Morgunblaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Vantar - Vantar
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Er að leita að 2ja til 3ja herbergja íbúð
í lyftuhúsi, helst í Kópavogi eða
miðsvæðis í Reykjavík.
Sterkar greiðslur í boði og ríflegur
afhendingartími.
Nánari uppl. gefur Ellert Róbertsson
í síma 893 4477
eða á skrifstofu.
Tveggja hæða 310 fm
raðhús á þessum
mjög svo eftirsótta
stað. Húsið er allt ný
málað, gler og timb-
urverk á suðurhlið
nýlega endurnýjað,
6 svefnherbergi, stórt
fjölskylduherbergi,
góðar geymslur,
2 baðherbergi,
1 gestasalerni, 26 fm bílskúr með hita og rafmagni, góður og
gróinn garður, steinsnar frá frístundasvæðinu í Fossvogsdal.
VEGNA MIKILLAR SÖLU UNDANFARIÐ
VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ.
Kúrland
ÖRUGG MIÐLUN EIGNA
Lögg. Fasteignasali
Sigurður Örn
Sigurðarson
HRÓÐUR frá Hvolsvelli var valinn folald ársins hjá áhorf-
endum á árlegri folaldasýningu Hrossaræktarsamtaka Suð-
urlands sem haldin var í lok október í Ölfushöllinni. Hróður
er undan Kjarna frá Þjóðólfshaga og Eydísi frá Stokkseyri.
Alls voru 29 folöld sýnd en þau sem stóðu næst Hróðri
voru Hásteinn frá Hólum, undan Keili frá Miðsitju og Silf-
urnótt frá Selfossi, Lokkur frá Fellskoti, einnig undan Keili
og Lögg frá Fellskoti, Kolbrá frá Kjarnholtum, undan Orra
frá Þúfu og Dagrenningu frá Kjarnholtum, og Ásdís frá
Þjóðólfshaga, undan Kjarna eins og Hróður og Gloríu frá
Hala.
Við þetta tækifæri völdu Hrossaræktarsamtök Suður-
lands Hlökk frá Laugarvatni heiðurshryssu Suðurlands
2005. Hún er móðir stóðhestanna Hams, Þyrnis og Þórodds
frá Þóroddsstöðum, en hann hefur hlotið hæsta kynbóta-
dóm íslenskra kynbótahesta. Eigandi Hlakkar, Bjarni Þor-
kelsson, tók við viðurkenningunni.
Sigurður Sigurðarson í Þjóðólfshaga, sem sést hér á
myndinni, var valinn afreksknapi Suðurlands 2005. Hann
náði meðal annars þeim árangri á árinu að verða Íslands-
meistari í tölti og fjórgangi og heimsmeistari í fjórgangi.
Hlökk
heiðurshryssa
Suðurlands
HESTAMANNAFÉLAGIÐ And-
vari í Garðabæ hlaut Æskulýðsbikar
Landssambands hestamannafélaga
á formannafundi samtakanna sem
haldinn var fyrir skömmu. LH hefur
veitt bikarinn árlega því félagi sem
skarað hefur fram úr í æskulýðs-
málum á starfsárinu. Bikarinn var
gefinn af ÍSÍ árið 1996. Hesta-
mannafélagið Andvari fékk einnig
viðurkenningu á árinu sem fyr-
irmyndarfélag Íþrótta- og ólympíu-
sambands Íslands fyrir gott æsku-
lýðsstarf í gegnum árin.
Sú æskulýðsnefnd sem nú starfar
í Andvara tók þá ákvörðun strax og
hún kom saman í fyrsta sinn að
halda úti kröftugu starfi. Sigríður
Magnea Björgvinsdóttir formaður
nefndarinnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að þau sem starfa í
nefndinni hefðu öll mikinn áhuga og
ættu sjálf börn í hestamennsku.
Nefndarmenn skiptu með sér verk-
um eftir því sem þeir hefðu tök á og
sagði Sigríður samstarfið hafa verið
mjög gott og einnig hefðu þau notið
mikils stuðnings frá foreldrum
barnanna.
Vildum öflugt starf
og fjölbreytta dagskrá
„Við vildum að starfið yrði öflugt
og héldum fljótlega fund til að
skiptast á hugmyndum. Okkur tókst
að koma saman fjölbreyttri dagskrá
þar sem þess var gætt að allir ald-
urshópar gætu tekið virkan þátt í
starfinu og lögð var áhersla á hvers
konar hestamennsku. Stundum vill
það brenna við að æskulýðsstarfið
gangi allt út á að sinna þeim sem
stunda keppni, en svo var ekki hjá
okkur. Okkur finnst mikilvægara að
þjappa hópnum saman í fjölbreyttu
starfi, ekki síst krökkunum sem eru
oft að keppa hver við annan þegar á
völlinn er komið.“
Meðal þess sem var á dagskrá hjá
börnunum og unglingunum í And-
vara var fjölskyldureiðtúr, og sam-
eiginlegur reiðtúr æskulýðsdeilda
allra hestamannafélaganna á höf-
uðborgarsvæðinu. Þá hafa verið
haldin skemmtikvöld og spilakvöld
og ýmislegt fleira. Til að hægt væri
að miðla upplýsingum með sem
skjótustum hætti til krakkanna hef-
ur verið haldið úti bloggsíðu og segir
Sigríður það hafa gefist vel.
Þriðjungur félagsmanna
á námskeiðunum
„Miklu máli skiptir að gott sam-
band sé á milli hestamannafélag-
anna og til dæmis hafa félögin hér á
höfuðborgarsvæðinu haldið árlega
sýninguna Æskan og hesturinn sem
okkar krakkar hafa tekið virkan þátt
í. Þetta er fólkið sem á eftir að starfa
saman að framgangi hestamennsk-
unnar í framtíðinni og gott að það
hafi tækifæri til að kynnast.“
Námskeið fyrir börn og unglinga
hafa verið mjög vel sótt hjá Andvara
og þegar allt er talið tóku 37% fé-
lagsmanna þátt í þeim. Boðið var
upp á pollanámskeið fyrir 5–11 ára
börn og síðan knapamerkj-
anámskeið. Kennt var fyrir tvö
fyrstu knapamerkin en félagið stefn-
ir að því að bæta einu merki við á
hverjum vetri.
„Mér finnst þetta knapamerkja-
kerfi vera bylting í reiðkennslu á Ís-
landi þar sem nú er í fyrsta sinn
hægt að taka námskeið og ljúka því
og byrja á öðru án þess að eiga á
hættu að vera alltaf að læra sama
hlutinn. Þótt þetta hafi aðallega ver-
ið notað fyrir börn og unglinga enn
sem komið er held ég að fullorðið
fólk ætti að nýta sér þetta kerfi
meira. Það skiptir miklu máli fyrir
okkur að geta verið með þessi nám-
skeið inni í reiðhöllinni og boðið upp
á góða reiðkennslu, en við höfum
fengið 500.000 króna styrk árlega
frá Garðabæ sem notaður er til að
greiða niður þessi námskeið.“
Sigrún Sigurðardóttir reiðkennari
hefur alfarið séð um knapamerkja-
námskeiðin en einnig setti Tómas
Ragnarsson íþróttadómari saman
námskeið fyrir þá krakka sem voru
að búa sig og hesta sína undir
keppni. Á því voru verklegir og
bóklegir tímar og síðan haldið æf-
ingamót.
Eðlilegt að leggja eitthvað á sig
Í tengslum við Íslandsmótið sem
Andvari hélt síðastliðið sumar var
haldinn fjölskyldudagur í samstarfi
við Garðabæ. Er ætlunin að þetta
verði árlegur viðburður. Á fjöl-
skyldudeginum settu víkingar upp
búðir, sýndu bardagaatriði og buðu
ýmsan söluvarning og grill. Hross
og reiðtygi og tilheyrandi búnaður
fyrir hestamennskuna var í einu
hesthúsanna á svæðinu og járn-
ingamaður sýndi vinnu sína. Þá var
boðið upp á hestaleigu og útreiðar-
túra með leiðsögn.
Þá fóru unglingar frá ferming-
araldri og upp úr til Danmerkur í
júní og nutu fararstjórnar Sigrúnar
reiðkennara. Þeir tóku meðal annars
þátt í unglingamóti sem Íslands-
hestafélagið Skeifan á Fjóni stóð
fyrir og fengu lánaða hesta til að
keppa á.
Meðal annarra verkefna á árinu
var að aðstoða umhverfisnefnd And-
vara við áburðardreifingu á fé-
lagssvæðinu fyrir Íslandsmótið.
Af öðrum atburðum má nefna
æskulýðsdag Andvara sem haldinn
var 1. maí. Var atburðurinn nefndur
Lýsisleikarnir vegna þess að Lýsi
hf. var aðalstyrktaraðili mótsins.
„Við höfum notið mikillar aðstoðar
frá ýmsum fyrirtækjum sem hafa
styrkt okkur á margan hátt, bæði til
að reka starfið og eins með því að
vera okkur innan handar með veit-
ingar við ýmsar uppákomur,“ sagði
Sigríður.
„Ég er ánægð með æskulýðs-
starfið hjá okkur í Andvara, meðal
annars vegna þess hversu fjölbreytt
það er. Þarna hafa krakkarnir tekið
til hendinni og aðstoðað umhverf-
isnefndina meðal annars við gróð-
ursetningu og áburðardreifingu. Það
er því ekki bara verið að efla grunn-
inn í reiðmennskunni með nám-
skeiðum og keppni, heldur læra þau
líka að það er eðlilegt að leggja eitt-
hvað á sig í svona starfi, okkur öllum
í hestamennskunni til hagsbóta.“
Andvari í Garðabæ hlaut Æskulýðsbikar Landssambands hestamannafélaga
Fjölbreytt
starf fyrir alla
aldurshópa
Eygló Þorgeirsdóttir frá Andvara og Frosti tóku þátt í grímubúningareið á
sýningunni Æskan og hesturinn.
Eftir Ásdísi Haraldsdóttur
asdish@mbl.is
Fulltrúar Andvara taka við Æskulýðsbikar LH.