Morgunblaðið - 31.10.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 37
Óskarsverðlaunahafarnir Russell Crowe og Renée
Zellweger fara á kostum í sterkustu mynd ársins.
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomu allra tíma.
Mynd eftir Ron Howard (“A Beautiful Mind”).
Skelltu þér á
alvöru mynd.
Það er alltaf
hægt að þekkja
myndir sem
eiga eftir að
keppa um
Óskarinn.
R.H.R / MÁLIÐ
D.V.
S.V. MBL
kvikmyndir.is
KEFLAVÍKAKUREYRIÁLFABAKKI KRINGLAN
Spenntu beltin og undirbúðu þig undir
háspennumynd ársins með
Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster.
V.J.V. TOPP5.IS
ROGER EBERT
Kvikmyndir.com
H.J. / MBL
Frá leikstjórum There´s Something About
Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy
DREW BARRYMORE JIMMY FALLON
Hún fílar vinnuna, Hann íþróttir .
Munu þau fíla hvort annað?
KISS KISS BANG BANG kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára
PERFECT CATCH kl. 6 - 8.15 - 10.30
FLIGT PLAN kl. 8 - 10.15 B.i. 12 ára
WALLACE & GROMIT m/Ísl tali kl. 6
FLIGHT PLAN kl. 8
CINDERELLA MAN kl. 8
FLIGHT PLAN kl. 8 - 10
40 YEAR OLD kl. 8
CINDERELLA MAN kl. 10
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
S.V. / MBL
"Fyrirtaks
skemmtun
sem hægt er
að mæla með"
MMJ - kvikmyndir.com
S.V. / MBL
H.J. Mbl.
KISS KISS BANG BANG kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára
KISS KISS BANG... VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
FLIGHT PLAN kl. 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 12 ára.
WALLACE AND... m/Ísl tali kl. 4 - 6
WALLACE AND... m/enskutali kl. 6 - 8.15 - 10.30
CINDERELLA MAN kl. 10.30 B.i. 14 ára.
THE 40 YEAR ... kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
GOAL kl. 8.15
VALIANT m/- Ísl tal. kl. 3.40
SKY HIGH kl. 3.50
CHARLIE AND THE ... kl. 3.50
STÓRA trompið í kvikmyndaiðn-
aðinum er efni, nafn, sem hægt er að
margnýta í framhaldsmyndir, vöru-
merki (franchise), sem tryggir fyr-
irfram milljónir viðskiptavina. Með
það í huga hefur Sony dustað rykið af
hinum rómanska dándismanni Don
Alejandro de la Vega, sem síðast
skaut upp kollinum hjá fyrirtækinu
fyrir átta árum. Þegar hætta steðjar
að breytist sveitarstólpinn Alejandro
í Zorró, hina svartklæddu goðsögn,
stoð og styttu smælingja spænsku-
mælandi þegna Kaliforníuríkis. Átök-
in sem urðu samfara stofnun þess um
miðja 19. öld eru einnig bakgrunnur
söguþráðarins.
Í upphafi er eiginkona Alejandros,
hinn þokkafulli stórbokki Elena (Zeta
Jones), orðin langpirruð á eilífum
íhlaupum bónda síns í hetjugallann
og tekur um svipað leyti leynilegu
boði stjórnarinnar í Washington um
að gerast flugumaður hennar, jafnvel
þótt því fylgi kvöð um að leika dálítið
á Alejandro, en hún á að ná ástum
Armands, dularfulls, franskættaðs
aðalsmanns sem er grunaður um
græsku. Hreiðrar um sig á sveitasetri
Armands og sendir bónda sínum
beiðni um skilnað.
Þeir Alejandro/Zorró botna ekki
neitt í neinu uns ógnarlegt samsæri
fer smám saman að stinga upp koll-
inum.
Zorró ársins 2005 er hlunkslegur
náungi sem virðist hafa sloppið út af
grímuballi, hálfhallærislegur en
Banderas á enn í fórum sínum reisn
og djöfulmóð Suðurlandabúans þótt
erfitt sé að sjá hann oftar fyrir sér
undir merkjum Zorró. Zeta-Jones
gerir það sem ætlast er til af henni; er
fallegur sviðsmunur. Búningar, leik-
myndir og tökustaðir eru óaðfinn-
anleg en grunn.
Goðsögnin um Zorró er í svipuðum
dúr, þokkaleg skemmtun en ekkert
stórvirki. Ábúðarmikil, hröð og litrík
en skortir þéttari sögu utan um vel
gerðar brellur og fljúgandi fimleg
skylmingaatriði sem minna á Erroll
sáluga Flynn á góðum degi. Senu-
þjófurinn er hins vegar Chinlund í
hlutverki erkiþrjótsins McGivens,
hann sjáum við örugglega í ófáum
skálkshlutverkum næsta áratuginn,
jafnvel næstu Zorró-mynd, með eða
án Banderas.
Óhræddur en mæddur Zorró
„Senuþjófurinn er Chinlund í hlutverki erkiþrjótsins McGivens …“
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Smárabíó, Regn-
boginn, Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: Martin Campbell. Aðalleik-
arar: Antonio Banderas, Catherine Zeta-
Jones, Rufus Sewell, Nick Chinlun, Julio
Oscar Mechoso, Shuler Hensley. 126
mín. Bandaríkin. 2005.
Goðsögnin um Zorro (The Legend of
Zorro) Sæbjörn Valdimarsson
VINSÆLASTA stúlkan, snyrti-
vörustúlkan, herra fatabúð,
sokkabuxnastúlkan, gos-
drykkjarstúlkan, og aðrir hefð-
bundnir titlar sem keppendum í
fegurðarsamkeppnum hlotnast,
fengu að víkja fyrir stílfærðri
útgáfu á laugardaginn.
Tilefnið var útgáfa bók-
arinnar Brosað gegnum tárin –
Fegurðarsamkeppnir á Íslandi
eftir Sæunni Ólafsdóttur.
Ríkjandi fegurðardrottning Ís-
lands, Unnur Birna Vilhjálms-
dóttir, tók við eintaki úr hendi
Sæunnar í bókabúð Máls og
menningar við Laugaveg.
Starfsmenn búðarinnar mynd-
uðu fallegan bakgrunn og báru
borða með titlum á borð við;
skáldsagnagyðjan, stúlkan með
eldspýturnar, herra menning,
ljóðafljóðið, maðurinn með svör-
in og kiljustúlkan.
Í bókinni er fjallað um sögu
fegurðarsamkeppna á Íslandi,
en í fréttatilkynningu frá Eddu
útgáfu kemur fram að Íslend-
ingar séu áreiðanlega fallegasta
fólk í heimi sé miðað við höfða-
tölu – að minnsta kosti ef marka
má fjölda Íslendinga sem tekið
hafa þátt í svoleiðis keppni.
Morgunblaðið/Sverrir
Unnur Birna fær fyrsta eintak afhent frá höfundi.
Fallegust miðað
við höfðatölu
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
DAUÐINN er í seilingarfjarlægð í Voces inocentes,
sem gerist í smábæ í El Salvador á 9. áratugnum.
Landið logar í ófriði, þorpsbúar eru sérlega illa í
sveit settir, það er síðasta vígi stjórnarhermannanna
fyrir uppreisnarmönnum FMLN, því handan þess er
stjórnaraðsetrið í höfuðborginni, San Salvador.
Meðal hrjáðra þorpsbúa eru Kella (Varel), ung,
einstæð móðir eftir að bóndi hennar kvaddi til að
leita gæfunnar í Bandaríkjunum. Síðan hefur ekkert
til hans spurst. Hún er harðdugleg saumakona sem
reynir að sjá börnunum sínum þremur farborða og
halda fjölskyldunni saman með ráðum og dáð. Þorpið
er lítið annað og meira en liðónýtir kumbaldar sem
halda hvorki vatni né vindi, hvað þá heldur gegnd-
arlausri skothríðinni sem stendur flestar nætur á
milli hinna stríðandi herja. Þá nýtur Kella hjálpar
Chava (Padilla), elsta drengsins, sem reyndar er að-
eins 11 ára, en hugrakkur og skarpur snáði, mikið
mannsefni.
Undir kúlnahríðinni hreiðra þau um sig undir rúm-
dýnunum, ásamt yngri systkinunum tveimur.
Næturnar eru skelfilegar en dagarnir eru jafnvel
enn hryllilegri því það er aldrei að vita hvenær
stjórnarhermennirnir koma næst í þorpsskólann til
að hneppa í herþjónustu þau börn sem orðin eru tólf
ára.
Mandoki sannar að hann er enn sem fyrr leikstjóri
sem kann að segja frá og fjalla um mikilvæg efni sem
skipta máli. Hann var kominn ofan í fúlasta pytt
Hollywood (Message in a Bottle), ef einhver man
hana, en hafði áður gert nokkrar stórsnjallar myndir,
m.a. Gaby; A True Story, sem fáir vita af, en var síst
síðri en My Left Foot, sem Sheridan nánast kópíer-
aði og var margverðlaunaður fyrir, tveimur árum síð-
ar.
Önnur skelfileg mynd, heimildamyndin Lost
Children – Týndu börnin, sem sýnd var á nýyfirstað-
inni AKR, kemur samstundis upp í hugann. Nafn
hennar vísar til ungmenna, einkum á aldursbilinu 8–
14 ára, sem árlega er rænt í þúsundatali af uppreisn-
armönnum í Úganda. Þau eru auðsveip og nýtast vel
ribböldunum sem kenna þeim að handleika dráps-
vopn og nota þau síðan í fremstu víglínu. Sami við-
bjóðurinn er upp á teningnum í El Salvador, og því
miður víðar. Í myndarlok Voces inocentes kemur
fram að talið er að um 400.000 börn séu nauðug not-
uð sem drápstól í heiminum í dag.
Báðar eru myndirnar mikilvægari en flestar aðrar,
því þær segja, á sinn ólíka hátt, frá hryllilegum glæp-
um sem framin eru í dag á börnum, þau rænd æsku
og sakleysi og oftast lífinu áður en það er hafið.
Mandoki undirstrikar skelfinguna í þorpssamfélag-
inu með kátlegum atriðum og hlýjum sólargeislum
sem ná að skína inn í þetta jarðneska víti. Hann lýsir
móðurástinni á stríðstímum og hugrekki barna gagn-
vart öllu því versta í mannskepnunni betur en mann
rekur minni til að hafa áður séð. Hlífir okkur ekki
frekar en krossviður húsanna kúlnaregninu. Voces
innocentes er martröð sem okkur ætti að bera skylda
til að upplifa.
Þorpsklerkurinn segir sem svo að fólk skilji ekki
þann guð sem leyfi slíkt ástand og bendir aftur á
móti á að það ætti sér ekki stað ef menn lifðu sam-
kvæmt boðorðunum. Svo mörg eru þau orð.
Börn og dauði
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: IIFF
Leikstjóri Luis Mandoki. Aðalleikendur: Carlos Pardilla, Leonor
Varela, Xuna Primus, José Maria Yazpik, Daniel Gimnés Casho.
120 mín. Mexíkó, Bandaríkin, Púertóríkó. 2004.
Raddir sakleysingjanna (Voces inocentes) Sæbjörn Valdimarsson
„Mandoki sannar að hann er enn sem fyrr leikstjóri
sem kann að segja frá og fjalla um mikilvæg efni,“ seg-
ir gagnrýnandi um leikstjórann, þótt hann hafi áður
verið kominn „ofan í fúlasta pytt Hollywood“.