Morgunblaðið - 03.12.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 11
FRÉTTIR
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 • Í I
NÝJA
R VÖ
RUR
GLÆS
ILEGU
R HÁ
TÍÐAR
FATN
AÐUR
I
Í
NÝTT
KORTATÍMABIL
Síðumúla 13
108 Reykjavík
sími 568 2870
Opið 10:00 – 19:00
ÚTSALA – ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
40-60% afsláttur
Opið í dag 10-16
Loðin jakkapeysa 6.900.- 4.200.-
Marglit peysa 7.200.- 3.600.-
Peysa m/tölum 6.200.- 3.800.-
Bolur m/pallíettum 4.300.- 2.600.-
Bolur m/nælu 4.000.- 2.400.-
Blúndutoppur m/rós 4.000.- 2.400.-
Röndótt skyrta 4.900.- 3.000.-
Mokkajakki 10.800.- 6.500.-
Pelsjakki 7.900.- 4.800.-
Kápa m/pels 7.800.- 4.700.-
Kjóll m/perlum 7.300.- 4.400.-
Stutt flauelspils 5.100.- 3.100.-
Sítt pils m/reim 4.500.- 2.700.-
Svartar buxur 4.400.- 2.700.-
Kvartbuxur 5.400.- 2.900.-
Gallabuxur 6.400.- 3.900.-
Leðurstígvél 15.200.- 5.900.-
Svartir dömuskór 4.500.- 2.700.-
Silfur skór 5.400.- 2.900.-
Opið laugardag frá 10:00 - 16:00
Óvenjulegar jólagjafir
frá Persíu og Afríku
frá kr 450
Stofuborð í öllum
stærðum frá kr 28.000
Waring blandarinn er hin
upprunalega mulningsvél frá
Ameríku. Tveggja hraða
mótorinn er kannski öflugri
en eldhúsið þarf, en fer líka
létt með erfiðustu verk.
Bara massíft stál og gler!
Verð frá kr. 16.900,-
Auk þessa seljum við hágæða
capuccinovélar.
UM 76.000 rjúpur voru veiddar á
rjúpnaveiðitímabilinu í haust sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar sem
Skotvís, Skotveiðifélag Íslands, hef-
ur nýlega gert. Ef marka má þessar
niðurstöður virðist því sem skot-
veiðimenn hafi farið að tilmælum
umhverfisráðherra og stjórnar
Skotvís um að stilla veiðunum í hóf.
Sigmar B. Hauksson, formaður fé-
lagsins, kynnti niðurstöðurnar í gær
í höfuðstöðvum Olís að viðstaddri
Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverf-
isráðherra. Við þetta tækifæri opn-
aði Sigríður Anna nýja heimasíðu
Skotvíss. Sagði Sigmar að á heima-
síðunni yrði að finna gífurlega mikl-
ar upplýsingar um veiðidýr, veiðar á
Íslandi og vopn. Hyggur hann að
hvergi á Íslandi sé eins mikinn fróð-
leik tengdan veiðum að finna.
Sjálfbærar veiðar
Sagði Sigmar að niðurstöður
könnunarinnar hefðu komið ánægju-
lega á óvart en 10% félagsmanna
Skotvís fengu könnunina senda og
var svörun mjög góð. 67% fé-
lagsmanna fóru til rjúpnaveiða í ár
og meðalfjöldi daga voru tæpir 4
dagar. Meðalfjöldi veiddra rjúpna, ef
aðeins er litið til þeirra sem fengu
fugl, var rétt rúmlega 15 rjúpur á
mann. Því sé ekki annað að sjá en að
félagsmenn hafi farið að tilmælum
því lagt var út frá því að hver veiði-
maður veiddi 15 fugla en veiðimenn
eru um 5.000. Mesta veiði á einn
veiðimann var þó 62 fuglar og sagði
Sigmar að þarna væri um undan-
tekningu að ræða. Sagði hann að
þessar niðurstöður væru mikill léttir
og þær komi heim og saman við raf-
ræna skráningu veiðistjórnunar-
sviðs Umhverfisstofu en upplýsingar
þar gefa vísbendingu um svipaða
veiði. Sagði Sigmar að svartsýnustu
menn hefðu gert ráð fyrir því að
veiðin yrði ekki undir 120.000 rjúp-
um.
Einnig var kannað hversu margir
greiddu fyrir veiðileyfi og kom í ljós
að aðeins 3% aðspurðra gerðu það,
2% þeirra greiddu fyrir bæði gist-
ingu og veiðileyfi. Því virðist sem að-
eins 1% félagsmanna hafi greitt fyrir
veiðileyfi án þjónustu.
Ánægð og fegin
Sigríður Anna sagði að umhverf-
isráðuneytið hefði átt gott samstarf
við Skotvís. Sagðist hún vera bæði
ánægð og fegin að heyra þessar nið-
urstöður því þegar verið væri að
skora á veiðimenn að gæta hófs væri
ekki fyrirfram vitað hvort sú aðferð
skilaði þeim árangri sem vænst væri
eftir. Mikilvægasta aðgerðin hafi þó
verið sölubann vegna þess að áður en
það var sett á voru það um 10% veiði-
manna sem veiddu um helming
þeirrar rjúpu sem veidd var. Þannig
hafi þeirra hluti í veiðunum verið
gríðarlega mikill. Síðan hafi líka
skipt máli að veiðitíminn hafi verið
styttur um þrjár vikur.
„Það sem er samt gildur þáttur í
því að þetta takist, að veiðarnar
verði sjálfbærar og að við getum
áfram veitt rjúpu á Íslandi, er að
menn gæti hófs,“ sagði ráðherra.
Morgunblaðið/Golli
Sigríður Anna Þórðardóttir um-
hverfisráðherra opnar nýja heima-
síðu Skotvíss. Hjá henni stendur
Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotveiðifélags Íslands.
Veiðimenn sagðir
hafa farið að til-
mælum ráðherra
TENGLAR
..............................................
www.skotvis.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn