Morgunblaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
„ÉG kom hingað fyrir tíu árum og held að
ástandið hafi versnað á vinnumarkaðinum síð-
an þá. Það er meira um lög og reglur sem gera
fólki erfitt fyrir,“ segir Amal Tamimi sem flutti
ásamt fjölskyldu sinni til Íslands frá Palestínu.
„Þegar ég kom hingað var ég látin vinna frá
klukkan hálfsjö á morgnana til hálfellefu á
kvöldin hjá fiskvinnslufyrirtæki. Ég vissi ekki
að yfirvinna væri val,“ segir Amal sem fékk
365 krónur á tímann, bæði í dagvinnu og
kvöldvinnu.
Saga hennar er því miður ekki einsdæmi og
margar konur af erlendum uppruna þurfa að
glíma við erfið vandamál á íslenskum vinnu-
markaði. Upplýsingagjöf er ekki næg og kon-
urnar fá oft ekki fullnægjandi vitneskju um
réttindi sín og skyldur, þrátt fyrir að vinnu-
veitendum beri skylda til að upplýsa þær. Kon-
urnar glíma líka við tungumálaörðugleika og
eru háðar vinnuveitendum sínum, sem eiga að
sjá um að útvega atvinnu- og dvalarleyfi. Þá er
menntun og reynsla þessara kvenna oft ekki
metin að verðleikum hér á landi.
Viðmælendur Morgunblaðsins í dag telja
kerfið bjóða upp á að svindlað sé á útlending-
um og vilja meðal annars láta bæta upp-
lýsingaflæði og efla íslenskukennslu.
Þá benda þeir á að erlendar konur vinni í
öllum stéttum samfélagsins og það myndi hafa
miklar afleiðingar legðu þær niður störf á
kvennafrídaginn. Enda eru konur rúmlega
helmingur þeirra tíu þúsund erlendu ríkisborg-
ara sem hér búa. | 6
Erlendar konur búa oft við slæm kjör á íslenskum vinnumarkaði
„Vissi ekki að yfirvinna væri val“
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„ÞORI ég, vil ég, get ég? Já, ég þori, get og vil.“
Þannig var sungið í laginu Áfram stelpur fyrir
þremur áratugum, en lagið og samnefnd plata
hefur síðan verið tengd kvennabaráttunni órjúf-
anlegum böndum. Í tilefni þess að í ár eru þrjátíu
ár liðin síðan konur flykktust niður á Lækjartorg
á kvennafrídeginum og tóku þátt í einum stærsta
útifundi Íslandssögunnar hefur verið ákveðið að
endurútgefa Áfram stelpur sem geisladisk, en
platan hefur verið ófáanleg um árabil.
„Þessi plata sprettur upp úr alveg ótrúlega
magnaðri stemningu sem ríkti þetta ár og náði
hámarki á kvennafrídeginum sjálfum,“ rifjar
Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leik-
kona, upp. „Þarna ríkti svo sannarlega mikill bar-
áttuvilji, orka og kraftur,“ segir Steinunn, sem
stendur að útgáfunni ásamt Kjartani Eggerts-
syni tónlistarmanni. Að sögn Steinunnar hefur
kvennahópurinn sem söng lögin á Áfram stelpur
komið saman í tímans rás þegar mikið hefur legið
við og tekið lögin af plötunni. Með Steinunni í
sönghópnum voru leikkonurnar Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Bríet heitin Héðinsdóttir, Guð-
rún Alfreðsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Sigrún Björnsdóttir, ásamt Kristínu Ólafsdóttur
vísnasöngkonu.
Aðspurð hvort textarnir á Áfram stelpur eigi
enn við í dag svarar Steinunn því umsvifalaust
játandi. „Í öll þau skipti sem við höfum komið
saman og sungið þessi lög þá hafa konur staðið
eða setið tárvotar undir söngnum, vegna þess að
textarnir eru svo ótrúlega „aktúel“ enn þann dag
í dag.“
Hægt verður að nálgast diskinn á útifundinum
á Ingólfstorgi á kvennafrídeginum 24. október
nk. auk þess sem hann verður í framhaldinu fáan-
legur í hljómplötuverslunum.
Morgunblaðið/ÞÖK
„Hvenær verða
allir menn
taldir menn?“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
KÁRI Árnason og Sölvi Geir Otte-
sen urðu í gærkvöldi sænskir meist-
arar með liði sínu Djurgården. Lið-
ið er með fjögurra stiga forystu á
Gautaborg, lið Hjálmars Jónssonar,
þegar ein umferð er eftir. Djur-
gården gerði markalaust jafntefli
við Örgryte. Á myndinni sést Sölvi í
harðri baráttu. | Íþróttir
SCANPIX
Kári og Sölvi
sænskir
meistarar
VIÐ hönnun nýs Korpuskóla í Grafarvogi,
sem tekinn var formlega í notkun í gær, var
tekið mið af sveigjanlegu námsumhverfi,
hægt er að tengja saman öll rými hússins og
auðvelda þannig samstarf nemenda. Þá var
haft að leiðarljósi að skólinn tengdist sem
best náttúru og samfélaginu í næsta ná-
grenni.
Til grundvallar skólabyggingunni liggja
hugmyndir þrjátíu manna starfshóps sem
vísindaver, fjölnotasalur og svið, mötuneyti,
kennslueldhús, tölvuver, tónmenntaaðstaða
og frístundaheimili. Hermann Ólason, arki-
tekt hjá Landhönnun, hannaði skólalóðina
þannig að hún er hvorttveggja í senn fé-
lagslegur vettvangur nemenda og námsum-
hverfi, auk þess sem íbúar í Staðahverfi geta
nýtt hana til samveru.
Skólastarf í nýjum Korpuskóla hefst 24.
október.
skipaður var m.a. foreldrum, skólafólki og at-
vinnurekendum í Staðahverfi. Tekið var mið
af öllum tillögum hópsins og er Korpuskóli því
hannaður út frá hugmyndum íbúanna sjálfra.
Nýja skólahúsið er hannað af teiknistofunni
Arkís ehf. og rúmar 170 grunnskólanemend-
ur. Hluti hússins er leikskóli og er gert ráð
fyrir að nýta megi það rými fyrir leikskóla-
börn þegar grunnskólanemendum fækkar. Í
byggingunni eru 5 kennslurými, listasmiðja,
Morgunblaðið/ÞÖK
Hannað út frá hugmyndum íbúanna
FULLTRÚAR Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins sem heimsóttu Ísland í
sumar hafa gefið út skýrslu
vegna heimsóknarinnar. Þar er
Íslendingum hrósað fyrir
frammistöðu í efnahagsmálum á
síðustu árum. Hins vegar segir í
skýrslunni að helstu fjárfesting-
arverkefni að undanförnu hafi
leitt til óstöðugleika og misvægis
í hagkerfinu og að mikilvægustu
verkefni næstu missera séu að
koma böndum á einkaneyslu,
húsnæðismarkaðinn, viðskipta-
í þessum málum í dag“. Aðhaldið
megi hins vegar ekki vera minna.
Ingunn S. Þorsteinsdóttir,
hagfræðingur hjá ASÍ, segir að
samtökin taki undir ábendingar
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um
nauðsyn á auknu aðhaldi í opin-
berum fjármálum. ASÍ hafi lengi
kallað eftir auknu aðhaldi á þessu
sviði til að létta á Seðlabankanum
og draga úr aðhaldssamri pen-
ingamálastjórn.
hallann og verðbólguna. Þar seg-
ir að frekara aðhalds sé þörf í rík-
isfjármálum. Þessu aðhaldi má að
mati sérfræðinga sjóðsins ná með
því að flétta saman á einhvern
hátt frestun skattalækkana og
frestun nýrra fjárfestinga auk
þess að reyna að draga úr aukn-
ingu í samneyslu.
Árni M. Mathiesen fjármála-
ráðherra segist telja að aðhald í
ríkisfjármálum sé nægilega mik-
ið til þess að hægt verði að kom-
ast út úr „ákveðinni snúinni stöðu
Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland
Skattalækkunum
verði frestað
Böndum | 4
ÁSATRÚARFÉLAGIÐ hyggst
bjóða upp á kynningu á siðfestuat-
höfn heiðinna manna í 8. bekk
grunnskóla í vetur. Að sögn Jóhönnu
Harðardóttur Kjalnesingagoða mun
Lögrétta bráðum senda skóla-
yfirvöldum bréf og bjóða þeim að fá
heimsókn goða eða annarra embætt-
ismanna félagsins, en hingað til hef-
ur aðeins verið hægt að nálgast
kynninguna innan félagsins.
Jóhanna segir siðfestuathöfnina
eins konar manndómsvígslu heið-
inna manna. Undirbúningur felst
m.a. í fræðslu um heiðinn sið og lest-
ur Hávamála og Völuspár. Allir þeir
sem kjósa siðfestuathöfn geta fengið
hana, en þeir sem ekki eru orðnir 16
ára þurfa samþykki forráðamanna.
Siðfestuat-
hafnir kynntar
í skólum