Morgunblaðið - 03.11.2005, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.11.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 33 UMRÆÐAN NÚ ER elsku karlinn hann Davíð hættur blessaðurinn og helstu fjandvinir hans búnir að senda honum tóninn með ýmsum hætti. Álit manna á Davíð var al- mennt jafn misjafnt og þeir voru margir en spurningin er þó líklega bara hvort þeir sem oflofuðu hann hafi verið honum verri en þeir sem reyndu að koma „sannleik- anum“ á framfæri að mati grein- arhöfunda og jafnframt sýna fram á hvað Davíð hafi verið vondur. Einn skemmtilegasti frasinn svona í lokin var þegar hann var að pakka niður í flýti, nánast í skjóli nætur að hann eins og svo margir einræðisherrar og ódámar í bíó- myndum reyndi að taka með sér sem mest af gulli ríkisins á flótt- anum. Davíð fór þó fínna í þetta. Hann snarhækkaði eftirlaun sín með góðum fyrirvara og lét gera væntanleg ritsörf sín í ellinni skattfrjáls auk þess að taka með sér æðsta embætti seðlabankans. Honum fannst embættið skamm- arlega lágt launað og lét sam- stundis hækka laun fyrir það um 27%. Toppgrínari, alltaf leikrænn, fyndinn og ótrúlega skemmtilegur, eða hitt þó heldur að mati sumra. Reyndar þekkir Davíð Oddsson ekki annað en greiðslur til sín frá opinberum aðilum þar sem hann hefur alla tíð verið opinber starfs- maður ólíkt Geir Hallgrímssyni sem rak bæði stóra lögmannsstofu og risafyrirtæki í Reykjavík. Í samanburði við Geir er Davíð einskonar þiggjandi sem alltaf hefur verið á framfæri hins op- inbera og undir það síðasta skammtað sér laun sjálfur úr elli- launapakka ríkisins og æðsta emb- ætti Seðlabankans. En þetta grín er ekki aðalatriðið núna. Það sem er heitast í þessari umræðu eru mál kvenna í Sjálfstæðisflokknum. Þær héldu að sinn tími væri kom- inn þegar Davíð tók völdin á sín- um tíma. Að þessi nýji aðsópsmikli draumaprins mundi vippa þeim upp á stjörnuhimininn eins og ekkert væri enda þekktur fyrir kraftmikla framkvæmdasemi sem konur eru svo hrifnar af. En ekk- ert gerðist og þær hafa setið og vonað og vonað. Veik von í hvert skipti sem Davíð myndaði stjórn. Þegar Framsóknarflokkurinn fór í samstarf með Sjálfstæðisflokknum þá tóku Frammararnir frum- kvæðið og tefldu fram nokkrum konum í ráðherraembætti meðan Sjálfstæðisflokkurinn hafði enga eða í mesta lagi eina konu sem ráðherra. Í fyrsta ráðuneyti Dav- íðs Oddssonar sem var stofnað 30. apríl 1991 var engin kona frá Sjálfstæðisflokknum en Jóhanna Sigurðardóttir frá Alþýðuflokki fé- lagsmálaráðherra og Rannveig Guðmundsdóttir tók við af henni 12. nóvember 1994. Í öðru ráðu- neyti Davíðs Oddssonar sem stofnað var 23. apríl 1995 var ein kona, Ingibjörg Pálmadóttir, frá Framsóknarflokki heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Í þriðja ráðuneyti Davíðs Oddssonar sem stofnað var 28. maí 1999 voru loks fjórar konur en aðeins ein frá Sjálfstæðisflokki en þrjár frá Framsóknarflokki. Sólveig Péturs- dóttir dóms- og kirkjumálaráð- herra frá Sjálfstæðisflokki, Siv Friðleifsdóttir frá Framsókn- arflokki umhverfis- og samstarfs- ráðherra Norðurlanda, Valgerður Sverrisdóttir frá Framsókn- arflokki iðnaðar- og viðskiptaráð- herra og Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra sem sat til 14. apríl 2001. Fjórða ráðuneyti Davíðs Oddssonar tók við völdum 23. maí 2003 og var áfram ein kona frá Sjálfstæðisflokki, Þorgerð- ur,Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra en tvær konur, þær Valgerður og Siv, héldu áfram frá Frammsókn en Sigríður Anna Þórðardóttir Sjálfstæðisflokki tók við af Siv 15. september 2004. Það var í fyrsta skipti undir stjórn Davíðs Oddssonar sem tvær sjálfstæð- iskonur voru ráð- herrar á sama tíma. Vá maður. Í öllum þessum fjórum rík- isstjórnum sem fóru með völd á annan áratug undir stjórn Davíðs Oddssonar var engin leið að leyfa konum í hans flokki að taka þátt. Þetta ástand er slæmt í öðrum stjórnmálaflokkum en í Sjálfstæðisflokknum þykir sjálfsagt að ganga framhjá konum. Hvað ætli flokkurinn hafi annars sagt við konurnar til að sannfæra þær um að þær væru ekki gjald- gengar í nein valdaembætti? Að karlarnir í flokknum vissu allt en þær ekk- ert? Að sjálfstæð- iskonur væru verri en aðrar konur í öðrum flokkum og ættu því að þegja þegar aðrir flokkar opnuðu mörg ráðherraembætti fyrir sínar konur? Að þær væru lágkúrulegir aumingjar? Maður bara spyr. Hvað er það sem fær allar þessar konur í stærsta stjórnmálaflokki landsins til að sætta sig við þessa kúgun í áratugi og þegja um það? Eða eru ef til vill engar gjald- gengar konur í Sjálfstæð- isflokknum? En það eru ekki bara konurnar sem eru sniðgengnar af þessum karlastjórnmálaflokki. Það eru einnig málaflokkarnir sem konur eru þekktari fyrir að styðja frekar en karlarnir, málefni barna, aldraðra, öryrkja og sjúkra. Þor- gerður Katrín hefur nú verið kjör- in varaformaður. Hvort hún kemmst áfram í einhver frekari valdaembætti er algerlega óráðið þó að varaformenn Sjálfstæð- isflokksins hafi sumir á endanum fengið þægilega bita, enda „Dav- íðs“ karlmenn sem Þorgerður Katrín er væntanlega ekki. Þessi kvennalágkúrukúltúr Sjálfstæð- isflokksins er til mikillar nið- urlægingar fyrir flokkinn og spurningin hvernig konurnar í Sjálfstæðisflokknum minnast Davíðs. Kvennagullið og grínarinn Davíð Sigurður Sigurðsson fjallar um stjórnmálaferil Davíðs Oddssonar ’En það eru ekki barakonurnar sem eru sniðgengnar af þessum karlastjórnmálaflokki. ‘ Sigurður Sigurðsson Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.