Morgunblaðið - 31.10.2005, Page 2
2 MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VINSÆLASTI HÖFUNDUR Í HEIMI
DAN BROWN
NÝ BÓK Í ÍSLENSKRI ÞÝÐINGU EFTIR
MEISTARA SPENNUSÖGUNNAR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
7
7
2
- The Washington Post
SVONA Á AÐ SKRIFA
SPENNUSÖGUR.
ÞESSA BÓK LEGGURÐU
EKKI FRÁ ÞÉR FYRR EN
AÐ LESTRI LOKNUM“
„
FRAM Í DAGSLJÓSIÐ
Fjölmennur stofnfundur aðstand-
endahóps Geðhjálpar var haldinn í
gær undir yfirskriftinni „Fram í
dagsljósið“. Á fundinum var m.a.
rætt um það hvernig verja ætti þeim
1,5 milljörðum sem ríkisstjórnin
hyggst setja í búsetumál og end-
urhæfingu geðsjúkra. Sagði Árni
Magnússon félagsmálaráðherra að
gera mætti ráð fyrir að fyrsta sam-
býlið, kostað af þessu fjármagni, risi
strax á næsta ári.
Óttast refsiaðgerðir SÞ
Stjórnvöld í Sýrlandi reyndu ákaft
í gær að afstýra því að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti
refsiaðgerðir gegn ríkinu vegna
gruns um aðild að morðinu á Rafik
Hariri. Segjast Sýrlendingar nú
ætla að standa fyrir eigin rannsókn
á morðinu en nýlega var birt skýrsla
á vegum SÞ þar sem Sýrlendingar
eru bendlaðir við morðið. Í ályktun
SÞ sem borin verður upp í öryggis-
ráðinu er þess krafist að hinir seku
verði dregnir fyrir rétt.
Ný rannsókn á fátækt
Um 2,6% barna sem voru þátttak-
endur í rannsókn á viðhorfum reyk-
vískra barna til fátæktar sögðu að
stundum væri ekki til nóg að borða
heima hjá þeim og 1% kvaðst finnast
það vera fátækt. Alls 4% sögðu fjöl-
skyldu sína hafa áhyggjur af pen-
ingum og 29% þeirra sögðust þekkja
einhvern sem væri fátækur. Niður-
stöðurnar byggjast á svörum 10 til
12 ára barna í þremur grunnskólum.
Kasmírbúar sprengdu
Lítt þekktur hópur herskárra að-
skilnaðarsinna í Kasmír hefur lýst
yfir ábyrgð á sprengjutilræðunum í
Nýju-Delhí á laugardag. Minnst 61
lét lífið í tilræðunum þremur og yfir
200 særðust. Tvær af sprengjunum
sprungu á fjölförnum mörkuðum á
annatíma í borginni en þriðja
sprengjan fannst í strætisvagni og
tókst að fleygja henni út.
Engin loðna finnst
Loðnuleiðangri Hafrann-
sóknastofnunar, sem hefjast átti 5.
nóvember, hefur verið slegið á frest
um ótilgreindan tíma. Leiðangri
fjögurra loðnuskipa lauk í liðinni
viku, án þess að loðna fyndist svo
nokkru næmi. Að sögn fiskifræðinga
hefur nánast engin loðna alist upp
hér við land sl. þrjú ár. Seiðin virðist
hafa rekið inn í Austur-Grænlands-
strauminn og alist upp við Austur-
Grænland.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 30/33
Vesturland 12 Myndasögur 30
Viðskipti 13 Víkverji 30
Erlent 14/15 Staður&stund 31/32
Daglegt líf 16/17 Velvakandi 31
Menning 18/19, 34/37 Leikhús 33
Forystugrein 20 Bíó 34/37
Umræðan 22/24 Ljósvakar 38
Bréf 24 Veður 39
Minningar 25/27 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FÁTT er notalegra en að ganga sér til hressingar úti í náttúrunni, hvort
heldur jörð er hvít eða græn. Að finna frostið bíta í kinnarnar, fá tár í augun
undan kuldanum, frjósa lítið eitt á tánum og vita að það bíði manns ullarteppi
og mögulega heitt kakó þegar heim er komið. Nokkrir göngugarpar voru á
ferðinni við Vífilsstaðavatn þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið
framhjá í gær í froststillunum sem ríktu á höfuðborgarsvæðinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Heilsubótarganga í froststillum
TIL stendur að taka upp vegabréf
með stafrænni ljósmynd og fingrafari
handhafa. Reiknað er með að útgáfa
slíkra vegabréfa hér á landi hefjist í
apríl á næsta ári, að sögn Þorsteins
Helga Steinarssonar, verkefnastjóra
hjá dómsmálaráðuneytinu vegna inn-
leiðingar vegabréfa með lífkennum.
Eftir þann tíma verða allar myndir í
vegabréf teknar hjá sýslumannsemb-
ættum, en Þorsteinn segir breyt-
inguna í samræmi við alþjóðlega
staðla.
Gunnar Leifur Jónasson, formaður
Ljósmyndarafélags Íslands, segir að
þessi breyting muni hafa áhrif á starf-
semi ljósmyndastofa. Á sumum
þeirra séu nú teknar allt að 80 passa-
myndir á degi hverjum, en hver
myndataka kosti um 2.500 krónur.
Því sé ljóst að „þó nokkrar stofur
verða að hætta starfsemi“. Hann seg-
ir að dómsmálaráðuneytið hafi ekki
haft samband við Ljósmyndarafélag-
ið vegna málsins.
Þörf verður á nýjum búnaði vegna
töku myndanna. „Þetta er í útboði hjá
Ríkiskaupum. Það eru aðilar sem
hafa fengið tækifæri til þess að selja
ríkinu búnaðinn sem þarf til þess að
gera þetta,“ segir Gunnar Leifur.
Hann telur furðu sæta að aðilar hjá
Ljósmyndarafélaginu hafi hvorki
fengið vitneskju um málið né tækifæri
til þess að bjóða í búnaðinn. Hann
segist vita um einn aðila innan félags-
ins sem hafi boðið í hann eftir að hann
frétti fyrir tilviljun um útboðið.
Gunnar Leifur segist hafa óskað
eftir skýringum frá dómsmálaráðu-
neytinu og öðrum aðilum en enn ekki
fengið þær. „Ég bíð líka eftir upplýs-
ingum um hvort þetta eigi að tengjast
Reiknistofu bankanna. Við viljum fá
að vita hvort til standi að veita bönk-
unum aðgang að myndasafninu, en
það skiptir verulegu máli fyrir okk-
ur,“ segir hann.
Allir á sýslumannsskrifstofur
Hann bendir á að það taki tíma að
þjálfa starfsfólk sýslumannsembætt-
anna auk þess sem það muni taka
nokkur ár að mynda alla landsmenn
inn í þetta nýja kerfi. Hægur leikur sé
fyrir ljósmyndara að senda myndir
frá sér með rafrænum hætti. „Við
tökum stafrænar myndir af öllum og
getum sent þetta rafrænt um leið og
fólk gengur út af ljósmyndastofunni í
stað þess að ætla að þvæla öllum inn á
sýslumannsskrifstofurnar.“
Þorsteinn Helgi segir að ekkert
sérstakt samráð hafi verið haft við
Ljósmyndarafélagið vegna málsins.
Reynt hafi verið að ná sambandi við
Samtök iðnaðarins vegna þess og þar
lögð inn skilaboð, en engin viðbrögð
hafi borist þaðan.
Formaður Ljósmyndarafélags Íslands óttast afleiðingar nýrra reglna
Myndatakan færist frá ljós-
myndurum til sýslumanna
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ÞORSTEINN Helgi Steinarsson
segir að ákveðnar kröfur séu gerð-
ar til myndanna sem settar verða í
nýju vegabréfin. „Við viljum sann-
reyna að þau lífkenni sem eru lögð
inn séu rétt. Það gerum við með því
að taka myndina á umsóknarstað.“
Mismunandi er eftir löndum
hvernig brugðist er við kröfum um
lífkenni í vegabréfum. „Við höfum
horft nokkuð til Svía. Þeir setja upp
aðstöðu hjá umsóknaraðila og þar
eru öll lífkenni tekin,“ segir Þor-
steinn. „Hjá okkur verður þetta
gert hjá sýslumönnum og í Reykja-
vík verður þetta væntanlega fært
Stífar kröfur um lífkenni
frá Útlendingastofnun og yfir á lög-
regluna í Reykjavík.“ Hann bendir
á að á Nýja-Sjálandi hafi verið
ákveðið að fólk kæmi með mynd af
sér til yfirvalda og þau könnuðu
hvort hún stæðist kröfur. Í fyrstu
var um 30% mynda hafnað og fólk
þurfti að fara og kaupa nýja mynd.
Aðspurður segist Þorsteinn
Helgi ekki telja að nýja kerfið verði
þungt í vöfum þegar fram í sækir,
en vissulega kunni byrjunarörð-
ugleikar að gera vart við sig. Ekki
þarf að bæta við starfsfólki hjá
sýslumannsembættunum vegna
nýju vegabréfanna.
OLÍUFÉLAGIÐ (ESSO) lækkaði
verð á bensíni og dísilolíu um
helgina. Viðmiðunarverð í sjálfsaf-
greiðslustöð með fullri þjónustu á
höfuðborgarsvæðinu er nú 109,20
kr. á hverjum lítra af bensíni og
108,10 kr. á lítra af dísilolíu.
Magnús Ásgeirsson, innkaupa-
stjóri eldsneytis hjá ESSO, sagði
verð eldsneytis hafa lækkað meira
undanfarna daga en menn hefðu bú-
ist við, í ljósi þess að nú er að koma
vetur. Vegna þess hvað verðið varð
hátt í haust er leið er áhrifa vetr-
arins ekki farið að gæta. Magnús
segir að verðið hafi verið orðið svo
hátt að það hafi varla getað annað
en lækkað.
Ekki er bein fylgni á milli
verðþróunar á bensíni og dísilolíu,
að sögn Magnúsar. Dísilolía er víða
notuð til húshitunar og við eðlilegar
kringumstæður á olíumörkuðum
mætti þess vegna búast við meiri
lækkun á bensíni en dísilolíu í vetr-
arbyrjun. Magnús taldi að bilið á
milli bensíns og dísilolíu myndi frek-
ar breikka á næstunni. Nú hefur
verið spáð kuldum í Bandaríkjun-
um, og það getur haft áhrif á verð
dísilolíu. Í janúar síðastliðnum kom
upp sú óvenjulega staða að bensín
var dýrara en dísilolía, sem var
mjög óeðlileg staða, að sögn Magn-
úsar.
Í eðlilegu árferði ætti bensínið að
lækka meira en dísillinn, vegna
vetrarins. „Svo ætti verðið að snú-
ast við þegar kemur fram á sumar,
hvað sem verður,“ sagði Magnús.
Eldsneyti
lækkar í verði