Morgunblaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FANGABÚÐIR CIA Bandaríska dagblaðið The Wash- ington Post sagði frá því í gær, að bandaríska leyniþjónustan, CIA, væri með leynilegar fangabúðir í Austur-Evrópu og víðar og þangað væru fluttir meintir hryðjuverka- menn. CIA og Bandaríkjastjórn neita að tjá sig um þetta en Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkja- forseti, segir Bush-stjórnina fótum troða þau gildi, sem áður hafi verið höfð í heiðri í Bandaríkjunum. Tékk- nesk stjórnvöld segjast hafa hafnað beiðni Bandaríkjamanna um búðir af þessu tagi og Ungverjar segja, að við þá hafi ekki verið rætt. Haft er eftir heimildum, að Bandaríkja- mönnum hafi orðið betur ágengt annars staðar í A-Evrópu. Leynilegir fangaflutningar Flugvél með sama kallnúmer og vél sem erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um í tengslum við leynilega fangaflutninga bandarísku leyni- þjónustunnar CIA fór fimm sinnum um íslenska lofthelgi á árinu 2003. Tvisvar var hún á leiðinni til flug- valla í Austur-Evrópu en þrisvar á leið til Washington. VÍS í útrás Vátryggingafélag Íslands hefur keypt 54% hlutafjár í breska trygg- ingafélaginu IGI Group og varð þar með fyrst íslenskra tryggingafélaga til að eignast meirihluta í erlendu tryggingafélagi. Vímuefnanotkun minnkar Áfengisdrykkja 9. og 10. bekkinga grunnskólans heldur áfram að minnka milli ára samkvæmt nýrri rannsókn unninni af Rannsóknum og greiningu. Þar kemur einnig fram að daglegar reykingar drógust saman milli áranna 2004 og 2005, en hassneysla og -fikt stendur í stað. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %       &         '() * +,,,                    VERALDAR“ Ó lafur G unnarsson, rithöfundur „BESTA BÓKVERALDAR“ www.jpv.is HUGMYND Gísla Jafetssonar um fleytitíð varð hlutskörpust í hug- myndasamkeppni Samgönguviku 2005 sem Reykjavíkurborg og Rás 2 efndu til. Afhenti Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, Gísla verðlaunin í gær um leið og hún af- hjúpaði nýtt göngu- og hjólreiðakort á gatnamótum göngustígs við Suðurlandsbraut og Langholtsveg. Sagði Gísli að hugmynd sín hefði kviknað þegar hann sat fastur í um- ferðinni einn morguninn. „Umferð- armannvirkin eru ekki fullnýtt allan liðlangan daginn og þá datt mér í hug að hafa breytilegan vinnutíma til þess að dreifa álaginu því skól- arnir byrja allir á sama tíma,“ sagði Gísli aðspurður um hugmyndina. Leggur hann því til að skólar og aðr- ar stofnanir Reykjavíkurborgar hefji t.d. kennslu á mismunandi tím- um, því það sé staðreynd að stórum hluta skólabarna sé ekið í skóla á hverjum degi. Þá sér hann fyrir sér að fyrirtæki hafi breytilegan vinnu- tíma til að gera fólki þetta kleift. Segir í umsögn dómnefndar að hug- myndin hafi víðtæk áhrif á umferð- arálag og umferðarflæði í borginni. Önnur verðlaun hlaut Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri Langholts- skóla, fyrir hugmynd um hjólagrind- ur við skóla. Sagðist Hreiðar vilja laga umferðina í kringum skóla með því að hvetja börn og fullorðna til þess að koma gangandi eða hjólandi í skólann þegar færi gefst og eins til að hægja á og minnka bílaumferð. Helgi Guðnason hlaut þriðju verð- laun fyrir hugmynd um sporvagna- kerfi í Reykjavík. Stungið er upp á því að á væntanlegri Sundabraut verði svæði fyrir sporvagn sem gangi milli Mosfellsbæjar og Lækjartorgs um Grafarvog. Alls barst á fimmta tug tillagna frá hugmyndaríkum borgarbúum og voru þær afar fjölbreyttar. Sagði borgarstjóri margar þeirra nú þegar komnar í farveg hjá borginni. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hreiðar Sigtryggsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, Gísli Jafetsson og Helgi Guðnason við afhendingu verðlauna í hugmyndasamkeppni Samgönguviku 2005. Rúmlega 40 fjölbreyttar hugmyndir bárust í keppnina. Fleytitíð liðki fyrir samgöngum LÖGREGLUMENN frá embætti lögreglustjórans á Seyðisfirði gerðu í síðustu viku húsleit í nokkrum vinnubústöðum við Kárahnjúka, í samstarfi við og eftir ábendingum frá verktakafyrirtækinu Impregilo. Við leit í einum skálanum fannst um- talsvert magn af fíkniefnum, eða 100 grömm af ætluðu hassi í sölupakkn- ingum, sem talið er að tilheyri starfs- manni fyrirtækisins. Starfsmaður- inn var í fríi en var handtekinn á Egilsstöðum sl. þriðjudag. Þá var hann með tæp 300 grömm af ætluðu hassi í fórum sínum sem einnig var í sölupakkningum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglustjór- anum á Seyðisfirði. Þar kemur jafn- framt fram að hinn handtekni hafi verið í yfirheyrslum bæði þriðjudag og miðvikudag, en krafist hefur verið farbanns yfir honum. Við aðgerðir við Kárahnjúka í síðustu viku naut lögreglan aðstoðar lögreglumanns með fíkniefnahund. Í yfirlýsingu sem Impregilo sendi frá sér, er ítrekað að stefna fyrirtæk- isins kveði skýrt á um að fíkniefna- notkun starfsmanna sé ekki liðin. Verði starfsmenn uppvísir að neyslu fíkniefna er það brottrekstrarsök. Fram kemur, að á þeim rúmu tveimur árum, sem Impregilo hafi starfað á Íslandi, hafi samstarf fé- lagsins við lögregluyfirvöld verið gott. Vakni grunur innan fyrirtæk- isins um að starfsmenn brjóti lands- lög sé lögreglan skilyrðislaust kvödd á staðinn. Segist Impregilo fagna ár- angri samstarfsins við yfirvöld, jafn- framt því að harmað er að grunur leiki á að starfsmaður félagsins hafi brotið lög með jafn vítaverðum hætti og hér sýnist. Hald lagt á fíkniefni við Kárahnjúka MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Íslands hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með viðbrögð atvinnurek- enda og ríkisstjórnar við áherslum ASÍ til lausnar á þeirri stöðu sem er í viðræðum um endurskoðun kjarasamninga. Fulltrúar ASÍ áttu í gærmorgun fund með þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar og kváðust þeir ekki ánægðir með niðurstöðu þess fundar. Á fundi miðstjórnar var rætt um stöðuna í viðræðum við atvinnurekendur og ríkisstjórn vegna endur- skoðunar kjarasamninga. Miðstjórnarmenn lýstu þar yfir miklum vonbrigðum með viðbrögð at- vinnurekenda og ríkisstjórnar við áherslum ASÍ til lausnar á þeirri stöðu sem er í viðræðum um end- urskoðun kjarasamninga. Á fundi ASÍ með fulltrúum ríkisstjórnarinnar var rætt um áherslur verkalýðshreyfingarinnar í endurskoðun kjarasamninga. Að sögn Gylfa Arn- björnssonar, framkvæmdastjóra Alþýðusambands Íslands, eru línur að skýrast í viðræðunum. Farið var opinskátt yfir stöðuna, vilja og sjónarmið við- ræðuaðila. Þann 15. nóvember næstkomandi þarf viðræðu- nefnd sem metur forsendur kjarasamninga að skila niðurstöðu um hvort forsendur teljist hafa staðist eða ekki. Segir Gylfi að ljóst sé að forsendur kjarasamninga hafi ekki staðist en ákvæði sé um að hægt sé að semja um frávikin. Ef ekki næst samkomulag þar um öðlast aðildarfélögin heimild til að segja upp kjarasamningum. Enn skortir verulega á samstarfsvilja Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ segir í samtali við Morgunblaðið að SA og ríkisstjórninni hafi ver- ið gerð grein fyrir stöðu mála eins og hún snýr að Alþýðusambandinu. „Miðstjórnin mat stöðuna í viðræðunum við atvinnurekendur og ríkisstjórn og er þeirrar skoðunar að verði ekki breyting á þeirri stöðu blasi við að reyna á uppsagnarákvæðið,“ seg- ir Grétar. „Við höfum hins vegar enn tíma til fimm- tánda nóvember til að semja um þessi mál. Samn- ingsaðilar gengu út frá því við samningsgerðina að verðbólga yrði um 2,5 prósent, en raunin er allt önnur í dag. Það eru engar deilur meðal samnings- aðila um það. Viðfangsefnið er að brúa þetta bil og til þess þurfa bæði SA og ríkisstjórnin að mæta til leiks með efni í þá brúargerð, en enn skortir veru- lega á það. Ef menn ná ekki endum saman reynir á uppsagnarákvæðið í kjarasamningunum.“ Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, segir að ríkis- stjórnin eigi einnig viðræðufundi með fulltrúum at- vinnulífsins og áfram verði rætt við þessa aðila á næstunni. Miðstjórn ASÍ ósátt við viðbrögð ríkisstjórnar og atvinnurekenda Stefnir í uppsögn samninga Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært fimm manns á aldrinum 16 til 26 ára fyrir frelsissviptingu og rán þegar starfsmanni Bónuss á Sel- tjarnarnesi var rænt, stungið í skott á bíl og ekið að hraðbanka og neyddur til að taka út 33 þúsund kr. og afhenda ákærðu. Þeir eru líka ákærðir fyrir að berja fórnar- lambið og nota ræsibyssu við ránið. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og neita þrír piltanna alfarið sök en tveir játa sök að hluta. Aðalmeðferð hefst 21. nóvember. Ákærðir fyrir að ræna starfsmanni EKIÐ var á eldri konu fyrir utan verslun á Akranesi í gærdag, en mikil umferð var á svæðinu og gekk konan í veg fyrir bifreið. Að sögn lögreglunnar er ekki vitað nánar um meiðsl hennar en hún var meðvitundarlítil þegar lögreglu bar að. Konan var flutt á sjúkra- húsið á Akranesi til aðhlynningar. Ekið á eldri konu á Akranesi Í dag Fréttaskýring 8 Viðhorf 32 Úr verinu 14 Umræðan 32/40 Erlent 16/19 Bréf 39/40 Minn staður 20 Minningar 41/43 Höfuðborgin 22 Myndasögur 48 Akureyri 22 Dagbók 48/51 Suðurnes 24 Staður og stund 50 Landið 24 Leikhús 52 Menning 25, 54/57 Bíó 54/57 Daglegt líf 26/27 Ljósvakamiðlar 58 Neytendur 28/29 Veður 59 Forystugrein 30 Staksteinar 59 * * * TÓLF kindur drápust þegar ekið var á þær við bæinn Eyjanes í Hrútafirði á þriðjudagskvöld. Vörubíll mun hafa ekið á fjórar kindur í fyrra skiptið og jeppi á átta kindur í síðara skiptið. Talið er að jafnvel hafi fleiri kindur drepist, kindur sem hlupu særðar út í myrkrið, en málið er í athugun hjá lögreglunni á Blönduósi. Ekið á 12 kindur í Hrútafirði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.