Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR á morgun Umræðan Daglegt málþing þjóðarinnar GRAFARVOGSBÚAR settu Ís- landsmet í sippi á Grafarvogsdeg- inum, en um 660 sippuðu samtímis við Egilshöll. Sumir höfðu vonast eftir að tækist að setja heimsmet, en það tókst ekki. Heimsmet Kín- verja stendur, en á hverfishátíð í Hong Kong fyrr á þessu ári sipp- uðu 2.474 Kínverjar. Þema Grafarvogsdagsins var „hreyfing“, en auk þess að sippa var boðið í hreyfingu í Graf- arvogslaug, kajaksiglingar, strandblak, skeljatínslu, göngu og fleira. Íslandsmet en ekki heimsmet BJARNI Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjarnefndar Alþingis, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í embætti varaformanns Sjálfstæðis- flokksins. Í staðinn styður hann Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra í embætti varafor- manns. Bjarni segir að hann hafi fundið fyrir stuðningi við sig undanfarna daga í embætti varaformanns en hafi þó ákveðið að gefa ekki kost á sér að sinni. „Ég var hvattur til þess að hugsa það vandlega að gefa kost á mér í varaformanninn og þær hvatningar komu víða að. Ég sá fyrir mitt leyti að það lá svo sem ekkert á að gefa út yfirlýsingu um eitt eða neitt en ég var fyrir og er eftir að hafa skoðað minn hug þeirrar skoðunar að þetta sé ekki rétti tíminn fyrir mig til að fara í slag um varaformannsembætti í flokknum. Svo eru komnir fram mjög frambæri- legir frambjóð- endur, þó ég telji reyndar að það sé farsælast fyrir flokkinn að Þor- gerður Katrín verði kosin af þeim sem hafa gefið kost á sér,“ segir Bjarni. Aðspurður hvort hann ætli sér þá fram í varaformanns- eða for- mannsembætti seinna meir, segist Bjarni ætla sér meiri hluti í framtíð- inni. „Það er svo sem ágætt að finna fyrir trausti til að axla meiri ábyrgð, en ég hef verið mjög skamman tíma enn sem komið er í þessu starfi og mér finnst alls ekki vera að tikka á mig nein klukka. Það er auðvitað þannig í stjórnmálum að maður ræður ekki neinum tímasetningum og þess vegna gaf ég mér tíma til að hugleiða þetta og við sjáum bara hvað gerist í framtíðinni. Það er ágætt að finna fyrir því að maður hefur traust til þess að halda áfram og það er einhvers metið sem maður hefur verið að gera og eflaust og vonandi fyrr en maður gerir ráð fyr- ir, kemur sú staða upp að maður sækist eftir því að axla meiri ábyrgð. Það er vissulega eitthvað sem ég horfi til. “ Aðspurður hvort hann muni sækj- ast eftir starfi þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins í kjölfar þess að Einar K. Guðfinnsson tók við emb- ætti sjávarútvegsráðherra, segir Bjarni að mikilvægt sé að flokkur- inn sé vel skipaður á öllum stöðum og að úr góðum hópi þingmanna sé að velja. „Ég er ekki sérstaklega að sækjast eftir þeirri stöðu og hef svo sem nóg á minni könnu eins og sakir standa,“ segir Bjarni. Bjarni Benediktsson Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks Styður Þorgerði Katrínu Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is huga, að skilyrði til nýsköpunar al- mennt í atvinnulífinu er nánast ekki fyrir hendi. Margvísleg tæki- færi fara því forgörðum og mikill fjöldi starfa verður aldrei til borið saman við það sem orðið hefði við eðlilegar aðstæður,“ segir meðal annars í ályktuninni. Vísað er til tillagna þingflokks VG frá sl. vetri þar sem meðal ann- ars er lagt til að stöðva allar frekari stóriðjuframkvæmdir. „Ekkert af því sem nú er að gerast þarf að koma á óvart, allra síst stjórnvöld- um sem sjálf bera mikla ábyrgð á því jafnvægisleysi sem nú er við að glíma í íslenskum þjóðarbúskap,“ segir í ályktuninni. Stóriðjustefna skýringin Sagt er að meginskýringar jafn- vægisleysisins séu núverandi stór- iðjustefna og væntingar sem haldið sé við með því að boða viðstöðu- ÓUMFLÝJANLEGT er að grípa til samræmdra aðgerða til þess að tryggja efnahagslegan stöðugleika og ríkisstjórnin er átalin fyrir háskalegt andvaraleysi í ályktun flokksráðsfundar Vinstrihreyfing- arinnar sem haldinn var um helgina. „Störf tapast nú hundruðum saman þessa mánuðina vegna stór- iðjuvandans í efnahagsmálum, sem lýsir sér í ofurgegni krónunnar, háum vöxtum og þenslu á ákveðnum sviðum vinnumarkaðar. Áhrifin eru hvað augljósust í fisk- vinnslu, ferðaþjónustu og útflutn- ings- og samkeppnisiðnaði, þó þau séu einnig til staðar miklu víðar í hinu almenna atvinnulífi. Þetta gerist ýmist með því að starfsemi leggst af og vinnustöðum er lokað eða umsvifin flytjast úr landi. Þá er ekki síður tilfinnanlegt, með fram- tíðarhagsmuni þjóðarbúsins í laust áframhald stóriðjufram- kvæmda í kjölfar þeirra sem nú standa yfir. Einnig stórfelldar skattalækkanir á efnafólk á þenslu- tímum, þensla á fasteignamarkaði, sem stjórnvöld beri líka sína ábyrgð á, vaxandi misskipting og stóraukinn launamunur, almennt andvaraleysi gagnvart veikleikum í hagkerfinu og skeytingarleysi gagnvart óviðunandi rekstrarskil- yrðum útflutnings- og samkeppn- isgreina og óviðunandi skilyrða til nýsköpunar í almennu atvinnulífi. „Fráleitt er, eins og ýmsir tals- menn ríkisstjórnarflokkanna reyna nú að gera, að kenna Seðla- bankanum einum um eða skella skuldinni á erlenda spákaupmenn þótt þeir grípi tækifærið eins og fleiri og taki að gera út á vaxta- muninn milli Íslands og nágranna- landanna,“ segir ennfremur í ályktun flokksráðs VG. Tryggja þarf efnahagslegan stöðugleika með sam- ræmdum aðgerðum, segir í ályktun flokksráðs VG Ríkisstjórnin átalin fyrir háskalegt andvaraleysi UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefurtekið til meðferðar kvörtunþriggja yfirlækna sérgreina á Landspítala – háskólasjúkrahúsi vegna skipurits sjúkrahússins og starfslýsingar sviðsstjóra lækninga á sjúkrahúsinu. Hefur umboðsmaður af þessu tilefni óskað eftir ýmsum upplýsingum frá heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra og gefur frest til 5. októ- ber næstkomandi til að svara er- indinu. Valdheimildir lækningaforstjóra Í kvörtun yfirlæknanna er talið að staða sviðstjóra, verksvið þeirra og ábyrgð, eins og þau atriði eru skilgreind í skipuritinu og í starfs- lýsingum stangist á við lögbundið verksvið yfirlækna sérgreina í spítalanum samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Þá óska yfir- læknarnir einnig eftir því að máls- meðferð sjúkrahússins og heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins vegna erinda þeirra verði tekin til sérstakrar athugunar. Í bréfi umboðsmanns til heil- brigðisráðherra er þannig meðal annars óskað eftir upplýsingum um hvort umrætt skipurit hafi leitt til einhverra breytinga á skiptingu læknisþjónustunnar í sérdeildir eða sérgreinar. Sé þjónustunni áfram skipt í sérdeildir undir stjórn yfirlækna er óskað eftir upplýsingum um stöðu sviðsstjóra gagnvart yfirlæknum sérdeilda. Þá er óskað upplýsinga um hverjir hafi áður en sviðsstjórar komu til borið ábyrgð á rekstri og fjár- málum á viðkomandi sviði. Krefst svara frá heilbrigðisráðuneytinu Umboðsmaður Alþingis óskar einnig upplýsinga um hvort fyrir liggi erindisbréf um starfs lækn- ingaforstjóra á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi og ef svo er að hann fái afhent afrit af því. Jafn- framt að ráðuneytið geri grein fyr- ir afstöðu sinni til verkefna og valdheimilda lækningaforstjóra og hvernig staðið er að vali á sviðs- stjórum lækninga. Umboðsmaður tek- ur kvörtun yfir- lækna til meðferðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.