Morgunblaðið - 12.09.2005, Page 30
30 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
kl. 4 og 6 Í þrívíddSýnd kl. 5.30, 8 og 10.30kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i 10 ára
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
BESTA
GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
Sýnd kl. 4 ísl tal
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
kl. 4, 6, 8 og 10
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
Sýnd kl. 6 ísl tal
MEISTARI
HROLLVEKJU
NNAR SNÝR
AFTUR
TIL AÐ
HRÆÐA
ÚR OKKUR
LÍFTÓRUNA
kl. 8 og 10 (kraftsýning) b.i. 16 ára
Sími 564 0000
Sýnd kl. 8 og 10.20
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
O.H.H. / DV. . . /
H.J. / Mbl.. . / l.
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
EFTIRVÆNTINGIN er ennþá jafnmikil.
Óbærileg. Ný plata frá Sigur Rós er enda
ekkert minna en stórtíðindi í íslensku tónlist-
arlífi, og reyndar ekki
aðeins íslensku heldur
hefur plötunnar verið
beðið með óþreyju um
heim allan. 250 þúsund
fyrirfram pantanir á
hjá netsölunni Ama-
zon.com tala þar sínu
máli. Við erum að tala
um ein stærstu tíðindi ársins í framsækinni
rokktónlist, og það með réttu og án allrar
þjóðernisrembu. Svo stór er sveitin orðin. Svo
mikilvæg. Og eftir vandlega íhugun og ítrek-
aða hlustun þá segir manni svo hugur að
Takk…eigi aðeins eftir að gera Sigur Rós að
ennþá stærra nafni, ennþá mikilvægari hljóm-
sveit, því hún uppfyllir allar þær væntingar
sem aðdáendur sveitarinnar gera til hennar
og jafnvel gott betur. Um leið verður reyndar
að segjast sem er að hún er ögn fyr-
irsjáanlegri en maður hafði búist við af öðrum
eins ólíkindartólum, af eins leitandi tónlist-
armönnum og Sigur Rósar-menn eru óum-
deilanlega. Platan er sú aðgengilegasta og
mest grípandi af þeim fjórum sem þeir hafa
sent frá sér – að undanskildum hliðarverk-
efnum á borð við balletverk og kvikmynda-
tónlist – og hefur hún m.a. að geyma lög –
einkum „Gong“ og „Hoppípolla“ – sem kom-
ast næst því, af allri tónlist sem Sigur Rós
hefur samið til þessa, að geta talst hefðbundin
rokklög að byggingu og áferð. Það eru líka
frábær rokklög og gott ef ekki er bara hægt
að flytja þau ósködduð hjá Letterman!
Þessi og önnur lög á plötunni sverja sig
ýmist í ætt við Ágætis byrjun – smáskífan
„Glósóli“, „Hoppípolla“ og hið ægifagra „Svo
hljótt“ – eða ( ) – „Sæglópur“, „Mílanó“ og
„Andvari“. Það má jafnvel greina nokkra
hljóma, t.d. í „Sæglópur“, sem minna á hina
rafskotnari og tilraunakenndari frumraun
sveitarinnar Von. Það mætti því líta á
Takk … sem einhvers konar samantekt á
fyrri verkum, farsælar niðurstöður 12 ára
langra músíkrannsókna. Og þvílíkar nið-
urstöður. Þvílík arfleifð. Án allra tvímæla
áhugaverðasta og fegursta tónlist sem ís-
lenskir listamenn hafa skapað á sviði fram-
sækinnar rokktónlistar.
En um leið og lögin ellefu bera hvert á sinn
hátt í sér vísanir í fyrri verk, eru þeim ná-
skyld, þá fela þau í sér greinilegar vísbend-
ingar um að sveitin er í stöðugri framþróun
og verður sífellt sterkari.
Styrkur þessi felst ekki hvað síst í því
hversu heilsteypt tónlistin er orðin, skotheld
og útpæld í allri sinni „slysalist“ – eins og þeir
féllust á að kalla tilviljanakenndu og til-
raunaglöðu listsköpun sína í Morgunblaðs-
viðtali við Árna Matthíasson á dögunum. Um
leið og þeir hafa náð fullkomnum tökum á list-
formi sínu er það einmitt þessi slysalist sem
ríður baggamuninn, gerir annars útpælt tón-
listarkonseptið spennandi og grasserandi í
framandi ævintýrum. Og það er samruni
þessa útpælda og „slysalega“ sem gerir líka
að verkum að jafnvel þegar eitthvað á skortir,
er alltaf eitthvað annað áhugavert í gerjun,
eitthvað svo æsilegt að það skyggir gjör-
samlega á annmarkana. Þegar andagiftina
skortir t.a.m. í lagasmíðunum koma þeim til
bjargar aðrir og jafnvel ennþá dýrmætari
hæfileikar; djúpt og mikið „músíkalítet“, eins
og þeir myndu kalla það gömlu skríbentarnir:
einstakur hæfileiki til að útsetja og byggja
upp lögin, þar sem helstu kostir eru tak-
markalaus hugmyndaauðgi og fádæma næmni
fyrir átakanlega grípandi stíganda. Þessa
hæfileika verður að telja bland beggja, tón-
listarleg náðagift og gagnkvæmur skilningur,
ávöxtur þess hversu lengi og náið fjórmenn-
ingarnir hafa unnið og skapað tónlist saman.
Skýrasta dæmið um þetta er lagið „Sé lest“,
lag sem væri lítið meira en tilþrifasnautt Tub-
ular Bells-stef ef ekki hefði verið fyrir snilld-
arlega útsetningu og einkar vel til fundna
lausn í bláenda þessa tæplega átta mínútna
lags þegar marserandi lúðrasveit hleypir því
upp og gæðir nauðsynlegum blæbrigðum og
stóraukinni vigt. Og annars hefðbundið gít-
ardrifið rokklag eins og „Gong“ er drifið upp
á æðra plan með geggjuðum trommuleik
Orra, kraftmiklum, frumlegum og karakt-
erríkum; minnir mann á Sigtrygg Baldursson
í sínu besta formi eða jafnvel Steve Jansen úr
Japan, bróður Davids Sylvians. Þetta eru
kristaltær dæmi um snilligáfu fjórmenning-
anna. Öll tónlist sem þeir skapa og senda frá
sig hefur eitthvað við sig, eitthvað alveg sér-
stakt sem sker hana frá og hefur yfir nær alla
aðra.
Þá er enn ógetið hugsanlega mestu snilld-
arinnar á plötunni, lokalagsins „Heysátan“;
lítill og ljúfur lagstúfur sem lætur kannski lít-
ið yfir sér en er hreint ótrúlega áhrifamikill,
fallegur og haganlega saminn. Og þar kemur
kannski skýrast í ljós hversu miklu máli text-
inn getur skipt, jafnvel þótt hann sé aðeins
nokkur orð en þar syngur Jónsi af fádæma
tilfinningaþrunga um gamlan bónda sem
verður undir heysátu og kveður þennan heim,
mettur; „…og sáttur halla nú höfði hér.“ „Tví-
mælalaust fallegasta lag sem samið hefur ver-
ið um vinnuslys,“ er lýsing Árna Matthías-
sonar á laginu og verður ekki orðuð betur.
Þetta lag sker sig um margt frá öðrum á plöt-
unni, hefur aðra byggingu, er lágstemmdara
og að manni virðist í öðrum takti. Greinilegt
skref í aðra átt, hugsanlega næsta skref hjá
Sigur Rós, vísbending um það sem koma skal.
Frumdrög að nýrri og einkar lofandi mús-
íkrannsókn? Vonandi.
Það verður ekki hjá komist hjá að velta titli
plötunnar fyrir sér, því hann felur í sér eðli
Sigur Rósar-manna sem listamenn. Hæverska
og auðmýkt er nefnilega þeirra höfuðdyggð,
lotning fyrir þeirri gift sem þeim var gefin.
Djúp og hrein virðing fyrir þeim sem nenna
að hlusta og gefa þeim gaum. En örlæti
þeirra sjálfra og framlag til íslenskrar tónlist-
ar verður seint nægilega metið. Við erum
nefnilega að tala um hljómsveit sem ber höfuð
og herðar yfir allar aðrar sem fram á sjón-
arsviðið hafa komið í sögu íslenskrar tónlist-
ar. Hljómsveit sem nú hefur sent frá sér þrjár
af fimm bestu plötum íslenskrar rokksögu, al-
gjör yfirburðaverk. Fyrir slíka gjöf er því lítið
annað hægt að segja en takk sömuleiðis.
Sömuleiðis
Ljósmynd/Helen Woods
„Án allra tvímæla áhugaverðasta og fegursta tónlist sem íslenskir listamenn hafa skapað á sviði framsækinnar rokktónlistar,“ segir Skarphéð-
inn m.a. í dómnum. „Platan er sú aðgengilegasta og mest grípandi af þeim fjórum sem þeir hafa sent frá sér...“
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Takk …er fjórða eiginlega hljóðversplata Sigur Rós-
ar. Sveitina skipa Jón Þór Birgisson, Kjartan Sveins-
son, Georg Hólm og Orri Páll Dýrason. Lög og textar
eru eftir Sigur Rós. Strengjasveitin Amina á hluta í
lögunum Gong og Mílanó og útsetur strengi. Aðrar
útsetningar eru Sigur Rósar. Upptökustjórn Ken
Thomas. Útgefandi Smekkleysa og EMI.
Sigur Rós - Takk …
Skarphéðinn Guðmundsson