Morgunblaðið - 12.09.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 27
DAGBÓK
Hauststarf Leikmannaskóla þjóðkirkj-unnar er að hefjast. Á fyrsta námskeiðivetrarins mun séra Þórir Stephensenfjalla um Viðey í sögu og samtíð. Með
honum verður séra Kristján Valur Ingólfsson.
– Hvað ætlið þið nákvæmlega að skoða varðandi
Viðey?
„Markmið námskeiðsins er að lyfta hulunni af
nokkrum köflum í merkri sögu Viðeyjar og hugleiða
framtíðina í ljósi þeirra. Við munum til dæmis velta
fyrir okkur af hverju Viðeyjarklaustur var stofnað
og hvað þar var gert. Snorri Sturluson fjármagnaði
kaupin á Viðey, svo þar mætti koma á fót klaustri.
Það var af svokallaðri Ágústínusarreglu. Á Íslandi
voru tvær frábrugðnar klausturreglur, Ágústínus-
arregla og Benediktsregla. Í þeirri fyrrnefndu voru
bræðurnir prestvígðir og kallaðir kanókar en í þeirri
síðarnefndu voru munkar og nunnur. Ágústínus-
arklaustrin voru miklu sjálfstæðari en hin. Við rann-
sóknir mínar hef ég satt best að segja komist að
ýmsu sem ég átti ekki von á. Þessi klaustur voru
nefnilega ekki eins mikil klaustur og menn héldu. Ég
segi ekki meira í bili varðandi það …
Í Viðey eru mörg tímabil og við munum einnig
fjalla um þau yngri. Bessastaðamenn stofnuðu til
dæmis elliheimili í Viðey, svokallað Hospital, þar
sem meiningin var að hafa pláss fyrir 12 uppgefna
landseta Danakonungs í Gullbringusýslu. Við komu
Skúla fógeta flutti þetta Hospital í Gufunes og
Skúli byggði Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju. Þau
ár sem Ólafur Stephensen starfaði þarna sem stift-
amtmaður var Viðey síðan í raun æðsta valdasetur
á landinu. Magnús sonur hans gerði seinna mikið
menningarsetur í eynni og flutti þangað meðal ann-
ars prentsmiðju. Viðey var síðan seld og Millj-
ónafélagið svokallaða stofnað. Á staðnum var mikil
útgerð á fyrstu áratugum tuttugustu aldar. Þarna
var fyrsta hafskipabryggja við Faxaflóa og umskip-
unarhöfn fyrir Reykjavík áður en Reykjavíkurhöfn
varð til.
Á námskeiðinu munum við einnig líta til fram-
tíðar. Ég hef sjálfur stungið upp á lítilli byggð í
eynni með gestahúsum fyrir listamenn og fræði-
menn. Við viljum gjarnan að þátttakendur á nám-
skeiðinu komi með tillögur varðandi framtíð Við-
eyjar sem síðan mætti leggja fyrir borgaryfirvöld.“
– Fyrir hverja er námskeiðið?
„Allir geta tekið þátt, ungir sem aldnir, lærðir
sem leikir. Námskeiðið verður dagana 14., 21. og
28. september frá kl. 18–22 í Grensáskirkju. Auk
þess verður farið í staðarskoðun og kirkjuheimsókn
í Viðey og endað með sameiginlegum málsverði.“
Námskeið | Fjallað um Viðey í sögu og samtíð hjá Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar
Merkileg saga Viðeyjar
Þórir Stephensen er
fæddur í Reykjavík 1.
ágúst 1931. Hann lauk
guðfræðiprófi og hlaut
prestsvígslu árið 1954.
Hann var sókn-
arprestur á Hvoli í
Saurbæ, á Sauðárkróki
og við Dómkirkjuna í
Reykjavík til ársins
1989. Síðustu starfs-
árin var hann stað-
arhaldari í Viðey og hefur rannsakað sögu Við-
eyjar. Þórir lauk MA-prófi í kirkjusögu við HÍ
vorið 2002. Eiginkona hans er Dagbjört G.
Stephensen og eiga þau þrjú börn.
Greiðsludreifing LÍN
ÉG er ein af þeim fjölmörgu sem
greiða af námslánum hjá LÍN.
Fyrir nokkrum árum var boðið
upp á þann möguleika að dreifa af-
borgunum með greiðsludreifingu
og ákvað ég að nýta mér hann.
Skemmst er frá að segja að þetta
fyrirkomulag er hið prýðilegasta.
Skiptast þessar tvær greiðslur á
ári í fernt í hvort skipti og hefjast
afborganir 1. sept. og 1. feb. ár
hvert. Allt hefur gengið prýðilega
nema að einu leyti.
Málið er að upplýsingar um upp-
hæð skuldfærslunnar berast aldrei
fyrr en eftir að fyrsta greiðsla í
hvert skipti hefur verið greidd.
Núna 1. sept. var tekin af reikn-
ingnum mínum ákveðin upphæð en
greiðsluseðillinn, dagsettur 31.
ágúst, barst ekki fyrr en 2. sept-
ember. Þetta er ákaflega bagalegt
því ekki er um sömu upphæð að
ræða í hvert skipti.
Fyrir tveimur árum hafði ég
samband við Lánasjóðinn og kvart-
aði yfir þessu og var mér þá tjáð
að þetta hefðu verið mistök vegna
bilunar í tölvukerfi sem myndu
ekki endurtaka sig, en þetta hefur
gerst þrisvar síðan, þ.e. í hvert
skipti. Mig langar því að beina
þeirri spurningu til Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna hverju þetta
sæti.
Brynhildur Magnúsdóttir
jarðfræðingur.
Auglýsingar Íslandsbanka
UNDANFARIÐ hef ég lesið tvær
greinar hér í Velvakanda þar sem
annars vegar bókavörðurinn Einar
Ólafsson og hinsvegar Lilja skrifa
um það hvernig auglýsingar Ís-
landsbanka kenni æsku landsins
frekju.
Þessum skrifum gæti ég ekki
verið meira ósammála. Mér finnst
að við eigum alveg að geta treyst
unga fólkinu til þess að gera upp á
milli þess sjálft hvort slík hegðun
er viðeigandi eða ekki. Auglýs-
ingar eru til þess að vekja athygli
og það hafa þessar auglýsingar
gert.
Jónas.
Strætókerfið í molum
NÝLEGA sá ég grein í Morg-
unblaðinu, líklega eftir einhvern
arkitekt nýja strætókerfisins. Þar
sagði að eldri borgarar hefðu notið
ofurþjónustu með gamla kerfinu.
Ofurþjónustan fólst í því að við
þurftum að ganga miklu skemmri
leið með innkaupapoka meðan
vagnarnir fóru um götur í hverf-
unum. Sér er nú hver ofurþjón-
ustan að geta dregið björg í bú. Er
það virkilega vilji borgarinnar að
koma svona fram við gamalt fólk?
Gamall.
Kettlingar fást gefins
TVEIR kettlingar fást gefins á
góð heimili, kassavanir. Upplýs-
ingar í síma 554 3358.
Kettlingar fást gefins
KASSAVANIR kettlingar fást gef-
ins. Upplýsingar í síma 697 4872.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | STN – 7–9 ára starf.
Hittumst í skóla Norðlingaholts á
mánudögum kl. 15. Söngur, sögur, leikir
og ferðalög fyrir hressa krakka. Helgi-
og fyrirbænastund, Hraunbæ 103, alla
mánudaga 10–10.30. Umsjón sr. Þór
Hauksson og Krisztina Kalló Sklenár,
organisti.
Áskirkja | Námskeið frá kl. 10–15 í
heimsóknaþjónustu miðvikudaginn 14.
september. Ragnheiður Sverrisdóttur,
verkefnastjóri kærleiksþjónustu Bisk-
upstofu, sér um námskeiðið. Öllum op-
ið. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku.
Boðið upp á léttan hádegisverð.
Fella- og Hólakirkja | Stelpustarf,
6.–7. bekkur, alla mánudaga kl. 16.30–
17.30. Æskulýðsstarf – KGB, 8.–10.
bekkur, alla mánudaga kl. 20–22.
Grindavíkurkirkja | Foreldramorgnar
alla þriðjudaga kl. 10–12. Fyrsta sam-
vera 13. september.
Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 8.
bekk er með fundi á mánudögum kl.
20–21.30.
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handavinna
kl. 9–16.30. Söngstund kl. 10.30.
Smíði/útskurður kl. 9–16.30. Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, samverustund, fótaaðgerð.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan er opin í dag frá kl. 10 til 11.30.
Félagsvist verður spiluð í kvöld í Gull-
smára kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi kl. 13.30.
Línudanskennsla kl. 18. Samkvæm-
isdans, framh. kl. 19 og byrjendur kl.
20. Haustlitaferð í Skorradal, kvöld-
verður og dans í Skessubrunni, Svína-
dal. Uppl. og skráning hjá FEB í síma
588 2111.
Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 | Gull-
smárabids. Bridsdeild FEBK í Gull-
smára spilar alla mánu- og fimmtu-
daga. Þátttökugjöld 200 kr. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst stundvíslega kl. 13.
Kaffi og heimabakað meðlæti fáanlegt
í spilahléi. Allir eldri borgarar velkomn-
ir.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Frjáls prjónastund. Ganga kl. 9.30.
Glerskurður kl. 13. Félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Jóga kl. 9–11. Op-
in vinnustofa kl. 9–16, silki- og gler-
málun, kortagerð. Frjáls spilamennska
kl. 13–16. Böðun virka daga fyrir há-
degi. Hádegisverður. Fótaaðgerðir
588 2320.
Laugardalshópurinn í Þróttarheim-
ilinu | Leikfimi í dag kl. 14 í Þrótti.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 10
ganga, kl. 13–16.30 opin vinnustofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handa-
vinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–12 leikfimi.
Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13–16
kóræfing. Kl. 13.30–14.30 leshópur. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Talið upp í þrettán.
Norður
♠10654
♥Á76 N/Enginn
♦KD
♣Á732
Vestur
♠DG9
♥G1098
♦1087
♣D94
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Lesandinn er í vestur og kemur
út með hjartagosa gegn sex spöð-
um. Suður tekur slaginn heima á
kónginn og leggur niður ÁK í
trompi. Makker reynist eiga ein-
spil, en hann hendir tígli í síðara
trompið. Sagnhafi spilar næst tíg-
ulás og tígli á kóng, tekur hjartás-
inn (fylgir heima) og stingur
hjarta. Sendir þig svo inn á tromp-
drottningu.
Hvernig viltu verjast?
Sagnhafi er að reyna að tæla þig
til að hreyfa laufið, en þú skalt ekki
láta það eftir honum. Skipting suð-
urs liggur fyrir – hann á fimm
tromp og 2-2 í rauðu litunum og þar
með fjögur lauf. Því skiptir engu
máli þótt þú spilir tígli eða hjarta í
tvöfalda eyðu:
Norður
♠10654
♥Á76
♦KD
♣Á732
Vestur Austur
♠DG9 ♠3
♥G1098 ♥D542
♦1087 ♦G96543
♣D94 ♣108
Suður
♠ÁK872
♥K3
♦Á2
♣KG65
Það má bara ekki spila laufi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali