Morgunblaðið - 18.10.2005, Page 30

Morgunblaðið - 18.10.2005, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í GEGNUM aldirnar hafa konur orðið að berjast fyrir grundvallarrétt- indum, t.d. kosningarétti og mennt- un. Nú er svo komið að á Íslandi ríkir lagalegt jafnrétti kvenna og karla. En þrátt fyrir þetta er staða kynjanna allt annað en jöfn. Konur eru aðeins 31,1% af sveitarstjórn- arfulltrúum, þrátt fyrir að unnið hafi verið að kynjajöfnuði í mörg ár. Stundum er því haldið fram að kyn fólks skipti ekki máli þegar verið er að skipa á lista í sveitarstjórnar- eða alþingiskosningum. Við búum í lýðræð- issamfélagi og til að tryggja að lýðræðið sé virkt verða bæði kynin að fá tækifæri til að hafa áhrif á gang mála. Þó karlar og konur séu um margt lík, þá er reynsluheimur þeirra ólíkur. Fyrir kosningar kemur oft upp sú umræða að kyn skiptir ekki máli, velja beri hæfasta einstaklinginn og þá er kynferðið orðið ómálefnalegt sjónarmið. Á sama tíma þykir ekkert að því að tala um aldur fólks eða frá hvaða svæði einstaklingarnir koma og þau sjónarmið eru talin mál- efnaleg. Þegar barn fæðist er kyn þess gjarnan það fyrsta sem spurt er um. Strax þá er farið að flokka ein- staklinginn. Samfélag okkar mótast af þessari flokkun. Fötin á barnið eru valin eftir kyni, nafn, búningsklefar, væntingar til barnanna og svona mætti lengi telja. Ég er þeirrar skoð- unar að kynferði sé svo fléttað inn í vitund okkar að við oft á tíðum áttum okkur ekki á hvernig kynferði mótar umhverfi okkar og hefur mikil áhrif á allt lífshlaup okk- ar. Nú eru stjórn- málaflokkar að fara að skipa á lista fyrir næstu sveitarstjórnarkosn- ingar. Sumir velja að halda prófkjör, aðrir byggja á skoðanakönn- unum eða stilla upp á lista. Ég skora því á stjórnmálaflokkana að tryggja það að hlutur kvenna og karla verði sem jafnastur í næstu sveitarstjórnarkosn- ingum. Fyrir síðustu sveitarstjórnarkosn- ingar voru margir flét- tulistar í gangi, en þá er karl og kona til skiptis á listunum. Á öllum framboðslistum á Akureyri fyrir síðustu sveitarstjórn- arkosningar voru slíkir listar. Þetta er ágætis leið til að tryggja lýðræði að þessu leyti og sjá til þess að sjón- armið beggja kynja eigi sína for- svarsmenn í sveitarstjórnum. Áskorun til stjórnmála- flokkanna Eftir Margréti Maríu Sigurðardóttur Margrét María Sigurðardóttir ’Aukum hlutkvenna í næstu sveitarstjórnar- kosningum!‘ Höfundur er framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Kvennafrídagurinn ALÞJÓÐLEGI verkjadagurinn var í gær, 17. október. Í ár er þessi dagur helgaður börnum og nauðsyn þess að þau fái viðeigandi verkja- meðferð. Verkir eru stórt heilsu- farsvandamál og al- gengasta orsök þess að einstaklingar leita læknis. Verkir eru oft eitt af einkennum hinna ýmsu sjúkdóma en langvarandi verkir geta einnig verið sjúk- dómur í sjálfu sér. Árið 1973 voru stofnuð alþjóðleg þver- fagleg samtök (Int- ernational Association for the Study of Pain – IASP) þeirra sem vinna við rannsóknir og meðferð á verkjum. IASP hefur síðan vaxið fiskur um hrygg og eru nú í samtökunum yfir 7.000 félagar í 110 löndum (2002). Verkir hafa verið skilgreindir sem „óþægileg skynjun eða tilfinn- ingaleg upplifun samfara vefj- askemmd eða ástand sem lýst er með orðum sem lýsa slíkum skemmdum“ (IASP). Þessi skil- greining felur í sér að verkjaupp- lifun er ekki bara líkamleg skynjun heldur ekki síður andlegt, fé- lagslegt og sálrænt fyrirbæri. Líffræðilegt hlutverk sársauka er að vekja lífveruna til meðvitundar um að eitthvað sé að í líkamanum eða um yfirvofandi eða raunveru- lega vefjaskemmd og fá hana til að flýja áverkavaldinn eða að berjast við hann (flýja eða verjast við- bragðið). Snemma í lífinu lærum við því að túlka sársauka og verki sem afleiðingu af vefjaskemmd og reynum ósjálfrátt að forðast það sem veldur okkur sársauka. Vegna þessa líffræðilega hlut- verks sársauka að gera okkur við- vart um yfirvofandi hættu og/eða að eitthvað sé að í líkamanum fara sársaukaboðin í gegnum ýmsar heilastöðvar sem stjórna vökustigi okkar og tilfinningum á leið sinni til meðvitundarinnar. Þetta veldur því að sársauki og verkir vekja okkur upp úr svefni og valda okkur ótta og kvíða – við hræðumst það sem sársaukanum veldur og reyn- um að forðast það. Þessi tilfinn- ingaáhrif eru í báðar áttir, þ.e. sársauki og verkir valda ótta og kvíða en ótti og kvíði valda því aft- ur að við verðum næmari fyrir sársauka og verkjum. Verkjum er gjarnan skipt niður í þrjá und- irflokka; bráðaverki vegna bráðasjúkdóma, slysa eða skurð- aðgerða; langvarandi verki af völdum krabbameins og lang- varandi verki af öðr- um orsökum en krabbameini. Eins og áður segir er alþjóðlegi verkja- dagurinn að þessu sinni helgaður börn- um. Verkir eru oft vanmetnir og vanmeðhöndlaðir vegna þekking- arskorts heilbrigðisstarfsfólks, nei- kvæðra viðhorfa til verkja- meðferðar og ótta við aukaverkanir verkjalyfja. Ástæður þess að IASP sér ástæðu til að minna sérstaklega á verki og verkjameðferð hjá börn- um er sú að oft bregðast börn öðru vísi við sársauka og verkjum en fullorðnir og að síendurtekinn og langvarandi sársauki hjá börnum getur haft afleiðingar síðar á lífs- leiðinni. Áður var talið að ung börn fyndu minna fyrir eða gerðu sér síður grein fyrir sársauka vegna þess hve taugakerfi þeirra væri óþrosk- að. Nú er vitað að nýfædd börn, bæði fullburða og fyrirburar, finna fyrir sársauka og sumir fræðimenn vilja jafnvel halda fram að þau séu enn næmari fyrir sársauka en við sem eldri erum. Einnig hafa rann- sóknir sýnt að börn sem líða síend- urtekinn og mikinn sársauka geta orðið næmari fyrir sársauka og verkjum síðar á lífsleiðinni. Ástæð- ur þess eru taldar vera bæði sál- rænar, þ.e. að reynsla af sársauka valdi ótta við sársauka, og líf- fræðilegar þ.e. að mikil og síend- urtekin sáraukaboð geti valdið ákveðnum breytingum í taugum sem gerir þær næmari fyrir sárs- auka. Góð og viðeigandi verkja- meðferð barna er því mikilvæg strax frá fæðingu ásamt því að forðast að valda þeim óþarfa sárs- auka. IASP leggur áherslu á að verkja- meðferð barna njóti verðskuldaðrar athygli og að það skuli vera sjálf- sögð mannréttindi barna sem full- orðinna að fá viðeigandi verkja- meðferð þegar á þarf að halda. Þessu markmiði skal ná með því m.a. að:  mennta heilbrigðisstarfsfólk í mati og meðferð á verkjum barna  sjá til þess að viðeigandi lyf séu til staðar í viðeigandi skömmt- um sem henta börnum  sjá til þess að viðeigandi vinnureglur um verkjameðferð barna séu til staðar þar sem börn eru meðhöndluð  sjá til þess að aðgangur sé til staðar að viðeigandi sérfræðiþekk- ingu á verkjum barna þegar á þarf að halda  stuðla að aukinni þekkingu al- mennings og foreldra á eðli sárs- auka og verkja og viðbrögðum barna við þeim  forðast að valda börnum óþarfa sársauka t.d. með óþarfa stungum og rannsóknum sem fela í sér líkamlegt inngrip  að börn fái góðan undirbúning, viðeigandi fræðslu og fyrirbyggj- andi verkjameðferð þegar líkamleg sársaukafull inngrip eru óhjá- kvæmileg. Verkjameðferð barna skiptir máli – fyrir barnið sjálft, fyrir fjölskyld- una og fyrir allt samfélagið. Sjá nánar á http://www.iasp- pain.org Alþjóðlegi verkjadagurinn helgaður börnum Þorbjörg Jónsdóttir skrifar í tilefni af alþjóðlegum verkjadegi ’… verkjaupplifun erekki bara líkamleg skynjun heldur ekki síð- ur andlegt, félagslegt og sálrænt fyrirbæri. ‘ Þorbjörg Jónsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur og starfar sem klínískur sérfræðingur í verkjameðferð á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Í MORGUNBLAÐINU 25. sept- ember birtist frétt með fyrirsögn- inni „Norðurljósin kvikmynduð og seld“. Undirfyrirsögn er „Ekki hef- ur tekist að kvikmynda norðurljósin fyrr“. Í fréttinni er við- tal við Jóhann Ísberg ljósmyndara og fullyrt að Jóhann og sam- starfsmenn hans séu þeir fyrstu sem fundið hafi nothæfa aðferð við að kvikmynda norður- ljósin. Þessi fullyrðing er dálítið villandi svo að ekki sé meira sagt. Rúm fjörutíu ár eru liðin síðan norðurljós voru fyrst kvikmynduð með eðlilegum hraða, bæði í svarthvítu og lit. Ég hygg að fyrstu kvikmyndirnar hafi verið teknar í Churchill í Kan- ada árið 1963. Voru það vísindamenn frá Alaska sem það gerðu. Mynd- irnar komu fram á sjónvarpsskjá en voru skráðar með 16 mm kvik- myndavélum. Í fyrstu voru litirnir langt frá því að vera eðlilegir, en árið 1984, eftir tuttugu ára tilraunir, má segja að litatæknin hafi verið komin í þokkalegt horf. Þá höfðu sjón- varpstökuvélar alfarið tekið við af filmuvélunum. Alaskamenn hafa lengst af verið í fararbroddi á þessu sviði, en aðrir hafa fylgt á eftir. Síðan 1984 hafa japanskir vís- indamenn tekið kvikmyndir af norð- urljósunum hérlendis í stöðvum sem þeir hafa komið upp í samvinnu við Raunvís- indastofnun Háskól- ans. Aðallega hafa þetta verið svarthvítar myndir, en á Suð- urskautslandinu hafa Japanar tekið litkvik- myndir, fyrst árið 1989. Kvikmyndavélar voru notaðar til að taka myndir af norður- ljósum í heim- skautalöndum á jarð- eðlisfræðiárinu 1957–58. Þær myndir voru að vísu teknar miklu hægar en venjulegar kvikmyndir, aðeins ein mynd á mínútu af himninum öllum. Þegar þessar myndir eru sýndar sem kvikmyndir verður atburða- rásin óeðlilega hröð, en myndirnar eru engu að síður tilkomumiklar. Myndir af þessu tagi voru teknar hér á Íslandi á tímabilinu frá 1957 til 1973, fyrst á vegum Veðurstofu Ís- lands en síðar tóku Eðlisfræðistofn- un Háskólans og Raunvísindastofn- un við þessari starfsemi. Ofangreindar athugasemdir eru ekki settar fram til að gera lítið úr framtaki Jóhanns Ísbergs og félaga. Sú myndtækni sem þeir hafa þróað er vissulega athyglisverð og sam- bærileg við það besta sem þekkist annars staðar. Að mínum dómi vant- ar þó enn talsvert á að kvikmyndir þeirra eða annarra nái að sýna lita- dýrð norðurljósanna með þeim hætti sem mannsaugað greinir hana. Von- andi tekst það að lokum með aukinni tækni og þrautseigju. Norðurljósin kvik- mynduð – athugasemd Þorsteinn Sæmundsson fjallar um kvikmyndun norðurljósanna ’… vantar þó enn tals-vert á að kvikmyndir þeirra eða annarra nái að sýna litadýrð norður- ljósanna með þeim hætti sem mannsaugað greinir hana. ‘ Þorsteinn Sæmundsson Höfundur er stjörnufræðingur með starfsaðstöðu við Raun- vísindastofnun Háskólans. BORGARSTJÓRI ritaði grein í Morgunblaðið 30. september undir þessu heiti. Vissulega er full ástæða til að óska Reykvíkingum til ham- ingju með að hafinn er undirbún- ingur að byggingu nýs hjúkr- unarheimilis í Sogamýrinni og vissulega hafði borgarstjóri ástæðu til að rita grein af þessu tilefni. Staðreyndin er sú, ef mér skjöplast ekki, að þetta er fyrsta nýja hjúkrunarheimilið sem ákvörðun er tekin um að byggja af Reykja- víkurborg í tíð þessa meirihluta í rúmlega 11 ára valdatíma hans. Árið 2003 var gert samkomulag um að stækka hjúkr- unarheimilið Eir um 40 hjúkrunaríbúðir og dagvist fyrir 20 manns og verið er að stækka Droplaugarstaði. Hjúkr- unarheimilið við Sóltún var byggt í einkaframkvæmd fyrir nokkrum ár- um og er rekið þannig í dag með góðum árangri. U.þ.b. 100 ný hjúkr- unarrými hafa verið byggð á vegum frjálsra félagsamtaka. Borgarstjóri segir í grein sinni: „Fyrir tæpum fjórum árum ákvað Reykjavíkurborg að gera hvað hún gæti til að fjölga hjúkrunarrýmum í borginni.“ Fyrir mér sem áhuga- manni um borgarmálefni er þetta ótrúlega langur tími frá því að ákveðið er að fjölga hjúkr- unarrýmum í borginni til þess dags að und- irritaður er samningur milli heilbrigð- isráðherra og borg- arstjóra að byggja nýtt hjúkrunarheimli. Hvert stefnir? Því miður er langt í land að nýja hjúkr- unarheimilið í Soga- mýrinni leysi þann vanda sem er í þessum málaflokki því stað- reyndin er sú að samkvæmt grein borgarstjóra bíða um 250 manns eftir plássi og það er ekki eins og hjúkrunaheimilið í Sogamýrinni verði opnað á morgun fyrir 110 vist- menn. Ef ekki verður meira að gert mun stefna í óefni. Hér verður að taka til hendinni og ákveða svo fljótt sem kostur er að hefjast handa við byggingu á nýju hjúkrunaheimili. Þennan vanda verður að leysa. Nýtt hjúkrunar- heimili – til hamingju Guðni Þór Jónsson fjallar um vanda aldraðra og skort á hjúkrunarheimilum Guðni Þór Jónsson ’Hér verður að taka tilhendinni og ákveða svo fljótt sem kostur er að hefjast handa við bygg- ingu á nýju hjúkr- unarheimili. Þennan vanda verður að leysa.‘ Höfundur er frambjóðandi til 5.–7. sætis í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.