Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 19 þú talar um mannveru er ekki hægt að tala ngöngu um hálfan líkamann. Það verður að orfa á heildina. Bæði karlar og konur þurfa að ilja hugtakið jafnrétti. Við eigum okkur mikilvægt slagorð frá því í elsisstríðinu: Enginn sigur vinnst án fullrar átttöku kvenna. Þetta hafði mikið að segja. arlarnir héldu að þeir gætu háð stríðið einir. n hið andstæða sannaði sig. Þetta gildir auðvit- fyrir konur líka; við höfum jafnan rétt á við arla en auðvitað jafna ábyrgð líka. Við þurfum axla ábyrgðina til jafns við karlana.“ onurnar börðust og dóu En hvað finnst þér um það sem Vigdís Finn- ogadóttir boðar, að við þurfum karlana með í fnréttisbaráttuna? „Ó, auðvitað. Við getum ekki lifað hvert án nnars! Við verðum bara öll að vera meðvituð um við höfum jafnan rétt. Rétt til að lifa, til að nna og svo framvegis. Áður nutu til dæmis kon- í Eritreu ekki jafns erfðaréttar á við karla. eir voru það viðmið sem landinu var stjórnað tir. Karlar erfðu til dæmis alltaf landið. En nú efur því verið breytt. Konur geta orðið landeig- ndur. Frammi fyrir lögunum eru karlar og kon- jöfn að öllu leyti. Svo veltur þetta auðvitað á konunum sjálfum talsverðu leyti. Um leið og við förum fram á ukin réttindi verðum við að sýna fram á að við gum þau inni, vinna og berjast fyrir þeim.“ – Hvað með þinn bakgrunn? Hvað gerðirðu ður en þú varðst ráðherra? „Ég var baráttumaður fyrir frelsi Eritreu.“ – Í alvöru? Barðistu? „Í svona baráttu þarf að vinna margs konar örf. En ég var sjálf í frelsishernum. Og eftir að ritrea fékk sjálfstæði, varð ég ráðherra og hef gnt því starfi í átta ár.“ – Hvernig var að vera í frelsishernum? Askalu hugsar málið nokkra stund en segir o: „Það er ekki venjulegt líf, það er erfitt. Líf llt af áskorunum, fullt af vandamálum, fullt af asar. En ef þú átt þér markmið sem þú trúir á, emstu alltaf yfir vandamálin. Við greiddum hátt verð fyrir sjálfstæði okkar n við urðum að lokum sjálfstæð og ekkert verð æti komið í staðinn fyrir það. En auðvitað borg- um við. Við erum lítið land og óvinurinn var áttugur. Rússnesk og bandarísk stjórnvöld uddu Eþíópíu. Þau voru sextíu milljónir en við eins þrjár. Og við vorum illa útbúin; óvinurinn afði allt það sem aðili að stríði þurfti en við ekki. að sem við höfðum, fengum við úr höndum óvin- ins. Það má með sanni segja að við höfum haft lar líkur á móti okkur, en bandarískur rithöf- ndur skrifaði einmitt bók um stríðið með því afni (e. Against All Odds).“ – En hvernig var þetta þá hægt? „Það er svolítið erfitt að skilja, því að í raun r eins og við værum að berjast gegn almætt- u. En málstaðurinn skipti okkur öllu máli og ð höfðum bara svo mikið að berjast fyrir. Ný- nduherrarnir tóku en gáfu aldrei; engin upp- ygging átti sér stað. Svo öll þjóðin lagði sitt af örkum, konur jafnt sem karlar. Konurnar börðust í frelsisstríðinu og þær létu sitt í fremstu víglínu. Allt fyrir sjálfstæði Eri- eu. Karlar og konur börðust hlið við hlið. Og að skipti öllu máli fyrir baráttuna að viðurkenna utverk og mikilvægi hvert annars.“ m Morgunblaðið/Júlíus þátt í heimráðstefnu menningarráðherra Finnbogadóttur. s@mbl.is AÐ UNDANFÖRNU hafa birst greinar í blöðum og viðtöl í útvarpi og sjónvarpi um Kárahnjúkavirkjun. Nokkrir þeirra sem tekið hafa til máls hafa verið á móti virkjuninni af ýmsum ástæðum. Oftar en ekki er gripið til staðhæfinga sem ekki standast nánari skoð- un. Hér á eftir er nokkrum þessara stað- hæfinga svarað með því að benda á fyr- irliggjandi stað- reyndir. 1. Því er haldið fram að arðsemiskrafa Kárahnjúkavirkjunar sé allt of lág. Áætlun Landsvirkj- unar um 5,5% innri raunvexti af fjárfest- ingu í Kárahnjúka- virkjun hefur stundum verið borin saman við nafnávöxt- unarkröfu markaðarins á eigin fé. Þetta er ekki samanburðarhæft. Hið rétta er að gert er ráð fyrir 11% arð- semi eigin fjár af fjárfestingunni í Kárahnjúkum sem er svipað og gengur og gerist um sambærileg verkefni erlendis. Áður en ákvörðun var tekin um að ráðast í virkj- unarframkvæmdir var leitað álits hjá virtri alþjóðlegri lánastofnun og taldi hún forsendur um arðsemi eigin fjár eðlilegar. Sama má segja um sér- fræðinganefnd þá sem skipuð var af eigendum Landsvirkjunar. 2. Því er haldið fram að hallinn verði 40 milljarðar. Sem fyrr segir gerir Landsvirkjun ráð fyrir 11% arðsemi af því eigin fé sem lagt er í virkjunina. Þá er gert ráð fyrir að rekstur virkjunarinnar greiði upp allan fjárfestingar- og vaxtakostnað á næstu 35 árum þó svo að endingartími mannvirkjanna sé mun lengri, jafnvel 100 ár. Komandi kynslóðir eignast þannig uppgreitt orkuver. 3. Því er haldið fram að færa megi efnahagsleg rök fyrir því að stöðva virkjunarframkvæmdirnar nú. Áfallinn kostnaður við virkjunina er nú u.þ.b. 43 milljarðar króna. Um- samin verkefni eru u.þ.b. 80 millj- arðar. Áfallinn kostnaður Alcoa við byggingu álversins er u.þ.b. 15 millj- arðar og umsamin verkefni u.þ.b. 50 milljarðar. Verulegar skaðabætur þyrfti að greiða ef hætt yrði við verk- efnið. Tekjur af virkjun og álveri standa undir kostnaði og gott betur. Þeir sem halda því fram að færa megi efnahagsleg rök fyrir að stöðva virkjunarframkvæmdir nú verða að benda á þann sem greiða skal kostn- að og skaðabætur og sýna fram á að það sé hagkvæmt. Þær gætu sam- anlagt numið vel á annað hundrað milljarða króna. 4. Því er haldið fram að bygging- arkostnaður virkjunarinnar fari langt umfram áætlun. Landsvirkjun hefur nú boðið út um 93% verka við Kárahnjúkavirkj- un, ef miðað er við kostnaðaráætlun. Verksamningar eru 8% lægri en kostnaðaráætlunin. Í þessu sam- bandi er rétt að minna á að raun- kostnaður við síðustu virkjanir Landsvirkjunar, Sultartangavirkjun og Vatnsfellsvirkjun, varð undir áætlunum þeim sem miðað var við áður en útboð fóru fram. Nú þegar framkvæmdir eru hálfnaðar bendir ekkert til þess að kostnaður við Kárahnjúkavirkjun fari fram úr áætlun. 5. Því er haldið fram að Lands- virkjun greiði ekki skatta. Landsvirkjun hefur til þessa verið undanþegin greiðslu tekjuskatta en greitt aðra skatta og álögur s.s. fjár- magnstekjuskatt og fasteignagjöld. Samþykkt hafa verið lög um skatt- skyldu orkufyrirtækja sem hafa í för með sér að frá og með næstu áramót- um mun Landsvirkjun greiða skatta samkvæmt almennum reglum þar um. Kárahnjúkavirkjun tekur ekki til starfa fyrr en árið 2007 sem þýðir að virkjunin sem slík nýtur ekki skatt- fríðinda. 6. Því er haldið fram að Lands- virkjun fái ókeypis ríkisábyrgð á lán- tökur. Landsvirkjun greiðir ábyrgð- argjald til ríkisins í samræmi við lög þar að lútandi. Jafnframt greiðir fyr- irtækið ábyrgðargjald til Reykjavík- urborgar og Akureyrarbæjar á grundvelli ákvörðunar stjórnar fyr- irtækisins sem tekin var vegna jafn- ræðissjónarmiða. Sam- tals nemur ábyrgðargjaldið 0,25% af fjárhæð allra úti- standandi lána fyrirtæk- isins árlega. Þannig greiddi Landsvirkjun eigendum sínum sam- tals 1.020 milljónir króna í ábyrgðargjald árin 2000–2004. 7. Því er haldið fram að ruðningsáhrif virkj- unarframkvæmdanna hafi gert það að verkum að hagkvæm framleiðsla hafi vikið fyrir óhagkvæmari. Gengi íslensku krónunnar hefur hækkað verulega á undanförnum misserum og nálgast nú sögulegt há- mark. Það er mikil einföldun að láta sem einvörðungu sé við Kára- hnjúkavirkjun og álver Alcoa að sak- ast. Veruleg fjárfesting á sér stað í orku- og álvinnslu á Suðvesturhorn- inu sem talið er að nemi um 30% af heildarfjárfestingunni í þessum geira. Mun veigameiri þættir eru kaup erlendra aðila á íslenskum skuldabréfum, húsnæðislán bank- anna og skuldsett hlutabréfakaup. Þessi gengishækkun hefur í för með sér ruðningsáhrif þar sem fyr- irtæki sem byggja á útflutningi lenda í erfiðleikum. Ruðningsáhrif eru hins vegar ekki ný af nálinni, hvorki hér né annars staðar. Það er sameig- inlegt fyrir hinn vestræna heim að framleiðsla er að flytjast til landa þar sem vinnuafl er ódýrara. Viðfangs- efni Íslendinga er að búa þannig um hnútana að hér dafni atvinnulíf sem getur greitt laun sem eru sam- anburðarhæf við það besta sem ger- ist erlendis. Frekar er um þetta fjallað í grein Stefáns Péturssonar á heimasíðu Landsvirkjunar: www.lv.is 8. Því er haldið fram að inn í út- reikninga vegna virkjunarinnar hafi Landsvirkjun ekki tekið kostnað vegna mótvægisaðgerða. Í kostnaðaráætlun sem gerð var 2001 var þegar gert ráð fyrir kostn- aði við mótvægisaðgerðir og um- hverfisvöktun. Nú er gert ráð fyrir 500 m.kr. til rofvarna við Hálslón og styrkingar gróðurs á árunum 2006– 2009. Eftir 2009 er gert ráð fyrir um- talsverðum rofvörnum og ýmsum öðrum umhverfis- og mótvæg- isaðgerðum í rekstrarkostnaði virkj- unarinnar og tillit tekið til þess í arð- semisútreikningum. 9. Því er haldið fram að ekkert sé greitt fyrir landið sem fer undir lón. Greitt er fyrir land sem fer undir lón á tvennan hátt. Annars vegar er landeigendum greitt beint fyrir land sem fer undir lónið. Þannig hefur Prestsetrasjóði þegar verið greitt fyrir efnistöku og afnot af landi í eigu Valþjófsstaðar, en ekki hefur náðst samkomulag við aðra landeigendur og er það mál í eðlilegum farvegi fyr- ir matsnefnd eignarnámsbóta. Þá voru sveitarfélögunum Norður- Héraði og Fljótsdalshreppi greidd bein framlög til uppgræðslu vegna þess lands sem fer undir lón, samtals um 230 m.kr. á verðlagi í sept. 2005. Þessi uppgræðsla er hafin og þegar farin að skila umtalsverðum árangri. Að auki er greitt fyrir vatnsréttindin og verður það væntanlega gert með þeim hætti að þeir sem eiga land að ánum fá greitt eins og gert hefur ver- ið áður t.d. við Blönduvirkjun. Um er að ræða verulegar fjárhæðir sem tekið hefur verið tillit til í áætlunum Landsvirkjunar. 10. Því er haldið fram að meta eigi sérstaklega til fjár þau náttúrugæði sem verða fyrir áhrifum af Kára- hnjúkavirkjun. Sérfræðingar á sviði umhverf- ismála benda á að margt sé óljóst um hvort og þá hvernig megi gera slíkt verðmætamat. Aðferðafræði skilyrts verðmætamats sem felst í könnun á greiðsluvilja almennings til að vernda náttúrugæði er þekkt en mjög skiptar skoðanir eru um gagn- semi hennar. Í úrskurði sínum um mat á umhverfisáhrifum Kára- hnjúkavirkjunar kemst umhverf- isráðuneytið að þeirri niðurstöðu að ekki séu fyrir hendi forsendur til að gera kröfu til Landsvirkjunar um að leggja fram mat af þessu tagi þar sem ekki sé um aðferð að ræða sem gefur óyggjandi niðurstöður. Skilyrt verðmætamat á þeim nátt- úrugæðum sem Kárahnjúkavirkjun raskar hefur engu að síður farið fram og það framkvæmdi þýskur fræði- maður, David Bothe. Niðurstaða könnunar hans á afstöðu almennings til verðmætis þeirra náttúrugæða sem glatast vegna Kárahnjúkavirkj- unar er að verðmæti þeirra nemi um 2 milljörðum króna. Það telur hann ekki benda til að náttúrugæði sem glatast séu sérlega hátt metin. 11. Því er haldið fram að eyðilögð verði tvö jökulfljót og a.m.k. 1.000 km² svæði umhverfis þau. Einnig er því haldið fram að allt að 10% Íslands séu á áhrifasvæði virkjunarinnar og skaðist þess vegna. Ýmsu hefur verið haldið fram um það hversu stórt svæði raskast eða verður fyrir beinum áhrifum vegna Kárahnjúkavirkjunar. Landfræðileg röskun er þannig að með einu stóru lóni og tveimur litlum fara um 66 fer- kílómetrar lands undir vatn og stífl- ur, þar af um 37 ferkílómetrar gróins lands. Annað rask á yfirborði er námuvinnsla, vinnuvegir og haug- setning, sem gengið verður snyrti- lega frá við lok framkvæmdanna, og síðan nýir greiðfærir varanlegir veg- ir á hásléttunni milli Fljótsdals og Kárahnjúka. Í þessu samhengi gleymist það gjarnan að virkjunin og vatnsvegir hennar eru að stærstum hluta neðanjarðar. Við mat á umhverfisáhrifum virkj- unarinnar var lagt upp með svonefnt áhrifasvæði, 3000 ferkílómetra stórt (3% af flatarmáli landsins). Hugtakið áhrifasvæði er í þessu samhengi mjög villandi og það hefði með réttu átt að heita rannsóknarsvæði. Þetta svæði var mjög rúmt skilgreint. Rannsóknirnar sýndu að það er af og frá að virkjunin hafi áhrif á öllu því svæði. Til viðbótar við beint rask á 66 ferkílómetrum á hálendinu er fyrst og fremst um að ræða sjónræn áhrif á tilteknum stöðum sem erfitt er að festa hendur á og svo áhrif af aukinni umferð ferðamanna, hvort sem þau eru jákvæð eða neikvæð. Áhrifin á bökkum ánna til hafs eru næstum engin og þau eru afar takmörkuð á Úthéraði. Jökulfljótin tvö verða ekki eyði- lögð eins, en rennslið í þeim breytist. Líklega finnst flestum muna mest um að rennsli á rómaðri fossaröð í Jökulsá í Fljótsdal minnkar fyrri hluta sumars. Jökulvatnið í Jökulsá á Dal mun hverfa fram undir haust og hún breytist að mestu í tæra dragá með rennsli frá hliðarám neðan Kárahnjúkastíflu. Stór hluti rennslis Jökulsár á Dal fer í Lagarfljót þann- ig að meðalrennsli þar mun tvöfald- ast en með mótvægisaðgerðum er komið í veg fyrir vatnsborðshækkun. 12. Því er haldið fram að vatnsafl úr jökulám sé ekki endurnýjanleg orka. Þegar talað er um endurnýjanlega orkugjafa er átt við auðlindir sem eyðast ekki þótt af sé tekið. Það merkir ekki að endurnýjanlegar auð- lindir séu nýttar með þeim hætti að mannvirkin gangi ekki úr sér. Öll mannvirki eiga sinn líftíma en þarfn- ast viðhalds og loks endurnýjunar. Vatnsaflsvirkjanir endast með litlu viðhaldi í a.m.k. 100 ár. Vindmyllu- garðar, t.d. út af Jótlandssíðu í Dan- mörku, eru taldir munu ganga úr sér á 20 árum. Fáir álíta að svo skammur endingartími vindmylla þýði að vind- urinn sé ekki endurnýjanlegur orku- gjafi. Endurnýjanleg orka er unnin úr endurnýjanlegum orkulindum eins og vindi, sól, fallvötnum og jarðhita, þ.e. orkulindum sem endurnýjast fyrir tilstilli náttúrulegra ferla. Orku- lind vatnsaflsvirkjana er náttúruleg hringrás vatnsins. Vélar Kára- hnjúkavirkjunar verða því knúnar með þeirri orku sem fólgin er í falli jökulvatnsins á leið þess frá jöklinum til sjávar og endurnýjast í sífellu. Við alla uppbyggingu, hvort sem það er fyrir endurnýjanlega orku- framleiðslu eða stækkun borg- arsvæða, þarf að nýta land og breyta landnotkun. Við myndun uppistöðu- lóna fer gróður stundum undir vatn, en orkan sem til verður í virkjuninni er þrátt fyrir það hrein, meng- unarlaus og endurnýjanleg. Í alþjóðasamfélaginu, þ.m.t. í sam- þykktum frá Ríó ráðstefnunni 1992 og ráðstefnunni í Jóhannesarborg 2002 um sjálfbæra þróun, er öll vatnsorka skilgreind sem endurnýj- anleg orka. Í skýrslu ESB um end- urnýjanlega orku eru bæði stórar og litlar vatnsaflsvirkjanir skilgreindar sem endurnýjanlegir orkugjafar. Stærsti hluti orkuframleiðslu heimsins eða á bilinu 80–90% felst í brennslu jarðefnaeldsneytis sem los- ar koltvísýring til andrúmsloftsins og veldur auknum gróðurhúsaáhrifum. Þetta er stærsta umhverfisvanda- málið sem við jarðarbúar stöndum frammi fyrir. Orkuframleiðsla með hreinum og endurnýjanlegum orku- gjöfum Íslands vinnur gegn gróður- húsaáhrifum. Á ráðstefnunni í Jó- hannesarborg 2002 voru þjóðir heims hvattar til að auka hlut endurnýj- anlegrar orku þ.m.t. vatnsorku. 13. Því er haldið fram að þjóðin sé á móti Kárahnjúkavirkjun. Skoðanakannanir um afstöðu þjóð- arinnar til Kárahnjúkavirkjunar hafa alltaf sýnt að stuðningur við hana er meiri en andstaða. Hið sama á við um afstöðuna til stóriðju. Andstæðingar virkjunarinnar hafa hampað könnun sem Náttúruverndarsamtök Íslands létu Gallup gera í mars sl. þar sem tæp 40% þeirra sem svöruðu töldu ákvörðun stjórnvalda um að ráðast í byggingu Kárahnjúkavirkjunar ranga. Rúmlega 50% svarenda í þessari sömu könnun töldu ákvörð- unina rétta. Þeir sem afstöðu tóku skiptust þannig: 44% andvíg en 56% hlynnt ákvörðun stjórnvalda. Á Alþingi voru einungis 9 þing- menn andvígir því að heimila Kára- hnjúkavirkjun og langflestir þing- menn stærsta stjórnarandstöðuflokksins, Samfylk- ingarinnar, studdu ákvörðunina. Reykjavíkurborg og Akureyrarbær eru eigendur Landsvirkjunar að hálfu. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti með 9 atkvæðum gegn 5 að ábyrgjast lántökur Landsvirkj- unar vegna Kárahnjúkavirkjunar. Á Akureyri samþykkti bæjarstjórn að ábyrgjast lánin með tíu atkvæðum gegn einu. 14. Því er haldið fram að betra hefði verið að fjárfesta í þekking- ariðnaði en Kárahnjúkavirkjun. Á árunum 2000–2004 greiddi Landsvirkjun að meðaltali um tvo milljarða á ári fyrir aðkeypta sér- fræðiþjónustu í tengslum við und- irbúning og byggingu orkumann- virkja, að stærstum hluta vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þetta þýðir að meðaltali að tvö hundruð vel launaðir sérfræðingar hafa á hverjum einasta degi þessi fimm ár verið í vinnu á vegum fyrirtækisins. Því til viðbótar eru sérfræðingar í starfi innan fyr- irtækisins m.a. á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Fyrir önnur orkufyr- irtæki starfar stór hópur sérfræð- inga. Þannig hefur byggst upp verð- mæt þekking. Það hefur þegar sýnt sig að þekking og kunnátta Íslend- inga á sviði orkumála er eftirsótt víða um heim. Íslenskur orkuiðnaður er þess vegna þekkingariðnaður. Staðhæfingar og staðreyndir um Kárahnjúkavirkjun Eftir Friðrik Sophusson ’Oftar en ekki er gripiðtil staðhæfinga sem ekki standast nánari skoðun.‘ Höfundur er forstjóri Landsvirkjunar. Friðrik Sophusson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.