Morgunblaðið - 08.10.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 08.10.2005, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Kristján ÁsgeirSólbjartur Mikkaelsson fæddist í Fremri-Breiðadal í Önundarfirði 7. júlí 1942. Hann varð bráðkvaddur 1. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Mikkael Ingiberg Kristjánsson, f. 8. okt. 1903. d. 5. des. 1986, og Ingibjörg Andrea Jónsdóttir, f. 23. janúar 1918, d. 24. júní 1993. Systk- ini Kristjáns eru, Óskar, f. 11. des. 1943, Elsa Kristín, f. 16. des. 1945, Halldór, f. 14. mars 1947, Eiríkur Ragnar, f. 27. júní 1948, Sigríður Jóhanna, f. 20. sept. 1950, Guðrún Ólöf, f. 26. okt. 1951, Gunnlaugur, f. 18. nóv. 1952, Ásta, f. 25. febr. 1955, Hildur Jóna, f. 1. des. 1957, Björn Bragi, f. 14. jan. 1959 og Ásgeir Kristján, f. 27. des. 1961. Hálfbræð- ur sammæðra eru Magnús Jón Ágústsson, f. 7. júlí 1936 og Ólafur Íshólm Jónsson, f. 1. ágúst 1939. Eftirlifandi sambýliskona Krist- jáns er Guðný G. Ívarsdóttir, f. 30. janúar 1956. Sonur hennar er Jó- hannes Björnsson, f. 17. júní 1979. Foreldrar hennar voru Ívar Niku- lásson sem nú er látinn og Ragna Lindberg Márusdóttir. Kristján kvæntist 25. desember 1964 Ingibjörgu Halldóru Elíasdótt- ur, f. 4. des. 1944, d. 22. nóv. 1969. Foreldrar hennar voru Elías Jóns- son og Kristrún Kristófersdóttir. Börn þeirra Kristjáns og Ingibjarg- ar Halldóru eru: 1) Elías, f. 18. júlí 1964. Maki 1: Inga Rún Pálmadóttir, sonur þeirra Pétur Þór, f. 6. mars 1988. Þau skildu. Maki 2: Helga Hrund Einarsdóttir, börn þeirra Andrea Ósk, f. 29. jan.1991 og Vil- berg Sindri, f. 3. sept. 1994. Þau slitu þó aðallega að spretthlaupum. Í þeim náði hann mjög góðum ár- angri og stóð oft á verðlaunapalli með þeim bestu hér á landi. Var einnig í landsliði Íslands og keppti fyrir þess hönd á erlendri grund. Um tvítugt flytur hann til Reykja- víkur, stofnar heimili með Ingibjörgu Halldóru Elíasdóttur og hefur nám í blikksmíði og líkur því með meistara- réttindum í iðninni. Hann vann við blikksmíði í Reykjavík þar til hann flytur 1970 til Ólafsfjarðar og setur þar upp blikksmiðju í vélsmiðjunni Nonna hf. Bjó þar með Bergþóru Sig- urbjörgu Þorsteinsdóttur. Þar starf- ar hann til 1972 er hann flytur aftur til Reykjavíkur. Þar kynnist hann Ástu Vigdísi Gústafsdóttur og búa þau í Reykjavík þar til þau flytja til Ólafsfjarðar 1975. Þá gengur Krist- ján í samstarf við menn á staðnum sem reka þar blikksmiðju samhliða vélsmiðju. Þegar Kristján bjó á Ólafs- firði stundaði hann nám í pípulögnum og aflaði sér meistararéttinda í þeirri iðn. 1983 flytur fjölskyldan til Sauð- árkróks þar sem Kristján setur upp blikksmiðju. Þar starfar hann til 1987. En nokkrum árum áður hafði hann tekið að sér það risaverkefni að setja upp loftræstikerfið í Kringlunni og flytur þá hluta smiðjunnar til Reykjavíkur sem hann flytur svo seinna upp í Mosfellsbæ. Þá blikk- smiðju starfrækir hann til 2002 er hann lendir í slysi á hestbaki. 1988 kynnist Kristján sambýliskonu sinni Guðnýju Guðrúnu Ívarsdóttur í Flekkudal í Kjós og bjó þar til dauða- dags. Þar gat hann sinnt helstu áhugamálum sínum. Annað var hestamennska og ræktun gæðinga. Hitt var ræktun og tamning fjár- hunda. Það síðara átti hug hans allan nú síðustu ár og til marks um það flutti hann inn taminn fjárhund frá Skotlandi og var hann með honum til lokastundar. Kristján sat í stjórn Fjárhundafélags Íslands frá 1999 og var stofnandi og formaður Fjár- hundafélags Kjósarhrepps frá 1998. Hann hafði mikla unun af söng og var meðlimur í kórum bæði fyrir norðan og sunnan. Útför Kristjáns fer fram frá Reynivallakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. samvistum. Sambýlis- kona Elíasar er Sigríð- ur Aðalheiður Lárus- dóttir, f. 12. apríl 1968. 2) Sandra, f. 2. sept. 1966, d. 17. febr. 1997. Maki Magnús Stein- grímsson, f. 26. júlí 1964. Fyrrv. sambýlis- kona Kristjáns er Bergþóra S. Þor- steinsdóttir, f. 20. sept. 1949, sonur þeirra Þorsteinn, f. 20. júlí 1970. Þau slitu samvistum. Hinn 21. apríl 1973 kvæntist Kristján Ástu Vigdísi Gústafsdótt- ur, f. 8. mars 1942. Sonur þeirra Þorsteinn Mikkael, f. 18. apríl 1974. Fyrir átti Ásta Þórhildi, Þór og Eddu. Þau skildu. Sonur Kristjáns og Laufeyjar Magnúsdóttur er Magnús, f. 18. júní 1963. Maki 1: Sigríður María Magn- úsdóttir, f. 9. okt. 1964. Dóttir þeirra Þórey Edda, f. 14. des. 1985. Maki 2: María Helena Tryggvadótt- ir, f. 1. mars 1967. Sonur þeirra Há- kon Alexander. Dóttir Kristjáns og Iðunnar Jómundsdóttir er Ásrún, f. 11. sept. 1963. Maki Jónas Dalberg Karlsson, f. 7. ágúst 1963. Þau eiga 2 börn, Iðunni, f. 30. nóv. 1988 og Maren, f. 30. júní 1994. Sonur Krist- jáns og Guðmundu Magneu Gunn- arsdóttur er Gunnar Sigmar, f. 2. júní 1967. Maki Sigríður Birna Ólafsdóttir. Börn þeirra Ólafur Guðni, f. 4. ágúst 1998 og Heiðrún Júlía, f. 2. ágúst 2003. Kristján ólst upp í Fremri- Breiðadal í Önundarfirði. Þaðan gekk hann í barnaskóla, farskóla, í Neðri-Breiðadal og síðan tvo vetur í framhaldsskóla í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Á unglingsárum hneigðist áhugi hans að íþróttum, Elsku afi minn, ég missti þig og ég brast í sorg. Þú varst besti afi minn. Ég vildi að ég gæti hitt þig einu sinni enn. Ég á heima á jörðinni en þú átt heima á himninum, ég á heima hjá mannfólki en þú hjá englunum. Ég geri hvað sem er til að sjá þig aftur. Hlustaðu á mig nú afi, ég reyndi aldr- ei að breyta þér, ég var alveg sátt við þig. En því fórstu frá mér? Mér þykir svo vænt um þig afi minn. Guð geymi þig. Þín afastelpa Maren. Stjáni bróðir er farinn yfir móðuna miklu. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fá tækifæri til að vinna með honum Stjána bróður mínum og þar með kynnast honum upp á nýtt. Ég þekkti hann að sjálfsögðu sem barn, en það var meira svona úr fjarlægð. Stjáni lifði lífinu lifandi og var óhræddur við að segja sína skoðun. Hann var mjög réttsýnn og yfirvegaður og þegar hann talaði þá hlustuðu menn. Hann var mjög góður sögumaður og oftar en ekki héldu menn, sem ekki vissu betur, hreinlega að hann væri að ýkja, svo líflegar og skemmtilegar voru frá- sagnir hans. Stjáni var einn af þessum mönnum sem höfðu mjög góða nærveru, fólk sem var í kringum hann var í góðum málum. Hann var völundur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur og þar sem hann kom að voru hlutirnir í lagi. Hann hafði fágætan eiginleika sem var sá að hann las í náttúruna og lífið og sá ýmislegt það sem öðrum yfir- sást, þannig hafði hann ótrúlega glöggt auga fyrir dýrum sem og mönnum. Þessi eiginleiki hans nýttist honum vel í ræktun hans á hestum, sem og ræktun á border collie-fjár- hundunum hans. Stjáni var mjög ósérhlífinn og kvart- aði aldrei, sama hvað bjátaði á. Við Stjáni vorum undir það síðasta staddir úti á landi og héldum til í vinnubúðum. Á hverjum morgni rétt upp úr klukkan sex stökk hann á fætur eins og ung- lamb og sagði glaðlegri röddu, „jæja er ekki best að fara að gera eitthvað skemmtilegt?“ og með það sama var hann rokinn í burtu og skömmu síðar var kaffikannan komin í gang. Við Stjáni og Bjarni völundur og vinur áttum margar ánægjustundir saman sem lifa munu í minningunni og hafa gert mig að betri manni. Ekki sást neinn bilbugur á Stjána undir það síðasta og fréttin af því að hann væri dáinn kom eins og lamandi reiðarslag. Svona er nú bara lífið en samt kemur svona nokkuð manni allt- af jafnmikið á óvart. Það sem Stjána var hugleiknast voru börnin hans, Guðný, fallega kon- an hans og Jói sonur mömmu, eins og hann sagði stundum, og biðjum við góðan guð um að vernda þau og styrkja í sorg þeirra og miklum missi. Stjána þökkum við kærlega fyrir samfylgdina, sem var alltof stutt, en mjög ánægjuleg, gefandi og skemmtileg. Björn, Viktor Örn og Hildur. Þegar ég minnist fyrrum svila míns og vinar, Stjána Mikk, er stutt í bros- ið. Á laugardaginn var, stuttu eftir að mér voru sögð þau sorglegu og raun- ar ótrúlegu tíðindi að þessi mikla kempa væri öll, vissi ég ekki fyrr en ég skellti upp úr þegar ég hafði nýlok- ið við að segja sameiginlegum vini okkur ótíðindin. Hugurinn reikaði til baka og stað- næmdist strax við nokkur atvik í end- urminningunni. Þau voru þess eðlis að erfitt var að verjast hlátri. Þannig var þessi makalausi maður með sína miklu mannkosti en einnig nokkra galla að hann vakti víða og oft hlátur. Hann var gleðigjafi og kunni þá list að segja sög- ur sem lengi verða í minni hafðar. En hann kunni ekki síður þá list að upplifa atburði sem urðu á stundum eins og hreinustu ýkjusögur. Með fjöri sínu og lífskrafti kallaði hann oft á atburðarás sem hefði farið framhjá öðrum ónotuð. Þær voru því oft sannar hinar lygilegu sögur hans Stjána sem voru kryddaðar með ýmsu smálegu en þýðingarmiklu sem hann tók eftir þó að það hefði farið framhjá öðrum. Stjáni fékk alveg sinn skammt full- mældan af áföllum en hann bar ekki harm sinn á torg. Jafnvel á erfiðustu tímum í lífi hans var stutt í hlátur og bros. Ég var svo heppinn að upplifa nokkra atburði í félagsskap Stjána sem seinna urðu efni í sögur, oft í tengslum við sameiginlegt áhugamál okkar, hestamennsku. Þar eins og KRISTJÁN ÁSGEIR SÓLBJARTUR MIKKAELSSON Elskulegur faðir minn, afi okkar og langafi, BENEDIKT ELÍAS SÆMUNDSSON, áður til heimilis á Sniðgötu 2, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð aðfaranótt mánu- dagsins 3. október. Útför hans fer fram frá Höfðakapellu Akureyri miðvikudaginn 12. október kl. 13.30. Valgerður Benediktsdóttir, Arnar Þorsteinsson, Guðrún Helga Kristjánsdóttir, Guðrún Björk Þorsteinsdóttir, Hlynur Þór Sveinbjörnsson og langafabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar og afi, JÓN SAMÚELSSON, Engimýri 8, Akureyri, sem lést miðvikudaginn 28. september, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 10. október kl. 13:30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á dvalarheimilið Hlíð Akureyri. María Brynjólfsdóttir, Brynjólfur Jónsson, Jóhanna Jónsdóttir, Jón Brynjar Kristjánsson, Júlíana Ingimarsdóttir, Linda Hafdal, Axel Ernir Viðarsson, Þökkum samúð og vináttu við andlát og útför VIGFÚSAR SIGURÐSSONAR frá Brúnum, Hólavangi 3, Hellu. Guðrún Sigurðardóttir, Hjalti Bjarnason, Halldóra Sigmundsdóttir, Kristþór H. Breiðfjörð, Siguður Sigmundsson, Elín Jónsdóttir, Helga Helgadóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR PÁLMADÓTTIR frá Rauðamýri, andaðist á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar þriðjudaginn 4. október. Höskuldur Guðmundsson, Margrét Guðmundsdóttir, Einar Róbert Árnason, Oddur Guðmundsson, Kolbrún Pálsdóttir, Steinunn Jakobína Guðmundsdóttir, Gunnar Valur Jónsson, Anna Guðmundsdóttir, Benedikt Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, teng- damóður og ömmu, VIGDÍSAR GUÐBRANDSDÓTTUR frá Reyðará. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 11e á Landspítalanum og starfsfólki hjúkrunarheim- ilisins á Höfn fyrir góða umönnun. Þorsteinn Geirsson, Guðbrandur Jóhannsson, Geir Þorsteinsson, Björk Pálsdóttir, Gunnar Þorsteinsson og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, UNNUR HAFDÍS EINARSDÓTTIR, lést laugardaginn 1. október sl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hin- nar látnu. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólkinu á 2B á Hrafnistu í Hafnarfirði. Sigurður Helgason, Ólöf, Ware, Edda Lína, Helgi, Karolína Björg, Sigurður Einar, Ingibjörg Vala, barnabörn, Erla Einarsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.