Morgunblaðið - 08.10.2005, Page 64

Morgunblaðið - 08.10.2005, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. DANSKI leikarinn Lars Brygmann hefur tekið að sér hlutverk íslensks bónda í kvikmyndinni Köld slóð. Brygmann ætti að vera mörgum lands- mönnum kunnur en hann hefur farið með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Forsvar og Rejseholdet sem sýndir hafa verið hér á landi. Hann hefur jafnframt leikið í myndum á borð við Festen, Rembrandt og Kongekabale. Þá hefur danska ríkissjónvarpið (DR) þegar keypt sýningarréttinn af mynd- inni. Köld slóð er spennumynd og fjallar um blaðamann sem lendir í mikilli hættu þegar hann rannsakar dularfullt dauðs- fall í virkjun á hálendi Íslands. Leikstjóri myndarinnar er Björn Brynjúlfur Björns- son og handritið skrifaði Kristinn Þórð- arson. Myndin verður tekin upp hér á landi síðar í vetur og áætlað er að frum- sýna hana haustið 2006. Í aðalhlut- verkum verða þau Þröstur Leó Gunn- arsson og Elva Ósk Ólafsdóttir Köld slóð er samframleiðsluverkefni kvikmyndafyrirtækjanna Spark og Storm í samvinnu við danska aðila. Lars Brygmann (t.h.) í Forsvar. Leikur íslensk- an bónda NJÁLL Harðarson, höfundur Crime On Line hugbúnaðarins sem hefur starfað í Bretlandi síð- astliðin sex ár, er einn þeirra sem breska lögreglan gerði húsrann- sókn hjá vegna rannsóknar á fjár- svikamálinu sem sagt hefur verið frá í fjölmiðlum. Njáll sagði að húsrannsókn hefði verið gerð hjá öllum þeim sem hefðu átt viðskipti við íslensk- an kaupsýslumann sem starfað hefði í Bretlandi, burtséð frá því hvers eðlis viðskiptin hefðu verið. Tölvugögn þessa aðila hefðu verið rannsökuð og þeir athugaðir sem þar kæmu fram, eins og eðlilegt væri og þeir gerðu engar athuga- semdir í þeim efnum í sjálfu sér. Njáll sagði að viðkomandi aðili hefði haft samband við fyrirtæki hans og boðið fram fjárfesta sem hann hefði haft á sínum snærum. Þeir hefðu gefið vilyrði sitt, en áttað sig mjög skömmu síðar á að ekki var allt með felldu og slitið sambandi við þennan aðila þar sem þessir fjárfestar hefðu byrjað að hafa samband og spyrjast fyrir um önnur fyrirtæki sem þeir hefðu einnig fjárfest í. „Við fórum að ganga á hann og þá kom það í ljós að þetta var hreinlega ekki eins og hann hafði sagt að það væri og við slitum sambandinu,“ sagði Njáll. Hann sagði að í millitíðinni hefðu þeir verið búnir að eiga í þessum við- skiptum í nokkra daga og það hefði dugað til þess að þeir tengd- ust málinu, sem væri bagalegt þar sem þeir væru með forritið Crime on Line og hefðu unnið í glæpa- vörnum í fjölda ára og nú síðast með lögreglunni í Manchester. „Okkar bækur eru opnar“ „Við skiljum hitt hins vegar, að það þarf að taka á þessum málum og rannsaka og allt í lagi með það, okkar bækur eru opnar,“ sagði Njáll. Hann sagði að það væri vissu- lega áfall að lenda í þessu, en það mætti segja lögreglunni það til hróss að hún hefði verið mjög þægileg í viðmóti og hefði með- höndlað málið af nærgætni. Njáll sagði að orðstír þeirra væri flekklaus og þeir vildu gjarn- an halda honum þannig. Fram kom að Crime-On-Line skráningarkerfið hefur verið not- að hér heima af tryggingarfélög- unum, auk þess sem unnið hefur verið að ýmsum verkefnum með lögreglunni í Manchester. Njáll sagði að til dæmis hefði komið í ljós að þar sem kerfið væri notað hefði innbrotatíðni dottið niður um 20%. Húsleit gerð hjá stofn- anda Crime On Line Eftir Hjálmar Jónsson hjjo@mbl.is  Talið að | 4 ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Árni Sigfússon, bæj- arstjóri Reykjanesbæjar, skrifuðu undir samning um borð í víkingaskipinu Íslend- ingi í gærkvöldi, þess efnis að ríkið myndi verja 120 milljónum til uppbyggingar Vík- ingaheimi, við ströndina í Njarðvík. Eftirlíking af Kaldárhöfðasverði var af- hjúpuð á Víkingatorgi í Reykjanesbæ en sverðið fannst í landi Kaldárhöfða í maí- mánuði 1946. Talið er að sverðið hafi verið í eigu höfðingja sem uppi var á 10. öld og geymir því merkilega sögu. Stefán Geir Karlsson sá um gerð sverðsins sem er úr graníti og 7 metra hátt en Sparisjóðurinn í Keflavík, Magnús Magnússon frá Höskuld- arkoti og Íslendingur ehf. kostuðu fram- kvæmdina. Sverðinu var fundinn staður á miðju Vík- ingatorgi, nýjasta hringtorginu í bænum, og vísar það á Víkingaheim, við ströndina í Njarðvík. Víkingaheimur mun samanstanda af sýningarhúsi víkingaskipsins Íslendings og sýningunni Vikings – The North Atlantic Saga. Sýningin mun að mestu samanstanda af munum sem Smithsonian safnið í Banda- ríkjunum lánaði Reykjanesbæ. Eftir afhjúpunina var haldið um borð í Ís- lending þar sem samningurinn um Vík- ingaheim var undirritaður. Mun ríkið á næstu sex árum leggja til 20 milljónir á ári til uppbyggingar Víkingaheimi. Hins vegar liggur ekki enn fyrir hvaða fleiri aðilar koma að verkinu. Að sögn Böðvars Jónssonar, formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar, er unnið að stofnun félags vegna framkvæmdanna. Áætlað er að sýn- ingarhús Íslendings og sýningin verði opnuð árið 2007. Morgunblaðið/RAX 120 milljónir króna í Víkingaheim Eftir Svanhildi Eiríksdóttur og Andra Karl Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhjúpaði eftirgerð af Kaldárhöfðasverðinu á Víkingatorgi í Reykjanesbæ í gærkvöldi. EINAR Bárðarson, eigandi og fram- kvæmdastjóri Concert, hefur tekið að sér að sjá um tónleikahald hinnar heimsfrægu söngdívu Kiri Te Kanawa í Evrópu. Hún hefur nýlokið við að halda tónleika hér á landi. Það voru aðrir tónleikar Kan- awa hér á landi sem Concert sér um en þeim Einari hefur verið vel til vina síðan hún söng hér fyrst og hún sótt landið heim oftar en einu sinni í fríum sínum. Einar segir aðdraganda málsins ekki hafa verið langan, Kiri hafi komið að máli við hann í sumar og beðið hann að taka að sér starfið en samningur núverandi um- boðsmanns rennur út um næstu áramót. Concert mun sjá um tónleikaferð söng- konunnar næsta haust, þar á meðal sjá um bókanir, að staðið sé við þá samninga sem gerðir eru og að rétt og vel sé staðið að kynningarmálum ásamt því að sjá til þess að henni sé lagt til það sem hún biður um. Einar ráðinn um- boðsmaður Kiri ÓLAFUR Jóhann Ólafsson, aðstoðarfor- stjóri Time Warner-fyrirtækisins, leiðir nú viðræður um samvinnu netdeildar fyr- irtækisins, America Online, við netdeild Microsoft, MSN. Sjá menn fyrir sér að með nánari samvinnu gæti Microsoft dreift eigin leitarvél til viðskiptavina AOL og þannig komið höggi á Google. Forstjóri Time Warner sagði í síðasta mánuði að fyrirtækið þyrfti ekki endilega að eiga 100% hlutabréfa í AOL, svo lengi sem það hefði stjórn á rekstri fyrirtæk- isins. Ekki liggur ljóst fyrir hvort vefþjón- ustur fyrirtækjanna sameinast sem um 25 milljónir manna nýta sér. | 14 Leiðir viðræður Time Warner við Microsoft Ólafur Jóhann Ólafsson OLÍUFÉLÖGIN Esso, Olís og Skeljung- ur lækkuðu verð á bensíni í gær um eina krónu lítrann vegna lækkandi heimsmark- aðsverðs. Algengt verð á 95 oktana bensíni í sjálfs- afgreiðslu eftir lækkunina er 113,60 kr. fyrir lítrann. Lækkuðu um eina krónu ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.