Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina til Kanaríeyja í 30 daga á frábæru verði. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Kanarí 19. október frá kr. 69.990 m.v. 2 Munið Mastercard ferðaávísunina Verð frá kr.69.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/stúdíó. Innifalið flug, gisting í 30 nætur og skattar. Síðustu sætin - 30 daga ferð ÍSLENSKAR öryggiskröfur giltu ekki um skemmtibátinn sem fórst á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugar- dags, enda báturinn skráður í Bret- landi en ekki hér á landi. Rann- sóknarnefnd sjóslysa mun rannskaka málið samhliða rann- sókn lögreglu, og hefst rannsóknin formlega í dag. Ekki er gerð krafa um að skemmtibátar af þessu tagi sem skráðir eru hér á landi séu með sjálfvirka tilkynningaskyldu þar sem þeir eru ekki atvinnutæki held- ur skemmtibátar, segir Hilmar Snorrason, nefndarmaður í rann- sóknarnefnd sjóslysa. Ekki er held- ur gerð krafa um sjálfvirkan neyð- arsendi sem fer í gang þegar skip sekkur, einungis skip yfir 24 metra löng þurfi að hafa slíka senda. Skemmtibátar, átta metrar og lengri, sem skráðir eru hér á landi eiga að vera með björgunarbát sem blæs sjálfkrafa upp í sjó, auk björg- unarvesta fyrir alla um borð, segir Geir Þór Geirsson, forstöðumaður skipaeftirlitssviðs hjá Siglinga- stofnun Íslands. Auk þess á að vera björgunarhringur, neyðarblys og lyfjaskrín, auk talstöðvar og út- varps. Ekki þarf sérstök réttindi til að sigla slíkum bátum, en samkvæmt siglingalögum þarf sá sem hefur stjórn um borð í skemmtibát af þessu tagi að hafa kunnáttu í sigl- ingum og sjómennsku. Einungis þarf svokallað pungapróf á báta sem siglt er í atvinnuskyni, þótt margir sem sigla skemmtibátum taki slíkt próf, segir Helgi Jóhann- esson, forstöðumaður stjórnsýslu- sviðs hjá Siglingamálastofnun Ís- lands. Íslenskar öryggiskröfur giltu ekki Morgunblaðið/Júlíus Frá björgunaraðgerðum á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardags. Á DÖGUNUM fór flokkur manna undir dyggri stjórn Þorsteins Bergs- sonar, framkvæmdastjóra Minja- verndar, með annað af þremur síma- húsum sem á að endurgera milli Héraðs og Hofs í Vopnafirði og Hofs og Grímsstaða á Fjöllum. Það var svokallað nyrðra símahús, á Urðunum vestan Mælifells, sem komið var með í fyrradag og gekk verkið sæmilega vel miðað við að snjór var kominn í fjöll. Húsið var smíðað í Reykjavík og því ekið á vörubíl að Grímsstöðum og þaðan yf- ir Haug, en það er gamla símaleiðin. Minjavernd kostar verkið ásamt Jeppaklúbbnum 4x4 á Austurlandi, en húsið kostar um 4 milljónir króna. Vinna hefst innan tíðar við þriðja húsið sem á að rísa á Smjörvatns- heiði en búið er að tryggja fjármagn í það verk og áætlaður kostnaður um 6,5 milljónir króna. Þorsteinn Bergsson hefur tekið saman upplýsingar um lagningu sím- ans og segir m.a. að ekki fari á milli mála að lagning símans til Íslands og um hálendið frá Seyðisfirði til Reykjavíkur hafi verið mesta fram- kvæmd hérlendis á síðustu öld fram að seinna stríði. „Lagningu sæ- strengs til Seyðisfjarðar og tengingu hans þar lauk 25. ágúst 1906 og var hann vígður þann dag. Lagningu lín- unnar yfir hálendið lauk nokkru síð- ar og var hún og þar með fjarskipti frá Íslandi til útlanda vígð með við- höfn í Reykjavík 29. september 1906. Undirbúningur og rannsóknir höfðu þá staðið um áratugaskeið með hléum frá árinu 1860 þegar sú hug- mynd tók að mótast að heppilegast væri að strengurinn kæmi að landi á Austfjörðum. Stauraveturinn mikli Olav Forberg, Norðmaður sem fenginn var til að stýra verkinu, kom til Íslands í maí 1905 og var sum- arlangt við mælingar og áætlana- gerð um val á línustæði, fjölda staura, lengd línu og allan annan undirbúning og ekki síst að sjá fyrir með flutning staura og línu að fyr- irhuguðu línustæði. Sá hluti undirbúnings, þ.e. að Endurgera símaminjar á fjöllum Á ferðalagi með eitt símahús Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Nokkuð þurfti að hafa fyrir því að koma símahúsinu á sinn stað á Urðum vestan Mælifells. Snjór hamlaði til dæmis ferð bílsins um tíma. flytja staurana, átti eftir að verða erfiðari en ráð var fyrir gert í upp- hafi. Staurarnir, 14.000 talsins, voru nýlega höggnir og mjög þungir. Ekki bætti úr skák að þeir höfðu ver- ið baðaðir í kreosóti sem sveið undan og brenndu menn sig við að hand- leika þá. Línan var líka erfið í flutn- ingi en flytja þurfti 1.250 km af vír að línustæðinu og 28.000 postulínsein- angrara og króka. Flutningarnir áttu sér stað veturinn 1905–1906 og var sá vetur víða kallaður stauravet- urinn mikli. Lengstu vegalengdir til flutninga voru frá Vopnafirði að Grímsstöðum og gat það tekið mann og hest með sleða allt að 6 daga að flytja einn staur. Erfiðustu hlutar línulagnarinnar voru frá Grímsstöðum að Hofi í Vopnafirði og yfir Smjörvatnsheiði. Bæði er þar um lengstu vegalengd- irnar milli byggða að fara og þar liggur hún hvað hæst. Sumarið 1906 var jafnframt mjög kalt og stöðugur norðaustanstrengur. Leiðinni allri frá Seyðisfirði til Reykjavíkur var skipt niður í fjóra aðalkafla. Við þennan hluta leiðarinnar unnu um 60 manns í þremur flokkum. Ekki voru til hestar fyrir þá og urðu þeir að ganga í vondu færi að Grímsstöðum með allt sitt hafurtask. Við verkið bjuggu línumennirnir í tjaldbúðum sem fluttar voru til eftir því sem verkinu miðaði. Jafnframt því að leggja línuna reistu línumenn- irnir þrjú lítil hús á þessari leið. Þau nýttust þeim við línulögnina og jafn- framt var húsum þessum ætlað að nýtast áfram til eftirlits og viðhalds með línunni. Tvö húsanna voru á leiðinni frá Grímsstöðum að Hofi. Annað stóð í vestanverðu fjallinu Haugi, en hitt á svokölluðum Urðum nokkru austar. Þriðja húsið var reist á Smjörvatnsheiði, hvar hæst ber þar og veðrasamast er. Hús þessi eru öll hvert með sínu sniði og ólík. Styrkja gönguferðamennsku Húsin eru í dag talin kjörin sem viðkomustaðir og skjól á gönguleið annars vegar milli Héraðs og Vopna- fjarðar og hins vegar milli Vopna- fjarðar og Grímsstaða. Vill svo til, enda upphaflega þannig hugsað, að fjarlægð er lík á milli þeirra og frá þeim að byggð og því í dag heppileg göngulengd. Það hefur sýnt sig við vaxandi ferðamennsku að slíkt skjól er fljótt að vekja upp gönguleiðir og styrkja þannig ferðaþjónustu svæða. Má þar nefna gönguleiðir um Lónsöræfi. Þannig er auðvelt að sjá fyrir sér að samhliða því að húsunum og tilvist þeirra og sögu sé haldið til haga, geti þau nýst í þágu ferðamennsku á þessu svæði. Þegar er fyrir þessu mikill áhugi bæði á Vopnafirði og á Grímsstöðum. Talið er viðeigandi að tengja endurgerð húsanna og upphaf nýtingar þeirra fyrir ferðamenn á 100 ára afmæli símans á Íslandi 2006.“ BYGGINGARLEYFI fyrir fram- kvæmdum við Urriðaholt í Garðabæ var veitt á föstudag, en Landvernd hefur mótmælt framkvæmdunum og farið fram á að umhverfisráðherra láti stöðva þær. „Við höfum veitt byggingarleyfi fyrir undirstöðum að verslunarhús- næði og leyfi fyrir jarðvegsfram- kvæmdum á grundvelli gagna frá hönnuðum,“ segir Gunnar Einars- son, bæjarstjóri Garðabæjar. Hann segir heimild liggja fyrir um að leyfa jarðvegsrannsóknir áð- ur en byggingarleyfi fáist. Spurður hvort stórvirkar vinnuvélar þurfi til slíkra rannsókna segir Gunnar: „Það getur þurft ef landið liggur þannig. Það getur verið hluti af því að kanna dýpt og þess háttar.“ Landvernd hefur kært fram- kvæmdir á svæðinu til úrskurðar- nefndar skipulags- og byggingar- mála, en Gunnar segir Garðabæ ekki hafa áhyggjur af þeirri kæru. Ljóst sé að aðalskipulagsbreyting sem samþykkt er af ráðherra sé ekki kæranleg til nefndarinnar, auk þess sem Landvernd hafi ekki lög- varðra hagsmuna að gæta. „Við höldum áfram með málið eins og lög og reglugerð kveða á um.“ Gunnar segir skipulagsferlið um breytta landnotkun í Urriðaholti byggjast á ítarlegu mati á náttúru- fari svæðisins og verndargildi, ítar- legt samráð hafi verið haft við stofn- anir, sérfræðinga og almenning. Niðurstaðan hafi verið sú að Urr- iðavatn, lífríki þess, lindir við vatnið og hrauntangi hafi hæsta verndar- gildið og í gildandi aðalskipulagi sé sett fram stefna um verndun svæð- isins. Gunnar segir að kæra Land- verndar þar sem þess er krafist að framkvæmdum verði hætt verði lögð fyrir bæjarráð á morgun. „Ég á ekki von á því að bæjarráð óski eftir að framkvæmdir verði stöðvaðar. Þetta er allt gert í samræmi við lög, byggingarnefndin hefur veitt leyfi í samræmi við þau gögn sem liggja fyrir.“ Landskiptum ekki þinglýst Landvernd hefur einnig bent á að lagaleg óvissa sé um hvort samn- ingur milli Hafnarfjarðar og Garða- bæjar frá árinu 1978 um makaskipti á landinu við Urriðaholt hafi verið staðfestur. Gunnar segir það smá- mál, verið geti að gleymst hafi að þinglýsa samningnum, en þegar tvö heiðarleg sveitarfélög geri slíkan samning sé ljóst að staðið verði við hann. Framkvæmdir á Urriðaholti verða ekki stöðvaðar Fékk leyfi á föstudag Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Tveggja jeppa árekstur TVEIR jeppar rákust á í Vík- urskarði rétt fyrir klukkan sex í gærdag. Ökumaður ann- ars bílsins var fluttur á slysa- deild vegna minniháttar áverka á höfði og báða jepp- ana þurfti að flytja burt með kranabíl, en ekki er vitað um umfang skemmdanna á öku- tækjunum. Að sögn varðstjóra lögregl- unnar á Akureyri vildi áreksturinn þannig til að ann- ar jeppinn ætlaði að taka fram úr fjárflutningabíl við erfiðar aðstæður þar sem beygja blindar sýn, þótt framúrakstur sé leyfður á þessum vegarkafla. Þegar ökumaður varð hins jeppans var reyndi hann, að sögn varðstjóra, að hægja á sér í von um að ná að sveigja aftur fyrir flutningabílinn, en náði því ekki þar sem flutninga- bíllinn hægði einnig á sér á sama tíma. Bílarnir rákust því á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.