Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FELLDUR ÚR GILDI Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í Baugsmál- inu, væri ekki bær til að fara með ákæruvald í þeim átta ákæruliðum sem enn eru fyrir dómi. Í dómi Hæstaréttar segir m.a. að dómstólar verði ekki krafðir álits um lög- fræðileg efni nema að því leyti sem nauðsynlegt sé til úrlausnar um ákveðna kröfu í dómsmáli. Pyntingar notaðar í Kína Enn er algengt að beitt sé pynt- ingum gegn föngum í Kína þótt víða hafi verið dregið úr þeim, að sögn er- indreka Sameinuðu þjóðanna, Man- fred Nowak. Hann fékk að heim- sækja fangelsi víða um landið og ræða við fanga. Er það í fyrsta sinn sem Kínastjórn leyfir rannsókn af þessu tagi. 24 milljónir í bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða 12 ára gömlum dreng 18,2 milljónir króna í bætur vegna mistaka sem gerð voru þegar drengurinn fæddist á Landspítalanum árið 1993. Móður drengsins voru dæmdar fimm millj- ónir króna og foreldrum hans saman ein milljón króna. Réttarhneyksli í Frakklandi Réttarkerfið í Frakklandi þykir hafa orðið fyrir miklu áfalli vegna máls sex manna sem setið hafa inni vegna ákæru um kynferðisafbrot gegn börnum. Áfrýjunardómstóll í París sýknaði í gær mennina sex að beiðni ákæruvaldsins. Sýnt þótti að ungur rannsóknardómari hefði hunsað gögn sem bentu til sakleysis þeirra. Öllu starfsfólki sagt upp Líftæknifyrirtækið Urður, Verð- andi, Skuld hefur sagt öllu starfs- fólki sínu, um tuttugu talsins, upp frá og með síðustu mánaðamótum og er það liður í mögulegri sölu fyrir- tækisins til nýrra eigenda. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Umræðan 46/52 Úr verinu 20 Bréf 51 Viðskipti 24 Minningar 54/60 Erlent 26/27 Skák 59 Minn staður 30 Kirkjustarf 61/63 Akureyri 31 Myndasögur 68 Suðurnes 31 Dagbók 68/72 Landið 32/33 Víkverji 68 Árborg 32/33 Staður og stund 72 Daglegt líf 34/37 Bíó 78/81 Ferðalög 38/41 Ljósvakamiðlar 82 Forystugrein 42 Staksteinar 83 Menning44/45, 73/81 Veður 83 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %             &         '() * +,,,                      Yfirgripsmesta verk sem út hefur komið um íslenska málnotkun. SVO MIKLU MEIRA EN HEFÐBUNDIN ORÐABÓK Rafræn útgáfa á geisladiski fylgir bókinni ORÐABÓK FRAMTÍÐARINNAR Bókin er yfir 1600 bls. í stóru broti. www.jpv.is METSÖLULISTI EYMUNDSSON aðallisti 30. nóv. DRENGURINN sem var hætt kom- inn í sundlauginni í Bolungarvík á fimmtudag var útskrifaður af Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði í gærmorgun. Að sögn læknis hafði drengurinn, sem er 11 ára gamall, náð sér að fullu og var útskrifaður alheilbrigður. Ungur sundkennari drengsins, Sigríður Guðjónsdóttir, bjargaði honum eftir að bekkjarfélagar hans tóku eftir því að hann hafði verið óeðlilega lengi í kafi. Hún dreif hann upp úr lauginni og tókst að blása í hann lífi. Náði sér að fullu eftir sundlaugarslys LÖGREGLAN í Kópavogi fann um 200 grömm af ýmsum fíkniefnum þegar hún leitaði í þremur húsum í bæjarfélaginu í fyrrinótt. Tveir voru handteknir en sleppt að lokn- um yfirheyrslum. Lögreglunni í Kópavogi til að- stoðar var sérsveit ríkislögreglu- stjóra, tollvörður með fíkniefna- leitarhund og fíkniefnalögreglu- maður frá lögreglunni í Hafnarfirði. Við leitina fannst einkum hass og amfetamín, lítil- ræði af kókaíni, e-töflur og LSD-sýra. Fundu 200 grömm af fíkniefnum EKIÐ var á níu ára stúlku við Mela- skóla í Reykjavík í morgun, nánar tiltekið á mótum Furumels og Hagamels. Stúlkan meiddist lít- illega og var flutt á sjúkrahús til að- hlynningar. Ragna Ólafsdóttir, skólastjóri Melaskóla, sagði við Fréttavef Morgunblaðsins að mjög mikil um- ferð væri við skólann á morgnana og að ítrekað hefði verið bent á að gatnamót Furu- og Hagamels væru hættuleg. Slys á hættulegum gatnamótum LAGT er til að reykingar verði bann- aðar með öllu á veitinga- og skemmtistöðum frá og með 1. júní 2007 samkvæmt stjórnarfrumvarpi heilbrigðis- og tryggingaráðherra, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Í frumvarpinu segir að megin- markmið þess sé vinnuvernd starfs- manna með vísan til gildandi vinnu- verndarlaga og tóbaksvarnarlaga og í ljósi „hratt vaxandi fjölda vísinda- legra sannana fyrir því að óbeinar reykingar valdi heilsuskaða og dauðsföllum. Þegar þetta megin- markmið er uppfyllt má búast við ýmiss konar öðrum ávinningi af reykbanninu, bæði fyrir samfélag og einstaklinga,“ segir þar ennfremur. Fram kemur að frá 1985 þegar lög um tóbaksvarnir tóku fyrst gildi hafi þrívegis verið hert á ákvæðum þeirra í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að fólki þurfi að anda að sér tóbaksreyk frá öðrum. Nú megi leyfa reykingar á afmörkuðum svæð- um með ákveðnum skilyrðum á veit- inga- og skemmtistöðum, en í ljósi nýrrar þekkingar um skaðsemi óbeinna reykinga sé afnám þeirrar heimildar eðlileg framvinda. Vísað er einnig til heilbrigðisáætl- unar, aðildar Íslands að ramma- samningi Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar um tóbaksvarnir og aðalfundar Samtaka ferðaþjónust- unnar frá því í vor um að ganga til viðræðna við stjórnvöld um að veit- ingastaðir verði reyklausir frá og með 1. júní 2007. Reykingar bannaðar með öllu á veitingastöðum INGUNNARSKÓLI í Grafarholti var opnaður formlega og vígður í gær, en hann hefur reyndar verið starfandi frá því í haust. Af því tilefni var efnt til mikillar hátíðar nemenda, auk þess sem bandaríski arkitektinn og menntunarfræðingurinn Bruce A. Jilk kom í heimsókn, en hann lagði grunn að hönnun skólans. Hönnun skólans er um margt frábrugðin því sem tíðkast hefur í grunnskólum hér á landi, og segir Gerð- ur G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavík- urborgar, að þetta sé fyrsti gangalausi grunnskólinn á landinu. Í honum eru um 400 nemendur, en þar er gert ráð fyrir allt að 450 nemendum. Áður en húsið var hannað var settur á laggirnar 30 manna undirbúningshópur, sem í voru foreldrar, íbúar og fulltrúar fyrirtækja í skólahverfinu, auk skólafólks, verkfræðinga og arkitekta. Lögð var mikil áhersla á að þessi fyrsti skóli sem byggður yrði í Reykjavík á nýrri öld skyldi vera í takt við þróun skólastarfs á 21. öldinni, eins og fram kemur í tilkynningu frá menntasviði. Menntunarfræði og arkitektúr Því var leitað til Bruce A. Jilk, sem hefur víðtæka reynslu af því að hanna skólabyggingar í takt við breytta kennsluhætti, og blandar þar saman þekkingu sinni á menntunarfræðum og arkitektúr. Meðal þess sem er sérstakt við skólann er stórt miðrými sem rúm- ar aðkomusal skólans, svið, bókasafn og mötuneyti, en út frá honum eru svo vinnusvæði nemenda. Morgunblaðið/RAX Nemendur fjölmenntu í miðrými skólans til að taka þátt í hátíðardagskrá og taka á móti góðum gestum í gær. Mikið fjör þegar fyrsti ganga- lausi grunnskólinn var vígður MAGN svifryks mældist yfir við- miðunarmörkum í gær. Umhverf- issvið Reykjavíkur ráðleggur fólki með viðkvæmni í öndunarfærum að vera síður nærri götum þar sem umferð er þung. Spáð er áfram- haldandi stilltu veðri á höfuðborg- arsvæðinu næstu daga og því er útlit fyrir að magn svifryks í and- rúmslofti verði áfram yfir um- hverfismörkum. Óþægindi fyrir fólk með asma Lúðvík Gústafsson, hjá meng- unarvörnum umhverfissviðs, segir að eins og rykið sé nú geti það verið óþægilegt fyrir fólk með t.d. berkjubólgu eða astma, þótt ekki sé beinlínis hægt að segja að hætta sé á ferðum. „Ef þetta væri hættulegt mynd- um við senda út viðvörun. Við vilj- um ekki vekja neinn óþarfa ótta, en viljum heldur ekki þegja yfir því sem við sjáum á mælum okk- ar,“ segir Lúðvík. Svifryk er að mestu óbein meng- un frá bílum. Fyrst og fremst er um að ræða ryk af götum sem þyrlast upp vegna bílaumferðar, m.a. malbiksagnir, en einnig sót- agnir úr útblæstri bíla. Lúðvík segir að eftir því sem umferðar- hraðinn sé meiri, því meira af ryki þyrlist upp. Hann segir að fyrir viku hafi ástandið verið svipað, en þó heldur hærri mæligildi en í gær. Ástæðan fyrir muninum sé fyrst og fremst að þá hafi verið minni raki í loftinu og götur flestar alveg skraufþurr- ar. Áfram mikið svif- ryk í Reykjavík LÖGREGLAN á Akureyri greip mann með stóra tösku niðri á Eyri í fyrrinótt og athugaði innihald tösk- unnar, sem maðurinn þóttist ekki eiga, og fundust þar þrjú lamba- læri, tveir lambahryggir og fjögur kíló af humri. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. Handtekinn með lambakjöt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.