Morgunblaðið - 12.09.2005, Page 31
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Þorkell
Fjör var meðal áhorfenda á föstudagskvöldið.
Donna Mess
er stjórnlaus
og í rusli.
Sveitin er skip-
uð þeim Björgu,
Iðunni og Söru.
„ÓHÆTT er að segja að
aldrei hafi eins ólíkar
stefnur komið saman áð-
ur,“ sagði m.a. í kynn-
ingu á tónlistarviðburð-
inum Orðið Tónlist 2005
sem stóð frá miðvikudegi
til laugardags. Án þess að
fjölyrt sé um þá fullyrð-
ingu var að minnsta kosti
af nógu að taka á hátíð-
inni.
Morgunblaðið var í
Iðnó á föstudags- og
laugardagskvöldið. Á
föstudaginn spiluðu
pönksveitin Rass, sem
fyrir stuttu gaf út sína
fyrstu breiðskífu; Mamm-
út, sem vann Músíktil-
raunir í fyrra; Dr. Spock, sem gaf út breiðskífuna „Dr. Phil“ á dögunum;
diskórokksveitin Jeff Who?, sem hitaði upp á Franz Ferdinand-tónleik-
unum; og tveggja manna laid-back indie-rokksveitin Hairdoctor.
Laugardagskvöldið var ekki síður stjörnum prýtt en þá spilaði Dä-
lek (borið fram dialect), sem er nýstárleg bandarísk hiphop-
hljómsveit frá Newark í New Jersey-ríki í Bandaríkjunum.
Ghostigital, hið súra samstarfsverkefni Einars Arnar
og Bibba Curver, var einnig á dagskrá, auk sveit-
anna Forgotten Lores, Skakkamanage og
Donna Mess.
Jeff Who? sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu „Death Before Disco“ í september.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
E
gg
er
t
Hljómsveitin Rass þykir gríð-
arhress og syngur m.a. um umboðs-
mann Alþingis sem stendur sig
ekki.
Í Iðnó var Orðið
Skakkamanage hefur komið fram, meðal ann-
ars með Mice Parade, múm og Kimono.
Morgunblaðið/Eggert
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar meðrauðu
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
O.H.H. / DV. . . /
H.J. / Mbl.. . / l.
Sýnd kl. 6 ísl tal Sýnd kl. 10.30 Sýnd kl. 8Sýnd kl. 6 Í þrívídd
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Miðasala opnar kl. 17.15
Sími 551 9000
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.30 b.i. 14 ára
Sýnd kl. 8 og 10.15
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
Sýnd kl. 6 ísl tal
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
553 2075☎
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i 16 ára
ÞEGAR EKKI ER MEIRA PLÁSS Í
HELVÍTI MUNU HINIR DAUÐU RÁFA
UM JÖRÐINA
TOPPFIMM.IS
DV
KVIKMYNDIR.IS
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
MEISTARI
HROLLVEKJUNNA
R SNÝR AFTUR
TIL AÐ HRÆÐA
ÚR OKKUR
LÍFTÓRUNA
BESTA GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
Frábærtævintýri
fyrir alla fjölskylduna!
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 31
G
entlemen Prefer
Blondes er ein af
helstu myndum
snilldarleikkon-
unnar Marilyn
Monroe. Þarna er hún á hátind-
inum,1953, og sýnir allar hliðar
á hæfileikunum, með söng og
dansi.
Myndin er gerð eftir frægum
söngleik. Grunnhugmyndin er
þessi: Dáfagra dansmærin Lore-
lei neytir allra bragða til að
„komast yfir“ ríka menn, og
demantar eru það ómótstæðileg-
asta sem hún getur hugsað sér.
Úr þessari einföldu og sterku
hugmynd verður heil hljóm-
kviða, þar sem vinkonurnar Do-
rothy (Jane Russell) og Lorelei
(Marilyn Monroe) eru í aðal-
hlutverkum. Það er djörf hug-
mynd að setja á oddinn tvær
kvenstjörnur, og nokkuð sem
óperuhöfundar hafa forðast
kerfisbundið – tvær sópr-
ansöngkonur saman í aðal-
hlutverkum – illframkvæm-
anlegt.
En samspil þessara tveggja
er dásamlegt og vináttan trú-
verðug, svo ólíkar sem þær eru.
Ég man varla eftir skemmtilegri
vinkonum úr bíómynd. Dorothy
sér í gegnum vinkonu sína en
kann samt að meta góða kosti
hennar. Lorelei ber umhyggju
fyrir Dorothy og hefur sér-
stakar áhyggjur af því að vin-
kona hennar hefur bara smekk
fyrir fátækum mönnum.
Það er einn bónus við Gentle-
men Prefer Blondes að Par-
ísarrómantíkin blómstrar, því
stöllurnar fara í siglingu – og
þetta kemur sérstaklega við
hjartað í þeim sem hafa París
alltaf í farangrinum, sem veislu.
Hápunktur mynd-arinnar er þegarMarilyn Monroesyngur Diamonds
Are a Girl’s Best Friend – ómót-
stæðileg fyrir áhorfandann eins
og demantarnir eru fyrir henni.
Ein ástæða fyrir því hvað Mari-
lyn Monroe virkar sterkt er sú
að snilldin hjá henni er hjúpuð í
þoku fegurðar og þokka. Enginn
er barinn í hausinn með þessari
snilld, heldur er hún bara á sínu
róli bak við glitrandi framhlið-
ina, og byrjendur gætu villst á
henni og einhverju öðru.
Örlög snilldargyðjunnarMarilyn Monroe urðuþau að hún hætti aldr-ei að vera til. Nýlega
dúkkuðu upp segulbands-
upptökur sem sagt er að séu frá
geðlækninum hennar og afhjúpa
forvitnileg atriði úr hennar
einkalífi. Aftur vöknuðu spurn-
ingarnar um dauða hennar, að
hún hafi ekki stytt sér aldur
eins og opinberlega var sagt,
heldur að hún hafi verið myrt.
Þannig hefur skáldkonan Joyce
Carrol Oates það líka í skáld-
sögudoðrantinum um Marilyn.
Marilyn Monroe lék líka í ein-
hverri bestu gamnmynd allra
tíma, Some Like It Hot (Enginn
er fullkominn). Hún batnar með
hverju skipti sem hún er skoð-
uð. Sú mynd og Gentlemen Pre-
fer Blondes eiga það sameig-
inlegt að samtölin í þeim eru
óborganlega snörp og vel skrif-
uð. Eitt lítið dæmi úr þeirri síð-
arnefndu, þegar hefðarkonan
með hattinn ætlar að ná aftur
skartgripnum sem hefur horfið
frá henni, og hún hnykkir á al-
vöru málsins:
And I mean business (Og mér
er alvara).
Then why are you wearing
that hat? (Af hverju ertu þá með
þennan hatt?)
Ég er ekki viss um að nóg
rækt sé lögð við samtalslistina í
bíómyndum nútímans – synd ef
satt er, því bíómynd er líka gerð
úr orðum.
B í ó k v ö l d m e ð M a r i l y n M o n r o e
Enginn bar-
inn í hausinn
Steinunn Sigurðardóttir