Morgunblaðið - 12.09.2005, Síða 23
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HANS BLOMSTERBERG,
Tunguseli 11,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi fimmtu-
daginn 8. september.
Ásta Sigrún Oddsdóttir,
Anna Lísa Blomsterberg, Hlini Pétursson,
Kristín Blomsterberg Ahl, Bengt Ahl,
Friðrik Blomsterberg, Alda G. Jóhannesdóttir,
Sigrún Blomsterberg, Friðrik Jósafatsson,
Ellen Blomsterberg, Einar Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 23
MINNINGAR
✝ Ólafur RagnarKarlsson mál-
arameistari fæddist
í Reykjavík 11. jan-
úar 1929. Hann lést
á Landakotsspítala í
Reykjavík 4. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Karl Ásgeirs-
son málarameistari
í Reykjavík, f. á
Fróðá í Fróðár-
hreppi á Snæfells-
nesi 16. júní 1906, d.
í Reykjavík 6. apríl
1998, og Stefanía María Sigurð-
ardóttir húsmóðir, f. á Hólabaki í
Þingeyrasókn í Húnavatnssýslu 2.
apríl 1907, d. í Reykjavík 13. mars
1961. Systkin Ólafs Ragnars eru:
Ólína Bergljót, f. 22. nóv. 1930,
Ásgeir, f. 29. jan. 1932, Sigrún, f.
30. maí 1933, Stefán, f. 19. mars
1935, Már, f. 29. maí 1937, og Sig-
urður Karl, f. 4. des. 1950.
Ólafur Ragnar kvæntist 18.
ágúst 1951 Hrefnu Einarsdóttur
iðjuþjálfa, f. í Reykjavík 6. ágúst
1933, iðjuþjálfa. Foreldrar hennar
voru hjónin Einar Einarsson
blikksmiður í Reykjavík, f. á Mið-
Grund undir Eyjafjöllum 18. maí
1880, d. 23. júní 1938, og Sigríður
Jónsdóttir húsmóðir, f. í Berjanesi
í Steinasókn 11. maí 1895, d. í
Reykjavík 28. des. 1963. Börn
þeirra Ólafs Ragnars og Hrefnu
eru: 1) Einar, f. 16.
nóv. 1951. Synir
hans eru Gunnar
Ragnar, f. 15. nóv.
1978, sonur hans er
Daníel Snorri, f. 11.
júní 1998, og Ólafur
Páll, f. 16. júní 1983.
Sambýliskona Ein-
ars er Daiva Lé-
liené. 2) Stefanía
María, f. 31. maí
1959, maki Þórður
Árnason. Börn
þeirra eru Árni
Bergmann, f. 14.
febr. 1985, Anna Jóna, f. 18. sept.
1987, Bjarki Rafn, f. 22. sept.
1991, og Ásdís Sara, f. 1. sept.
2000. 3) Ragnar, f. 21. ágúst 1960,
d. 22. ágúst 1993. Dóttir hans og
Guðnýjar Magnúsdóttur er Arna
Rut, f. 12. sept. 1987. 4) Sigríður
Jóna, f. 18. ágúst 1963. Börn henn-
ar eru Einar, f. 23. júní 1981, og
Hrefna Kistín, f. 4. des. 1982. Sam-
býlismaður Sigríðar er Pálmi Sig-
urðsson, dóttir þeirra er Ingi-
björg Ragna, f. 16. okt. 2003.
Ólafur Ragnar lærði málaraiðn
hjá föður sínum og starfaði við
það alla sína ævi. Hann gekk í
Kiwanisklúbbinn Eldey í Kópa-
vogi árið 1973 og var þar virkur
félagi.
Útför Ólafs Ragnars verður
gerð frá Kópavogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Þó augun sofni aftur hér
í þér mín sálin vaki.
Guðs son, Jesús, haf gát á mér,
geym mín svo ekkert saki.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson, frá Presthólum.)
Með söknuði kveðjum við þig,
elsku afi.
Góða nótt og sofðu rótt.
Árni Bergmann, Anna Jóna,
Bjarki Rafn og Ásdís Sara.
Þrítugur gæi með hárið greitt aft-
ur með ríflegu brilljantíni til að það
héldist á sínum stað, akandi í átt að
foreldrahúsi á Stýrimannastíg 10
(Stýró hét það innan fjölskyldunnar)
og að sjálfsögðu með vinstri höndina
haldandi í þakið, ekki af því að þakið
væri að fjúka, heldur vegna þess að
svona var hann virkilega glæsilegur
og maður og bíll mynduðu eina flotta
heild.
Þannig man ég fyrst eftir Óla fyrir
46 árum síðan, sama árið og ég giftist
Stebba bróður hans og það var árið
sem Einar var í tímakennslu og Stefí
fæddist.
Óli og Hrefna bjuggu enn hjá móð-
ur Hrefnu við Laugaveg en voru að
klára að ganga frá góðri hæð við
Gnoðarvog þar sem þau bjuggu
næstu árin. Síðan fæddust Ragnar
og Sigga Jóna og þau fluttu í húsið
sitt við Skólagerði 18 í Kópavogi þar
sem þau bjuggu þangað til þau voru
orðin tvö ein eftir, börnin löngu farin
að heiman, þá fluttu þau hjónin í
Núpalind 8.
Þúsundir veggja og mörg hundruð
loft og stigaganga hefur Óli málað
síðan ég sá hann fyrst og alltaf var
það smekklega og vel gert. Hann var
harðduglegur í sínu fagi og ósérhlíf-
inn. Góður bróðir og mágur sem
hlúði vel að sínu fólki með Hrefnu sér
við hlið frá táningsaldri.
Á svo langri ævi skiptast á skin og
skúrir og allt sem íslenskt veðurfar
hefur upp á að bjóða. Hann átti ótal
gleðistundir en lífið var ekki áfalla-
laust.
Margar ferðir utan lands og innan
fóru þau í gegnum árin en ég held að
þeim hafi liðið best í Þjórsárdalnum
þar sem þau eiga fallegt hjólhýsi og
marga góða vini. Það gaf þeim allt
sem sálin þarf á að halda úti í Guðs
grænni náttúrunni.
Óli var við góða heilsu fram yfir
sjötugt. Þá fór fjölskyldan að taka
eftir smábreytingum sem ágerðust.
Síðustu mánuðirnir voru mjög erfiðir
og síðustu vikurnar gat hann ekki
gert sig skiljanlegan.
Ég þakka fyrir að hafa átt Óla fyr-
ir mág og blessa minningu hans.
Innilegar samúðaróskir til Hrefnu
og barna, tengdabarna, barnabarna
og langafabarna og ekki síst til
systkinanna sex sem áttu hann að
sem stórabróður, góðan stórabróður.
Bestu kveðjur til allra sem þótti
vænt um Óla.
Karen Karlsson.
ÓLAFUR RAGNAR
KARLSSON
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
áður Bogahlíð 10,
lést á Landspítalanum Hringbraut laugardaginn 10.
september síðastliðinn.
Útförin auglýst síðar.
Þórunn Nanna Ragnarsdóttir, Jóhann Hólmgrímsson,
Ingunn Ragnarsdóttir, Már Óskar Óskarsson,
Gunnar Ragnarsson, Ásthildur Ágústsdóttir,
Heiðar Ragnarsson, Sigrún Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir minn,
JÓNAS ÓSKAR HALLDÓRSSON,
Seljahlíð,
Reykjavík,
lést laugardaginn 10. sepember.
Útför auglýst síðar.
Ólafur Logi Jónasson.
Minningarkort
Minningar- og
styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
Sími 552 5744
Gíró- og kreditkortaþjónusta
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
.
1
2
7
0
.9
7
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
✝ Jóhann Eyþórs-son fæddist í
Fremri-Hnífsdal 17.
feb. 1921. Hann
andaðist 2. septem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Jón Eyþór
Guðmundsson og
Pálína Salome Jóns-
dóttir.
Dætur Jóhanns
eru Hólmfríður
Svala og Hrafnhild-
ur Björk.
Jóhann kvæntist
17. maí 1951 Ingigerði Einars-
dóttur. Þau skildu. Börn þeirra
eru: 1) Páll Eyþór, maki Sesselja
Bjarnfríður Jónsdóttir, börn
þeirra Sveinn Sævar, Hilmar Þór
og Gunnar Rafn. 2) Einar Jör-
undur, maki Þórdís Ólafsdóttir,
börn þeirra Heið-
veig María, Sigur-
þór Sævar, Ingi
Freyr og Unna Dís.
3) Heiðar Ingi,
maki Kristjana
Andrésdóttir, börn
þeirra Linda Hlín,
Andrés Már, Hjalti
Þór. 4) Sveinn Sæv-
ar, d. 1967. 5) Ólaf-
ur Unnar, maki
Oddrún Elfa Stef-
ánsdóttir, börn
þeirra Ingibjörg
Ósk og Stefán
Hlynur. Sonur Ólafs er Jóhann
Ingi.
Sambýliskona Jóhanns er
Borghildur Þórðardóttir.
Jóhann verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Elsku Jóhann, ég sakna þín, við
vorum góðir vinir og félagar. Mér
fannst alltaf gott að leita til þín, þú
reyndir alltaf að gera mér til hæfis.
Við reyndum að njóta lífsins, fór-
um í mörg ógleymanleg ferðalög,
innanlands og utan, og skemmtum
okkur á seinni árum við að skoða
myndir og rifja upp það sem skeði í
ferðalögunum.
Ekki má gleyma gömlu dönsun-
um sem við stunduðum af kappi
meðan við gátum hreyft okkur.
Okkur þótti líka gott að vera í ró-
legheitum heima og leið varla sá
dagur að við tækjum ekki í spil, að-
allega tveggja manna bridge og
kasínu.
Þér var margt til lista lagt. Þú
varst víðlesinn og minnugur.
Þú hafðir gaman af að setja sam-
an tækifærisvísur. Þú varst söng-
maður góður og hafðir fallega rödd.
Svo varstu mjög hagur í höndunum.
Allt tekur enda. Ég veit þú ert
þakklátur Viðari og Sólborgu, þeim
góðu hjónum, sem búa við hliðina á
okkur á Sléttuveginum, fyrir alla
tryggðina og hjálpsemina við okkur
og heimsóknirnar á Grund. Eins
varstu þakklátur starfsfólkinu á
Grund.
Að lokum óska ég þér góðrar
heimkomu.
Sjá, hve færist yfir húmsins hönd
svo að hljóðna fer um sæ og lönd.
Meðan sól til viðar sígur hljótt,
Góða nótt, góða nótt.
Standi allar góðar vættir vörð
færi veikum styrk og frið á jörð.
Megi Guð á himnum gefa drótt.
Sofðu rótt, sofðu rótt.
(Jóhannes Benjamínsson.)
Þín
Borghildur.
Nú við fráfall Jóhanns langar mig
til að minnast hans með örfáum
orðum. Hann bjó með móður minni,
Borghildi, í rúma tvo áratugi og
reyndist henni alla tíð mjög vel.
Þau kynntust eftir að við systkinin
vorum orðin fullorðin og mamma
orðin ekkja. Þau voru miklir félagar
og í mörg ár á meðan bæði voru
nokkuð hraust ferðuðust þau til út-
landa á hverju ári og höfðu af-
skaplega gaman af. Þau höfðu svip-
uð áhugamál og oft var glatt á
hjalla hjá þeim. Þeim þótti gaman
að taka á móti gestum og veittu vel.
Gjarnan tóku þau í spil og máttu
helst aldrei missa af fótboltaleik í
sjónvarpinu. Gömlu dansarnir voru
einnig í miklu uppáhaldi hjá þeim.
Jói var handlaginn og á meðan
heilsan leyfði voru þau ófá hand-
tökin sem hann skildi eftir sig í
Hvammsgerðinu. Einnig gat hann
verið liðtækur aðstoðarmaður í eld-
húsinu. Ég veit að Jói kunni vel að
meta það góða atlæti sem hann bjó
við og mamma hefur hugsað vel um
hann eftir að hann veiktist og var
hann henni þakklátur fyrir það.
Hann fluttist á Elliheimilið Grund
fyrir einu og hálfu ári þegar hún
gat ekki annast hann lengur vegna
eigin veikinda og lést hann þar sátt-
ur við allt og alla.
Sólveig Helgadóttir.
JÓHANN
EYÞÓRSSON
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um,
fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn-
ingargreinunum.
Minningargreinar