Morgunblaðið - 03.12.2005, Side 1

Morgunblaðið - 03.12.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 328. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Nýtt kortatímabil! TUGIR manna særðust í átökum í Katmandú, höfuðborg Nepals, í gær þegar konungssinnum og and- stæðingum þeirra, þ.á m. maó- istum, lenti saman. „Niður með konunginn, niður með einræðið, lifi lýðræðið!“ hrópaði fólkið. Maóistar hafa árum saman háð blóðuga styrjöld gegn stjórnarher hins einráða Gyanendra konungs en þeir sögðust í gær ætla að fram- lengja einhliða vopnahlé sitt. Reuters „Niður með konunginn!“ HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráð- herra og Geir Haarde utanríkisráð- herra segja að ákvörðun Seðlabank- ans um að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig marki stefnubreytingu af hálfu bankans. Greiningardeildir bankanna eru á öðru máli og segja bæði Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu- maður greiningardeildar Landsbank- ans, og Ásgeir Jónsson hjá greining- ardeild KB banka að engin stefnu- breyting hafi átt sér stað. Davíð Oddsson, formaður banka- stjórnar Seðlabankans, sagði þegar tilkynnt var um hækkun stýrivaxta í gær að fyrri vaxtahækkanir Seðla- banka hefðu skilað árangri, en engu að síður væri ótímabært að fagna sigri í baráttu við verðbólguna. Þetta er minni hækkun en grein- ingardeildir bankanna höfðu spáð. „Ég hef áður sagt að ég telji ekki forsendur fyrir frekari vaxtahækkun- um og stend við það. Seðlabankinn hefur hins vegar hækkað vextina minna en bankarnir gerðu ráð fyrir og talar ekki um frekari vaxtahækk- anir á næstunni, eins og hann hefur áður gert. Ég tel því að um stefnu- breytingu sé að ræða sem ég fagna,“ segir Halldór Ásgrímsson um stýri- vaxtahækkun Seðlabanka Íslands. Davíð sagði að það væri mat bank- ans að verðbólguhorfur væru enn dökkar þótt þær hefðu batnað frá því í september þegar stýrivextir voru hækkaðir um 0,75 prósentustig. Viðskiptahallinn á þessu ári sam- kvæmt endurskoðaðri þjóðhagsspá er meiri en spáð var í september og mun nema 15,5% af landsframleiðslu. Ráðherrar fagna stefnu- breytingu Seðlabanka Morgunblaðið/Golli Davíð Oddsson seðlabankastjóri til- kynnir hækkun stýrivaxta í gær.  Verðbólguhorfur | 24 og 10 Greiningardeildir bankanna sjá enga stefnubreytingu í hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig Heillaðist af umhverfinu Jóna Sparey rekur og leigir út setur í Riberac í Frakklandi Daglegt líf Lesbók | Gegn heiminum og lífinu  Varla verður betur gert Börn | Eldvarnir og slökkviliðið  Leikir Íþróttir | Síðasta skotið færði Fylki sigur  Henry fullkominn ÖLLUM starfsmönnum UVS, Urð- ar, Verðandi, Skuldar, um tuttugu talsins, var sagt upp störfum frá og með síðustu mánaðamótum og er það liður í mögulegri sölu fyrirtæk- isins til nýrra eigenda, en viðræður þar að lútandi eru langt komnar. Urður, Verðandi, Skuld er líf- tæknifyrirtæki sem sérhæft hefur sig í krabbameinsrannsóknum. Róbert Wessman, forstjóri Actav- is, er stjórnarformaður UVS, en Actavis er stór hluthafi í fyrirtæk- inu. Hann sagði að uppsagnirnar tengdust ákveðnum skipulagsbreyt- ingum sem unnið væri að og væru þannig formsatriði að svo komnu. Í skoðun væri að selja fyrirtækið og viðræður um það væru langt komn- ar. „Kaupandinn hefur þá frjálsar hendur með hvaða fólk hann ræður áfram og hvernig hann samþættir reksturinn,“ sagði Róbert. Aðspurður hvort það væri fyrir- tæki á sama sviði og UVS sem væri að hugsa um að kaupa reksturinn sagðist hann ekki geta tjáð sig um það að svo stöddu. Róbert sagði að um það bil 20 manns störfuðu hjá fyrirtækinu, allir hér á landi. Það myndi væntanlega skýrast fljótlega hvort salan gengi eftir og um jákvætt skref væri að ræða fyrir þá starfsemi sem þarna væri. Hann sagði að UVS væri ekki hluti af kjarnastarfsemi Actavis. Sala UVS langt komin Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is Lesbók, Börn og Íþróttir PYNTINGAR eru enn algengar og útbreiddar í fangelsum í Kína að því er sérlegur erindreki Sameinuðu þjóðanna um pyntingar í heiminum, Manfred Nowak, greindi frá í gær. Sakaði Nowak kínversk yfirvöld um að hafa torveldað eftirgrennslanir hans í sögulegri eftirlitsferð hans um Kína, þeirri fyrstu sinnar teg- undar sem kommúnistastjórnin hef- ur leyft. „Það hefur dregið úr því að menn séu beittir pyntingum en það tíðk- ast þó enn mjög víða,“ sagði Nowak á fréttamannafundi í Peking að af- lokinni tólf daga heimsókn sinni til Kína. Kom fram í yfirlýsingu Nowaks að hann hefði heyrt vitn- isburð sem benti til að menn væru m.a. barðir með sérstökum kylfum er veittu raflost, þeir sviptir svefni í marga daga meðan yfirheyrslur færu fram yfir þeim, eða látnir þola ofsahita eða ofsakulda. Þá væri al- gengt að sígarettur væru notaðar til að brenna húð fanga. Nowak sagði að kínverskir emb- ættismenn hefðu fylgst grannt með ferðum hans og að þeir hefðu lagt steina í götu hans. Nowak heimsótti m.a. fangelsi í höfuðborginni Pek- ing, í Tíbet og einnig Xinjiang- héraði. Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Pynting- ar enn algengar Reuters Manfred Nowak, erindreki SÞ. Könnun SÞ á fangelsum í Kína Bagdad, Washington. AP, AFP. | Hópur mannræningja, sem heldur fjórum vestrænum gíslum í Írak, hefur hótað að myrða mennina. Kom þetta fram á myndbandi sem arabíska fréttastöðin al-Jazeera birti í gær. Í yfirlýsingu mannræningjanna segir að þeir muni myrða alla gíslana nema íröskum föngum í bandarískum fangelsum verði sleppt fyrir 8. desember. Ræningjarnir fullyrða að gíslarnir, sem eru úr röðum samtaka friðar- sinna, séu njósnarar. Tveir þeirra eru frá Kanada, einn frá Bandaríkjunum og einn frá Bretlandi. George W. Bush Bandaríkjaforseti harmaði í gær dauða 10 bandarískra landgönguliða sem létu lífið í Írak þegar sprengja sprakk í vegkanti. Hafa ekki jafnmargir Bandaríkja- menn látið þar lífið í einni árás síðan í ágúst. Mennirnir tíu féllu á fimmtu- dag en ekki var skýrt frá atburðinum, sem varð skammt frá Fallujah í Anbar-héraði, fyrr en í gær. Alls hafa 2.125 bandarískir hermenn fallið í Írak síðan innrásin var gerð 2003. Hóta að myrða gísla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.