Morgunblaðið - 12.09.2005, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.09.2005, Qupperneq 16
16 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | HEILSA                   !"#$%&'()* +++,-.$-/-,% Heitir & fallegir Ofnar Ofnlokar Handklæðaofnar Sérpantanir www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is Háteigisvegi 7 Sími: 511 1100 ÖLLUM er ljóst að offita er vaxandi hér á landi og í nálægum löndum. Ekki þarf heldur að fjölyrða um öll þau heilsufarsvandamál sem af offitu stafa. Flestir vita líklega líka að einfaldasta leiðin til að halda þyngdinni nokkurn veginn þar sem hún fer best er að hreyfa sig meira og borða minna. Vandinn er hins vegar að málið er ekki svona einfalt, þess vegna er allt að helmingur Íslendinga of þungur. Offita er flókið samspil umhverfisþátta, hegðunar og erfða. Mjög miklu máli skiptir að forvarnir með upplýsingum og hvetjandi um- hverfi verði efldar, enda stendur það til. Törfralausnirnar virka ekki Ástæða er þó til að minna enn einu sinni á að venjubundin hreyfing er sennilega ein einfaldasta, ódýrasta og tiltækasta aðgerð til almennrar heilsubótar sem nokkurn tíma er og verður völ á. Mörgum finnst það hins vegar vera of mikið í lagt og hverfa til megrunarkúra og vissulega förum við ekki varhluta af aug- lýsingum og umræðu um hvers kyns töfra- lausnir sem allar eiga að taka öðrum fram. Því miður er reyndin ekki þessi og í nýlegri rann- sókn sem birtist í tímariti bandarísku læknasamtakanna fyrr á þessu ári kemur það enn fram. Vísindamennirnir sem gerðu rann- sóknina skoðuðu fjóra vinsæla megr- unarkúra, þar sem einn byggðist á litlum kolvetnum (margþekktur Atk- ins), annar var svonefndur „macro- diet“, sá þriðji byggðist á takmörkun á kaloríufjölda og sá fjórði á lítilli fitu. Öllum kúrunum fylgdi tveggja mán- aða kennsla og ráðgjöf og fólki var síðan fylgt eftir einu sinni í mánuði með símtölum. Eftir eitt ár höfðu þátttakendur misst að meðaltali 2–3 kg og var eng- inn munur á milli hinna einstöku kúra né heldur var munur á því hve margir héldu kúrinn út. Svipaður árangur náðist í þeim öllum að því er laut að lækkun á kólesteróli, sem var reynd- ar lítil. Ávinningurinn varð hægur yf- ir tíma, en fólki var ekki fylgt eftir lengur þannig að ekki er vitað hver þróun þyngdarinnar varð. Gera má þó ráð fyrir því að flestir hafi þyngst aftur, enda er svo farið í fyrri rann- sóknum á flestum megrunarkúrum. Skilaboðin eru því enn hin sömu, að við þurfum að borða minna og hreyfa okkur meira, þó að mörgum þyki það þungur boðskapur og erfiður.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið Af megrunarkúr- um – enn einu sinni Skilaboðin eru því enn hin sömu, að við þurfum að borða minna og hreyfa okkur meira Sigurður Guðmundsson landlæknir. Morgunblaðið/Árni Torfason Skyndilausnir duga skammt og best er að borða fjölbreytta fæðu í hófi. FJALLAFOLARNIR Ólafur Thorarensen og Aðalsteinn Guðjónsson hafa gengið á fjölmörg fjöll í sumar. Þeir segja fjallgöngu góða hreyfingu og gefandi. „Þetta er mjög góð hreyfing, skemmtilegur félagsskapur, og eykur þekkingu okkar á landinu og náttúru“ segir Ólafur en hann skipulagði fyrstu ferðina fyrir hóp af fólki snemma sumars. Þeir Aðalsteinn hafa síðan farið í hvaða veðri og vindum sem er og jafnvel bara tveir þar sem hinir heltust jafnt og þétt úr lest- inni. „Við vorum fleiri í upphafi en hinir hafa ekki alltaf komist svo við förum oft tveir núorðið og mikilvægast er að hafa viljastyrkinn, þá komumst við hvert sem er,“ segir Aðalsteinn glaðbeittur. Þeir hafa meðal annars gengið á Hengil, Víf- ilfell, Keili og Hvalfell og þar sem það eru yfirleitt ferðirnar með verstu veðrunum sem munað er eft- ir þá eru Móskarðshnúkar þeim eftirminnileg- astir. „Þá var brjálað veður og rok en við drifum hvor annan áfram. Við vorum nánast hættir við á miðri leið en veittum hvor öðrum styrk og kom- umst alla leið,“ segir Aðalsteinn. Ólafur bætir við hlæjandi:„Við stoppuðum í tvær sekúndur uppi á toppnum og hlupum svo niður, það var svo hvasst, líklega 25-30 m/sek og jökulkuldi en það var al- gjörlega þess virði, því skyggni var með mestu ágætum.“ Það sem skiptir máli í svona göngum er að hafa rétta búnaðinn. „Það þarf fyrst og fremst góða skó og að gera ráð fyrir öllum veðrum. Svo er mik- ilvægt að hafa orku með sér og gott nesti,“ segir Ólafur. „Ekki má gleyma myndavélinni til að gera ferðina ódauðlega og góða skapinu,“ er Aðalsteinn fljótur að bæta við. Væntanlega munu þeir garpar einnig taka með sér vasaljós héðan í frá þar sem það tók að dimma ansi fljótt í síðustu göngu þeirra og minnstu munaði að þeim tækist ekki að finna bílinn aftur. Nú liggur nærri að spyrja hvar þessi áhugi sé upprunninn. „Við erum svo sem ekkert þjálfaðir en Óli er með reynslu úr skátunum.“ „Við tókum eftir 7 tinda keppninni og ákváðum að taka þátt, erum komin langleiðina og stefnum á að klára þetta fyrir 15. september“ segir Ólafur. Á þá ekki að ganga í vetur? „Jú að sjálfsögðu, svo framarlega sem við náum að redda okkur bíl og þá þarf líka betri búnað.“ „Ég myndi mæla með þessu fyrir hvern sem er, og áætlunin hjá okkur er að fara í alla vega eina lengri ferð næsta sumar, gista jafnvel í tvær næt- ur,“ segir Aðalsteinn en þá áréttar Ólafur að það muni þá ekki verða fyrr en í júlí, eftir HM 2006. „Er það svo ekki bara Everest 2009?“ spyr Að- alsteinn sposkur. Það verður tíminn að leiða í ljós.  HREYFING | Göngugarparnir Ólafur Thorarensen og Aðalsteinn Guðjónsson Náðu upp á topp í ofsaroki Ólafur og Aðalsteinn á toppi Vífilsfells þar sem er glæsilegt útsýni yfir höfuðborgina.                  AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.