Morgunblaðið - 03.12.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 37
Ég fékk hugmyndina aðLúlla eftir að hafafylgst með krökkunummínum liggja í allavega
stellingum hvort sem var við sjón-
varpið eða tölvu,“ segir Elínborg
Jónsdóttir sem hefur hannað
púða sem hugsaður var í byrjun
fyrir unglinga að hnoðast á, t.d.
þegar legið var uppi í rúmi og
horft á sjónvarpið. „Þau kannski
lágu uppi í rúmi og voru einhvern
veginn búin að hnoða undir sig
sængina eða með höfuðið upp að
veggnum og sátu svo eiginlega
eins og bananar. Ég fór að reyna
að hugsa upp eitthvað sem gæti
notast þeim við þessa iðju. Eftir
nokkrar pælingar varð Lúlli svo
til.“
Upphaflega hugsunin var að
púðinn gæfi stuðning við bakið og
krakkarnir gætu lagt púðann upp
að vegg og hann verið nokkurs
konar höfðagafl. Hugmyndin hef-
ur undið upp á sig og nú er Lúlli
notaður til ýmissa hluta, jafnvel
til að styðja við bakið á konum á
meðan þær gefa brjóst. „Þetta
var eiginlega bara svona slysa-
hönnun,“ segir Elínborg. „Þetta
reyndist koma vel út t.d. fyrir
konur sem eru með börn á
brjósti.“
Lúlli er ekkert endilega bara
púði. Fyrir litla krakka, 2–5 ára,
getur komið vel út að sitja í hon-
um eins og litlum lúxussófa. Það
er ekki ónýtt fyrir ungviðið að
sitja í mýktinni og hlusta t.d. á
góða sögu. Í raun er hægt að
segja að notkunin á Lúlla sé bara
bundin við ímyndunaraflið.
Lúlli er búinn til úr frauðkúlum
sem laga sig að líkamanum. Utan
um hann er ver og þar utan yfir
áklæði sem búið er til úr slit-
sterku efni og hægt er að taka
það utan af og þvo.
Elínborg er lærður bólstrari og
er með verkstæði í bílskúrnum
heima. 11 ára gamall sonur henn-
ar, Hlynur Snær, stakk upp á
nafninu Lúlli á framleiðsluna og
það var vel viðeigandi.
IÐNHÖNNUN | Púðar til að hnoðast á
Gott að lúlla á Lúlla
Morgunblaðið/ÞÖK
Hlynur Snær Hilmarsson nefndi púðann Lúlla.
sia@mbl.is
DAGLEGT LÍF
Fáðu úrslitin
send í símann þinn