Morgunblaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 9
FRÉTTIR
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
NICK buxurnar komnar
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
SÓLEY Tómasdóttir hefur ákveðið
að bjóða sig fram í eitt af efstu sæt-
um í prófkjöri Vinstri hreyfing-
arinnar – græns
framboðs vegna
sveitastjórn-
arkosninganna í
Reykjavík vorið
2006.
Í tilkynningu
frá Sóleyju segir
að hún leggi
áherslu á jafn-
réttismál, dag-
vistarmál,
menntamál og íþrótta- og tóm-
stundamál.
„Það er trú mín að ef áherslur
mínar njóta fylgis borgarbúa muni
það leiða af sér betri lífskjör fyrir
okkur öll.“
Býður sig fram í
prófkjöri VG
Sóley Tómasdóttir
SUNDKAPPARNIR Hálfdán Örn-
ólfsson og Heimir Örn Sveinsson
syntu sjósund úr eyjunni Skrúð,
sem rís úr landi austan Fáskrúðs-
fjarðar, fyrir helgi og er það í
fyrsta sinn sem það er gert. „Þetta
hefur aldrei verið reynt og menn
hafa talið þetta vera ógerlegt,“ seg-
ir Hálfdán og bætir við að þeir fé-
lagarnir hafi afsannað það.
„Þetta tókst rosalega vel til,“
segir Hálfdán og bætir því við að
það hafi verið mikil vinna á bak við
sundið sem hafi tekið gríðarlega á.
Þeir fylgdust með sjávarföllum,
veðráttu og hitastigi auk þess sem
þeir ræddu við trillukarla sem
þekkja svæðið manna best. „Það
eru alveg gríðarlegir straumar
þarna. Þetta er ekkert fyrir Jón
Jónsson að fara þetta einn tveir og
þrír. Að vera þarna á milli er eins
og að vera ofan í grautarpotti.“
Leiðin sem þeir syntu var rúmir
þrír kílómetrar og sjórinn um sjö
gráða heitur. Þeir voru í þunnum
sundbúningi með blöðkur til þess
að auðvelda sér sundið. Félagarnir
lögðust til sunds kl. 11 í gær og stóð
sundferðin í um klukkustund.
Þeir félagar eru keppnismenn í
sundi og báðir í toppformi. Hálfdán
segir þá hafa æft stíft fyrir sundið
auk þess sem þeir nýttu sumarið til
þess að æfa sjósund.
Kunningi þeirra fylgdi þeim á bát
og var ferðin mynduð í bak og fyrir
enda ekki á hverjum degi sem þetta
er gert. Hann segir sundið hafa tek-
ið gríðarlega á. „Þegar maður er
búinn að peppa sig upp í þetta fer
maður svolítið langt á viljanum,“
segir Hálfdán. Hann segir að hon-
um þætti gaman að sjá það ef ein-
hverjir aðrir tækju sig til og syntu
þarna um.
Tveir sundkappar syntu sjósund úr Skrúð fyrstir manna
„Menn hafa talið þetta vera ógerlegt“
Heimir Örn Sveinsson og Hálfdán Örn Sveinsson æfðu
sjósund í Nauthólsvík fyrir stóru átökin fyrir austan.
Skrúðssundið tók um klukkustund og var straumurinn
gríðarlegur að sögn Hálfdáns Arnar Sveinssonar.
STARFSMANNAFÉLAG Reykja-
víkurborgar lýsir í ályktun yfir
þungum áhyggjum vegna lágra
launa og mikils vinnuálags hjá
starfsmönnum Reykjavíkurborgar.
Á sumum vinnustöðum hafi auk
manneklu verið óviðunandi álag á
starfsfólki vegna stórtækra skipu-
lags- og stjórnkerfisbreytinga að
undanförnu.
„Þrátt fyrir viðleitni til að jafna
kynbundinn launamun hjá Reykja-
víkurborg hafa borgaryfirvöld sýnt
lítinn metnað og þor í þá veru að
borga starfsmönnum sínum sóma-
samleg laun og koma þannig í veg
fyrir það ástand sem nú er uppi á
fjölmörgum vinnustöðum borg-
arinnar. Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar hlýtur því að fagna yf-
irlýsingum borgarstjóra,
Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur,
um að átak verði gert í að lagfæra
launakjör starfsmanna borgarinnar
og hugmyndum hennar um að
kjarasamningum verði flýtt.
Ástandið er óþolandi bæði hvað
laun og vinnuálag varðar. Með
komandi kjarasamningum verður
sú staða að breytast svo um mun-
ar,“ segir í ályktun félagsins.
Aukið vinnuálag
og laun of lág
ALLS verða 134 nemendur við nám í Hólaskóla –
háskólanum á Hólum í vetur auk 12 til viðbótar
sem stunda þar meistara- eða doktorsnám. Árið
2000 var 51 nemandi við skólann. Skúli Skúlason,
rektor skólans, sagði í skólasetningarræðu sinni
sl. þriðjudag að mikilvægt væri að þróa há-
skólanám, bæði námið sjálft og rannsóknarstörfin
sem því tengdust. Daginn eftir voru formlega
teknar í notkun 43 nýjar íbúðir fyrir nemendur í
níu nýbyggðum húsum og opnaði Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra eina íbúðina og afhenti
rektor skólans lyklana sem hann hafði áður fengið
hjá Ólafi Friðrikssyni byggingameistara.
Alls verða níu nemendur á fiskeldis- og fiska-
líffræðideild skólans í vetur, 74 í ferðamáladeild,
þar af 50 sem stunda fjarnám, og í hrossarækt-
ardeild verður alls 51 nemandi.
Nemarnir tólf sem eru í meistara- eða dokt-
orsnámi eru bæði íslenskir og erlendir og stunda
sumir hverjir námið í samvinnu við Háskóla Ís-
lands og erlenda háskóla. „Við erum mjög stolt af
því að vera með nemendur frá mörgum löndum og
í vetur verða nemendur frá alls níu löndum í skól-
anum, flestir í hestanámi en einnig eru erlendir
nemar í námi í ferðamálum og fiskeldi,“ sagði
Skúli Skúlason m.a. í ræðu sinni.
Mikilvægt að hafa góða aðstöðu
Þá sagði rektor að aðstaða væri mikilvæg í þró-
un skóla og sagði mikið hafa verið unnið á Hólum
undanfarin ár við nýbyggingar og viðhald bygg-
inga. Nú væri á lokastigi frágangur á umfangs-
mikilli aðstöðu til kennslu og rannsókna á sjáv-
arfiskum í húsnæði Fisk Seafood á Sauðárkróki
og hefðu starfsfólk og nemendur þegar komið sér
þar fyrir og hafið störf.
Rektorinn dró fram sérstöðu Hólaskóla meðal
háskólastofnana sem hann sagði felast í því að
skólinn ætti mikið samstarf við aðra. Sagði hann
þróun skólans undanfarin ár hafa grundvallast á
virku samstarfi við aðra skóla, stofnanir og fyr-
irtæki. Fælist það m.a. í því að hægt væri að fá
nám við Hólaskóla metið við aðra skóla og á Hól-
um væri nám annars staðar metið og þessi stefna
væri nátengd þeirri stefnu háskólasamfélagsins í
dag að auka sveigjanleika í námi.
Nýir nemendagarðar í notkun
Nýir nemendagerðar hafa verið reistir fyrir
Hólaskóla undanfarin ár og sl. miðvikudag lauk
byggingu níu húsa með 43 íbúðum af ýmsum
stærðum, allt frá einstaklingsíbúðum upp í fimm
herbergja íbúðir. Arkitekt er Björn Kristleifsson.
„Tilkoma þessara húsa er hrein bylting í aðstöðu
nemenda skólans en við megum hafa okkur öll við
að útvega ört stækkandi nemendahópnum hús-
næði hér á staðnum,“ sagði Skúli Skúlason í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann segir talsvert um að
nemendur séu fjölskyldufólk og því sé nauðsyn-
legt að hafa nokkurt framboð af þokkalega stórum
íbúðum. Íbúðalánasjóður fjármagnar 90% af
kostnaðinum og Sparisjóður Skagafjarðar lánaði
10%. Eignarhaldsfélagið Þrá á Sauðárkróki ann-
ast framkvæmdina. Þrá ehf. er í eigu Kaupfélags
Skagfirðinga og Friðriks Jónssonar ehf. en Sveit-
arfélagið Skagafjörður sér um gatnagerð.
Viðstaddir vígslu nýju nemendagarðanna voru
nokkrir þingmenn kjördæmisins og sveitarstjórn-
armenn sem héldu ræður auk Guðna Ágústs-
sonar. Skúli sagði að fram hefði komið í máli
þeirra allra mikill stuðningur við uppbyggingu
byggðar og allrar starfsemi á Hólum. „Við þurfum
að byggja hér samfélag sem er sjálfu sér nógt um
flesta innviði og við leggjum mikið upp úr því að
vanda til verka á öllum sviðum í því sambandi,“
sagði Skúli einnig og sagði þriðja áfanga nem-
endagarða framundan og yrði brátt ráðist í fram-
kvæmdir við nokkuð á þriðja tug íbúða sem sumar
hverjar yrðu vonandi komnar í gagnið að ári.
Einnig flutti Margrét Björk Björnsdóttir, fulltrúi
nemenda, ávarp og sr. Jón Baldvin Aðalsteinsson
vígslubiskup blessaði húsið.
Yfir 130 nemendur verða í Háskólanum á Hólum í vetur
Ljósmynd/Sólrún Harðardóttir
Guðni Ágústsson flutti ræðu við vígslu nýrra nemendagarða á Hólum og opnaði þá formlega.
Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum,
flutt ræðu við skólasetninguna.
Sérstaðan felst í samstarfinu
Eftir Jóhannes Tómasson
joto@mbl.is
FRÉTTIR
mbl.is