Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 30
Aðaldalur | Mikið var að gera
hjá nemendum Hafralækj-
arskóla í Aðaldal á árlegum
föndurdegi skólans, 1. desem-
ber. Hefð hefur skapast fyrir
því að foreldrar, kennarar og
nemendur hittist einn morgun á
aðventunni til þess að búa til
skraut til jólanna, baka pip-
arkökur, þiggja veitingar og
hlusta á góða tónlist.
Þetta kunnu allir vel eins og
alltaf. Krakkarnir voru nýbúnir
að baka piparkökur og lögðu sig
öll mjög fram við að skreyta
þær sem best með glassúr þeg-
ar fréttaritari var á ferð í skól-
anum.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Vandasamt Helgi Maríus Sigurðsson var upptekinn við að skreyta kökurnar með bleikum glassúr.
Piparkökurnar skreyttar
Jóla-
bakstur
Akureyri | Suðurnes | Áborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Landbúnaðarráðherra skipaði starfshóp
fyrir nokkru til að gera tillögur um hugs-
anlegt fyrirkomulag landgræðslu- og skóg-
ræktarmála í framtíðinni. Um nokkurt
skeið hefur verið í umræðunni að sameina
Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins
og einnig hefur borið á góma hvort sameina
beri með formlegum hætti ákveðin verkefni
þessara aðila með sparnað og aukna skil-
virkni að leiðarljósi. Jafnframt hefur í
tengslum við breytt umhverfi menntastofn-
ana landbúnaðarins verið rætt um hvernig
efla megi rannsóknir á þeirra vegum og
bæta samstarf þeirra sem að þeim rann-
sóknum vinna. Starfshópurinn sem er skip-
aður 10 manns, þ.á m. landgræðslustjóra,
skógræktarstjóra og rektor Landbúnaðar-
háskólans, á að skila af sér í árslok.
Starfsemi Landgræðslunnar er að sönnu
mikilvæg fyrir allt landið, en það má full-
yrða að aðalstöðvarnar í Gunnarsholti á
Rangárvöllum eru gríðarlega mikilvægar
fyrir heimamenn og héraðið í heild hvað at-
vinnu varðar. Þar hafa atvinnu um þessar
mundir um 40 manns, þó ekki sé um að
ræða heil stöðugildi í öllum tilfellum. Höf-
uðstöðvar Skógræktarinnar eru á Egils-
stöðum þar sem um 10 manns hafa aðsetur
en báðar þessar stofnanir hafa að auki
starfsmenn víða um landið, mismarga eftir
árstímum. Rangæingar og aðrir Sunnlend-
ingar munu fylgjast af athygli með þróun
þessara mála sem snerta svo mjög hags-
muni þeirra í atvinnu- og byggðamálum.
Ekkert lát er á byggingarframkvæmdum í
Rangárþingi ytra, sérstaklega á frístunda-
húsnæði og íbúðum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá skipulags- og byggingarfulltrúa
voru veitt tæp 200 byggingarleyfi fyrir
ýmsum framkvæmdum á þessu og síðasta
ári, þar af fyrir um 55 frístundahúsum í
dreifbýlinu og 50 fyrir nýjum íbúðum, að-
allega á Hellu. Fyrir atvinnuhúsnæði af
ýmsu tagi, nýbyggingar og viðbyggingar
voru leyfin 36 að tölu, þar af 13 veiðihús og
7 hús til iðnaðarnota. Restin er bíla-
geymslur, gestahús og viðbyggingar og
breytingar á frístunda- og íbúðarhúsnæði.
Þetta er ótrúleg framkvæmdagleði sem
byrjaði fyrir nokkrum árum með við-
gerðum og uppbyggingu eftir Suðurlands-
skjálftana og virðist ekkert lát á nema síður
sé. Uppbygging frístundahúsa er líka á
miklu skriði, aukning hátt í 20% á 2 árum
en þau verða líklega um 340 talsins nú í árs-
lok í sveitarfélaginu.
Úr
bæjarlífinu
HELLA
EFTIR ÓLA MÁ ARONSSON FRÉTTARITARA
Gunnarsstofnun stendur fyrir árlegri Grýlugleði á Skriðuklaustri sunnudaginn4. desember nk. Blönduð dagskrá um Grýlu og hyski hennar hefst kl. 14 ogmun trúbadorinn Svavar Knútur, spila og syngja Grýlulög auk þess sem sagt
verður frá Grýlu, Leppalúða og allri þeirra fjölskyldu. Ekki er ólíklegt að þau hjóna-
kornin komi við enda skammt til Skriðuklausturs frá heimili þeirra í Brandsöxlinni
og lítið orðið af óþekktarormum í Fljótsdalnum til að taka í poka.
Brátt upphefst Grýlugleði
Þórarinn Eldjárn lasævisögu EinarsKárasonar um Jón
Ólafsson og orti:
Höfundur á eftir hetjunni að
skrá
og herma það sannleikans
vinum.
En í Jónsbók þá má vart á milli
sjá
hvor meira lýgur að hinum.
Nóg var að skrifa nafn-
ið sitt til að fá 50 af 100 í
samræmdu stúdentsprófi.
Davíð Hjálmar Haralds-
son yrkir:
Menntun tekur mikið á.
Marga gleður því sú frétt
að stúdentsefni fimm nú fá
fyrir að skrifa nafn sitt rétt.
Stefán Vilhjálmsson út-
skrifaðist árið 1968 og
yrkir:
Verðbólguna ver ei neinn,
vill hún löngum hafa sitt:
fyrrum bara fékk ég einn
fyrir að skrifa nafnið mitt.
Af verðbólgu
pebl@mbl.is
Sólheimar | Íbúar á Sólheimum í Gríms-
nesi fögnuðu fyrsta sunnudegi í aðventu
með því að ganga í aðventugarð og leggja
ljós sitt í þann garð. Þetta er sú hefð sem er
elst í þeirra samfélagi, 75 ára samfelld
hefð. Þessi hefð er einnig haldin með svip-
uðum hætti í mörgum systrasamfélögum
þeirra, víða um heim.
Aðventuhátíðin hefur verið haldin í
íþróttaleikhúsi Sólheima sl. tuttugu ár en í
ár var hátíðin í fyrsta sinn haldin í Sól-
heimakirkju.
Ester Ólafsdóttir organisti sá um undir-
leik á orgel og flygil ásamt Elísu Elías-
ardóttur á fiðlu og Esra Elíasarsyni á selló.
Þóra Marteinsdóttir, Guðmundur Karl
Friðjónsson og Lárus Sigurðsson leiddu
sönginn við athöfnina.
75 ára sam-
felld hefð á
Sólheimum
Jólin koma Helga Dómhildur íbúi á Só-
heimum tendrar ljós í aðventugarðinum.
Árbær | Jólasýning verður í Árbæjarsafni
sunnudaginn 4. og 11. desember kl. 13–17.
Í Árbænum sitja fullorðnir og börn og
skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti
verður spunnið, prjónað, saumaðir roðskór
og jólatré vafið lyngi.
Í Kornhúsinu fá börn og fullorðnir að
föndra, búa til músastiga, jólapoka og sýnt
hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kónga-
kerti. Í Hábæ verður gestum boðið að
bragða á nýsoðnu hangikjöti og í stofunni
er sýndur útskurður. Í Efstabæ er skatan
komin í pottinn og jólahald heldra fólks við
upphaf síðustu aldar er sýnt í Suðurgötu 7
og þar er einnig gullsmiður að störfum. Í
Lækjargötu 4 verður sögustund fyrir börn
og hefst lesturinn kl. 14 og í Listmuna-
horninu verður sýnt þjóðlegt handverk og
Krambúðin verður með ýmsan jólavarning
til sölu.
Dillonshús býður upp á veitingar og kl.
14 verður messa í safnkirkjunni, séra
Kristinn Ágúst Friðfinnsson messar. Jóla-
trésskemmtun verður kl. 15.
Skorið laufa-
brauð og útbú-
in tólgarkerti
♦♦♦
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Aukasýning lau. 10/12
Uppselt í kvöld!