Morgunblaðið - 03.12.2005, Qupperneq 34
daglegtlíf
ídesember
FRÖNSK
SVEITASÆLA
LEIGIR
ÚT HÚS
Í RIBERAC
JÓLAFÖTIN
HENNAR ÁSTU
„VIÐ höldum í fyrsta sinn jól
heima hjá okkur núna og erum því
að skapa nýjar jólahefðir í
tengslum við það,“ segir Hafdís
Hrund Gísladóttir iðnhönnuður
sem bjó til einstakan aðventukrans
úr járni, sem verður partur af
þeirra jólum hér eftir. „Ég sauð
þetta saman í Iðnskólanum þar
sem ég er í nokkrum kúrsum á
málmiðnaðarbraut til að safna í
sarpinn eins og iðnhönnuði sæmir.
Karfan er hugsuð þannig að ég
fylli hana af allskonar jólaskrauti
og get alltaf sett nýtt skraut á
hverjum jólum, svo kransinn end-
urnýjast á vissan hátt.“
Hafdís og maður hennar Pétur
Björnsson halda þessi fyrstu jól
heima hjá sér með sex ára syni
sínum Úlfi, en ætla auk þess að
bjóða mömmu Hafdísar og hennar
sambýlismanni að vera með sér á
aðfangadagskvöld.
„En okkur finnst jólin eiginlega
ekki byrja fyrr en á árlegum jóla-
tónleikum Karlakórs Reykjavíkur í
Hallgrímskirkju, en Pétur er með-
limur í kórnum. Þetta er alltaf svo
hátíðleg stund og eiginlega má
segja að Pétur syngi inn jólin fyrir
okkur ásamt félögum sínum í
kórnum.“
Morgunblaðið/Sverrir
Hafdís Hrund Gísladóttir iðnhönnuður kveikir á aðventukransinum sem hún bjó til úr járni.
Krans úr
járni mark-
ar ný jól
JÓLAHEFÐIR
Á JÓLUM í gamla daga var ým-
islegt öðruvísi en nú er á öndverðri
tuttugustu og fyrstu öldinni. Þá
voru aðstæður fólks allt aðrar, pen-
ingaráð minni og híbýlin fátæk-
legri. Eitt af því sem boðaði komu
jólanna var ilmur af nýbökuðum
kökum og öðru góðgæti. Randalín
og kleinur sáust til dæmis þá á
borðum, ólíkt því sem gerðist
hversdags. Úr Dillonshúsi í Árbæj-
arsafni bárust uppskriftir af þessu
sígilda gómsæti, en þar verður á
morgun hin árlega jólasýning
safnsins, þar sem gestir og gang-
andi geta rölt á milli húsanna og
fylgst með undirbúningi jólanna
eins og hann var í gamla daga.
Gestir fá líka að taka þátt, skera út
laufabrauð og föndra. Sýnt verður
hvernig fólk bjó til tólgarkerti og
kóngakerti í gamla daga. Hangi-
kjötið verður komið í pottinn og
gestum boðið að bragða á nýsoðnu
keti og sögustund verður fyrir
börnin. Dillonshús býður upp á
ljúffengar veitingar, heitt súkku-
laði og jólalegt meðlæti. Messa
verður í safnkirkjunni og hin
ómissandi jólatrésskemmtun verð-
ur á sínum stað með gömlu góðu
jólasveinunum.
Randalín
1 b. smjör
1 b. sykur
2 egg, þeytt
1 tsk. vanilla
¼ b. mjólk
1 ½ tsk. lyftiduft
4 b. hveiti
Fylling
1 kg sveskjur
1 bolli sykur
1 tsk. vanilla
½ tsk. möluð kardimommufræ
½ bolli sveskjusafi
Smjör og sykur hrært saman.
Eggjum og vanillu bætt við, síðan
mjólk, hveiti og lyftidufti. Skipt í 4
jafna hluta og hver flattur út á ofn-
plötu. Bakað við 130 gráður þar til
þær hafa náð fallegum lit.
Fylling: Sjóðið sveskjur í vatni
þar til þær eru mjúkar. Hreinsið
burt steinana og maukið. Bætið við
sykri, kardimommum og sveskju-
safa og sjóðið. Smyrjið milli laga.
Kleinur
1 kg hveiti
250 g smjörlíki
6 tsk. lyftiduft
2 egg
½ l súrmjólk
1 tsk. kardimommur
Hrærið og hnoðið saman í sam-
fellt deig. Breiðið út og skerið í af-
langa tígla með kleinujárni. Skerið
rifu í miðju hvers tíguls, takið upp
og stingið öðrum endanum í gegn-
um rifuna svo komi snúður á klein-
una. Steikið í heitri feiti.
RANDALÍN
Gamla góða bakkelsið í Árbæjarsafni
Morgunblaðið/Þorkell
Ungir sem aldnir skera út laufabrauð á Árbæjarsafni.
Hátíðin í Árbæjarsafni hefst kl.
13 og lýkur kl. 17.
JÓLASTJÖRNUR geta verið of-
næmisvaldar og valdið ofnæm-
isviðbrögðum og óþægindum.
„Jólastjarnan er eitruð,“ segir Guð-
rún Helgadóttir garðyrkjutæknir
hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.
„Hún inniheldur eitruð efni án þess
að vera baneitruð og þau geta vald-
ið ofnæmi. Það er oft talað um að
vera ekki með jólastjörnur nálægt
börnum, sérstaklega ekki þar sem
lítil börn eru þannig að þau nái ekki
til að narta í hana og verða fyrir
óþægindum.“
Jólastjarna inniheldur mjólk-
ursafa og það er mjólkursafinn í
stönglinum, sem er eitraður. Guð-
rún segist ekki vita til að börn narti
mikið í blóm en samt sem áður sé
gott að hafa varann á og vera ekki
með þær nálægt börnum. „Ég hef
líka heyrt af stórum vinnustöðum,
sérstaklega bönkum, þar sem um-
ferð fólks er mikil að það er hætt að
skreyta með jólastjörnum af tillits-
semi við viðskiptavinina sem hugs-
anlega eru með ofnæmi,“ segir hún.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólastjörnur
geta valdið
ofnæmi
AÐVENTA
DÁLEIÐSLA getur linað þrautir
þeirra sem þjást af óþægindum í
maga og þörmum, að því er ný
sænsk rannsókn bendir til. Í Göte-
borgs Posten kemur fram að rann-
sókn á 150 sjúklingum við Sahl-
grenska sjúkrahúsið í Gautaborg
sýndi að dáleiðsla hafði jákvæð
áhrif á a.m.k. tvo þriðju sjúkling-
anna. Nýja rannsóknin fór þannig
fram að sjúklingarnir voru dáleidd-
ir einu sinni í viku í tólf vikur. Jafn-
vel stendur til að opna sérstaka dá-
leiðslumóttöku á Sahlgrenska og að
dáleiðsla verði sjálfsagður hluti
meðferðar magasjúklinga. Hægða-
tregða, niðurgangur, verkir eða
óþægindi í maga og svefntruflanir
geta verið einkenni ristilsjúkdóms
sem kallaður er IBS. Margir þjást
af honum í einhverri mynd, að því
er fram kemur í GP. Fyrri rann-
sóknir hafa gefið til kynna að sál-
ræn meðferð geti gagnast mörgum
sem þjást af þessum óþægindum í
meltingarfærum.
HEILSA
Dáleiðsla
við maga-
pínunni