Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Margrét Gísla-dóttir fæddist á Njálsgötu 20 í Reykjavík 7. októ- ber 1918. Hún lést á Borgarspítalan- um 3. september síðastliðinn. Mar- grét var dóttir hjónanna Gísla Gíslasonar verka- manns í Reykjavík, f. 21.11. 1865, d. 20.5. 1945, og Kristínar Maríu Pétursdóttir hús- freyju í Reykjavík, f. 11.3. 1885, d. 8.4. 1967. Systkini Margrétar eru Sigurdrífa Jóhannsdóttir, f. 2.9. 1911, Ágúst, f. 24.4. 1920, og Guðmundur, f. 2.7. 1929. Margrét giftist 26. nóvember 1938 Þorvaldi Jónssyni prent- myndasmið, f. 25.12. 1916, d. 9.1. 1993. Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson verslunarmað- ur, f. 12.11. 1875, d. 7.11. 1918, og Jóna Karen Frímannsdóttir húsfreyja, f. 2.5. 1887, d. 3.1. 1966. Börn Margrétar og Þor- valdar eru: 1) Ingibjörg, f. 22.8. 1937, gift Jens Kristjánssyni, börn þeirra eru Þorvaldur, Sig- urður og Jóna Karen. 2) Kristín María, f. 10.6. 1940, gift Sig- urði H. Ólafssyni, börn þeirra eru Kolbeinn, Jón Ragnar, Dav- íð, Anton látinn, Margrét og Thelma Björk. 3) Gísli, f. 12.10. 1941, d. 19.8. 2003, dætur hans eru Margrét og Ingi- björg Gréta. 4) Jón, f. 11.3. 1943, börn hans eru Petrína, Guðrún Margrét, Þorvald- ur og Hákon Rún- ar. 5) Karen, f. 7.5. 1945, gift Jakob Steingrímssyni, dætur þeirra eru Hulda og Anna Margrét. 6) Ás- geir, f. 23.4. 1947, kvæntur Halldóru Ásgeirsdótt- ur, synir þeirra eru Gunnar Ás- geir og Birkir Eyþór. 7) Ragn- ar, f. 17.2. 1949, kvæntur Sólveigu Guðmundsdóttur, börn þeirra eru Sigríður og Guðmundur. 8) Sigurður Frí- mann f. 25.9. 1950, kvæntur Sigríði Þ. Ingólfsdóttur, börn þeirra eru Ólafur, Karen og Ingólfur. 9) Hildur, f. 16.4. 1963, gift Baldri Hreinssyni, börn þeirra eru Dagný og Að- alsteinn. Barnabörnin eru 26, langömmubörnin eru 34 og langalangömmubörnin eru tvö. Margrét var lengst af húsmóð- ir, en starfaði hjá Pharmaco frá 1974 til 1988, þar sem hún sá um kaffistofuna og ræstingar. Útför Margrétar verður gerð frá Bú- staðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Í dag kveðjum við elskulega tengdamóður mína Margréti Gísla- dóttur í hárri elli. Tæplega 87 ár eru langur tími sem Guð gefur. Vegferð hennar var farsæl, en kannski ekki alltaf auðveld. En hún var gæfu- manneskja í sínu einkalífi og átti góðan mann, Þorvald Jónsson, sem lést 1993. Þeim varð níu barna auðið, en sonurinn Gísli lést um aldur fram fyrir tveimur árum. Margrét og Þorvaldur bjuggu í Hólmgarði 12. Og vegna þess hve systkinin eru lík er oft talað um Hólmgarðssvipinn! Margrét bjó ein í Hólmgarðinum eftir að Þorvaldur féll frá og eru árin hennar þar orðin fimmtíu og fimm! Hennar heitasta þrá var að geta verið heima eins lengi og hægt var. Þá ósk fékk hún uppfyllta. Ég er þakklát Guði fyrir tengda- móður mína, sem nú er farin til ei- lífrar samveru við Drottin Jesú Krist! Jesús sagði: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver sá sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja.“ Trúir þú þessu? Innilegar samúðarkveðjur. Halldóra L. Ásgeirsdóttir. Í dag kveð ég hana Margréti ömmu mína með miklum söknuði. Raunar fann ég aldrei fyrir miklum kynslóðamun á okkur, því hún amma var sannur félagi og vinur. Þegar ég var lítil stelpa kom ég ótal oft inn í Hólmgarð til ömmu og afa, og þegar foreldrar mínir dvöldu er- lendis var mér ávallt tekið þar opn- um örmum. Minnisstæð eru einnig sumrin mörgu, góðu í Borgarfirð- inum, þar sem afi starfaði sem leið- sögumaður veiðimanna. Það voru yndislegir dagar sem við áttum þar, amma, ég og Hildur móðursystir mín, sem var jafnaldra mín. Amma hafði alltaf nægan tíma til að tala við okkur stelpurnar um lífið og til- veruna. Á haustin var tekið slátur í Hólmgarðinum. Það eru eftirminni- legar stundir þegar allir voru saman komnir til að búa til slátrið. Þá var sannarlega glatt á hjalla, og í lokin var svo slegið upp heljarveislu. Hún amma var þolinmóð manneskja. Þess nutum við unga fólkið. Hólm- garðurinn var um langt árabil mitt annað heimili. Þar voru alltaf veit- ingar á hraðbergi, heitur matur í há- deginu, sem við kunnum ósköp vel að meta, krakkarnir. Hún amma var líka handlagin og þegar eitthvað þurfti að sauma var hún fljót til að bjarga því. Þegar ég eltist átti ég margar góðar stundir með ömmu. Hún tók Guðjóni, eiginmanni mín- um, opnum örmum þegar hann kom til sögunnar, og amma var að sjálf- sögðu nærstödd þegar mitt fyrsta barn var skírt. Þá vorum við sam- ankomnir fimm ættliðir í kvenlegg. Ég bið þér blessunar, amma mín, með bæninni sem þú kenndir mér: Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Jóna Karen. Fyrir stuttu sat ég við sjúkrabeð ömmu og las fyrir hana upp úr blöð- um dagsins. Hún kommenteraði á menn og málefni, hneykslaðist öðru hvoru og við gerðum að gamni okk- ar. Hún hvíldi sig nokkrum sinnum meðan á heimsókn minni stóð og hvarf ég þá á vit minninganna. Jólaboðin í Hólmgarðinum þar sem alltaf var líf og fjör standa upp úr bernskuminningunni. Fullt hús af fólki, matur, skemmtilegar samræð- ur og amma á fleygiferð. Hún bjó líka til þær bestu pönnukökur sem ég veit og alltaf fékk ég nokkrar með mér í nesti þegar ég hélt heim á leið. Ein jólin gáfu þau afi mér mjúkan pakka, rennda lopapeysu sem amma hafði prjónað. Ég varð svo ham- ingjusöm yfir því að hún skyldi prjóna slíkan dýrgrip handa mér því fallega var hún unnin eins og allt sem amma tók sér fyrir hendur. Ég gekk stolt í peysunni mörg ár á eftir. Önnur minning sem stendur upp úr er sú þegar amma kom að heim- sækja mig til Kanaríeyja á meðan ég bjó þar og fannst mér gaman að fá hana til mín, hafa hana út af fyrir mig. Við puntuðum okkur saman, ræddum varaliti og töskur, börn og bleyjur eða bara hvað sem okkur datt í hug. Stundum sátum við í þögn og þótti mér það stórmerkilegt hve gott það var því manneskja eins og ég með mikla tjáningarþörf þagnar mjög sjaldan. Við þögðum oft saman eftir þetta ef við vorum tvær og fannst mér það minna merkilegt en þeim mun eðli- legra, því þögnin getur verið svo góð. Hún hefur nú yfirgefið þessa jarð- vist, hægt og hljótt, en ekki í þögn því rödd hennar mun áfram lifa með okkur og minnist ég hennar með hlýju, kærleika og kímnigáfu sem gott er að grípa til og njóta með fjöl- skyldunni sem og í … þögn. Ingibjörg Gréta Gísladóttir. Elsku amma mín, ég trúi því varla að ég sé að skrifa til þín minning- argrein, ég get ekki trúað því að þú sért farin frá okkur. Ég sakna þín svo mikið, þú varst svo stórkostleg manneskja og alltaf svo góð við mig. Undanfarið hefurðu legið á spítala og það hefur verið svo erfitt að koma að heimsækja þig, sérstaklega þegar þú bara svafst og ég vildi ná til þín og spjalla eins og við vorum vanar að gera. Ég er þess vegna mjög þakklát að seinast þegar ég kom til þín þá töluðum við saman og þú varst svo sterk og hugrökk, tókst ut- an um hendurnar mínar og vildir hlýja mér. Það var mér mikils virði að fá að geta kvatt þig og knúsað þig að mér, sagt hvað mér þyki vænt um þig. En svo fórstu frá stóru fjöl- skyldunni þinni og eftir sitjum við með söknuð í hjarta, en við vitum að þér líður miklu betur núna og ert ekki lengur veik. Ég ber í hjarta mínu allar fallegu og góðu minning- arnar um þig og ég mun alltaf sakna þín. Þegar ég kom í heimsókn til þín í Hólmgarðinn varstu búin að baka eitthvað gott eða ég fékk hjá þér brauð og þú spurðir mig hvort ég væri svöng og garnalöng. Svo varstu alltaf svo dugleg í höndunum og prjónaðir svo margt fallegt handa mér. Það var alltaf líf og fjör að koma til þín og ég fann alltaf hvað þér þótti vænt um mig. Minning- arnar eru ómetanlegar og hér kveð ég þig, amma mín með sorg í hjarta en þó það sé sárt að kveðja þá veit ég að þér líður vel núna. Þín Thelma Björk. Margar minningar streyma um hugann þegar við minnumst ömmu í Hólmgarðinum. Hún amma var dugnaðarkona og ósérhlífin enda þurfti hún að vera með mörg járn í eldinum með sitt stóra heimili og all- an þann eril sem því fylgdi. Efst í bernskuminninu eru slát- urgerðardagarnir á haustin. Trúlega hef ég óþekktarpeyinn, verið fyrir vinnandi fólki en það var alltaf mikið fjör og gaman þessa daga og spenn- andi að fá fyrsta slátrið að borða eft- ir allan hamaganginn. Ég minnist líka ferða með ömmu og afa að Grímsá, þar sem afi var leiðsögu- maður. Þetta var tími fullur kátínu og gleði. Það var líka gaman þegar amma kom í hárgreiðslu til mömmu og afi sendi okkur í bakaríið að kaupa vínarbrauð. Það var gotterí sem við fengum ekki oft að smakka. Í seinni tíð voru samskiptin við ömmu í Hólmgarðinum ekki eins tíð og eins náin, enda höfum við fjöl- skyldan búið úti á landi síðastliðin 11 ár, en við hugsuðum alltaf hlýtt til hennar. Síðasta samtal okkar ömmu nú í sumar var ljúft og ánægjulegt í alla staði og hún kvaddi mig og elstu dóttur mína hlýjum orðum sem ég orna mér við þessa sorgardaga sem nú fljóta hjá. Amma sýndi mikinn dugnað og styrk í veikindum sínum enda ekki við öðru að búast frá henni þessari kjarnakonu. Við erum þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum með þér, elsku amma. Við kveðjum þig með 121. Davíðs- sálmi, Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. Davíð Sigurðsson og fjölskylda. MARGRÉT GÍSLADÓTTIR Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, BERTA HERBERTSDÓTTIR frá Hamraendum, sem andaðist á elliheimilinu Grund mánudaginn 5. september, verður jarðsungin frá Kópavogs- kirkju þriðjudaginn 13. september kl. 13.00. Hannes Helgason, Guðlaug Maggý Hannesdóttir, Jón Pétur Jónsson, Hafdís Hannesdóttir, Stefán G. Stefánsson, Helgi Hannesson, Guðmunda Eyjólfsdóttir, Lára Hannesdóttir Schram, Sigmundur Hannesson, Sigrún Arnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, MARGRÉT GÍSLADÓTTIR, Hólmgarði 12, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 3. september. Útför hennar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, mánudaginn 12. september, kl. 13.00. Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Jens Kristjánsson, Kristín María Þorvaldsdóttir, Sigurður Halldór Ólafsson, Jón Þorvaldsson, Karen Þorvaldsdóttir, Jakob Steingrímsson, Ásgeir Þorvaldsson, Halldóra Ásgeirsdóttir, Ragnar Þorvaldsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Sigurður Frímann Þorvaldsson, Sigríður Þ. Ingólfsdóttir, Hildur Þorvaldsdóttir, Baldur Hreinsson og fjölskyldur. Bróðir okkar og mágur, GUÐJÓN JÓHANN JÓHANNSSON, Reitarvegi 6, Stykkishólmi, verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju miðvikudaginn 14. september kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á St. Franciskusspítalann í Stykkishólmi. Hrefna Þorvarðardóttir, Hannes K. Gunnarsson, Þór Jóhannsson, Erna Arnórsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður minnar og ömmu okkar, LÁRU KÁRADÓTTUR. Sérstakar þakkir til heimilisfólksins í Sunnuhlíð, ekki síst starfsfólks sem alltaf sýndi sömu nær- gætnina og fagmennskuna. Guð blessi ykkur öll. Sigríður D. Benediktsdóttir, Sóley Dröfn Davíðsdóttir, Kári Fannar Lárusson. Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar, tengda- pabbi, afi og langafi, GUNNAR JÓNSSON, Aratúni 26, Garðabæ, er látinn. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarsjóð Oddfellow-reglunnar. Elísa Björg Wíum, Guðfinna Nanna Gunnarsdóttir, Jóhann Ingi Gunnarsson, Guðmundur Ragnar Gunnarsson, Margrét Káradóttir, Elín Ebba Gunnarsdóttir, Ármann Haukur Benediktsson, Áslaug Ásgeirsdóttir, Þorvaldur Ásgeirsson, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.