Morgunblaðið - 03.11.2005, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
4.
SÆTID
JÓRUNN
Kosningaskrifstofan í Glæsibæ er opin kl. 12 - 22.
Sími 517 0 617. www.jorunn.is
LÖGREGLAN í Reykjavík rannsakar nú til-
drög þess að sprengja sprakk undir bíl við bak-
arí Myllunnar í Skeifunni um klukkan 2 í fyrri-
nótt. Í sprengingunni slasaðist kona sem vinnur
hjá Myllunni á fótum og var hún flutt á slysa-
deild til aðhlynningar en meiðsli hennar munu
þó ekki hafa verið alvarlegs eðlis.
Sprengjunni hafði verið komið fyrir undir bíl
framan við vinnustaðinn þar sem fólk var í næt-
urvinnu. Konan var þeirra á meðal og hafði
brugðið sér út til að fá sér frískt loft. Var hún
fyrir tilviljun stödd við bílinn þegar sprengjan
sprakk.
Við athugun lögreglu á vettvangi bendir
margt til þess að um heimatilbúna sprengju sé
að ræða sem lá á jörðinni undir bílnum.
Sprengjan var það öflug að gat kom á undirvagn
bílsins framan við aftursætið vinstra megin. Því
til viðbótar skemmdist bíll sem stóð við hliðina.
Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögreglu-
þjóns er ekki útilokað að málið tengist spreng-
ingu sem tilkynnt var um í nágrenni við Grens-
ásveg fyrir skemmstu.
Ekki vitað hvaða efni voru notuð
Bílarnir sem skemmdust við Mylluna eru í
eigu starfsmanna fyrirtækisins og að sögn lög-
reglu er ekkert sem bendir til þess að sprengj-
unni hafi verið beint gegn konunni sem slasaðist
eða bíleigendunum. Ekki er þó vitað hvaða
sprengiefni voru notuð. Hins vegar er ólíklegt
talið að stolið dínamít hafi verið notað. Á vett-
vangi fannst mikið af plasttægjum sem bendir
til þess að um heimatilbúna sprengju hafi verið
að ræða. Engin merki um faglega umgjörð á
borð við alvöru kveikibúnað fundust á vettvangi.
Þá er ekki vitað hvað hleypti sprengingunni af
stað, þ.e. hvort einhvers konar tímastillir hafi
verið notaður eða að kveikt hafi verið á sprengj-
unni og henni komið fyrir rétt áður en hún
sprakk. Vera kann að sá sem kom henni fyrir
hafi legið í leyni skammt frá en lögreglan hefur
ekki fengið botn í þann hluta málsins. Hörður
Jóhannesson segir að sprengjan hafi sprungið á
miðjum næturvinnutíma fólksins og því sé atvik-
ið ekki tengt við komur eða brottfarir starfs-
fólksins til og frá vinnustaðnum. Þá hefur verið
upplýst að hin slasaða eða bíleigendurnir áttu
sér ekki óvildarmenn sem gætu hafa viljað þeim
eitthvað illt með athæfinu.
Málið er í rannsókn og lítur lögreglan alvar-
legum augum á það. Ekki er gott að átta sig á
því hvað vakti fyrir gerandanum hvort sem hann
var einn að verki eða með vitorðsmönnum.
Hjá Myllunni í Skeifunni starfa 180 manns en
starfshópurinn sem var á næturvaktinni í fyrri-
nótt var að taka til pantanir morgundagsins.
Björn Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Myllunnar, segir engan innan-
dyra hafa orðið var við hávaðann. Ekki sé vitað
hvort sprengingunni hafi verið beint gegn Myll-
unni eða starfsmönnum þar eða öðrum fyrir-
tækjum sem eru í sama húsi. Stjórnendur Myll-
unnar ræddu atvikið við starfsfólkið í gær auk
þess sem lögreglan var daglangt að taka
skýrslur og sinna vettvangsrannsókn. Björn
segir það vissulega skelfilega tilhugsun að næt-
urvaktarfólk frá Myllunni hafi verið í stórhættu
af þessum sökum.
Öflug sprengja
slasaði konu og
gerði gat á bíl
Ekkert sem bendir til að sprengjunni hafi
verið beint gegn konunni eða bíleigendunum
Lögreglumenn leituðu vísbendinga á vettvangi í gær en enginn var handtekinn vegna sprengj-
unnar sem sprakk um kl. 2 í fyrrinótt við bakaríið Mylluna í Skeifunni.
Eftir Örlyg Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Ljósmynd/Magnús I. Kristmannsson
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
oddviti borgarstjórnarflokks sjálf-
stæðismanna, nýtur meiri stuðn-
ings til að leiða lista flokksins en
Gísli Marteinn Baldursson vara-
borgarfulltrúi, samkvæmt niður-
stöðum könnunar sem IMG Gallup
gerði fyrir stuðningsmenn Vil-
hjálms vikuna 26.–31. október 2005.
Spurningin „Hvort vilt þú frekar
sjá Gísla Martein Baldursson eða
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í fyrsta
sæti sjálfstæðismanna í næstu
borgarstjórnarkosningum?“ var
lögð fyrir 243 svarendur. Af þeim
178 sem tóku afstöðu vildu 108
(60,7%) Vilhjálm í 1. sæti en 70
(39,3%) vildu Gísla Martein. Alls
tóku 43 ekki afstöðu og 22 vildu
hvorugan.
Þegar einungis eru skoðaðir þeir
sem sögðust myndu kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn, væri gengið til
kosninga nú, naut Vilhjálmur
stuðnings 52% aðspurðra en Gísli
Marteinn 48%. Hjá þeim sem kváð-
ust ætla að kjósa annan flokk/lista
naut Vilhjálmur 70% stuðnings en
Gísli Marteinn 30%. Sömu hlutföll
voru hjá þeim sem voru óákveðnir
eða ætluðu ekki að kjósa.
Samkvæmt Gallup-könnun sem
greint var frá í Morgunblaðinu 14.
október sl., sögðust 102 eða 62,2%
þeirra sem tóku afstöðu frekar
vilja sjá Vilhjálm í fyrsta sæti
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksins og 62 eða 37,8% sögðust
frekar vilja sjá Gísla Martein í
fyrsta sæti.
Þá sögðust 53% þeirra sem sögð-
ust myndu kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn í komandi kosningum frekar
vilja Vilhjálm í fyrsta sæti en 47%
vildu frekar sjá Gísla Martein í því
sæti.
52% vilja Vilhjálm –
48% Gísla Martein
FYRIRHUGUÐ færsla Sæbrautar
og hljóðvistaraðgerðir vegna hennar
voru kynntar á sérstökum kynning-
arfundi í Laugalækjarskóla í gær-
kvöld. Áætlað er að framkvæmdir
við færslu Sæbrautar til norðurs
hefjist á næsta ári, en verkefnið fer í
útboð nú í nóvember.
Tilgangur færslunnar er tvíþætt-
ur. Annars vegar að rýma fyrir um-
ferð í tvær áttir á Kleppsvegi og
gera strætósamgöngur þannig úr
garði að notendur strætisvagna
þurfi ekki að fara yfir Sæbrautina til
að taka vagn á vesturleið. Þannig
segir Björk Vilhelmsdóttir, stjórn-
arformaður Strætó bs., að öryggi
notenda strætisvagna aukist til
muna. Hins vegar er tilgangurinn að
bæta hljóðvist í íbúðum við Klepps-
veg 2–76, bæði með því að auka fjar-
lægð Sæbrautarinnar frá íbúðar-
húsum við Kleppsveg um 10–15
metra og með byggingu sérstaks
hljóðveggs.
Járnþiljaveggur
minnkar hávaða
Í máli Stefáns Finnssonar, deild-
arstjóra á mannvirkjaskrifstofu
Framkvæmdasviðs Reykjavík-
urborgar, kom fram að hljóðstyrkur
væri næstum alls staðar yfir 65 desi-
belum í íbúðarhúsum við Kleppsveg,
en rannsóknir hafa sýnt að viðvar-
andi hljóðstyrkur yfir 65 getur haft
slæm áhrif á heilsu fólks. Sýndi hann
skýringarmyndir þar sem sjá mátti
áhrif hljóðveggs og færslu Sæbraut-
arinnar, en með því myndi hávaði
minnka umtalsvert á fyrstu tveimur
hæðum húsa við Kleppsveg. Lagt
hefur verið til að reistur verði járn-
þiljaveggur, um 1,40–2 metrar á hæð
og tré og runnagróður verði gróð-
ursett meðfram honum til að minnka
útlitsmengun af honum.
Bílastæðamál ofarlega
Í umræðum eftir kynninguna voru
bílastæðamál íbúum ofarlega í huga
og sögðu þeir framkvæmdirnar
fækka bílastæðum á svæðinu, þar
sem fólk hefði lagt norðan í Klepps-
veginum. Bentu fulltrúar borg-
arinnar á að þar væri ekki um að
ræða lögleg bílastæði, en löglegum
bílastæðum fjölgaði hins vegar. Fólk
gæti þó haldið áfram að brjóta lögin
ef það vildi.
Fulltrúar borgarinnar skýrðu
einnig frá því að breytingarnar á
Sæbrautinni myndu hafa í för með
sér mikið öryggi fyrir notendur
strætisvagna, sem meðal annars
væru gamalt fólk á dvalarheimili
DAS, sem nýtti sér mikið stræt-
isvagnasamgöngur. Mörg slys hefðu
orðið undanfarin ár sem rekja mætti
til þess að fólk þyrfti að fara yfir Sæ-
brautina til að taka strætó, en nú
yrði komið í veg fyrir það.
Færsla Sæbrautar kynnt
Morgunblaðið/Golli
Stefán Finnsson hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar fer yfir áætlun
um færslu Sæbrautar á kynningarfundinum í Laugalækjarskóla.
INNLEND eftirspurn er mun meiri
það sem af er þessu ári en var á
sama tímabili í fyrra. Þannig óx
kreditkortaveltan um 13,4% á
fyrstu níu mánuðunum í ár sam-
anborið við fyrstu níu mánuðina í
fyrra og debetkortaveltan jókst um
tæpan fjórðung á sama tímabili eða
um 24,4%.
Þá jókst kreditkortavelta Íslend-
inga erlendis um fimmtung eða
20,3% á sama tímabili.
Um þetta er meðal annars fjallað
í hagvísum Hagstofu Íslands. Þar
kemur einnig fram að nýskrán-
ingum bifreiða fjölgaði um 57,8%
fyrstu níu mánuði ársins. Þá var
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður
um 71,7 milljarða króna fyrstu níu
mánuði ársins, en var óhagstæður
um 24,4 milljarða króna á sama
gengi fyrstu níu mánuðina í fyrra.
Á þessum níu mánuðum jókst inn-
flutningur um 3,9%.
Debetkortaveltan
jókst um fjórðung
SAMTÖKIN FFL á Íslandi munu
standa fyrir legóhönnunarkeppni
grunnskólanema á aldrinum 10-16
hér á landi hinn 12. nóvember næst-
komandi en stefna samtakanna er
að efla raunvísindaáhuga barna.
Hefur keppnin fengið mjög góðar
viðtökur meðal grunnskólanema og
hafa nú þegar 22 lið af öllu landinu
skráð þátttöku sína. Keppnin mun
standa allan daginn og verður
Björgvin Franz leikari kynnir. Á
sama tíma verður einnig keppt á
hinum Norðurlöndunum og verður
hægt að fylgjast með keppninni á
Netinu. Vinningsliðið fer svo til
Noregs þar sem lið frá öllum Norð-
urlöndunum keppa til úrslita.
Aðalstyrktaraðili keppninnar er
Marel og verður keppnin haldin í
húsakynnum Marels. Aðrir styrkt-
araðilar eru Barnasmiðjan, Háskóli
Íslands og Samtök iðnaðarins.
„Okkur finnst þetta skemmtilegt
verkefni því þetta tengir raun-
greinanám við leik. Stefna Marels
er að auka skilning á gildi góðrar
vísinda- og raungreinamenntunar í
samfélaginu og af þeirri ástæðu
styrkir Marel fjölmörg verkefni á
sviði nýsköpunar og raunvísinda-
kennslu. Þetta verkefni er liður í
þeirri stefnu,“ segir Stella Björg
Kristinsdóttir hjá markaðsdeild
Marel um aðkomu fyrirtækisins.
Legóhönnunar-
keppni á Íslandi