Morgunblaðið - 12.09.2005, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðræður um kaupríkisins á hlut Ak-ureyrarbæjar og
Reykjavíkurborgar í
Landsvirkjun hafa staðið
yfir undanfarna mánuði í
kjölfar þess að viljayfir-
lýsing um málið var und-
irrituð í febrúar sl.
Enn á hins vegar eftir
að ákveða virði fyrirtæk-
isins og þar af leiðandi
verð á eignarhluta sveit-
arfélaganna. Að sögn Steinunnar
Valdísar Óskarsdóttur, borgar-
stjóra, ber mikið í milli að nið-
urstaða um verð náist.
Í viljayfirlýsingunni, sem þau
Geir H. Haarde, fjármálaráð-
herra, Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri Reykjavíkur og
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, undirrituðu í
febrúar kom fram að ríkið myndi
leysa til sín eignarhluta sveitarfé-
laganna tveggja fyrir næstu ára-
mót ef samkomulag um verð
næðist. Stefnt var að því að við-
ræðum um verð yrði lokið eigi
síðar en 30. september.
Fyrirhuguð kaup ríkisins eru
liður í þeirri stefnu að breyta
Landvirkjun í hlutafélag sem á
að gerast í fyrsta lagi árið 2008 í
ljósi nýrra raforkulaga sem fela í
sér samkeppni í vinnslu og sölu
raforku. Í viljayfirlýsingunni kom
fram að söluandvirði eignarhluta
sveitarfélaganna yrði varið til líf-
eyrisskuldbindinga sveitarfélag-
anna gagnvart starfsmönnum
sínum og er enn gengið út frá því
að svo verði, að sögn Valgerðar
Sverrisdóttur.
Hlutur Akureyrarbæjar í
Landsvirkjun er um 5% en
Reykjavíkurborg á um 45%. Mik-
ið verk er að meta verðmæti jafn-
stórs fyrirtækis og Landsvirkjun
er og hefur sérstök samninga-
nefnd fengist við það verkefni að
undanförnu. Í nefndinni sitja
fulltrúar frá öllum aðilum og hef-
ur nefndin meðal annars fengið
til sín óháða aðila til þess að
leggja mat á verð fyrirtækisins.
„Ekki mikil vinna eftir“
Valgerður Sverrisdóttir segir
að góður andi sé í viðræðunum og
gerir sér vonir um að viðræðum
ljúki í mánuðinum. „Það er svo
sem ekki aðalatriði í raun, heldur
að það náist niðurstaða. En að
mínu mati er ekki mikil vinna eft-
ir,“ segir Valgerður og bætir við
að henni sýnist sem það sé vilji
allra að leysa málið.
Enn á eftir að komast að nið-
urstöðu um verð fyrir eignarhlut-
ann og aðspurð segist Valgerður
ekki tilbúin að tjá sig um hvernig
það verði fundið út.
„Ég held ég fari ekki út í það
að sinni. En það sem sagt á eftir
að ná endanlegri niðurstöðu, það
er ljóst, en það er búið að vinna
alla undirbúningsvinnuna, að
mínu mati.“
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segir að við-
ræðurnar gangi vel.
„Ég hef ekki heyrt annað frá
fulltrúa okkar í samninganefnd-
inni,“ segir Kristján en tekur
fram að erfitt sé að segja til um
hvenær viðræðunum ljúki. Stefnt
hafi verið að því að sveitarfélögin
færu út fyrir áramót og ef það
eigi að nást þyrfti viðræðum að
ljúka í september.
Spurður um verðmat á fyrir-
tækinu segir Kristján að sú vinna
fari fram í nefndinni en vill ekki
segja til um hvaða aðferðum sé
beitt við að ákveða verðið.
Margt hefur áhrif á verðið
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri, segir að málið sé í
ákveðnum farvegi hjá nefndinni.
„Þessi hópur hefur ekki skilað
af sér til okkar og það er enn
ágreiningur um verðmat fyrir-
tækisins. Meðan svo er, þá er
ekki hægt að fara með málið
lengra vegna þess að þá er ekki
ljóst hver hlutur sveitarfélaganna
er. Ég hugsa að það sé einhver
tími þangað til að niðurstaða liggi
fyrir,“ segir hún.
Aðspurð hvort hún telji að það
markmið sem fram kom í vilja-
yfirlýsingunni um að ljúka við-
ræðum fyrir lok september náist,
segist hún vera frekar svartsýn á
það. Hins vegar eigi að vera
hægt að ljúka málinu fyrir ára-
mót ef rétt verði haldið á spil-
unum.
„En það er ekki verið að fara
að skrifa undir á næstu dögum
eins og ráðherrann gaf í skyn í
fjölmiðlum,“ segir Steinunn og á
þar við ummæli sem fréttastofa
Ríkisútvarpsins hafði eftir Val-
gerði Sverrisdóttur um helgina.
Steinunn segir að nefndin fái
til sín ákveðna óháða aðila til að
reyna að leggja mat á virði fyr-
irtækisins en svo sé það auðvitað
þannig að bæði Reykjavíkurborg
og ríkið hafi ákveðnar hugmyndir
um verðið.
„Það ber einfaldlega ennþá
ansi mikið á milli,“ segir Stein-
unn og þegar hún er innt eftir því
í hverju sá munur felist segist
hún ekki vilja tjá sig um það.
„Menn geta auðvitað sagt sér það
þegar verið er að selja svona fyr-
irtæki þá eru ýmsar óvissufor-
sendur sem koma þar inn, meðal
annars skuldsetning fyrirtækis-
ins og framtíðarmöguleikar sem
geta haft áhrif á verðmætið,“
segir Steinunn.
Fréttaskýring | Viðræður um kaup ríkisins
á hlut sveitarfélaga í Landsvirkjun
Ágreiningur
um verð
Óvíst að samningaviðræðum ljúki fyrir
lok mánaðarins eins og stefnt var að
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í febrúar.
Eigið fé Landsvirkjunar 53
milljarðar króna
Erfitt er að segja til um hvaða
verð ríkið mun greiða fyrir eign-
arhluta sveitarfélaganna í
Landsvirkjun. Eigið fé fyrirtæk-
isins er 53 milljarðar króna sam-
kvæmt árshlutareikningi fyrstu
sex mánaða ársins og er ekki
ólíklegt að verðið verði eitthvað
yfir þeirri tölu.
Þannig var kaupverð Símans til
að mynda töluvert hærra en eig-
ið fé fyrirtækisins þegar hann
var seldur í júlí sl.
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.isearge
MARGT fólk var samankomið í
Hraunsrétt í gær en eins og venja
er til láta menn sig ekki vanta í
réttina þar sem Hraunsréttardag-
urinn er ein mesta hátíð Aðaldæl-
inga. Þar hefur verið réttað í meira
en 170 ár og tíðkaðst jafnan að
þangað fari allt rólfært fólk þótt
það hafi breyst með árunum með
minni fjárbúskap.
Þótt sauðfé hafi fækkað hefur
dagurinn sitt aðdráttarafl og þótt
þungbúið væri og rigning var jafn
gaman að draga og hitta fólkið eins
og alltaf.
Að sögn fjallkóngsins í Aðaldal,
Sæþórs Gunnsteinssonar í Prest-
hvammi, gekk vel að smala og féð
er vænna en oft áður.
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á Hraunsrétt á und-
anförnum árum en hún hefur verið
minnkuð nokkuð í takt við nýja
tíma. Lokið var við að draga um há-
degi en á árum áður tók það allan
daginn að draga enda var Hrauns-
rétt önnur stærsta skilarétt á Norð-
urlandi.
Allir sem geta reyna að
mæta í Hraunsrétt
Þetta barn var að mæta í réttina í fyrsta skipti, en væntanlega ekki síðasta. Hraunsrétt er yfir 170 ára gömul.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Það getur tekið á að draga féð, en þegar tveir hjálpast að gengur betur.
FULLTRÚAR Sambands ungra
sjálfstæðismanna heiðruðu Rögnu
Björnsson á 95 ára afmælisdegi
hennar sl. laugardag. Ragna er eini
núlifandi stofnfélagi SUS, en sam-
bandið var stofnað 27. júní árið
1930 við hátíðlega athöfn í
Hvannagjá á Þingvöllum. Að sögn
þeirra sem til Rögnu þekkja er hún
ennþá skráð í Sjálfstæðisflokkinn
og fylgist vel með starfi hans.
Kunnugir gantast með það að
Ragna sé kannski táknræn fyrir
það að þegar menn einu sinni
ganga í flokkinn þá fara þeir ekki
úr honum aftur.
Ragna gerðist ung atvinnurek-
andi og rak m.a. um áratugaskeið
gistiheimili á Ásvallagötu 24 og var
einnig fyrsta konan sem rak heild-
sölu hérlendis, þ.e. heildsöluna
Kemikalía hf. Margt var um mann-
inn í afmælisveislu Rögnu sem hald-
in var á Jómfrúnni, en meðal gesta
voru Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra, sem Ragna hefur þekkt síð-
an hann var 12 ára, og Björgólfur
Guðmundsson, formaður banka-
ráðs Landsbanka Ísland, sem vann
sín fyrstu störf hjá Rögnu en hún
réð hann sem sölumann hjá sér í
heildsölunni þegar hann var um tví-
tugt.
Stofnfélagi
SUS heiðr-
aður á afmæl-
isdegi sínum
Morgunblaðið/Golli
Friðjón R. Friðjónsson, varaformaður SUS, Bjarki Baxter, framkvæmda-
stjóri, og Hafsteinn Þór Hauksson, formaður félagsins, færðu Rögnu
Björnsson blóm á 95 ára afmælisdaginn hennar sl. laugardag. Rögnu á
hægri hönd er systir hennar Ágústa Björnsson.