Morgunblaðið - 18.10.2005, Side 1

Morgunblaðið - 18.10.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 282. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Óskar ekki frægðar José González er að verða ein skærasta stjarna Svía Menning Börn og hörmungar Yngstu áhorfendurnir upplifa vá- tíðindi á ýmsan hátt Daglegt líf Íþróttir Lærisveinar Viggós í æfingabúð- ir í Austurríki?  Ólöglegur leikmaður með Skallagrími?  Wie dæmd úr leik TALSMENN framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, ESB og Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, vara við því að of mikið sé gert úr hættunni á mannskæðum heimsfaraldri fuglaflensu sem borist gæti í menn. „Hættan sem steðjar að almannaheilsu er á þessu stigi í al- geru lágmarki,“ sagði Zsuzsanna Jakab, yfirmaður sjúkdómsvarna- miðstöðvar ESB, í gær. „Hættan er dálítið meiri fyrir þá sem hafa bein- línis starfað innan um sýkta fugla og markmið okkar hlýtur því að vera að draga enn úr þeirri hættu.“ Jakab sagði þó mikilvægt að þjóð- ir heims héldu áfram að búa sig und- ir faraldra af ýmsu tagi, ekki ein- göngu fuglaflensu. Hún minnti á að heimsfaraldrar væru reglubundin fyrirbæri sem kæmu upp á um 25 ára fresti að jafnaði. Það eina sem menn gætu slegið föstu væri að það myndi halda áfram að gerast. Michael Ryan, yfirmaður farald- ursviðbragða hjá WHO, sagði í gær að farfuglar gætu vissulega sýkst og dreift veikinni en margt annað en fuglaflensa gæti valdið fugladauða í náttúrunni. Flensan hefur þegar greinst í alifuglum í Rúmeníu og Tyrklandi. Framkvæmdastjórn ESB hvatti í gær til þess að strax yrði kannað hvort fjórir starrar, sem fundust dauðir í Króatíu, hefðu drep- ist úr veikinni. Grikkir staðfestu í gær að fundist hefði kalkúni á eynni Kios með fugla- flensu. Taka mun nokkra daga að greina hvort um er að ræða afbrigðið H5N1 sem valdið hefur 60 dauðsföll- um í Asíu síðustu árin. Fram- kvæmdastjórn ESB lýsti í gær áhyggjum sínum af því að ekki væri alls staðar til nóg af fuglaflensulyfj- um ef til faraldurs kæmi. Hættan af fuglaflensu verði ekki ýkt Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ÍSLENSKI dansflokkurinn æfði í gær þrjú verk, sem flutt verða í Baltopp- en í Kaupmannahöfn á fimmtudag. Tvö verkanna verða frumflutt. Þau eru Wonderland eftir Jóhann Frey Björgvinsson og Critic’s choice? eftir Peter Anderson. Hér eru á ferð tveir, ungir íslenskir karldanshöfundar. Tekur dansflokkurinn upp að nýju verkið Pocket Ocean eftir portúgalska dans- höfundinn Rui Horta, sem kom sérstaklega til landsins til að vera við æf- ingar. Um er að ræða þrjú mjög ólík verk og ríkti mikil spenna í dansflokknum, sem leggur af stað í dag. Dansflokkurinn hefur gert víðreist á þessu ári og meðal annars komið fram í Beirút, Berlín, Prag og Vín. Síðar í þessum mánuði sýnir hann á Ítalíu og í Finnlandi. Frumsýning á verkunum hér á landi verður á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu 4. nóvember. Á myndinni sést atriði úr Critic’s Choice? Morgunblaðið/ÞÖK Æft fyrir Danmerkurferð LYFJAFYRIRTÆKIÐ Actavis er orðið fjórða stærsta samheitalyfja- fyrirtæki heims eftir kaup þess á samheitalyfjastarfsemi alþjóðlega lyfjafyrirtækisins Alpharma Inc. Kaupverðið nemur 810 milljónum dala, um 50 milljörðum króna. Eftir kaupin verður Actavis með starf- semi í 32 löndum og með um 10.000 starfsmenn. Þetta er sjöunda fyr- irtækið sem Actavis kaupir á þessu ári. Róbert Wessman, forstjóri Acta- vis Group, segir að með kaupunum styrki félagið stöðu sína verulega, meðal annars með því að auka um- svif og veltu verulega í Bandaríkj- unum en um 35% af heildartekjum þess verða til vegna starfsemi í Bandaríkjunum. „Við erum jafn- framt að styrkja okkur mjög á mörkuðum í Vestur-Evrópu og koma okkur inn á nýja markaði, meðal annars í Bretlandi og Þýska- landi. Ég tel að Actavis sé nú orðið nægilega öflugt til að keppa við stærstu samheitalyfjafyrirtækin. Núna störfum við í yfir 30 löndum og getum því sett okkar lyf á fleiri markaði en mörg önnur félög sem þýðir minni áhættu í rekstrinum og líka fleiri tækifæri til að auka velt- una og þar af leiðandi arðsemina.“ Róbert segir að það hafi verið yf- irlýst stefna Actavis að verða á með- al fimm stærstu samheitalyfjafyrir- tækja heims. Á aðeins sex árum hafi félagið keypt eða tekið yfir 20 fyr- irtæki. „Það þótti háleitt markmið árið 1999 þegar störfuðu um 100 manns fyrir Actavis og aðeins hér á landi. En nú hefur starfsmanna- fjöldinn hundraðfaldast á aðeins sex árum. Við höfum hins vegar sett okkur önnur markmið og munum halda áfram að efla fyrirtækið.“ Actavis hefur tryggt sér um 104 milljarða króna lán til að fjármagna kaupin og endurfjármagna skuldir. Actavis það fjórða stærsta Kaupir samheitalyfjafyrirtæki fyrir 50 milljarða króna  Með 10.000 | 15 Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group, og Frederick J. Lynch, framkvæmdastjóri samheita- lyfjasviðs Alpharma. Islamabad. AFP, AP. | Björgun sex ára stúlku úr rústum í fjalla- þorpi austur af Balakot í Pak- istan í gær er líkt við krafta- verk. Níu dagar voru frá því að jarðskjálftinn mannskæði reið yfir svæðið. Stúlkan, Tajun Nissa, lenti undir skáp þegar hús fjölskyld- unnar hrundi. Foreldrar henn- ar, sem komust af, sögðu her- mönnum að dóttir þeirra væri enn í rústunum. Þeir brutu sér leið í gegnum brakið og fundu stúlkuna, meðvitundarlausa en lítið slasaða, undir skápnum. Ekki var vitað hvort hún hafði getað matast eða slökkt þorstann síðan skjálftinn reið yfir en líðan hennar var sögð allgóð í gærkvöld. Ofurlítið kraftaverk GEIR H. Haarde, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segist í viðtali í Morgun- blaðinu í dag telja að sú málamiðlun sem náðist í fjölmiðlanefndinni um að enginn einn aðili eða tengdir aðilar geti átt meira en 25% hlut í fjöl- miðlum, sé of há. Réttara væri að miða við lægra hlutfall. „Niðurstaða skýrslunnar sýnir að það er breiðari samstaða í þjóðfélaginu en verið hefur um nauðsyn þess að sett verði rammalöggjöf um fjöl- miðla. Það er mikilvæg breyting að allir stjórn- málaflokkarnir virðast nú vera inn á því grundvall- aratriði,“ segir Geir. „Það er síðan spurning hvar á að draga mörkin varðandi eignarhald á fjölmiðl- um. Ég tel að málamiðlun sú sem nefndin náði, um 25% eignarhlutdeild, sé of há og að réttara væri að miða við lægra hlutfall. Ég vil þó ekki kveða upp úr um það núna hvar það hlutfall á nákvæmlega að liggja. Við eigum eftir að fara betur yfir þetta á milli stjórnarflokkanna. Ég tek ályktun lands- fundarins hiklaust á þann veg að landsfundurinn vilji ganga lengra en gert er í fjölmiðlaskýrsl- unni,“ segir Geir og kveðst frekar eiga von á nýju fjölmiðlafrumvarpi á yfirstandandi þingi. Ákvæði 26. greinar stjórnarskrár óþarft og úrelt Fram kemur í viðtalinu við Geir að hann telur samþykkt landsfundarins um að synjunarvald for- seta í 26. grein stjórnarskrárinnar verði afnumið, vera mjög skýrt veganesti fyrir fulltrúa Sjálfstæð- isflokksins í stjórnarskrárnefndinni. „Það er líka ástæða til að skoða þetta í samhengi við aðra samþykkt fundarins um að sett verði al- menn heimild í stjórnarskrána um þjóðarat- kvæðagreiðslur. Ég tel eðlilegt að huga að því að settar verði reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur. Það virðist vera nokkuð víðtæk samstaða um það, þó eftir sé að útfæra þetta, en það eru líka ákveðnar hættur í því efni sem ber að varast og geta gert að verkum að svona ákvæði verði ann- aðhvort aldrei notað eða misnotað. Ég er þeirrar skoðunar að ákvæði 26. greinar sé bæði óþarft og úrelt og að slíkt vald til að fram- kalla þjóðaratkvæðagreiðslur eigi ekki að vera á hendi eins manns,“ segir Geir. Geir H. Haarde segir sjálfstæðismenn vilja ganga lengra en gert er í fjölmiðlaskýrslunni Réttara að miða við lægra hlutfall en 25% eignarhlut  Mikilvægt | miðopna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.