Morgunblaðið - 08.10.2005, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÚR VERINU
Ósló. AFP. | Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
(IAEA) og yfirmaður hennar, Egyptinn Mo-
hamed ElBaradei, fá friðarverðlaun Nóbels í
ár fyrir að reyna að stöðva útbreiðslu kjarna-
vopna, 60 árum eftir fyrstu kjarnorkuárásina í
heiminum. Nóbelsverðlaunanefndin segir að
kjarnorkumálastofnunin og ElBaradei hafi
orðið fyrir valinu að þessu sinni fyrir „tilraunir
þeirra til að koma í veg fyrir að kjarnorkan
verði notuð í hernaðarlegum tilgangi og til að
tryggja að hún sé hagnýtt á sem öruggastan
hátt í friðsamlegum tilgangi“.
Verðlaunanefndin hvatti ríki heims til að
sameinast í baráttunni gegn útbreiðslu kjarna-
vopna og sagði að kjarnorkuváin færðist „nú
aftur í aukana“.
Sextíu ár eru nú liðin frá því að Bandaríkja-
her varpaði tveimur kjarnorkusprengjum á
Hiroshima og Nagasaki í Japan. IAEA og El-
Baradei voru á meðal 199 einstaklinga, stofn-
ana og samtaka sem tilnefnd voru að þessu
sinni en formaður verðlaunanefndarinnar, Ole
Danbolt Mjøs, sagði að valið hefði ekki verið
„sérlega erfitt í ár“.
ElBaradei sagði að friðarverðlaun Nóbels
styrktu hann í baráttunni gegn útbreiðslu
kjarnavopna. „Verðlaunin styrkja mig og fé-
laga mína í þeim ásetningi að segja valdamönn-
um sannleikann,“ sagði hann á blaðamanna-
fundi í Vín í gær og var greinilega hrærður.
Mohamed ElBaradei er 63 ára og fyrrver-
andi embættismaður í utanríkisráðuneyti
Egyptalands. Hann er fyrsti Egyptinn sem
fær friðarverðlaun Nóbels frá því að Anwar
Sadat hlaut þau árið 1978 þegar hann var for-
seti Egyptalands.
ElBaradei er einn kunnasti talsmaður þess
að samningum fremur en valdi sé beitt til að af-
stýra þeirri ógn sem talin er geta stafað af
kjarnorkuáætlunum Írana og Norður-Kóreu-
manna.
Í aðdraganda Íraksstríðsins lagði ElBaradei
mikla áherslu á að eftirlitsmönnum Sameinuðu
þjóðanna yrði veittur lengri frestur til að leita
að meintum gereyðingarvopnum Saddams.
Bandaríkjastjórn vildi ekki bíða lengur og hóf
innrás en engin gereyðingarvopn fundust í
Írak.
Álíka sviptingar eiga sér nú stað vegna Ír-
ans, sem IAEA segir hafa brotið alþjóðlegan
sáttmála um bann við útbreiðslu kjarnavopna.
ElBaradei segir að lengri tíma sé þörf til að ná
samningum við Írana, en Bandaríkjamenn
segja þá einungis vera að vinna tíma til að þróa
kjarnavopn.
Fyrr á árinu var ElBaradei endurkjörinn
yfirmaður IAEA öðru sinni, þrátt fyrir and-
stöðu Bandaríkjamanna í upphafi. Þeim finnst
hann ekki taka nógu harða afstöðu gegn Írön-
um. Hann tók fyrst við embættinu 1997 og þeg-
ar hann var endurkjörinn í ár naut hann mjög
mikils stuðnings í öðrum löndum en Bandaríkj-
unum.
Formaður Nóbelsverðlaunanefndarinnar
sagði að í valinu á ElBaradei fælist engin gagn-
rýni á stjórn George W. Bush Bandaríkjafor-
seta.
ElBaradei og IAEA fá
friðarverðlaun Nóbels
Reuters
Yfirmaður IAEA, Egyptinn Mohamed ElBar-
adei, brosir á blaðamannafundi í Vín í gær.
„HÉR fór allt í háaloft. Menn gengu fagn-
andi um ganga, haldnir voru skyndifundir,
símtól tekin upp og mikil spenna og mikil
gleði,“ segir Magnús Ólafsson, en hann er
einn framkvæmdastjóra Alþjóðlegu
kjarnorkumálastofnunarinnar, IAEA, í Vín í
Austurríki. Í gær var tilkynnt að stofnunin
og Mohamed ElBaradei, framkvæmdastjóri
hennar, fengju friðarverðlaun Nóbels í ár.
Magnús segir í samtali við Morgunblaðið
að um 2.200 manns starfi hjá stofnuninni í
Vín. Hann hefur unnið hjá IAEA í fjögur ár
og er framkvæmdastjóri yfir ráðstefnu- og
útgáfusviði hennar. Hann segir að gleðin í
morgun hafi einkum stafað af tvennu. „Í
fyrsta lagi er alltaf gott að
fá viðurkenningu,“ segir
hann. „En það sem vekur
kannski meiri spennu er
að þetta gerir okkur kleift
að ná meiri árangri í því
sem við erum að gera. Það
er ákveðin ástríða sem
kemur í þessu starfi. Þú
ferð smátt og smátt að
átta þig á því hversu of-
boðslega hættulegt viðfangsefnið er. Kjarn-
orka er stórhættuleg. Það eiga sér stað ólög-
leg viðskipti með kjarnorkuefni og
geislavirk efni. Það er staðreynd. Í fyrra
staðfestum við tvenn ólögleg viðskipti í
hverri viku allt árið og fleiri tugir eða
hundruð slíkra viðskipta voru óstaðfestir.“
sagði Magnús.
ElBaradei ástríðufullur baráttumaður
Spurður um samstarfið við ElBaradei seg-
ir Magnús að það sé mjög gott. „Hann er
einn sá gegnumheilasti maður sem ég hef
kynnst og ástríðufullur í baráttu sinni. Hann
nýtur þess líka að þetta er hans síðasta
starf,“ segir Magnús, en ElBaradei er 63 ára
að aldri.
„Menn gengu fagnandi um ganga“
Magnús Ólafsson hjá IAEA lýsir viðbrögðum við verðlaununum
elva@mbl.is
Magnús Ólafsson
HÁTT gengi íslensku krónunnar er
að sliga sjávarútveginn, að mati Arn-
ars Sigurmundssonar, formanns
Samtaka fiskvinnslustöðva. Hann
segir stjórnvöld verða að grípa til að-
gerða ef ekki eigi illa að fara.
Arnar sagði í ræðu sinni á aðalfundi
samtakanna í gær að umtalsverðar
breytingar hefðu orðið á rekstrarum-
hverfi sjávarútvegsins á liðnu ári og
gildi það jafnt um þróun gengis krón-
unnar og skilaverðs fyrir afurðirnar.
Sagði hann að ef tekið væri tillit til
gengishækkunar krónunnar á tíma-
bilinu frá september í fyrra til ágúst-
loka hefði verðlag flestum sjávaraf-
urðaflokkum lækkað umtalsvert.
„Þessi niðurstaða sýnir að verðhækk-
anir á sjávarafurðum erlendis á síð-
ustu tólf mánuðum hafa vegið mis-
mikið upp lækkun á skilaverði
sjávarafurða sem orsakast af hækkun
á gengi krónunnar,“ sagði Arnar.
„Hefðu ekki komið til erlendar
verðhækkanir á sjávarafurðum, sem
brúa hluta af þeirri lækkun skilaverðs
sem gengishækkunin orsakar, er
öruggt að fleiri fyrirtæki í sjávarút-
vegi væru nú komin í þrot. Ný gjald-
taka í formi veiðigjalds og stórhækk-
að olíuverð hefur ekki orðið til þess að
létta róðurinn í rekstri fyrirtækj-
anna,“ sagði Arnar.
„Íslenskur sjávarútvegur er nú í
verulega kröppum dansi og við upp-
lifum það um leið að mikilvægi hans
fyrir þjóðarbúið er dregið í efa hjá
þeim sem miklu ráða um framkvæmd
efnahags- og peningastefnunnar í
þessu landi.“
Arnar sagði að þrátt fyrir styrk-
ingu á gengi krónunnar þá mælist
verðbólga nú 4% og er 1,5% yfir 2,5%
viðmiðunarmörkum. Til þess að ná
niður verðbólgunni hafi Seðlabankinn
það eitt ráð að hækka stýrivexti og
þær aðgerðir kalli á gengishækkun.
„Það er fullkomin ástæða til þess að
spyrja hvernig getur það gerst að það
skuli yfirleitt mælast verðbólga hér á
landi, en ekki verðhjöðnun í ljósi
styrkingar krónunnar á síðustu tólf
mánuðum. Þetta virðist vera að
mestu fasteignaverðbólga, einkum á
höfuðborgarsvæðinu, en til þess að
koma henni niður í 2,5% eru þá helstu
fórnarlömbin sjávarútvegsfyrirtækin
sem eru víða burðarásar í atvinnulíf-
inu á landsbyggðinni.“
Sjávarútvegurinn
í kröppum dansi
Morgunblaðið/Árni Torfason
Aðgerðir Sf hvetja stjórnvöld til að taka á stöðu fiskvinnslunnar.
Eftir Helga Mar Árnason
hema@mbl.is
EINAR K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra gerði hátt gengi
krónunnar og viðbrögð við því að
meginumræðuefni í ræðu sinni á
aðalfundinum. Einar sagði varn-
irnar vera að bresta í sjávarútveg-
inum vegna gengisins og enginn
gæti leyft sér að líta framhjá því.
Fyrirsjáanlegt hefði verið að raun-
gengi myndi hækka með auknum
umsvifum en staða krónunnar nú
yrði ekki skýrð með þeim. Við-
fangsefnið sem fyrir lægi væri þrí-
þætt, að tryggja jafnvægi í þjóðar-
búskapnum, treysta stöðu
atvinnulífsins og tryggja lága verð-
bólgu. Lækka þyrfti raungengi
krónunnar, án þess að það stefni í
voða verðbólgumarkmiðum.
Einar sagðist óttast að sú leið að
lækka eingöngu stýrivexti Seðla-
bankans við núverandi aðstæður
gæti kallað á víxlverkun kaupgjalds
og verðlags. Vísaði hann á tvær
leiðir til þess að stuðla að lækkun
raungengis. Sagði hann að draga
þyrfti úr umfangi lánastarfsemi og
lækka heildarútlán „Við þurfum að
ná tökum á lánshlutföllum og láns-
fjárhæðum. Ekki bara að því sem
snýr að hinu opinbera, heldur ekki
síður að bönkunum. Þetta er ekki
síst nauðsynlegt núna þegar allt
bendir til að húsnæðisverð kunni að
lækka með hækkandi vöxtum og
hátt lánshlutfall án hámarksfjár-
hæða getur verið áhættusamt til
lengdar.“
Jafnframt
nefndi hann að
huga þyrfti að
því að styrkja
enn frekar gjald-
eyrisvarasjóð
landsmanna.
Slíkt myndi
treysta lánshæf-
ismat þjóðarbús-
ins enn frekar og
er jafnframt eðli-
leg viðbrögð í hagstjórn við þeim
aðstæðum sem uppi eru vegna vax-
andi skuldasöfnunar annarra en
ríkissjóðs í útlöndum. Auk þess
myndi gengi íslensku krónunnar
gefa eftir. „Það er ekki óeðlilegt að
hugsa sér að um þetta sé mörkuð
stefna til nokkurs tíma, t.d. með
það að markmiði að kaupin gætu
nálgast einhverja þá upphæð sem
svarar til þess sem útlendingar
hafa verið að gefa út af íslenskum
skuldabréfum. Leiða má mjög sterk
rök að því að þessi aðferð gæti náð
þeim markmiðum að veikja raun-
gengi íslensku krónunnar án þess
að það kæmi af stað víxlverkun, ef
vel væri staðið að málum og stefnan
um þetta mótuð til lengri tíma.“
Einar benti á að krafan um lækk-
un raungengis kæmi ekki einungis
frá útflutningsatvinnugreinunum,
hún kemur einnig frá verkalýðs-
hreyfingunni og fulltrúum allra
stjórnmálaflokka. „Undan því verð-
ur ekki vikist að grípa til aðgerða.“
Varnirnar að bresta
Einar K.
Guðfinnsson
BRESKA blaðið The Guardian sagði í gær að
breska ríkisútvarpið, BBC, hefði heykst á að
birta án breytinga frétt um að George W.
Bandaríkjaforseti hafi haldið því fram að Guð
hafi sagt honum að ráðast inn í Afganistan og
Írak. Talsmenn Bush sögðu í gær að um upp-
spuna væri að ræða. „Hann hefur aldrei látið
slík ummæli frá sér fara,“ sagði Scott McClell-
an, talsmaður Hvíta hússins, um málið.
Guardian segir að BBC hafi breytt fréttinni í
ljósi andmæla Bandaríkjamanna og gert meira
úr því á fréttavef útvarpsins að ummælunum
hefði verið vísað á bug vestra. Heimildarmaður
fyrir orðum Bush er Nabil Shaath, aðalsamn-
ingamaður Palestínustjórnar. Shaath segir í
sjónvarpsþætti BBC að árið 2003, þegar hann
átti fund með Bush, hafi hann tjáð sér að Guð
hefði gefið sér ráð. „Bush sagði við okkur alla:
Ég geng erinda Guðs. Guð sagði við mig,
George, þú átt að fara og berjast við hryðju-
verkamennina í Afganistan. Og ég gerði það og
þá sagði Guð við mig: George, þú átt að fara og
binda enda á harðstjórnina í Írak … Og ég
gerði það,“ hefur Shaath eftir Bush.
Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna,
var líka á fundinum með forsetanum. Hann
minnist þess að Bush hafi sagt: „Ég hef sið-
ferðislegar og trúarlegar skyldur. Og ég ætla
að sjá til þess að þið fáið palestínskt ríki.“
Vísa Guðs-
ummælum á bug
Helsinki. AP. | Héraðsdómur í Finnlandi hefur
sýknað 63 ára gamlan karlmann af ákæru um
að hafa myrt tvær stúlkur og karlmann fyrir 45
árum. Fólkið var stungið til bana þar sem það
var í útilegu við Bodom-stöðuvatnið í sunnan-
verðu landinu. Nils Gustafsson, sem nú hefur
verið sýknaður, fannst særður á morðstaðnum
og sagðist ekki muna neitt.
Sýknudómurinn var kveðinn upp í gær en
um er að ræða eitt þekktasta glæpamál í Finn-
landi á seinni tímum. Um það hefur verið
fjallað í bókum og greinum og vinsæl þunga-
rokksveit, sem nefnir sig Börnin í Bodom,
dregur nafn sitt af málinu. Lögreglan hefur á
þeim tíma sem liðinn er frá morðunum yfir-
heyrt meira en fjögur þúsund manns í
tengslum við rannsóknina.
Gustafsson er nú 62 ára. Héraðsdómur í
bænum Espoo vísaði ákærum á hendur Gust-
afsson frá og sagði að engin sönnunargögn
væru fyrir sekt hans. Ekkert í gögnum málsins
útilokaði að utanaðkomandi maður eða menn
hefðu framið ódæðið. Gustafsson var handtek-
inn í fyrra vegna gruns sem mun hafa vaknað
eftir DNA-rannsóknir á gömlum málsgögnum.
Finni sýknaður
af gömlu morði
♦♦♦