Morgunblaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.ENGINN
SLEPPUR
LIFANDI
FARÐU TIL
HELVÍTIS!
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta og
hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta
og hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
450
kr.
Sýnd kl. 3.50Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 4 og 6
Africa
United
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
DREW
BARRYMORE
JIMMY
FALLON
"Fyrirtaks
skemmtun
sem hægt er
að mæla með"
MMJ - kvikmyndir.com
“Fótfrá
gamanmynd”
Variety
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
VJV Topp5.is
Kóngurinn og Fíflið, XFM
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45
kl. 5, 8 og 10.45
SÁ BESTI Í BRANSANUM
ER MÆTTUR AFTUR!
S.V. / MBL
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
Ó.H.T. Rás 2
Ó.H.T. Rás 2
H.J. Mbl.
(Besti leik-
stjóri, Besta
heimildarmynd,
Besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
(Besti leikstjóri, Besta
heimildarmynd, Besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
Sími 564 0000
Miðasala opnar kl. 15.30i l r l. .
S.k. Dv
PUSHER 2
Forsýnd kl. 8
FORSÝNING
F
yrir 16 árum stofnuðu
fjórir strákar á Selfossi
hljómsveitina Skíta-
móral, þá 13 og 14 ára
gamlir. Þetta voru þeir
Gunnar Ólason, Arngrímur Fannar
Haraldsson, Jóhann Backmann og
Herbert Viðarsson. Í dag senda þeir
fjórmenningar frá sér plötuna Má ég
sjá.
Það liggur beint við að spyrja þá
Gunnar og Adda Fannar hvort þeir
hafi búist við því að starfa enn undir
merkjum Skítamórals 16 árum eftir
stofnun sveitarinnar.
„Það hefur nú kannski blundað
einhverstaðar undir, allavega vonin
um það,“ byrjar Gunnar.
„Ég held að við höfum séð fyrir
okkur að starfa við tónlist í framtíð-
inni, en ekki endilega að vera enn
saman fjórir undir merkjum Skíta-
mórals,“ samsinnir Addi Fannar.
„Við vorum kannski ekkert mikið
að hugsa um þetta þá, vorum bara
venjulegir unglingar í félagsmiðstöð
sem hugsuðu bara um einn dag í
einu,“ segir Gunnar.
Skítamórall hefur borið sama nafn
frá upphafi, en nafninu gaukaði Ein-
ar Bárðarson að bróður sínum, Adda
Fannari, á sínum tíma. Einar hefur
verið viðloðandi sveitina frá upphafi,
einskonar fimmti liðsmaður sveit-
arinnar, eða hvað?
„Jú eða hann hefur verið okkur
innan handar í gegnum tíðina,“ segir
Gunnar. „Hann hefur aðstoðað okkur
við að koma okkur á framfæri og
samið fyrir okkur lög og svona.“
Allir í Músíktilraunum
Þó hljómsveitin hafi frá upphafi
samið eigið efni var tónlist til spil-
unar framanaf sótt í innihald plötu-
safna foreldra fjórmenninganna.
„Þetta var hipparokk sem var vin-
sælt þá, og er raunar enn,“ segir
Addi Fannar. „Við hlustuðum á Deep
Purple, Led Zeppelin, The Doors og
svo Cult, sem var algerlega út úr kú.“
Skítamórall hefur gengið í gegnum
talsverðar mannabreytingar á ár-
unum 16. „Við fengum til dæmis nýj-
an söngvara í eitt ár meðan Gunnar
gekk í gegnum raddbreytingar eins
og strákar gera á þessum árum,“
upplýsir Addi Fannar. „Eftir 1994
lék Karl Þór Þórðarson með okkur
og sumarið 1997 kom Einar Ágúst til
liðs við sveitina.“
„Við höfum alltaf verið fjögurra
manna kjarni og höfum svo verið
með smá tilraunastarfsemi í kringum
það,“ segir Gunnar.
Það er kannski ekki á allra vitorði
að Skítamórall reyndi fyrir sér á
Músíktilraunum Tónabæjar árið
1992. „Það var árið sem Kolrassa
krókríðandi vann. Við vorum þarna í
harðri úrslitabaráttu,“ segir Gunnar.
„Við vorum eiginlega eina bandið
fyrir utan Kolrössu í keppninni sem
var ekki að leika þungarokk sem var
mjög vinsælt á þessum árum. Þarna
var meðal annarra sveitin Niturbas-
arnir sem síðar breyttust í Sólstrand-
argæjana.“
„Svo var reyndar líka þarna hljóm-
sveit sem síðar varð Leaves. Það hafa
allir farið í Músíktilraunir einhvern
tímann,“ segir Addi Fannar.
Spilagleðin í fyrirrúmi
Gunnar segir að ákveðinn vendi-
punktur hafi orðið í starfsemi sveit-
arinnar árið 1994.
„Þá gerðum við okkur grein fyrir
því að ef við ætluðum að gera þetta
að lifibrauði okkar gengi kannski
ekki til lengdar að spila bara þungt
rokk. Fyrsta kvöldið sem við spil-
uðum í Gjánni á Selfossi settum við
saman „Syrpuna“ sem er kannski
okkar þekktasta lag hingað til. Þetta
lagðist bara svo vel í fólk að við
ákváðum að einbeita okkur að þessu
þó svo að eitt og eitt rokklag slæddist
alltaf með inn á milli,“ segir hann.
Sveitin hefur tvisvar þótt best á
balli á hlustendaverðlaunum FM 95,7
enda segja þeir spilagleðina ávallt
hafa verið í fyrirrúmi hjá sér.
„Þegar maður kemur upp á svið
verður maður að gefa af sér 100%.
Mér finnst allavega ekkert gaman að
sjá sveitaballabönd bara standa uppá
sviði og hreyfa sig varla. Það verður
að vera aksjón í þessu, það skilar sér
svo bæði í tónlistinni og til áhorf-
enda,“ segir Gunnar.
Eftir að hafa túrað heilt sumar
með Sálinni hans Jóns míns árið 1996
var Skítamórall beðinn um að fara
fyrir skemmtiatriðum á Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum ári síðar ásamt
Sálinni. Fimmmenningarnir höfðu þá
fengið sér umboðsmann í fyrsta sinn
enda hjólin tekin að snúast á fullum
hraða
„Hlutirnir gerðust svo hratt að við
vorum í raun hættir að ráða við
þetta,“ segir Addi Fannar. „Hljóm-
sveitin og allt sem henni fylgdi var
orðin svo mikil útgerð að við
ákváðum að fá utanaðkomandi aðila
til að sjá um allt þetta fyrir okkur.
Við einbeittum okkur bara að spila-
mennskunni, en við vorum að spila
3-4 sinnum í viku á þessum tíma.“
Síðustu ár liðinnar aldar voru
sannkölluð gullaldarár í sögu sveit-
arinnar. Platan Nákvæmlega kom út
árið 1998 og fór samstundis í gull-
sölu. Á plötunni var að finna lagið
„Farinn“ sem varð fljótt vinsælasta
lag landsins og ómaði títt og ótt á öll-
um öldum ljósvakans.
„Það varð eiginlega allt vitlaust,“
segir Addi Fannar.
„Þetta gerðist í raun allt á einni
nóttu,“ samsinnir Gunnar. „Þetta var
allt saman mjög skemmtilegt og lifir
sterkt í minningunni að vera staddur
útá landi og heyra þetta lag, eitt ást-
sælasta lag þjóðarinnar, hljóma. Ég
held að enginn okkar hafi gert sér
grein fyrir hversu vinsælt lagið né
platan yrði.“
Í kjölfar aukinna vinsælda varð
Skítamóralsbáknið sífellt stærra.
Gefin var út bók með sögu sveit-
arinnar og liðsmenn keyrðu um á
Golf-bifreiðum með einkanúmerin
Skímó 1-5. Fundu þeir ekki fyrir tals-
verðum breytingum á eigin högum í
kjölfarið.
„Jú auðvitað fundum við fyrir því.
Það var talsvert stökk að fara frá því
að vera að leika á einum stað á Sel-
fossi yfir í að vera að leika á öllum
stöðunum í bænum. Platan var vin-
sæl, lögin okkar mikið leikin í útvarpi
og brjálað að gera í spilamennsk-
unni,“ segir Gunnar. „Það breytist þó
í raun ekki mikið hjá manni sjálfum
persónulega. Þetta var alltaf það sem
okkur langaði að gera frá upphafi, að
vinna við að gera tónlist, og þarna
var loksins kominn grundvöllur fyrir
því.“
Markmiðið að leika eigin lög
Skítamórall ákvað mitt í vinsæld-
unum að ráðast í upptöku á annarri
plötu sem kom út árið 1999. Var ekki
erfitt að fylgja eftir vinsældum Ná-
kvæmlega?
„Jú auðvitað, en sú plata var í raun
ennþá vinsæl þegar hin platan kom
út. Markmiðið var í rauninni bara að
geta leikið sem mest af okkar eigin
efni á böllum. Í dag er 99% laga á
böllum hjá okkur okkar eigin lög,“
segir Addi Fannar.
Í kjölfar hinna gríðarlegu vinsælda
ákváðu hljómsveitarmeðlimir að taka
sér hvíld hver frá öðrum og hljóm-
sveitinni.
„Það var reyndar mistúlkun að við
hefðum hætt en sannleikurinn er sá
að við ákváðum að fara að einbeita
okkur að tónlistinni hver í sínu lagi.
Það var búin að vera mikil keyrsla
undanfarin ár hjá okkur og mikið um
að vera allt frá 1996,“segir Gunnar.
„Við komum svo aftur saman árið
2003 og erum í raun búnir að vera að
spila saman síðan þá með smá
hléum,“ segir Addi Fannar. „Við
pössum okkur á því núna að keyra
ekki of stíft.“
Aftur í Evróvisjón?
Það má vissulega færa rök fyrir
því að Skítamórall sé ókrýnd
Evróvisjón-hljómsveit Íslands þó svo
að þeir hafi aldrei tekið þátt undir
formerkjum sveitarinnar. Einar
Ágúst söng lagið „Tell Me“ árið 2000
og Gunnar söng „Angel“ við annan
mann árið 2001.
„Við höfum allir farið nema Addi,
það er bara eftir,“ segir Gunnar.
„Ég hef reyndar farið með tvisvar
og verið að tjaldabaki,“ upplýsir
Addi.
Þeir segja hreint ekki útilokað að
Skítamórall eigi eftir að taka þátt í
keppninni í framtíðinni. „Við værum
alveg til í það ef einhver myndi
treysta okkur fyrir laginu sínu. Við
höfum allavega reynsluna,“ segir
Addi Fannar.
Platan Má ég sjá hefur verið í bí-
gerð í rúmt ár en kemur loks í versl-
anir í dag.
„Ástæðan fyrir því að þetta er búið
að taka svona langan tíma er kannski
að við erum allir í öðrum störfum og
höfum ekki getað sinnt þessu í fullu
starfi,“ segir Gunnar. „Við vildum
gefa okkur góðan tíma í þetta þangað
til við yrðum fullkomlega ánægðir
með útkomuna.“ Sem þeir og eru og
segjast báðir mjög ánægðir með plöt-
una.
Lagasmíðar eru úr ýmsum áttum á
plötunni nýju. „Við hóuðum í ýmsa
tónlistarmenn sem hafa verið að
semja lög, Sigurjón Brink, Friðrik
Karls og Einar Bárðar og svo eigum
við Hebbi líka lög á plötunni,“ segir
Gunnar.
„Við fáum til okkar prufuupptökur
og metum svo hvort við getum gert
lögin að okkar,“ segir Addi Fannar
en þeir segja langt því frá að þeir
fjórmenningar séu alltaf sammála
um hvað virki og hvað virki ekki.
„Kannski sem betur fer því ef við
værum með sömu sýn á hlutina væri
útkoman kannski heldur einsleit,“
segir Gunnar. „Besta heildar-
útkoman verður þegar við vinnum
allir saman. Þetta er lýðræðis-
hljómsveit, þetta er ekki konungs-
veldi þar sem einn stýrir og stjórnar
enda myndi það ekki ganga upp eins
og sagan sannar.“
Platan er fáanleg í verslunum BT
frá og með deginum í dag. Útgáfu-
gigg sveitarinnar verður í heima-
bænum Selfossi á föstudagskvöldið
kemur en formlegir útgáfutónleikar
fara fram í Íslensku óperunni 1. des-
ember næstkomandi.
Við erum
lýðræðis-
hljómsveit
Ný plata með Skítamóral kemur út í dag. Birta
Björnsdóttir ræddi við Gunnar Ólason og Arn-
grím Fannar Haraldsson um ferilinn, Músíktil-
raunir og Evróvisjón.
Skítamóralsmenn standa keikir eftir 16 ára samvinnu. Jóhann, Gunnar,
Herbert og Addi Fannar.
www.skitamorall.is
birta@mbl.is