til bjargar aðrir og jafnvel ennþá dýrmætari hæfileikar; djúpt og mikið „músíkalítet“, eins og þeir myndu kalla það gömlu skríbentarnir: einstakur hæfileiki til að útsetja og byggja upp lögin, þar sem helstu kostir eru tak- markalaus hugmyndaauðgi og fádæma næmni fyrir átakanlega grípandi stíganda. Þessa hæfileika verður að telja bland beggja, tón- listarleg náðagift og gagnkvæmur skilningur, ávöxtur þess hversu lengi og náið fjórmenn- ingarnir hafa unnið og skapað tónlist saman. Skýrasta dæmið um þetta er lagið „Sé lest“, lag sem væri lítið meira en tilþrifasnautt Tub- ular Bells-stef ef ekki hefði verið fyrir snilld- arlega útsetningu og einkar vel til fundna lausn í bláenda þessa tæplega átta mínútna lags þegar marserandi lúðrasveit hleypir því upp og gæðir nauðsynlegum blæbrigðum og stóraukinni vigt. Og annars hefðbundið gít- ardrifið rokklag eins og „Gong“ er drifið upp á æðra plan með geggjuðum trommuleik Orra, kraftmiklum, frumlegum og karakt- erríkum; minnir mann á Sigtrygg Baldursson í sínu besta formi eða jafnvel Steve Jansen úr Japan, bróður Davids Sylvians. Þetta eru kristaltær dæmi um snilligáfu fjórmenning- anna. Öll tónlist sem þeir skapa og senda frá sig hefur eitthvað við sig, eitthvað alveg sér- stakt sem sker hana frá og hefur yfir nær alla aðra. Þá er enn ógetið hugsanlega mestu snilld- arinnar á plötunni, lokalagsins „Heysátan“; lítill og ljúfur lagstúfur sem lætur kannski lít- ið yfir sér en er hreint ótrúlega áhrifamikill, fallegur og haganlega saminn. Og þar kemur kannski skýrast í ljós hversu miklu máli text- inn getur skipt, jafnvel þótt hann sé aðeins nokkur orð en þar syngur Jónsi af fádæma tilfinningaþrunga um gamlan bónda sem verður undir heysátu og kveður þennan heim, mettur; „…og sáttur halla nú höfði hér.“ „Tví- mælalaust fallegasta lag sem samið hefur ver- ið um vinnuslys,“ er lýsing Árna Matthías- sonar á laginu og verður ekki orðuð betur. Þetta lag sker sig um margt frá öðrum á plöt- unni, hefur aðra byggingu, er lágstemmdara og að manni virðist í öðrum takti. Greinilegt skref í aðra átt, hugsanlega næsta skref hjá Sigur Rós, vísbending um það sem koma skal. Frumdrög að nýrri og einkar lofandi mús- íkrannsókn? Vonandi. Það verður ekki hjá komist hjá að velta titli plötunnar fyrir sér, því hann felur í sér eðli Sigur Rósar-manna sem listamenn. Hæverska og auðmýkt er nefnilega þeirra höfuðdyggð, lotning fyrir þeirri gift sem þeim var gefin. Djúp og hrein virðing fyrir þeim sem nenna að hlusta og gefa þeim gaum. En örlæti þeirra sjálfra og framlag til íslenskrar tónlist- ar verður seint nægilega metið. Við erum nefnilega að tala um hljómsveit sem ber höfuð og herðar yfir allar aðrar sem fram á sjón- arsviðið hafa komið í sögu íslenskrar tónlist- ar. Hljómsveit sem nú hefur sent frá sér þrjár af fimm bestu plötum íslenskrar rokksögu, al- gjör yfirburðaverk. Fyrir slíka gjöf er því lítið annað hægt að segja en takk sömuleiðis. Sömuleiðis Ljósmynd/Helen Woods „Án allra tvímæla áhugaverðasta og fegursta tónlist sem íslenskir listamenn hafa skapað á sviði framsækinnar rokktónlistar,“ segir Skarphéð- inn m.a. í dómnum. „Platan er sú aðgengilegasta og mest grípandi af þeim fjórum sem þeir hafa sent frá sér...“ TÓNLIST Íslenskar plötur Takk …er fjórða eiginlega hljóðversplata Sigur Rós- ar. Sveitina skipa Jón Þór Birgisson, Kjartan Sveins- son, Georg Hólm og Orri Páll Dýrason. Lög og textar eru eftir Sigur Rós. Strengjasveitin Amina á hluta í lögunum Gong og Mílanó og útsetur strengi. Aðrar útsetningar eru Sigur Rósar. Upptökustjórn Ken Thomas. Útgefandi Smekkleysa og EMI. Sigur Rós - Takk …  Skarphéðinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.