Morgunblaðið - 12.09.2005, Side 6
6 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikið úrval stórra og
smárra heimilistækja
ásamt lömpum,
þráðlausum símum
og farsímum á sann-
kölluðum Búhnykks-
kostakjörum.
Komið og gerið frábær
kaup.
GH
-
SN
05
09
00
2
EFTIR er að ákveða nákvæmlega
hvaða svæði það er sem telst til
Vatnsmýrarinnar í hugmyndasam-
keppni borgarinnar, en ef miðað er
við flugvallarsvæðið og næsta ná-
grenni má segja að þegar sé búið að
skipuleggja rúman þriðjung lands-
ins, segir Gísli Marteinn Baldursson,
varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Hann segir að svæðið á korti sem
hann hefur látið útbúa sé um 200
hektarar, og þar af sé búið að skipu-
leggja um 70 hektara, fyrir Háskól-
ann í Reykjavík, nýja samgöngumið-
stöð, íþróttafélagið Val o.fl., og því
tækifærið til þess að skipuleggja
Vatnsmýrarsvæðið í heild sinni glat-
að.
„Ég er alls ekki á móti hugmynda-
samkeppni í sjálfu sér, og finnst aug-
ljóst að slík alþjóðleg keppni eigi að
fara fram um þetta svæði, enda leit-
un að öðru eins tækifæri í borgar-
skipulagi þróaðra borga eins og
Vatnsmýrin gefur okkur Reykvík-
ingum. Það er tímasetningin sem ég
set spurningamerki við,“ segir Gísli.
Peningum kastað á glæ?
Reykjavíkurborg hefur ekki enn
samið við ríkið um brotthvarf flug-
vallarins, og því segir Gísli að hug-
myndasamkeppni sé að vissu leyti
ótímabær. Forsendur sem settar eru
í keppninni geti breyst og þá sé
hætta á að þeim 80–100 milljónum
sem reiknað er með að keppnin kosti
sé kastað á glæ.
„Segjum sem svo að samningar
milli borgaryfirvalda og samönguyf-
irvalda sigli í strand og það næðist
ekki samkomulag um brottflutning
flugvallarins, þá er hugmyndasam-
keppni sem gerir ráð fyrir því að
flugvöllurinn hverfi ómerk. Ef allar
hugmyndirnar gera ráð fyrir því að
hér sé ekki flugvöllur eru þær ónýtar
ef hann verður hér áfram. Það gildir
á hinn veginn líka; ef hugmyndirnar
gera ráð fyrir einni flugbraut sem
svo verður ekki,“ segir Gísli.
„Það er auðvitað mjög bagalegt að
borgaryfirvöld skuli ekki búin að fá
niðurstöðu um það hvort flugvöllur-
inn fer eða ekki áður en farið er í
hugmyndasamkeppni,“ segir Gísli.
Hann segir að sá flýtir sem hafa á við
hugmyndasamkeppnina, þar sem
niðurstaða eigi að vera ljós fyrir
sveitarstjórnarkosningar á næsta
ári, bendi til þess að Reykjavíkurlist-
inn vilji flýta sér að klára skipulagið í
stað þess að taka þann tíma sem þarf
til að gera það vel.
Þarf að gefa sér tíma
„Menn mega ekki láta pólitískar
kosningar sem verða næsta vor
skemma þetta einstaka tækifæri.
Mér finnst að menn séu að drífa sig
með samkeppnina til þess að geta
skreytt sig með henni fyrir næstu
kosningar, en mér finnst þetta mál
miklu stærra en einar borgarstjórn-
arkosningar. Þetta er mál sem við
eigum að vinna í sameiningu. Fyrst
þurfum við að fá niðurstöðu um örlög
flugvallarins, og fara svo í stóar al-
þjóðlega hugmyndasamkeppni og
vinna málið þá af myndugleik, hratt
og örugglega,“ segir Gísli Marteinn.
Þriðjungur Vatnsmýrarinnar
hefur þegar verið skipulagður
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
GRUNNSKÓLINN á Hólmavík
hreppti nú um helgina fyrstu verð-
laun í samkeppni meðal grunnskóla
landsins um vefsíðugerð um sjáv-
arútvegsmál. Í öðru sæti varð
Grandaskóli í Reykjavík og í því
þriðja Garðaskóli í Garðabæ. Sam-
keppnin fór fram á síðasta skólaári og
var haldin í tilefni 100 ára afmælis
komu fyrsta togarans til Íslands, þ.e.
Kútts.
Að sögn Ellenar Ingvadóttur,
blaðafulltrúa Íslensku sjávarútvegs-
sýningarinnar, hlutu allir vinnings-
hafar glæsileg verðlaun sem Lands-
banki Íslands gaf til keppninnar, en
keppnin var skipulögð af sjáv-
arútvegsráðuneytinu og mennta-
málaráðuneytinu.
Verðlaunin voru afhent við hátíð-
lega athöfn í anddyri Smáraskóla á
laugardagsmorgun að viðstöddum
sjávarútvegs- og menntamálaráð-
herra, auk fulltrúa Landsbanka Ís-
lands, ásamt stórum hópi grunn-
skólanemenda. Að afhendingu lokinni
fóru skólabörnin í tveimur hópum um
sýninguna í fylgd aðstandenda henn-
ar og heimsóttu fimm sýningarbása.
Grunnskólinn á Hólmavík
var með bestu vefsíðuna
Morgunblaðið/Golli
Nemendur á Hólmavík, Grandaskóla í Reykjavík og Garðaskóla í Garðabæ.
Meira á mbl.is/ítarefni
ELDUR kom upp í húsnæði
Hreinsitækni við Stórhöfða í
Reykjavík á laugardag. Svo virðist
sem eldurinn hafi kviknað í götusóp-
aravél í húsnæðinu en ekki er vitað
nánar um eldsupptök. Mikinn og
svartan reyk lagði frá eldinum.
Að sögn Jóns Viðars Matthíasson-
ar slökkviliðsstjóra var talsverður
viðbúnaður vegna eldsins, m.a.
vegna þess að vitað var um gaskúta
inni í húsnæðinu og óttast að þeir
kynnu að springa. Einnig var um að
ræða stórt húsnæði og lítið skyggni
var inni. Voru slökkviliðsmenn á frí-
vakt kallaðir út en mikið álag var á
starfsmönnum slökkviliðsins þennan
sólarhring vegna björgunaraðgerða
og leitar á Viðeyjarsundi.
Eldur í
húsnæði
Hreinsi-
tækni
NÝTT húsnæði Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni að Stang-
arhyl 4 sem tekið var formlega í
notkun nú um helgina markar
ánægjuleg tímamót í sögu félagsins.
Þetta segir Margrét Margeirsdóttir,
formaður félagsins. „Með tilkomu
nýja húsnæðisins verður öll starf-
semin, bæði félagsstarfið og skrif-
stofan, loksins á einum og sama
staðnum,“ segir Margrét og upplýsir
að áður hafi félagið verið með starf-
semi sína á tveimur stöðum, þ.e. fé-
lagastarfið var í Glæsibæ og skrif-
stofurnar í Faxafeni, sem hafi ekki
aðeins verið óhentugt heldur mun
kostnaðarsamara en ella.
Að sögn Margrétar var margt um
manninn um helgina og ljóst að fé-
lagsmönnum lítist afar vel á nýja
húsnæðið. „Sem er líkt og sniðið að
okkar þörfum. Um er að ræða 580
fermetra húsnæði á tveimur hæðum
þar sem skrifstofur og fundarsalir
eru staðsettir á neðri hæð hússins. Á
efri hæðinni er salur ætlaður fyrir
félagsstarfið sem tekur 140 manns í
sæti, en með skilrúmum er mögulegt
að skipta salnum í tvennt,“ segir
Margrét og segir húsnæðið allt hið
glæsilegasta með fallegum og vönd-
uðum innréttingum og góðu aðgengi,
en lyfta er í húsinu fyrir hreyfihaml-
aða.
Félag eldri borgara í Reykjavík er
að sögn Margrétar fjölmennt og öfl-
ugt með rúmlega 8.200 skráða með-
limi. Aðspurð segir hún um 500
heimsóknir hafa verið í félagsmið-
stöðina á viku þegar hún var staðsett
í Glæsibæ, en gera megi ráð fyrir að
þeim fjölgi með tilkomu nýja hús-
næðisins. Að sögn Margrétar er fé-
lagsstarf félagsins umfangsmikið og
gríðarlega öflugt. „Við erum hér með
fjölmennan kór, sem kemur fram við
ýmis tækifæri, og leikfélagið Snúð
og Snældu. Einnig er hér boðið upp á
brids- og skákiðkun, hægt er að spila
félagsvist og dansa, auk þess sem
sérlegur bókmenntaklúbbur hittist
annan hvern þriðjudag,“ segir Mar-
grét sem trúir að flutningurinn verði
til þess að efla starfsemina verulega.
Félag eldri borgara í Reykjavík flytur í nýtt húsnæði í Stangarhyl
Markar tímamót í sögu félagsins
Morgunblaðið/ÞÖK
Margt var um manninn í nýju húsnæði Félags eldri borgara í Reykjavík.
„ÉG stend alveg við það sem ég hef
sagt í þessu máli,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, um ummæli Ólafs H. Jóns-
sonar, formanns landeigenda í Mý-
vatnssveit í Morgunblaðinu. Ólafur
sagði að búið væri að ná samningum
um leigu vegna pappabrettaverk-
smiðju, en ekki hafi verið staðið við
greiðslur með leigu. Ekki sé því rétt
að það standi á landeigendum.
Valgerður segist hins vegar vera
ánægð með það sem Ólafur segi um
að samningar hafi náðst og því eigi að
vera hægt að leysa málið á stuttum
tíma. Enn eigi þó eftir að leysa málið
gegn landeigendum.
„Það er það sem þarf að gerast til
þess að málið sé í höfn,“ segir Val-
gerður.
„Nýsköpunarsjóður er að koma
þarna inn með mikla fjármuni og að
sjálfsögðu þarf hann að hafa skoðanir
á fyrirtækinu og ýmsu sem það varð-
ar til að geta keypt hlutafé fyrir 200
milljónir og það er sú vinna sem hefur
verið í gangi.
Það hefur verið fyrirstaða sem snýr
að landeigendum og hún hefur ekki
verið leyst en miðað við orð Ólafs H.
Jónssonar, er ég bjartsýn á að það
geti leyst mjög fljótt, enda er þetta
mjög spennandi mál bæði hvað varðar
umhverfismál og atvinnuuppbygg-
ingu á svæðinu,“ segir Valgerður.
Valgerður
Sverrisdóttir
„Stend við
það sem ég
hef sagt“
♦♦♦