Morgunblaðið - 12.09.2005, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
DÆLUR
FYRIR FISKELDI
Sími 568 6625
ÞAÐ ríkti mikil gleði í Hafnarfirði
og Kópavogi um helgina þegar
tveimur af stærstu bikurum sem
keppt er um í knattspyrnunni ár
hvert var úthlutað.
Breiðablik varð bikarmeistari í
kvennaflokki á laugardaginn með
því að sigra KR á sannfærandi hátt,
4:1, í úrslitaleik á Laugardalsvell-
inum og varð þar með tvöfaldur
meistari í ár. Kópavogsfélagið vann
einnig öruggan sigur á Íslands-
mótinu.
Í Hafnarfirði tók karlalið FH á
móti Íslandsbikarnum í gær eftir
leik sinn við Fylki í næstsíðustu um-
ferð. Úrslitin í úrvalsdeildinni voru
þegar ráðin, FH-ingar hafa haft
mikla yfirburði í sumar og litlu máli
skipti þó þeir biðu í gær sinn annan
ósigur í röð. | Íþróttir
Morgunblaðið/Árni Torfason
FH-ingar fengu Íslandsbikarinn afhentan í gær og Heimir Guðjónsson lyfti honum við mikinn fögnuð félaga sinna.
Morgunblaðið/Golli
Breiðablikskonur tóku við bikarnum á Laugardalsvellinum.
Bikargleði FH og Blika
„ÞAÐ sér ekki á gullhringnum
þótt hann hafi legið í moldinni öll
þessi ár,“ segir Maríus Kárason
um giftingarhring konu sinnar,
Kristbjargar Jónsdóttur, sem
yngsta dóttir þeirra hjóna, Haf-
rún, fann í vikunni í kart-
öflugarði fjölskyldunnar á
Hólmavík. Hringurinn glataðist í
garðinum fyrir rúmum 30 árum.
Aðspurður segir Maríus hringinn
hafa týnst þegar þau hjón voru
ásamt tveimur elstu börnum sín-
um að taka upp kartöflur á sínum
tíma.
„Konan hafði tekið af sér
hringinn til að geyma hann í bíln-
um meðan hún væri að róta í
moldinni. Krakkarnir voru á ferð
og flugi og hafa þá tekið hring-
inn úr bílnum og misst hann í
moldina,“ segir Maríus og rifjar
upp að þónokkuð hafi verið leitað
að hringnum á sínum tíma. „En
við vissum náttúrlega ekkert
hvar þau hefðu misst hann, hvort
það hefði verið inni í garði eða
úti á grasi eða hvort hann hefði
dottið niður á milli í bílnum,“
segir Maríus og tekur fram að
hann hafi verið orðinn afar von-
lítill um að finna hringinn eftir
allan þennan tíma.
„Hefur einhver týnt hring?“
Frá því að hringurinn glataðist
hefur fjölskyldan nær árlega far-
ið upp í garð í því skyni að rækta
kartöflur. „Við höfum því sett
niður í garðinn stöðugt síðan
þetta varð og því alls kyns vélar
búnar að tæta upp moldina í tím-
ans rás.“ Nú í vikunni voru þau
hjón einu sinni sem oftar að taka
upp kartöflur og þá kallar yngsta
dóttir þeirra sem var að taka upp
hvort einhver hafi týnt gullhring.
„Maður hefur alltaf hugsað til
þess að hringurinn gæti leynst
einhvers staðar þannig að maður
áttaði sig strax á því hvað um var
að ræða þegar dóttirin kallaði
hvort einhver hefði týnt hring,“
segir Maríus, en hringurinn er
einnig merktur með nafni hans
þannig að þegar búið var að
skola af hringnum fór ekkert á
milli mála hvers kyns var.
Að sögn Maríusar er hring-
urinn aðeins of þröngur á Krist-
björgu þó hún hafi getað komið
honum upp. „Við erum hins veg-
ar ekki búin að ákveða hvort
hringurinn verði áfram geymdur
eða stækkaður svo konan geti
farið að ganga með hann,“ segir
Maríus, en þess má geta að Krist-
björg hafði ekki sett upp annan
hring í stað þess sem glataðist.
Hringurinn
fannst eftir
rúm þrjátíu
ár í jörðu
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Giftingarhringur er heldur óvenju-
leg uppskera úr kartöflugarði.
Nafn Maríusar grafið í hringinn.
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
þúsund manna frístundaþorp á Helln-
um á Snæfellsnesi, sem reist er í sam-
vinnu Íslendinga og Norðmanna.
Þorpið á að heita á Plássið undir
Jökli eins og gamla fiskiþorpið þar
hét forðum daga þegar útræði var
stundað frá Hellnum en þar voru fjöl-
margar þurrabúðir.
Hellisvellir ehf. keyptu um 30 hekt-
ara spildu undir þorpið fyrir ofan
kirkjuna og Menningarmiðstöðina á
Hellnum í landi Brekkubæjar og ráð-
gera að reisa allt að 200 íbúðarhús
auk verslana, lista- og handverksgall-
ería, hótels og þeirrar þjónustu sem
þarf að vera til staðar í íbúavænu
þorpi.
Húsunum, sem öll verða flutt inn
frá Noregi, svipar til svokallaðra
katalóghúsa sem Íslendingar fluttu
inn til Íslands frá Noregi á 19. öld og
enn setja fallegan svip á ýmsa kaup-
staði landsins, svo sem Seyðisfjörð,
Tjarnargötu í Reykjavík o.s.frv. Hús-
in sem hönnuð eru í níu grunngerðum
verða heilsárshús og eru smíðuð eftir
ströngustu kröfum um styrkleika og
gæði. Húsin verða með ólíku sniði og
eru þau í nokkrum stærðum frá 50
fermetrar upp í 150 fermetra og eru
flest hæð og ris. Þeim er skilað full-
búnum til eigenda með innréttingum
og ýmsum nútímaþægindum.
Eigendur Hellisvalla ehf. eru Þor-
steinn Jónsson og Jörn Wagenius,
byggingarverktaki frá Bergen í Nor-
egi. Jörn rekur stórt byggingarfyr-
irtæki þar og er með stór byggingar-
verkefni í gangi víða um heim auk
þess að vera með verkefni heima fyr-
ir. Hann hefur meðal annars byggt
upp frístundaþorp í Noregi og er eitt
slíkt í 10 mínútna fjarlægð utan við
Bergen.
Ýmist seld eða leigð
Að sögn þeirra félaga munu verða á
annað hundrað hús úr timbri, sem
mynda þorpið og verða þau ýmist seld
eða leigð. Fólk getur flust vestur á
Snæfellsnes og búið í þorpinu allt árið
með lögheimili eða átt þar athvarf í
öðru heimili og nýtt húsið sitt til frí-
stunda.
Þorsteinn og Jörn reistu Menning-
armiðstöðina á Hellnum fyrir tveimur
árum og mun hún gegna stóru hlut-
verki í þorpinu, en fyrirhuguð er mikil
stækkun hennar að vori.
Áforma að reisa þúsund manna
frístundaþorp á Hellnum
Fasteignablað | 30–31
Skipulagsmynd/Snæfellsnes
Húsunum, sem öll verða flutt inn frá Noregi, svipar til svokallaðra katalóg-
húsa sem Íslendingar fluttu inn til Íslands frá Noregi á 19. öld.
Deilur
um verð
SAMNINGAVIÐRÆÐUR um kaup
ríkisins á eignarhluta Reykjavíkur-
borgar og Akureyrarbæjar í Lands-
virkjun standa enn yfir.
Ekki hefur náðst niðurstaða um
hvers virði fyrirtækið er og þar af
leiðandi ekki um kaupverð ríkisins á
hlut sveitarfélaganna.
Í viljayfirlýsingu sem fulltrúar eig-
enda undirrituðu í febrúar sl. kom
fram að samningaviðræðum ætti að
vera lokið fyrir 30. september og að
ríkið ætti að hafa keypt eignarhlut
sveitarfélaganna fyrir árslok.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri, segir að enn beri ansi
mikið á milli í viðræðum um verð á
eignarhlutum sveitarfélaganna og
segist hún vera frekar svartsýn á að
samningaviðræðum ljúki fyrir mán-
aðarlok.
Margir óvissuþættir
Margir óvissuþættir séu fyrir
hendi þegar virði fyrirtækisins er
metið. Hún segir hins vegar að sé rétt
haldið á spilunum eigi að vera hægt að
ljúka viðræðunum fyrir árslok.
Að sögn Valgerðar Sverrisdóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er góð-
ur andi í viðræðunum og undirbún-
ingsvinnu að mestu lokið.
Hún segir að vilji allra standi til að
leysa málið og það sé ekki aðalatriði
að viðræðunum ljúki í þessum mánuði
heldur að niðurstaða fáist í málið.
Eigið fé Landsvirkjunar var 53
milljarðar samkvæmt árshlutaupp-
gjöri fyrir fyrstu sex mánuði ársins og
má búast við því að verðmæti fyrir-
tækisins sé ekki undir þeirri upphæð.
Ágreiningur | 8
Eigið fé Landsvirkj-
unar 53 milljarðar