Morgunblaðið - 31.10.2005, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Búdapest þann 14.
nóvember. Þú bókar 2 flugsæti en
greiðir aðeins fyrir 1 og kynnist þessari
glæsilegu borg á einstökum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Búdapest
14. nóv.
frá kr. 19.990
Síðustu sætin
Verð kr. 19.990
Flugsæti með sköttum. 2 fyrir 1 tilboð. Út 14. og
heim 17. nóv. Netverð á mann.
Gisting frá kr. 2.800
Gisting pr. nótt á mann í tvíbýli á Hotel Tulip Inn
með morgunverði. Netverð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Þetta var það þunnt að það var á
mörkunum að það hefði tekið með
sér fólksbíl,“ sagði Oddur. Hann
sagði að fremur lítill snjór væri
uppi í fjöllunum þarna, þar sem
upptakasvæði stórra snjóflóða eru.
„Það er engin snjóflóðahætta í
byggð sem er, en það geta fallið
flóð úr hlíðunum á vegi. Það koma
spýjur þar eins og gengur. Engin
snjóflóð hafa komið á hlíðarnar,
Óshlíð og Súðavíkurhlíð, enn sem
komið er,“ sagði Oddur.
LÍTIÐ flekaflóð féll úr Eyrarfjalli
við Öndunarfjörð milli kl. 13 og 14 í
gær.
Flóðið féll rétt utan við bæinn
Hvilft, en bænum stafaði engin
hætta af, að sögn Odds Pétursson-
ar, snjóathugunarmanns Veður-
stofu Íslands í Súðavík og Ísafjarð-
arbæ. „Þetta var um 40 metra
breitt á veginum og lítið snjómagn.
Upptökin voru rétt ofan við miðja
hlíð, þetta var fínlegur lausasnjór
sem hafði skafið út úr Hvilftinni.
Að sögn Geirs Sigurðssonar,
rekstrarstjóra Vegagerðarinnar,
var vegurinn fljótlega ruddur.
Snjórinn eftir flóðið var um 40
sentimetra djúpur á veginum og
vegurinn jeppafær, þrátt fyrir
spýjuna.
Samkvæmt upplýsingum frá
snjóflóðavakt Veðurstofunnar
breytti flóðið engu um viðbúnaðar-
ástand vestra. Ekki var óttast að
byggð stafaði hætta af snjóflóðum í
gær.
„ÞETTA markaðs-
átak hefur skilað sér
gríðarlega vel og
farið fram úr öllum
okkar vonum. Það er
ótrúlegt að hafa náð
svona vel inn á
þennan áhrifamesta
miðil sem sjónvarpið
vissulega er,“ segir
Artúr Björgvin
Bollason upplýsinga-
og kynningarfulltrúi
Icelandair í Frank-
furt um kynn-
ingarátak sem slegið
hefur í gegn hjá
þýskum sjónvarps-
stöðum sem sækjast
hver af annarri eftir
því að koma til Ís-
lands til að taka upp
efni.
Átakið hófst um
síðustu áramót með
því að höfða til nokkurra sjón-
varpsstöðva og í vor og sumar fór
boltinn að rúlla fyrir alvöru og
hafa nú níu sjónvarpsstöðvar sent
þáttagerðamenn sína til Íslands.
Við stefnum að jafnvel enn
stærri verkefnum með þeim
„Það er toppurinn að ná öllum
þessum sjónvarpsstöðum hingað
til lands og er bara upphafið því
við stefnum jafnvel á enn stærri
verkefni með þeim,“ segir Artúr
Björgvin sem unnið hefur að mál-
inu með Guðmundi Óskarssyni
markaðsstjóra hjá Icelandair.
Umfjöllunarefni stöðvanna hefur
almennt verið um áhugaverða
staði fyrir ferðamenn og þar með
nýst Icelandair sem auglýsing.
Ennfremur voru nokkrar stöðvar
að taka upp efni frá Iceland Air-
waves-tónlistarhátíðinni sem lauk
um síðustu helgi.
Skrifstofa Ferðamálaráðs í
Frankfurt hefur stutt átakið sem
og sendiráð Íslands í Berlín.
Fyrirspurnum rignir inn
„Þetta er mjög skemmtilegt og
partur af þessu er náttúrlega
áhugi Þjóðverja fyrir Íslandi.
Upphaflega var ekki auðvelt að fá
þá í slaginn en þegar þeir voru
komnir á bragðið linntu þeir ekki
látum og fyrirspurnunum rignir
inn.“
Hingað hafa sjónvarpsstöðvar á
borð við TDF, ARD, RTL, 3 SAT
N24 og NTV sent þáttagerðarfólk
og hefur Artúr farið með sjón-
varpsfólkinu til Íslands til að vera
leiðsögumaður þeirra og aðstoðað
við eitt og annað, jafnvel tekið að
sér að vera sjónvarpskynnir í 50
mínútna þætti sem sendur var út
fyrir skemmstu. Artúr hefur búið
til ferðaáætlun fyrir tökuliðin og
ferðast með þeim um landið og
hefur sjónvarpshópunum þótt
þetta fyrirkomulag þægilegt.
Spyrst út hvað landið sé
skemmtilegt heim að sækja
„Það hafa líka allir lagst á eitt
um að hjálpa þessu fólki og verið
viljugir að taka á móti því. Ég hef
fengið fínan beina þar sem ég hef
komið með þá og boðað komu
þeirra. Það hefur því spurst út að
við séum höfðingjar heim að sækja
og landið sé skemmtilegt. Það
vissu nú reyndar margir Þjóð-
verjar, en við vonum að þessi
mikla Íslandsumfjöllun í sjónvarpi
muni hafa einhver áhrif.“
Ísland slær í
gegn í þýska
sjónvarpinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MIKIL snjóatíð hefur verið í Fljót-
um í október og hafa margir bænd-
ur þurft að sinna fé sínu vel og gæta
að því. Getur það verið afar tíma-
frekt og ýmis verk hafa því tafist í
haust, fyrst vegna bleytu í septem-
ber og síðan vegna snjóþunga.
Bændur í Fljótum eru einnig farnir
að gefa hrossum sínum, enda er
snjórinn orðinn djúpur á jafnsléttu
og erfitt fyrir hrossin að kroppa eft-
ir fæði, sérstaklega þar sem orðið
var lítið fyrir.
Jóhannes Ríkharðsson, bóndi á
Brúnastöðum í Fljótum, á um fimm-
hundruð og fimmtíu fjár og hefur
haustið verið honum afar erfitt
vegna veðursins. „Það er búið að
vera afskaplega óskemmtilegt að
hafa alla þessa rigningu um haustið
og svo kom veturinn með svona líka
hvelli, en versti hvellurinn hjá okkur
var stórhríð sem kom tíunda októ-
ber,“ segir Jóhannes. „Það er meira
og minna búið að þurfa að gefa
skepnunum allan október, en við er-
um vanir að taka þær inn í hús um
miðjan nóvember, þó það megi
vissulega búast við öllu á þessu
svæði hérna.“
Þótt veðursælt sé venjulega í
Fljótunum getur orðið afar snjó-
þungt og segir Jóhannes kindurnar
hafa verið heima við frá því fyrir
helgi, en hann hafi leitað nokkurra
kinda í nágrenninu í gær á vélsleða
og fundið fimm. Þótt gefa þurfi
kindunum óvenju snemma segir Jó-
hannes að heyið ætti að endast fram
á vor. „Heyin sluppu fyrir horn í
sumar og þetta hafðist allt saman.
Það var ágætis spretta og slapp eig-
inlega ótrúlega vel,“ segir Jóhann-
es.
Karlar og krakkar í sund
á laugardagskvöldum
„Það gekk samt illa að taka seinni
sláttinn, því það rigndi nánast lát-
laust eftir verslunarmannahelgi og
út september. Við fengum samt sem
betur fer gott veður á gangnadag-
ana okkar, þá var sól og blíða. Þá
sluppum við líka með skrekkinn í
kornræktinni og vorum að þreskja
heila nótt, byrjuðum um kvöldið og
vorum að í tólf tíma. Það passaði að
þegar við vorum nýbúnir fór strax
að rigna aftur.“
Að sögn Jóhannesar hafa orðið
nokkur ættliðaskipti á bæjunum í
Fljótum og mikið af ungu fólki í
sveitinni. „Það er því mikið félagslíf
í kringum barnaafmæli og skóla-
starf og slíkt,“ segir Jóhannes og
bætir við að það hleypi miklu lífi í
sveitina að yngja hana upp.
„Við komum líka saman á laug-
ardagskvöldum í sundlauginni, karl-
arnir í sveitinni með krakkana okk-
ar. Þá sitjum við í pottinum og
spjöllum á meðan krakkarnir
svamla. Þá fara konurnar oft saman
í leikfimi á Siglufjörð.“
Októbermánuður
erfiður bændum
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Talsvert hefur snjóað í Fljótum síðustu daga og hafa bændur verið að smala fé sínu saman og taka á gjöf. Er nú svo
komið að allt sauðfé er komið á fulla gjöf sem er mun fyrr en undanfarin ár. Þarf að fara aftur til snjóflóðaársins
1995 til að finna jafn óhagstæða tíð í lok október og nú. Þessar ær biðu þess að komast í hús á föstudaginn.
Haustið veðrasamt og snjóþungt í Fljótum í Skagafirði
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
Lítið snjóflóð féll á
veginn við Hvilft
Ljósmynd/Hilmar Örn Þorbjörnsson