Morgunblaðið - 08.10.2005, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 35
UMRÆÐAN
MARGIR hafa eflaust tekið eftir
því að málefni geðfatlaðra voru meðal
þeirra verkefna sem veita á framlag
til af söluandvirði Símans. Einum
milljarði skal á næstu
árum veitt til húsnæðis-
mála geðfatlaðra. Það
sem færri átta sig ef-
laust á er að þetta fram-
lag er aðeins lítill hluti
af miklu átaki sem fram-
undan er í þjónustu við
geðfatlaða. Átaki sem að
öllum líkindum boðar
mestu breytingar í þjón-
ustu við geðfatlaða hér á
landi fyrr og síðar!
Félagsmálaráðherra
hefur lýst yfir að á árabilinu 2006–
2010 muni átak verða gert til að veita
geðfötluðu fólki félagslega búsetu-
þjónustu skv. lögum nr. 59/1992 um
málefni fatlaðra. Hér er um að ræða
um hundrað manna hóp fólks af öllu
landinu sem fyrst og fremst hefur
dvalið á stofnunum geðheilbrigð-
iskerfisins og sem kom fram í könnun
félagsmálaráðuneytisins 2004–2005.
Gera má ráð fyrir að yfir helmingur
þessa hóps sé Reykvíkingar.
Með þessu er félagsmálaráðuneytið
í samvinnu við heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið að stíga það skref
sem boðað var 1992 þegar lögum um
málefni fatlaðra var breytt. Þetta
skref felst í því að viðurkenna að fötl-
un, og þar með geðfötlun, felist í fé-
lagslegri stöðu fólks fremur en ein-
stökum sjúkdómum eða öðrum
orsökum skerðingar. Sambærilegar
breytingar í þjónustu við geðfatlaða
eru að eiga sér stað í nágrannalöndum
okkar, bæði austan hafs og vestan.
Eftirfarandi viðmið byggjast einmitt á
reynslu nágrannaþjóða okkar og eru
hluti upplýsingagrunns sem starfsfólk
Svæðisskrifstofu Reykjavíkur um
málefni fatlaðra hefur safnað.
Með geðfötlun er átt við fólk sem
haldið er örorku vegna
langvarandi alvarlegs
geðsjúkdóms svo sem
geðklofa, geðhvarfasýki,
persónuleikaraskana og
áfengis- og/eða lyfjafíkn-
ar. Markhópur átaksins
er þeir sem dvalið hafa
oft eða langdvölum á
stofnunum geðheilbrigð-
iskerfisins. Mikilvægt er
að skilgreining markhóps
átaksins sé skýr þar sem
þjónustuþarfir og mark-
mið þjónustu eru mismunandi.
Við undirbúning og skipulag verk-
efnisins þarf að ganga út frá heild-
rænni þjónustu, þ.e. að virkja fólk í
vinnu, námi, dagþjónustu og skipu-
lögðu frítímastarfi auk búsetuþjón-
ustu. Eðlilegt er að leggja sömu gildi
til grundvallar þjónustu við fólk með
geðfötlun og einkennt hefur þjónustu
fyrir fólk með þroskaheftingu: virð-
ingu, ábyrgð og fagmennsku.
Reynslan sýnir að náið og faglegt
samstarf félagslegra þjónustuaðila
við geðheilbrigðisþjónustuna er for-
senda þess að viðhalda samfelldri
þjónustu sem er nauðsynleg til að
byggja upp traust og öryggi gagnvart
notendum og aðstandendum. Í
tengslum við átakið þarf að koma á
fót formlegum samstarfsvettvangi
milli félagslegra þjónustuaðila og
geðsviðs LSH í formi fag- eða sam-
starfsteymis þar sem fagfólk og for-
stöðumenn félagslegu þjónustunnar
eiga samstarf við geðlækna, geð-
hjúkrunarfræðinga og annað fagfólk
geðsviðs.
Þjónustuna þarf að byggja á hug-
myndafræði sem gerir ráð fyrir al-
mennum lífsgildum notenda og að-
standenda þeirra, faglegum gildum
starfsfólks og annars fagfólks og al-
mennum gildum þjóðfélagsins á
hverjum tíma. Þessi gildi þarf að vera
hægt að nota í daglegu starfi á ein-
faldan og auðveldan hátt. Dæmi:
Hvernig felst virðing í húsnæð-
isaðstæðum, daglegum samskiptum
eða vinnutilboðum? Hvernig felst
ábyrgð í umgengni í eigin íbúð, skipu-
lagi dagtíma eða umsjón fjármála?
Áherslu þarf að leggja á að áhrif
notenda nái bæði til skipulags og inni-
halds þjónustunnar. Með því er not-
endum sýnd virðing og þeim veitt
ábyrgð. Þetta er forsenda þess að
hægt sé að virkja notendur, aðstand-
endur og fagfólk sem samstarfsaðila.
Þegar ákvarðanir um markmið og
leiðir eru sameiginlegar vinna allir
saman og eru í sama liði.
Miða þarf við að uppbygging þjón-
ustunnar byggist á þeim grunn-
viðhorfum að með réttum aðstæðum
og samhæfðri meðferð fari fólki með
geðfötlun fram og nái aukinni færni
og bata á öllum sviðum. Afleiðing
þess er að fólk nái færni til aukins
sjálfstæðis í lífi og starfi. Með end-
urhæfingu sem hugsjón er lögð
áhersla á jákvæða framþróun og til-
gang allra að vinna saman að betra
mannlífi og virkni allra í daglegu lífi
og starfi.
Fínt jafnvægi liggur milli sér-
hæfðrar þjónustu annars vegar og al-
mennrar þjónustu og samfélagsþátt-
töku hins vegar. Fyrir fagfólki eru
sérhæfðar aðstæður og sérhæfð með-
ferð oft mikilvægar leiðir til að ná ár-
angri. Á hinn bóginn leiðir sérhæfing
til einangrunar og aðskilnaðar frá
þátttöku í almennu samfélagi. Á viss-
an hátt verða þessar andstæður ávallt
ósættanlegar. Jafnvægi og flæði þarf
að vera milli hins almenna og hins
sértæka bæði í búsetu, dagþjónustu
og frítímastarfi.
Miða þarf við að framþróun átaks-
ins og árangur verði skráður þannig
að hægt verði að meta árangur og
hvernig til hafi tekist. Til þess að það
sé hægt þarf að skilgreina aðferðir til
að meta bæði magn og gæði íhlut-
unar.
Það er okkur sem störfum við fötl-
unarþjónustu mikil hvatning þegar
stjórnvöld sýna slíkan metnað,
ábyrgð og framsýni eins og ofan-
greint verkefni ber vitni um.
Breyting á þjónustu geðfatlaðra
Halldór Kr. Júlíusson skrifar
í tilefni Geðheilbrigðisdagsins ’Það er okkur semstörfum við fötlunar-
þjónustu mikil hvatning
þegar stjórnvöld sýna
slíkan metnað, ábyrgð
og framsýni ...‘
Halldór Kr. Júlíusson
Höfundur er sviðsstjóri þróunar- og
greiningarsviðs Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra í Reykjavík.
FITUBRENNSLA
a u k i n b r e n n s l a
v a t n s l o s a n d i
m e i r i o r k a
m i n n k a r n a r t
Easy body Burner hylki er frábær lei› til a›
tapa flyngd á árangursríkan og skynsaman hátt.
Hylkin innihalda m.a koffín, H‡droxísítruss‡ru,
króm pikkólant og L-Carnitine.
sérhanna› fyrir konur
Sölusta›ir: og Heilsuhúsi›