Morgunblaðið - 31.10.2005, Síða 34
RAÐMORÐINGJAR hafa löngum
verið eftirsótt viðfangsefni kvik-
myndagerðarmanna, alltaf virðist
finnast markaður fyrir slík af-
styrmi. Keimlíkar, stöku sinnum
stinga góðar myndir þó upp koll-
inum (Silence of the Lambs,
Seven), en oftast er von á slitinni
tuggu.
Crónicas er ein þeirra sem koma
á óvart og sýna forvitnilega hlið á
greininni, því illmennið El
Monstruo, er afhjúpað í upphafi,
síðan tekur við hrottaleg atburða-
rás sem verður til þess að morð-
ingjanum er stungið á bak við lás
og slá – án þess að nokkur geri sér
grein fyrir tengslunum á milli fang-
ans og El Monstruo.
Sjónvarpsfréttamannagengi er
komið á staðinn, smábæinn
Babahoyo í Ekvador. Þeir starfa
fyrir æsifréttastöð í Miami sem
sendir út á spönsku til rómönsku
Ameríku. Fyrir hópnum fer frétta-
haukurinn Manolo (Leguizamo),
hann er ágengur og fær og gerir
sér jafnframt grein fyrir lýðhyllinni
sem hann nýtur.
Fyrri hluti Crónicas er bráð-
snjall, eða svo lengi sem Manolo er
að fá fullvissu um hver hún er,
Skepnan í Babahoyo. Með sín 150
barnslíf á samviskunni, en upp-
haflega átti hópurinn að ræða við
foreldra fórnarlambanna. Atburð-
urinn sem kemur sjónvarpsfólkinu
á slóðina er einstaklega vel úthugs-
aður. Sölumaðurinn Vinicio (Alcaz-
ar), verður fyrir því óláni að bana
tvíburabróður fórnarlambs El
Monstruo. Faðir drengjanna fer
fyrir múgnum sem hyggst aflífa
Vinicio á staðnum og eru báðir
settir í fangelsi.Vinicio veit að múg-
urinn mun ekki hlífa honum þegar
út er komið, hann leitar því til
stjörnunnar Manolos, segist geta
komið honum á spor raðmorðingj-
ans – gegn því að sleppa úr haldi.
Óvænt breytir hann áætlunum
Manolos sem finnur risavaxið
„skúbb“ liggja í loftinu og lætur
allt annað víkja.
Togstreitan er trúverðug, þau
Manolo, Marisa (Watling), fram-
leiðandi hans og tökumaðurinn
(Yazpik), eru full efasemda um
heiðarleika Vinicio en eru viss um
að hann lúri á mikilvægum upplýs-
ingum eða sé jafnvel sjálfur níðing-
urinn.
Eftir því sem á líður, dregur úr
krafti Crónicas, bæði sökum þess
að gríman fellur fljótt af hinum
seka og ádeilan á siðleysi ófor-
skammaðrar fréttamennsku er ekki
nándar nærri jafn sláandi og harð-
grimmur fyrri hlutinn. Leikararnir
eru sérlega traustir, ekki síst
Leguizamo sem hagar sér líkt og
þaulreyndur æsifréttamaður sem
lætur blindast af frægðinni.
Raðmorðinginn
og rannsóknar-
blaðamaðurinn
Crónicas kemur á óvart og sýnir forvitnilega hlið á málefnum raðmorð-
ingja og blindaðra æsifréttamanna, að mati gagnrýnanda.
KVIKMYNDIR
Októberbíófest
Leikstjóri: Sebastián Cordero. Aðalleik-
endur: John Leguizamo, Damian Alcazar,
Alfred Molina, Jose Maria Yazpik, Leonor
Watling. 98 mín. Mexíkó/Ekvador.
2004.
Crónicas Sæbjörn Valdimarsson
34 MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta
og hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Fór beint á toppinn í USA
450
kr.
Sýnd kl. 3.50kl. 10
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Africa
United
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
DREW
BARRYMORE
JIMMY
FALLON
"Fyrirtaks
skemmtun
sem hægt er
að mæla með"
MMJ - kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 5, 8 og 10.45
kl. 5, 8 og 10.45
Sá beSti í brAnSAnUm
er mættUr AFtUr!
Sími 564 0000
Miðasala opnar kl. 15.30
S.V. / MbL
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
ó.H.T. Rás 2
(besti leik-
stjóri, besta
heimildarmynd,
besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
Africa
United
(besti leikstjóri, besta
heimildarmynd, besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
Sýnd kl. 6
S.V. Mbl.
TOPP5.is
ó.H.T. Rás 2
REYNSLAN ávinnst á ýmsan hátt, oftast þarf að gjalda
fyrir hana. Sofie (Reinberg), ungri skólastúlku í Stokk-
hólmi, reynist hún harla dýrkeypt. Hún og vinkonur henn-
ar Amanda (Fjæstad) og Emma (Linn Person) eru að
leggja bangsanum og komnar með gemsa, eru á því erfiða
vaxtarskeiði að breytast úr börnum í unglingsstúlkur.
Sofie, sem er falleg, sjálfstæð, skörp og dálítið frökk,
telur sig tilbúna til að stíga næsta skrefið. Þær vinkon-
urnar halda jafnan hópinn og leiðtoginn Sofie kemur því
svo fyrir að þeim er boðið í partí hjá vinsælustu stráka-
klíkunni í skólanum. Sofie, sem býr hjá einstæðum föður
sínum (mamman stakk af til Parísar fyrir margt löngu),
stelur slurk úr hverri flösku úr vínskáp föður síns, fyllir
síðan upp með kóki.
Amanda missir kjarkinn en Emma og Sofie stefna í fjör-
ið. Það er ólíkt fyrir þeim komið því Emma er dálítið feit-
lagin og hefur lítið sjálfstraust. Þær vinkonurnar reyna að
drekka í sig kjarkinn, einkum Sofie sem langar til að verða
virkur þátttakandi í gleðskapnum. Allt fer úrskeiðis og
litla sílið er niðurlægt með svívirðilegum afleiðingum. Hún
er ekki orðin þrettán.
Þannig fór um sjóferð þá. Fabik nálgast vandmeðfarið
efni af skilningi og meðfæddu innsæi í sálarlíf persónanna
því Hip Hip Hora! er aðeins önnur mynd hennar. Hún hef-
ur fengið til liðs við sig frábæra leikara, Reinberg, Person
og Fjæsted (sem stóð sig eftirminnilega vel í öllu léttari
mynd um sænskar unglingaástir), sem túlka hlutverk sín
það vel að þessi ólíki hópur stendur ljóslifandi frammi fyr-
ir okkur. Eins nær Kjellman vel til áhorfandans sem ein-
stæði faðirinn sem reynir að vera dóttur sinni bæði faðir
og móðir og Berg er trúverðugur sem strákurinn sem
verður skotinn í Sofie.
Í myndinni eru teknir fyrir þeir erfiðleikar sem oft eru
kallaðir unglingavandamál. Skólasystkini Sofie ráðast að
mannorði hennar af slíkum níðingshætti að það liggur við
afdrifaríku stórslysi. Sofie hefur sterk bein, hún vex að
lokum að þroska af ömurlegri lífsreynslu, ráðleggingum
föður síns, gagnorðum rapptextum og fleiri góðum hlutum
sem, eftir erfitt afneitunartímabil, opna augu hennar fyrir
því að sókn er besta vörnin. Á hinn bóginn fær Beatrice
(Carla Abrahamsen), sem beitir öllum brögðum til að
halda kórónunni sem drottning bekkjarins, á baukinn fyr-
ir baktal og róg, líkt og Mouse, illa innrættur forsprakki
strákanna.
Unglingar geta vafalaust lært sitthvað af athyglisverðri
mynd sem hefur alla burði til að vera nefnd í sömu andrá
og Fucking Åmål. Hér eru á ferðinni ósköp venjulegir
unglingar, misgóðir og misþroskaðir, eins og gengur. Þeir
berjast við óréttlæti og vond mál sem aldrei verður eytt að
fullu; einelti, klíkuskap og meting auk unglingaástanna og
fleiri óskapa sem fylgja gelgjuskeiðinu. Hip Hip Hora er
bæði skynsamleg og hin bráðflinka Fabik fer með okkur
allan hringinn. Byrjar myndina á björtu nótunum, síðan
sogumst við með henni niður í hyldýpið áður en hún skilar
okkur aftur upp í sólskinið.
Veislan
„… mynd sem hefur alla burði til að vera nefnd í sömu
andrá og Fucking Åmål,“ segir gagnrýnandi.
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: IIFF
Leikstjóri: Teresa Fabik. Aðalleikendur: Amanda Renberg, Björn
Kjellman, Filip Berg, Ellen Fjæstad. 86 mín. Svíþjóð. 2004.
Hip, Hip, Hóra! (Hip, Hip, Hora!) Sæbjörn Valdimarsson
STUNDUM er hrein ánægja að fara í
bíó. Það gerist vissulega sjaldnar en
maður myndi óska en töfrarnir sem
hinn reyndi kvikmyndaáhugamaður
hélt að hann væri vaxinn upp úr gera
stökum sinnum vart við sig á ný.
Kung Fu-dansinn er ein af þessum
myndum. Hugmyndaauðgin er slík
og hasarinn er svo yfirgengilegur (og
svo skemmtilega framsettur) að mað-
ur er allt í einu staddur í þrjú-bíói í
gamla daga. Hér er það ekki sögu-
þráðurinn sem skiptir máli, enda er
hann bara til staðar í grófteiknuðu
formi, heldur kraftur formsins og
hversu auðveldlega veruleikinn er
mótaður á hvíta tjaldinu. Sú tilfinning
að allt sé hægt, að hetjur geti á lipran
hátt yfirstigið allar þrautir er hér
endurvakin á nær barnslegan hátt, en
áhrifin eru umtalsverð einmitt vegna
þess að myndin er hálfgerður sak-
leysingi. En þótt frásagnarformið sé
ekki flókið er myndin að vinna með
heila kvikmyndahefð. Þeir sem
þekkja kvikmyndir Jackie Chan (þ.e.
myndirnar sem hann gerði áður en
hann varð gamall og flutti til Banda-
ríkjanna) eru að sumu leyti búnir
undir það sem hér ber fyrir augu.
Mannslíkaminn er teygður og tog-
aður og tölvugrafík er notuð til að
færa mörk áhættuleikara til hins ýtr-
asta. Myndin vinnur með hasarhefð
Hong Kong undanfarinna áratuga á
sama tíma og hún gerir hefðina sam-
tímalega og alþjóðlega. Húmorinn er
ekki jafn staðbundinn, frásagn-
armynstrið er vel þekkt, og persón-
urnar eru staðalmyndir sem allir
kannast við. Söguþráðurinn er þann-
ig þakinn kennileitum sem staðsetja
vestræna áhorfendur í öruggu rými
en á sama tíma er farið lengra en við
eigum að venjast. Og þar kemur
Hong-Kong hefðin inn í myndina.
Senur og aðstæður eru ærslafullar og
ýktar en á sama tíma er það gríð-
arlegt hugmyndarflug aðstandenda
sem gerir hvert myndskeið að hálf-
gerðu ævintýri. Þeir sem aldir eru
upp á bandarískum hasarmyndum
sjá hér hvernig þær hefðbundnu has-
arhetjur sem við eigum að venjast
hafa vart snert möguleikana sem has-
arformið býður upp á hvíta tjaldinu.
Ærslafullur hasargaldur
„Sú tilfinning að allt sé hægt er hér
endurvakin á nær barnslegan hátt,
en áhrifin eru umtalsverð einmitt
vegna þess að myndin er hálf-
gerður sakleysingi,“ segir meðal
annars í umsögn gagnrýnanda.
KVIKMYNDIR
Októberbíófest
Leikstjórn: Stephen Chow. Aðalhlutverk:
Stephen Chow, Yuen Wah, Yuen Qui,
Leung Siu Lung, Shengyi Huang. Kína/
Hong Kong, 95 mín.
Kung Fu-dansinn (Kung Fu Hustle /
Gong Fu) Heiða Jóhannsdóttir