Morgunblaðið - 03.12.2005, Side 32

Morgunblaðið - 03.12.2005, Side 32
32 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Selfoss | Sunnlenskir sveitarstjórn- armenn vilja að ný vinnubrögð verði tekin upp í samgöngumálum. Telja þeir eðlilegt að horft verði til lands- ins í heild og fjármunum beint í þær framkvæmdir sem eru brýnastar hverju sinni. Forgangsraða þurfi framkvæmdum með tilliti til umferð- ar og öryggissjónarmiða. Þetta kom meðal annars fram á aðalfundi Sam- taka sunnlenskra sveitarfélaga sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri 25. og 26. nóvember. Í ályktun fundarins um samgöngu- mál er bent á nauðsyn þess að endur- skoða eða afnema flokkun vega í stofnvegi, tengivegi, safnvegi og landsvegi því umferðarálag hafi auk- ist mikið og sé oft meira á öðrum vegum en stofnvegum en framlög til þeirra séu takmörkuð vegna skil- greiningarinnar. Bent er á að tengi- vegir séu um 1000 km að lengd á Suðurlandi en aðeins 300 km séu með bundnu slitlagi og nauðsynlegt sé að gera átak í uppbyggingu þeirra. Heildarvegakerfi á Suðurlandi er um 3000 km og nærri lætur að 25% allra vega á landinu séu á Suðurlandi. Áhersla Sunnlendinga á vegamál skýrist mjög í ljósi þessa. Breikkun og lýsing á Suðurlandsvegi Aðalafundurinn lagði áherslu á úr- bætur á leiðinni milli Reykjavíkur og Selfoss á næstu 3–4 árum með gerð þriggja akreina vegar með miðju- vegriði og lýsingu. Framkvæmdir miðist við að hægt verði að bæta fjórðu akreininni við. Fundurinn tel- ur að vegna mikils álags sé þörf á fjórum akreinum af öryggisástæðum á hluta vegarins. Þá telur fundurinn mjög brýnt að byggð verði ný brú á Ölfusá ofan við Selfoss á næstu 12 ár- um. Fundurinn tók fyrir samgöngur til Vestmannaeyja og lögð er áhersla á að gera úrbætur í þeim nú þegar, sérstaklega þurfi að styrkja flug- samgöngur. Þá var bent á nauðsyn þess að rannsaka möguleika og hag- kvæmni jarðganga til Eyja og á ferjuhöfn í Bakkafjöru. Önnur helstu verkefni í samgöngumálum sem fundurinn benti á voru brú yfir Hvítá og Bræðratunguvegur, Gjábakka- vegur, Suðurstrandarvegur, jarð- göng í gegnum Reynisfjall, Hálend- isvegir og ferðamannaleiðir, Kjalvegur, stórskipahöfn í Þorláks- höfn og fjarskiptamál og nauðsyn þess að byggja upp öruggt far- símakerfi. Áhugi fyrir stóriðju Vaxandi áhugi er fyrir stóriðj- umöguleikum á Suðurlandi og vildi aðalfundurinn útvíkka starfssvið stóriðjunefndar á vegum SASS og hún hafi það hlutverk að vekja at- hygli fjárfesta á Suðurlandi sem vænlegum kosti fyrir hvers konar at- vinnustarfsemi. Er og hvatt til þess að haldin verði ráðstefna um orku- frekan iðnað og möguleika Suður- lands á þeim vettvangi. Fundurinn fagnaði vaxtarsamn- ingi fyrir Suðurland en saknar þess sérstaklega að ekki sé kveðið á um styrkingu landshlutakjarna á Suður- landi og telur fundurinn mikilvægt að jaðasvæði Suðurlands verði styrkt. Þá er bent á mikilvægi há- skólanáms og rannsókna fyrir at- vinnulífið á Suðurlandi. Treysta þarf háskólanám Aðalfundurinn vill treysta há- skólanám enn frekar í sessi á Suður- landi og vill veita fé frá Atvinnuþró- unarsjóði Suðurlands í því efni til að treysta undirstöður háskólanáms og er skorað á ríkið að koma mynd- arlega á móti sveitarfélögunum í þessu efni enda málaflokkurinn á hendi ríkisins. Aðalfundurinn krefst þess að fjárframlög til símennt- unarmiðstöðva verði sambærileg hvar sem er á landinu. Ljóst þykir að sú aukning sem er á háskólanámi í sí- menntunarmiðstöðvum án þess að tekjur komi á móti muni hindra þær í að sinna því hlutverki sem þeim var ætlað á sviði símenntunar. Á fundinum var fest í sessi kostn- aðarskipting varðandi rekstur sér- deildar Gaulverjabæjarskóla. Ríkið greiðir 40%, sveitarfélög sem njóta þjónustunnar greiða 55% og jöfn hlutdeild allra sveitarfélaganna verði 5%. Tillaga um þetta var samþykkt með 22 atkvæðum gegn 17. Sveitarstjórnarmenn vara við því að kostnaður sveitarfélaga muni aukast vegna fyrirhugaðrar stytt- ingar náms til stúdentsprófs. Lýst er vonbrigðum með að þetta sé ákveðið án nægjanlegs samráðs við sveit- arfélögin í landinu. Á sviði menningarmála eru fyr- irliggjandi drög að samstarfssamn- ingi ríkis og sveitarfélaga fyrir Suð- urland og samþykkti fundurinn að skora á menntamálaráðherra að beita sér fyriri því að gengið verði til samninga á grundvelli þessara draga. Starfshópur um heilbrigðismál Á fundinum var skipaður velferð- armálahópur 3–5 sveitarstjórn- armanna af Suðurlandi. Verkefni hans á að vera að styðja við heil- brigðisstofnanir á starfssvæði SASS og fylgja eftir þeirra stefnumörkun. Hópurinn á einnig að kanna mögu- leika þess að sveitarfélögin taki við rekstri heilbrigðis- og öldrunarstofn- ana í fjórðungnum og horfi jafnframt til málefna fatlaðra. Starfshópnum er ætlað að taka upp viðræður við yf- irvöld heilbrigðis- og félagsmála í þessu skyni. Einnig verði skoðaðir möguleikar á aukinni samvinnu Heil- brigðisstofnunarinnar í Vest- mannaeyjum og Heilbrigðisstofn- Áhersla er lögð á samgöngu-, mennta- og heilbrigðismál í ályktunum aðalfundar Sambands sunnlenskra Vilja ný vinnu- brögð í sam- göngumálum Fundað Sveitarstjórnarmenn af Suðurlandi fjölmenntu á aðalfund SASS sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri. Eftir Sigurð Jónsson Grímsnes | Nýr skóli, Ljósaborg, ásamt sambyggðu stjórnsýsluhúsi var formlega tekinn í notkun í gær. Framkvæmdir eru hafnar við bygg- ingu íþróttahúss og sundlaugar á staðnum og verið er að úthluta lóðum fyrir tæplega 30 íbúðir. Grímsnes- og Grafningshreppur hætti skólahaldi í Ljósafossskóla síð- astliðið vor og hefur skólahúsið nú verið selt. Jafnframt var ákveðið að breyta fyrirkomulagi skólahalds og tekin upp nánari samvinna við ná- grannasveitarfélagið Bláskógabyggð um það. Nemendur úr þremur efstu árgöngum grunnskóla sækja nú nám í Reykholtsskóla í Biskupstungum enda segir Gunnar Þorgeirsson, odd- viti Grímsnes- og Grafningshrepps, að þau eigi þar meira val en ef þeim væri kennt heima fyrir. Fasteign hf. á húsnæðið Byggt var nýtt skólahúsnæði á Borg fyrir fyrsta til sjöunda bekk en 35 börn eru á þeim aldri í sveitarfé- laginu. Samið var við Eignarhalds- félagið Fasteign um að byggja og reka húsnæðið, ásamt stjórnsýslu- húsi, og leigja til sveitarfélagsins. Framkvæmdir hófust fyrir nákvæm- lega ári. Skólastarf hófst á tilsettum tíma í haust og nú hefur skrifstofu- húsnæðið einnig verið afhent sveitar- félaginu. Félagsheimilið Borg er einnig nýtt, þar er rekið mötuneyti skólans. Skólinn hefur hlotið nafni Ljósa- borg. Við athöfnina í gær var sagt frá byggingarframkvæmdum og fulltrú- ar Fasteignar afhentu fulltrúum sveitarfélagsins og skólans bygging- arnar. Þegar börnin úr skólanum kveiktu á ljósum jólatrésins við Borg og sungu jólalög var það til marks um að skóli og stjórnsýsluhús væru formlega tekin í notkun. „Þetta er mjög fín aðstaða,“ sagði Gunnar. Hann segir að foreldrar barnanna hafi komið að undirbúningi hönnunar húsnæðisins. Nefnir hann að hugsað sé fyrir því að félög í sveit- arfélaginu geti notað handa- vinnustofur án þess að fara um ann- að skólahúsnæði. Gunnar segir að mjög þröngt hafi verið um starfsfólk hreppsins sem hafði vinnuaðstöðu í félagsheimilinu Borg. Nú hafi verið útbúin góð að- staða fyrir rekstur sveitarfélagsins miðað við núverandi umsvif þess. Kostnaður við byggingu mann- virkjanna er áætlaður rúmar 150 milljónir kr. og hreppurinn greiðir Fasteign hf. um eina milljón á mán- uði í leigu fyrir húsnæðið. Leigu- samningurinn er til langs tíma en Gunnar segir að sveitarfélagið hafi kauprétt á fimm ára fresti og sé horft til þess að nýta hann. Segir hann að hreppurinn hafi ekki tæknideild og með því að semja við sérhæft fyr- irtæki á þessu sviði hafi sveitar- stjórnin getað haldið sveitarstjór- anum í sínum hefðbundnu verkum en ekki þurft að fórna honum í að stjórna þessari miklu framkvæmd. Styður hvað annað Samið hefur verið við Fasteign um að byggja sundlaug og íþróttahús á Borg. Framkvæmdir eru hafnar og segir Gunnar að sundlaugin verði af- hent næsta sumar og íþróttahúsið næsta haust. Þessi mikla uppbygging á Borg hefur orðið til þess að eftirspurn eftir lóðum hefur vaxið. Skipulagt var nýtt byggingasvæði og auglýstar lóð- ir fyrir tæplega þrjátíu íbúðir. Gunn- ar segir að þær séu flestar fráteknar og framkvæmdir hafnar við fyrstu íbúðirnar. „Þetta styrkir hvað annað. Um leið og ákveðið var að flytja skól- ann á Borg gjörbreyttist afstaða fólks til að byggja hér. Fólk vill greinilega hafa stutt í alla þjónustu, þótt það búi í dreifbýli,“ segir Gunn- ar. Ljósafossskóli hefur verið seldur Auðsölum ehf. ásamt þremur íbúðar- húsum og íþróttahúsi. Gunnar segir að söluverðið sé um 90 milljónir kr. en eftir sé að ganga frá uppgjöri við ríkið sem eigi hlut í þessum eignum. Sömu aðilar hafa áður keypt Ljósa- fosslaug af hreppnum. Hyggja þeir að nýjum rekstri í þessum hús- eignum, að sögn Gunnars. Grunnskólinn Ljósaborg og stjórnsýsluhús í notkun á Borg og íþróttahús og sundlaug í byggingu Lóðum undir 30 íbúðir úthlutað Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Nýr skóli Fjöldi gesta var viðstaddur þegar Ljósaborg, hinn nýi skóli Grímsnes- og Grafningshrepps var tekinn í notkun í gær, ásamt stjórnsýsluhúsi. Nemendur tóku lagið fyrir gesti. Við sama tækifæri var kveikt á útijólatré. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is ÁRBORGARSVÆÐIÐ LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.