Morgunblaðið - 18.10.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 18.10.2005, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ORGEL með mörgum mismunandi röddum er heil hljómsveit í sjálfu sér sem býður upp á ótal möguleika í raddvali. Það sannaðist heldur betur á tónleikum Guðmundar Sigurðs- sonar í Laugarneskirkju fyrir skemmstu; ólík verk voru á efnis- skránni og höfðu þau hvert sinn karakter og lit- brigðaheim sem alltaf var mótaður af stakri smekk- vísi organistans. Með einni und- antekningu: Lit- irnir í níu til- brigðum við sálmalagið Was Gott tut, das ist wo- hlgetan eftir Pachelbel, sem samdi frægan keðjusöng er heyrst hefur m.a. í auglýsingu í sjónvarpinu, voru heldur djarfir fyrir minn smekk og eitt tilbrigðið var svo ofskynj- unarkennt í túlkun Guðmundar að það var nánast eins og Pachelbel hefði verið á sveppum þegar hann samdi það. Annað var hins vegar ein- staklega sannfærandi og þar sem lip- urt fingra- og fótspil Guðmundar var afar nákvæmt og möguleikar orgels- ins prýðilega nýttir er ekki annað hægt að segja en að tónleikarnir hafi verið sérlega vel heppnaðir. Strax í upphafi var auðheyrt að Guðmundur er fimur organisti. Trompetlag í D-dúr eftir David N. Johnson var frísklegt án þess að glata stöðugleika í takti og var nokkrum röddum hljóðfærisins blandað saman á svo hnitmiðaðan hátt að aðdáun- arvert var. Gammel fäbodpsalm frän Dalarna eftir Oscar Lindberg, sem kom strax á eftir, var eins og skugg- inn af þessu glaðlega verki; hægt, dulúðugt og litað þokukenndum, myrkum röddum er komu fallega út í kirkjunni. Hin volduga tónsmíð Jesú, mín morgunstjarna eftir Jón Þór- arinsson var ekki síðri og var undir- aldan auðfundin í tónlistinni. Greinir Jesús um græna tréð eftir Smára Ólason var auk þess hrífandi í ein- faldri framsetningu organistans og Ciaconna eftir fyrrnefndan Pachel- bel, sem kom á eftir sýrukenndri túlkun Guðmundar á tilbrigðunum níu, var verulega mögnuð; nú var andrúmsloft ofskynjunarvímu horfið, a.m.k. var verkið markvisst byggt upp og málað hóflega skærum litum. Tveir dansar eftir Jóhannes frá Lyublin, sem uppi var á 16. öld, voru líka mótaðir á sannfærandi hátt; Vat- er unser in Himmelreich eftir Georg Böhm var sömuleiðis gætt réttu and- aktinni og Prelúdía og fúga í f-moll eftir Bach var kraftmikil og glæsileg í meðförum Guðmundar. Orgelið í Laugarneskirkju var smíðað af Björgvini Tómassyni og hefur auðheyrilega heppnast vel, a.m.k. var unaðslegt að hlusta á svo fínan músíkant spila á það þó hann hafi verið heldur ýktur á tímabili. Og meira að segja þegar hann fór yfir strikið leiddist mér ekki – þvert á móti var útkoman bráðfyndin! Óneit- anlega voru þetta með skemmtilegri orgeltónleikum sem ég hef farið á. Ofskynjunarkenndur Pachelbel TÓNLIST Laugarneskirkja Guðmundur Sigurðsson flutti tónsmíðar eftir Liundberg, Johnson, Jón Þór- arinsson, Pachelbel og fleiri. Sunnudagur 9. október. Orgeltónleikar Jónas Sen Guðmundur Sigurðsson Í TILEFNI af því að 30 ár eru lið- in frá kvennafrídeginum 24. októ- ber 1975 kemur bókin Já, ég þori, get og vil út á vegum Bókaútgáf- unnar Sölku þann 24. október næstkomandi. Fjöldi kvenna vann baki brotnu til að kvennafríið gæti orðið að veruleika. Vilborg Harð- ardóttir var þar lykilmaður með frumkvæði sínu og dugnaði, og er í bókinni rakinn í máli og myndum aðdragandinn að þessum sögulega viðburði sem vakti heimsathygli. Hildur Hákonardóttir er höfundur bókarinnar og eru myndirnar sem hér munu birtast næstu viku hluti af myndaseríu sem Hildur teiknaði í ársbyrjun 1976 og hefur hvergi birst áður opinberlega fyrr en núna og í heild sinni í hinni vænt- anlegu bók. Já, ég þori, get og vil! HALDNIR verða tón- leikar í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld. Þar kemur fram Már Magn- ússon söngvari ásamt nem- endum sínum fyrr og síðar, sem hafa haslað sér völl í sönglistinni eða eru í þann veginn að gera það. Már hefur kennt í Reykjavík, Árnessýslu, Akureyri og Danmörku og koma söngvarar frá þessum svæðum fram á tónleikunum. Þar verða flutt atriði úr óperum: La Traviata, Seldu brúðinni, Samson og Dalila, Töfraskyttunni, La Gio- conda og Tannhäuser. Píanóund- irleik annast Ólafur Vignir Alberts- son og útvarpskonan og fyrrverandi nemandi Más, Stefanía Valgeirsdóttir, er kynnir. Már Magnússon lagði stund á söng og tónlist- arnám hér á landi áður en hann hélt til Vínarborgar, en þar dvaldi hann um ára- bil við nám og störf. Eftir að hann sneri heim hefur hann auk þess að koma fram sem söngvari fengist við kennslu og eru þónokkrir af nemendum hans starf- andi sem söngvarar meira eða minna. Már hefur kennt við Söng- skólann í Reykjavík, Tónlistarskóla Árnessýslu, Nýja tónlistarskólann, Tónlistarskólann á Akureyri og tón- listarskóla í Suður-Jótlandi. Einn af söngvurunum sem koma fram er Sólveig Unnur Ragnars- dóttir, en hún lauk kennaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík síðast- liðið vor. Hún hverfur nú til fram- haldsnáms í Skotlandi og er því ætlað veglegt hlutverk í tónleikum kvölds- ins. Einnig má nefna þá sem koma fram: Ólöf Ólafsdóttir, Steinarr Magnússon, Manfred Lemke, Anna Sigríður Helgadóttir, Hildur Tryggvadóttir, Eiríkur Hreinn Helgason og Anna Brønholt frá Dan- mörku. Enn er þó eftir að telja röð af söngvurum sem taka þátt í tónleik- unum sem hefjast kl. 20.00 í kvöld. Tónlist | Söngtónleikar í Fríkirkjunni í Reykjavík Már Magnússon syngur ásamt nemendum sínum Már Magnússon BENJAMIN BRITTEN the turn of the screw ef t i r 25 ára og yngri: 50% afsláttur af miða- verði í sal Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400 21. okt. kl. 20 - Frumsýning- ÖRFÁ SÆTI LAUS 23. okt. kl. 20 - 2. sýning - 30. okt. kl. 20 - 3. sýning 4. nóv. kl. 20 - 4. sýning - 6. nóv. kl. 20 - 5. sýning 12. nóv. kl. 20 - 6. sýning - Lokasýning www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningar á Tökin hert , 2. - 6. sýning Kl. 19.15 – Stutt kynning á verkinu og uppsetningu þess. Kynningin fer fram á sviðinu og er innifalin í miðaverði. Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI HÍBÝLI VINDANNA Aðeins þessi eina aukasýning eftir Su 23/10 kl. 20 LÍFSINS TRÉ Fi 27/10 kl. 20 - FRUMSÝNING - UPPSELT Fö 28/10 kl. 20 Fi 3/11 kl. 20 Fö 4/11 kl. 20 Lau 5/11 kl. 20 Fi 10/11 kl. 20 Fö 11/11 kl. 20 MANNTAFL Lau 22/10 kl. 20 Forðist okkur - Aðeins sýnt í október Nemendaleikhusið/CommonNonsense e. Hugleik Dagsson Mi 19/10 kl. 20 Fi 20/10 kl. 20 Fö 21/10 kl. 20 Lau 22/10 kl. 20 SALKA VALKA Mi 19/10 kl. 20 Styrktarsýning - MND Félagið á Íslandi Fö 21/10 kl. 20 Gul kort Lau 22/10 kl. 20 Rauð kort Su 30/10 kl. 20 Græn kort WOYZECK Í samstarfi við Vesturport og Barbican Center í London Frumsýnt í London 12. október Fi 27/10 kl.20 Forsýning - UPPSELT Fö 28/10 kl. 20 Frumsýning - UPPSELT Lau 29/10 kl. 20 Gul kort Lau 5/11 kl. 20 Rauð kort Fi 10/11 kl. 20 Græn kort Fö 11/11 kl. 20 Blá kort KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 23/10 kl. 14 - UPPSELT Su 30/10 kl. 14 Su 6/11 kl. 14 Nýja svið/Litla svið ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Su 23/10 kl. 20 UPPSELT Þr 25/10 kl. 20 UPPSELT Lau 29/10 kl.20 UPPSELT Su 30/10 KL. 20 UPPSELT Su 6/11 kl. 20 AUKASÝNING Tvennu tilboð Ef keyptur er miði á Híbýli vindanna og Lífsins tré fæst sérstakur afsláttur AUKASÝNING FIM. 20. OKT. KL. 20 11. SÝN. FÖS. 21. OKT. kl. 20 NOKKUR SÆTI 12. SÝN. LAU. 22. OKT. kl. 20 NOKKUR SÆTI 13. SÝN. FÖS. 28. OKT. kl. 20 14. SÝN. LAU. 29. OKT. kl. 20 Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Fullkomið brúðkaup kl. 20 Fim 20. okt Frumsýning UPPSELT Fös 21. okt 2. kortasýn UPPSELT Sun 23. okt 3. kortasýn UPPSELT Fim 27. okt 4. kortasýn UPPSELT Fös 28. okt 5. kortasýn UPPSELT Lau 29. okt 6. kortasýn UPPSELT sun 30. okt AUKASÝNING Fös 4. nóv UPPSELT Lau 5. nóv UPPSELT Lau 5. nóv kl. 23.30 AUKASÝNING Síðustu dagar korta- sölunnar! eftir Thomas MEEHAN, Charles STROUSE & Martin CHARNIN Síðustu sýningar  - DV Frábær fjölskylduskemmtun! - Fréttablaðið Lau. 22/10 kl. 15 Annie; Sólveig Lau. 30/10 kl. 14 Annie; Thelma Lind Fim. 3/11 kl. 19 Annie; Lilja Björk Miðasala í síma 551 4700 alla daga frá kl. 13-17 í gamla AUSTURBÆJARBÍÓI www.annie.is • www.midi.is Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.