Morgunblaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 49
DAGBÓK
Traustur kaupandi óskar eftir raðhúsi við Boðahlein.
Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
RAÐHÚS VIÐ BOÐAHLEIN
ÓSKAST
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Opinn dagur verður í Listaháskóla Íslandsá morgun, föstudag, frá 10 til 14. ÁlfrúnG. Guðrúnardóttir er kynningarstjóriLHÍ: „Þetta er í annað sinn sem við
höldum opinn dag hjá öllum deildum skólans. Opni
dagurinn er á virkum degi svo hægt sé að fá lifandi
innsýn í alla starfsemina sem fram fer innan
veggja LHÍ enda kennsla í gangi, verkstæði opin
og nemendur og kennarar á svæðinu. Við viljum
sýna starfsemi Listaháskólans eins og hún er dag-
lega.
Liðin eru 6 ár frá stofnun Listaháskóla Íslands
en kennsla fer fram á þremur stöðum: Leiklistar-
og tónlistardeildir eru til húsa að Sölvhólsgötu 13,
myndlistardeild og kennaranám á Laugarnesi 91
og hönnunar- og arkitektúrdeildir í Skipholti 1.
„Svipaður háttur verður á opna deginum hjá
myndlistardeild og hönnunardeild: tekið er á móti
gestum og þeir leiddir um deildina, stuttur fyr-
irlestur haldinn um starfsemina og nemendur sýna
inntökumöppur sínar frá fyrra ári og verk nem-
enda verða til sýnis.“ Í þessu sambandi nefnir Álf-
rún að inntökupróf eru við allar deildir Listahá-
skólans og þarf að skila inn inntökumöppum til að
mega þreyta inntökupróf. Ekki eru skýr fyrirmæli
um innihald mappnanna og því mjög gagnlegt fyrir
þá sem hyggja á að sækja um skólavist að sjá
möppur þeirra sem komust inn á árunum á undan.
„Við Leiklistardeildina er leikaranám kynnt og
auk þess nýtt nám: „Fræði og framkvæmd“ annars
vegar og eins árs diplómanám í dansi hins vegar.
Segja má að með þessum breytingum í leiklist-
ardeildinni hafi bylting orðið í leiklistarkennslu á
háskólastigi á Íslandi,“ segir Álfrún.
„Tónlistar- og leiklistardeildir eru með nokkuð
gagnvirka dagskrá, en sami háttur var á í fyrra og
vakti geysilega lukku. Meðal annars er boðið upp á
n.k. „míní-inntökupróf“ milli kl. 10 og 11 þar sem
gestir fá að spreyta sig í raddæfingum, spuna og
leiktúlkun. Venjuleg inntökupróf taka vitaskuld
lengri tíma en þarna má fá innsýn í hvernig prófin
fara fram. Við Tónlistardeild verða síðan opnar æf-
ingar, tónleikar, sýnishorn úr hljóðverkum og
fleira.“
Opni dagurinn stendur eins og fyrr segir frá 10
til 14: „Allir eru velkomnir og dagskráin sér-
staklega ætluð þeim sem vilja kynna sér námið.
Sérstaklega beinum við sjónum okkar að fram-
haldsskólanemum sem eru að velta vöngum um
hvað þeir eiga að taka sér fyrir hendur eftir stúd-
entspróf, en einnig að fólki sem einfaldlega er að
spá í listnám, á hvaða aldri sem það er.“
Fyrir þá sem ekki vilja missa af einstökum dag-
skrárliðum má sjá dagskrá dagsins í heild sinni á
heimasíðu Listaháskólans: www.lhi.is.
Menntun | Starfsemi Listaháskóla Íslands kynnt áhugasömum
Opið hús hjá Listaháskólanum
Álfrún G. Guðrún-
ardóttir er kynning-
arstjóri LHÍ. Hún er
með B.A. próf í íslensk-
um bókmenntum og
hefur lokið V. stigi í
söng frá Söngskólanum
í Reykjavík. Álfrún er
með M.A. próf í list-
rænni stjórnun og
menningarfræðum með
leikhúsfræði sem auka-
fag. Álfrún starfaði sem deildarstjóri Lista-
deildar í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og
hefur unnið við ýmis störf tengd menningu og
listum, s.s. sem kynningar- og markaðsstjóri
hjá Leikfélagi Reykjavíkur, útgáfu, textavinnu,
kvimyndagerð og kennslustörf í framhalds- og
háskólum.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Um senatora og júníora
TVEIR kandídatar bítast um forræði
á borgarstjórnarflokki D-listans í
Reykjavík um þessar mundir. Ég læt
þau hvolpalæti afskiptalaus en vil
samt minna á gamlan sannleika:
Í nánast öllum borgríkjum sög-
unnar hafa senatorar setið við stjórn-
völinn vegna þekkingarinnar sem
reynslan ein getur lagt af mörkum og
júníora skortir.
Senatorar stýra borgum á meðan
júníorar skoppa gjörðum.
Ásgeir Hannes Eiríksson,
fyrrum varaborgarfulltrúi og
þingmaður Reykvíkinga.
Unglingar og Útvarp Saga
ÉG VIL taka undir það sem Kristján
skrifar í Velvakanda sl. mánudag.
Þar skrifar hann um allt þetta korn-
unga afgreiðslufólk sem afgreiðir í
stórmörkuðum. Ég er honum sam-
mála og finnst leiðinlegt orðið að
versla í stórmörkuðum því ekki er
hægt að fá neinar upplýsingar um
vörur frá þessum ungu krökkum því
þau vita ekkert um vörurnar. Þetta
er ekki eins og þegar fullorðið fólk er
við afgreiðslu. Þessi krakkagrey gera
það sem þau geta en þetta er bara
ekki boðlegt að svona afgreiðslufólk
sé í öllum þessum stórmörkuðum.
Eins er ég sammála því sem hann
skrifar um snyrtimennsku unglinga,
margir þeirra eru með göt um allan
skrokkinn.
Eins vil ég koma því á framfæri að
ég er mjög ánægð með útvarpsstöð-
ina Sögu, margt skemmtilegt og
fróðlegt sem þar kemur fram, og
hvet ég fólk til að hlusta á þessa stöð.
Frábært fólk sem þar vinnur.
Dagný.
Vantar Mósaik
ÉG vil koma því á framfæri að ég er
mjög óánægð með nýja Kastljósið,
finnst vanta svo mikið þegar vantar
mósaik-þáttinn og stjórnandann Jón-
atan Garðasson. Mósaik var frábær
þáttur og sakna ég hans mikið.
Aðdáandi.
Vantar töflur yfir
almennar tryggingar
VIÐ vorum hérna nokkrir eldri borg-
arar í Kópavogi að ræða um að það
vantaði í Morgunblaðið töflu yfir al-
mennar tryggingar og helstu bóta-
flokka eins og áður birtist í blaðinu.
Finnst okkur bagalegt að geta ekki
fylgst með þessu í blaðinu og erum
mjög óhress með þetta.
Eldri borgari.
Ung læða í óskilum
íHafnarfirði
SVÖRT- og brúnyrjótt ung læða
fannst við Úthlíð í Hafnarfirði, laug-
ardagskvöldið 29. október. Mjög gæf
og greinilega heimilisköttur en án ól-
ar og eyrnamerkingar. Vinsamlegast
hafið samband í síma 822 9006 ef þið
teljið að þetta sé læðan ykkar.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. cxd5 exd5 5.
g3 Rc6 6. Bg2 Rf6 7. O-O Be7 8. Rc3
O-O 9. Bg5 cxd4 10. Rxd4 h6 11. Be3
He8 12. Hc1 Bf8 13. Rxc6 bxc6 14. Ra4
Bd7 15. Bc5 Bxc5 16. Rxc5 Bg4 17. He1
Da5 18. a3 Db5 19. f3 Bf5 20. Dd2 a5 21.
Bf1 Db6 22. e3 Hab8 23. Bd3 Bxd3 24.
Rxd3 Rd7 25. b4 axb4 26. axb4 Re5 27.
Rxe5 Hxe5 28. Kf2 He6 29. Hb1 Dd8
30. Dd4 De7 31. Hec1 He8 32. Hb3 Dg5
33. Hbc3 Dh5 34. Kg2 Df5 35. H1c2
Staðan kom upp í fyrri hluta Ís-
landsmóts skákfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Menntaskólanum í Hamra-
hlíð. Serbneski stórmeistarinn Vladim-
ir Kostic (2502) hafði svart gegn Linus
Olsson (2354). 35. … Hxe3! 36. Hxe3
Dxc2+ 37. Kh3 Hxe3 38. Dxe3 Df5+
svartur er nú sælu peði yfir og knúði
fram sigur eftir 39. g4 De6 40. Df4 Df6
41. De3 h5 42. Dd3 hxg4+ 43. fxg4
Dh6+. Kostic þessi tefldi fyrir A-sveit
Skákfélags Akureyrar en að fjórum
umferðum loknum hefur liðið 15½
vinning í 5. sæti.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Hlutavelta | Bestu vinkonurnar Ing-
unn Embla Kjartansdóttir og Guðný
Ósk Karlsdóttir héldu nýlega hluta-
veltu á Glerártorgi á Akureyri til
styrktar hjartveikum börnum og söfn-
uðust 6.310 krónur.
Morgunblaðið/Kristján
ÞJÓÐMINJASAFN Íslands
og Kvikmyndasjóður Skaft-
fellinga hafa tekið höndum
saman um að sýna heim-
ildakvikmyndina Í jöklanna
skjóli sem Vigfús Sigur-
geirsson ljósmyndari tók á
árunum 1952-1954 í Skafta-
fellssýslum. Skýringartexta
samdi Jón Aðalsteinn Jónsson
og er hann jafnframt flytjandi
textans. Kvikmyndin er í all-
mörgum þáttum og eru tveir
til þrír þættir sýndir hverju
sinni.
Kvikmyndin er sýnd í fyr-
irlestrasal Þjóðminjasafns Íslands
við Suðurgötu fyrsta fimmtudag
hvers mánaðar kl. 17. Fimmtudag-
inn 3. nóvember kl. 17 verða þessir
þættir á dagskrá: Samgöngur: flutn-
ingar á sjó. Samgöngur: flutningar á
landi og í lofti
Síðasti hluti kvikmyndarinnar
verður sýndur 1. desember. Þá
verða þessir þættir á dagskrá: Kola-
gerð. Meltekja.Úr Mýrdal í Lón.
Að lokinni kvikmyndasýningu
hverju sinni verður safnið opið gest-
um til kl. 21 og ennfremur Kaffistofa
og Safnbúð. Sérfræðingur Þjóð-
minjasafnsins mun leiða gesti um þá
hluta grunnsýningar safnsins sem
tengjast efni kvikmyndarinnar
hverju sinni.
Í jöklanna skjóli
Uppskipun úr vöruskipinu Skaftfellingi við
brimsand í Öræfum. Ljósmynd Helgi Ara-
son frá Fagurhólsmýri. Þjms. HA-653.
HM í Portúgal.
Norður
♠KG654
♥G7 N/NS
♦874
♣Á42
Vestur Austur
♠D9872 ♠ –
♥KD83 ♥1096
♦ÁDG6 ♦10532
♣ – ♣D109765
Suður
♠Á103
♥Á542
♦K9
♣KG83
Í spili gærdagsins sáum við virki-
lega djúpa svíningu hjá Dananum
Steen Möller. Enska landsliðskonan
Kitty Teltscher gerði þó gott betur í
spili dagsins, en hún vann þrjú grönd
með dýpstu svíningu sem hægt er að
taka:
Vestur Norður Austur Suður
– Pass Pass 1 hjarta
1 spaði Pass Pass Dobl
2 tíglar Dobl Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Kitty var í suður og opnaði á Acol-
hjarta, sem lofar aðeins fjórlit. Vest-
ur stakk að sjálfsögðu inn spaðasögn
og Kitty hélt sögnum á lífi með dobli.
Hún gerði svo vel í því að taka út úr
dobli makkers á tveimur tíglum í tvö
grönd, sem norður lyfti í þrjú.
Vestur kom út með tíguldrottn-
ingu og suður fékk á kónginn. Aug-
ljóslega fást átta slagir með því að
svína í spaða og laufi, en það er djúpt
á þeim níunda. Sér lesandinn ein-
hverja glætu?
Kitty spilaði spaðaþristi í öðrum
slag og vestur svaf á verðinum og
fylgdi lit með tvistinum. Spaðafjar-
kinn var látinn duga úr borði og
hann átti slaginn! Og það var níundi
slagurinn og sá mikilvægasti.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Í NÓVEMBER munu höfundar
Eddu – útgáfu líkt og undanfarin ár
lesa úr nýjum verkum á Súfist-
anum, Laugavegi 18, öll fimmtu-
dagskvöld kl. 20. Í kvöld lesa Gyrð-
ir Elíasson, Þorsteinn frá Hamri og
Oddgeir Eysteinsson les úr bók
Þórarins Eldjárn.
Ljóðakvöld á Súfistanum