Morgunblaðið - 08.10.2005, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 51
DAGBÓK
Hecht-bikarinn.
Norður
♠Á109
♥Á65
♦KG4
♣KG105
Vestur Austur
♠G854 ♠D6
♥KD1082 ♥973
♦D9 ♦7632
♣84 ♣9762
Suður
♠K732
♥G4
♦Á1085
♣ÁD3
Suður spilar þrjú grönd og fær út
hjartakóng. Keppnisformið er tví-
menningur, svo það verður að berjast
fyrir hverjum slag.
Sagnhafi á níu toppslagi og ellefu
með því að hitta í tígulinn. Gætnir
spilarar myndu dúkka fyrstu tvo
slagina og svína svo tígulgosa. Sem
dugar í ellefu slagi og ríflega meðal-
skor.
Spilið er frá Hecht-mótinu í Kaup-
mannahöfn og Daninn Las Munks-
gaard var í toppaleit með suðurspilin.
Munksgaard dúkkaði hjartakónginn
og Svíinn Peter Berthau í austur vís-
aði frá með hjartaníu. Frederik Ny-
ström í vestur hitti þó á að spila
hjartadrottningu í öðrum slag.
Munksgaard drap með ás og Berthau
í austur lét sjöuna – sennilega til að
benda á styrk í spaða.
Hjartasjöan reyndist vörninni dýr-
keypt. Munksgaard svínaði tígulgosa
og tók alla slagina á láglitina. Sem
var meira en vestur réð við. Hann sat
nú einn uppi með valdið á hjartanu
og fjórlit í spaða og stóðst ekki
þrýstinginn í endastöðunni.
Munksgaard fékk þannig tólf slagi
með þvingun á hálitunum, bara af því
austur „fylgdi lit“ með hjartasjöunni
en ekki þristinum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Kápa tekin í misgripum
BRÚN (Mauri) kápa með frakka-
sniði og klauf var tekin í misgripum í
fatahenginu í Borgarleikhúsinu
föstudaginn 30. sept. Önnur kápa
var skilin eftir. Sú sem kannast við
þetta er beðin að hafa samband í
síma 868 3380 eða skila kápunni í
Borgarleikhúsið.
Skotta týnd
í Grafarvogi
HÚN Skotta er
týnd, hún fór út að
morgni 9. sept. sl. og
hefur ekki sést síð-
an. Hún hvarf úr
Hverafold í R-vík
Hún er dökkbrönd-
ótt næstum svört á bakinu. Eyrna-
mark er G94 og hún er með fjólubláa
ól. Hennar er sárt saknað. Þeir sem
gætu gefið upplýsingar um Skottu
eru beðnir að hafa samband við Guð-
nýju í síma 567 5666.
Mokka loðhúfa týndist
BRÚN mokka loðhúfa týndist
mánudagskvöldið síðastliðið á Skóla-
vörðustíg eða við Domus Medica.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
692 3227. Fundarlaun.
Grár fress í óskilum
GRÁR fress með svarta og græna ól
með bjöllu, annars ómerktur, er í
óskilum við Sogaveg.
Upplýsingar í síma 862 0494 eða
588 3009.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
30-70%
Aðeins í 7 daga
Kyrrðardagar hafa verið í Skálholtiundanfarna vetur. Um næstu helgiverða tvennir kyrrðardagar þar.Kyrrðardagar kvenna í Skálholts-
skóla hefjast á fimmtudagskvöld en á föstu-
dagskvöldi hefjast Pílagrímadagar í Skálholts-
búðum, kyrrðardögunum lýkur á sunnudegi.
Kyrrðardagarnir virðast mæta mikilli þörf í
samfélaginu að sögn Bernharðs Guðmunds-
sonar rektors í Skálholti.
„Það er nokkur ókyrrð í Skálholti á sumrin,
tugþúsundir ferðamanna koma þar í hlað, þann-
ig að boðið er upp á kyrrðardaga frá því um
miðjan september fram í apríllok. Á slíkum
dögum er boðið upp á að fara í hvarf, draga sig
í hlé frá öllu áreiti hins daglega lífs. Engar
kröfur eru gerðar, þátttakendur eiga sinn tíma
og enginn truflar þá,“ segir Bernharður.
En er þá engin dagskrá á kyrrðardögum?
„Jú, það er boðið upp á dagskrá sem menn
fylgja að vild, en fyrst og fremst eru kyrrðar-
dagarnir hvíld þar sem fólk byggir sig upp og
endurnærist. Skálholt, með helgi sinni, sögu og
kyrrð, er kjörinn staður fyrir slíkt og aðbún-
aður í Skálholtsskóla með ágætum. Það er mjög
algengt að þátttakendur við brottför skrái sig
aftur „á sama tíma að ári“!
Hve margir kyrrðardagar eru í Skálholti?
„Á þessu starfsári verða þeir 23, flestir um
helgar en einnig í miðri viku. Flestir kyrrðar-
daganna hefjast á föstudagskvöldi og lýkur síð-
degis á sunnudegi. Þögnin ríkir þennan tíma,
hún er þó ekki takmark í sjálfu sér heldur tæki
til að öðlast hina innri kyrrð sem leitað er eft-
ir.“
Næstu helgi, á kyrrðardögum kvenna annast
Sigríður Hrönn Sigurðardóttir hjúkrunarfræð-
ingur og kristniboði leiðsögnina og mun hún
sérstaklega fjalla um Ljóðaljóðin í Biblíunni.
Pílagrímadagar eru fyrir þá sem gengið hafa
pílagrímsgöngur til Skálholts undanfarin sumur
eða hafa hug á því að koma saman til fræðslu
og hvíldar undir leiðsögn þeirra Péturs Péturs-
sonar prófessors og Bernharðs Guðmundssonar
rektors.
„Kyrrðardagar verða á aðventu og í dymbil-
viku til þess að undirbúa þátttakendur fyrir há-
tíðirnar sem fara í hönd. Sérstakir dagar verða
fyrir hjón sem vilja „gera gott hjónaband
betra“. Þá verða kyrrðardagar til að njóta
augnabliksins og aðrir – 11.–13. nóv. nk. sem
ætlaðir eru körlum og sr. Bragi Skúlason leiðir,
fyrstir slíkra hér á landi. Loks má geta kyrrð-
ardaga sem hafa yfirskriftina; Úr fortíðar-
fjötrum. Þá er kristin íhugun og leikræn tján-
ing notuð. Sími okkar er 486-8870, netfangið
rektor@skalholt.is,“ segir Bernharður Guð-
mundsson rektor.
Menning | Kyrrðardagar í Skálholti virðast mæta mikilli þörf í samfélaginu
Frá áreiti hins daglega lífs
Séra Bernharður
Guðmundsson er fædd-
ur í Kirkjubóli í Önund-
arfirði 28. janúar 1937.
Hann lauk guðfræði-
prófi 1962 og meistara-
prófi í fjölmiðlun 1978.
Hann var vígður til
Ögurþinga 1962 og auk
preststarfa hefur hann
starfað á vegum kirkj-
unnar í Eþíópíu og á
vegum lútherska heimssambandsins í Genf í
Sviss. Hann hefur verið rektor Skálholtsskóla
frá 2001. Kona hans er Rannveig Sigurbjörns-
dóttir og eiga þau þrjú börn.